Fréttablaðið - 31.08.2008, Qupperneq 48
10 FERÐALÖG
L
uang Prabang er einn af þeim stöðum
þar sem maður verður fyrir óútskýr-
anlegum töfrum enda búið að skrá
hann á heimsminjaskrá UNESCO.
Laos er umkringt máttugum nágrönnum;
Taílandi, Víetnam, Kína og Kambódíu. Laos-
búar eru ljúft fólk sem tekur lífinu með ró,
svo mikilli að sumum finnst nóg um. Þetta
fátæka land hefur upp á margt að bjóða,
stærsti hluti landsins er ósnert náttúra með
fjölbreyttu dýralífi en einn fjórði landsins er
frumskógur. Laos er í auknum mæli að verða
vinsæll ferðamannastaður. Stærsti hluti
landsmanna býr enn í þorpum og lifir ein-
földu lífi. Áhugavert er fyrir ferðamenn að
eyða nokkrum dögum með heimamönnum í
þorpunum. Luang Prabang, sem var áður
höfuðborg konugsveldis Laos, er vinsælasti
ferðamannastaður landsins. Hann er umluk-
inn fjöllum og hæðum og bæði í gegnum og
kringum bæinn renna ár, og einhvers konar
stóisk ró virðist svífa yfir vötnum.
Búddatrúin spilar stóran þátt í bæjarlífinu.
ÁHUGAVERÐIR STAÐIR
Það er gaman að skoða konungshöllina sem
er safn í dag því að konungsættin var send í
útlegð 1975 í Norður-Laos og síðan hefur
ekkert til hennar spurst. Nauðsynlegt er með
jöfnu millibili að setjast niður á einn af mörg-
um veitingastöðum bæjarins eða kaffihús og
fá sér hressingu. Frönsk áhrif eru sterk í
matar gerðinni og því mikið af gómsætu
bakkelsi sem erfitt er að standast. Frönsku
áhrifin blandast við suðaustur-asískar mat-
arhefðir sem byggja á miklu kryddi, fersk-
um ávöxtum og grænmeti, hrísgrjónum,
kjöti og fiski.
LÍFSINS LYSTISEMDIR
Það er með eindæmum ljúft að rölta aðal-
götuna í ljósaskiptunum og finna hvernig
mjúkt myrkrið læðist yfir bæinn og kveikt
er á fallegum götuljósunum. Það eina sem
maður þarf að hafa áhyggjur af er hvaða
veitingastað skal velja. Eftir að hafa borðað
það sem hugurinn girnist er ekki verra að
kíkja á einhvern af mörgum börum bæjar-
ins.
LISTRÆNIR ÍBÚAR
Það kom jafnframt á óvart hversu mikil list
og handverk eru í Luang Prabang. Það er
verið að þurrka handgerðan pappír við annað
hvert hús sem búið er að skreyta með þurrk-
uðum blómum úr héraðinu. Þá er ótrúlega
mikið af galleríum og litlum búðum sem selja
virkilega flotta muni. Mikið er af vefnaðar-
vöru ýmiss konar úr silki og bómull. Silfur-
munir voru einnig víða til sölu sem og
einstaklega fallegir hlutir gerðir úr íbenviði.
Það er því óhætt að segja að heimamenn og
fólkið í nágrenninu eru mjög færir listamenn.
Eins og aðrir íbúar Suðaustur-Asíu leggja
þeir mikið upp úr að huga vel að heilsunni og
eru nuddstofur og heilsulindir víða um
bæinn. Það er því ekki amalegt að skella sér í
nokkurra stunda dekur og líða eins og endur-
fæddum á eftir. Þetta er staður til þess að
njóta. Njóta og slaka vel á í dásamlegu
umhverfi. Þeir sem heimsækja Luang Pra-
bang eiga í vændum afskaplega ljúfar stundir
sem seint gleymast.
LUANG PRABANG
EINN AF GLITRANDI GIM-
STEINUM AUSTURSINS
Kolbrún Ólafsdóttir skrifar frá Laos
Einhvers konar stóísk ró hvílir yfir borginni Luang Prabang í Laos.
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
*
Pakkaðu ekki of miklu í töskuna áður
en þú ferð til Boston. Hún er borgin
þar sem þú gerir hagstæðustu
innkaupin í haust.
*Flug aðra leiðina með sköttum. Verð gildir frá 15. ágúst 2008.
Safnaðu
Vildarpunktum
Punktarnir upp í Ferðaávísun gildir
Boston er spennandi áfangastaður á
haustin. Verslanir við Newbury Street eru
fullar af nýjum vörum, mannlífið heillandi,
söfnin frábær og kvöldin yndisleg inni á
hlýlegum veitingastöðum frá öllum
heimshornum. Láttu sjá þig í Boston.
M
A
D
R
ID
B
A
R
C
E
LO
N
A
PARÍS
LONDO
N
MANCHESTER
GLASGOW
MÍLANÓ
AMSTERDAM
MÜNCHEN
FRANKFURT
BERLÍN
KAUPMANNAHÖFN
BERGEN
GAUTABORG
OSLÓ
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
HA
LI
FA
X
BO
ST
ON
OR
LAN
DO
MINN
EAPOL
IS – ST. P
AUL
TOR
ONT
O
NE
W
YO
RK
REYKJAVÍK
AKUREYRI ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
34
75
0
8
2
0
0
8