Fréttablaðið - 01.09.2008, Qupperneq 40
24 1. september 2008 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Kópavogsvöllur, áhorf.: 1.073
HK Þróttur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 10-11 (7-4)
Varin skot Gunnleifur 4 – Bjarki Freyr 2
Horn 3-8
Aukaspyrnur fengnar 10-10
Rangstöður 2-1
ÞRÓTTUR 4–3–3
Bjarki F. Guðmunds. 4
Eysteinn Lárusson 5
Dennis Danry 6
Michael Jackson 5
Kristján Ó. Björnsson 6
Magnús M. Lúðvíks. 5
(72. Birkir Pálsson -)
Þórður Hreiðarsson 4
(56. Jesper Sneholm 6)
(81. Carlos Bernal -)
Hallur Hallsson 6
Andrés Vilhjálmsson 5
Hjörtur Hjartarson 4
Sigmundur Kristjáns. 6
*Maður leiksins
HK 4-5-1
Gunnleifur Gunnleifs. 7
Finnbogi Llorens -
(19. Damir Mumin. 7)
Ásgrímur Albertsson 7
Erdzan Beciri 8
Hörður Árnason 7
Hörður Magnússon 8
Almir Cosic 7
(33. Rúnar Sigurj. 7)
*Sinisa Kekic 8
(70. Hörður M. Mag. 6)
Finnur Ólafsson 7
Aaron Palomares 7
Iddi Alkhag 6
1-0 Almir Cosic (4.), 2-0 Hörður
Magnús. (53.), 3-0 Rúnar Sigurjóns.
(70.), 4-0 Aaron Palomares (90.).
4-0
Einar Örn Daníels. (6)
KEFLAVÍK 3-0 GRINDAVÍK
1-0 Jóhann Guðmundsson (65.)
2-0 Guðmundur Steinarsson (83.),
3-0 Magnús Þorsteinsson (90.).
Sparisjóðsvöllurinn, áhorf.: 1.767
Kristinn Jakobsson (8)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 13-5 (5-1)
Varin skot Ómar 1 – Zankarlo 2
Horn 3-2
Aukaspyrnur fengnar 6-7
Rangstöður 0-2
Keflavík 4-4-2 Ómar Jóhannsson 6 - Guðjón Á.
Antoníusson 7, Kenneth Gustafsson 7, *Hallgrímur
Jónasson 8, Brynjar Guðmunds. 6, Hörður Sveins-
son 5 (58., Jón G. Eysteins. 6), Hólmar Örn Rúnars-
son 7, Símun Samuelsen 6 (86. Hans Mathiesen -),
Patrick Ted Redo 4, Jóhann B. Guðmunds. 6 (73.,
Magnús Þorsteinsson -), Guðmundur Steinarsson 7.
Grindavík 4–5–1 Zankarlo Simunic 6 - Bogi
Rafn Einarsson 4, Zoran Stamenic 8, Eysteinn Húni
Hauksson 6, Jósef Jósefsson 4, Scott Ramsay 3 (71.,
Aljosa Gluhovic -), Orri Freyr Hjaltalín 7, Jóhann
Helgason 6, Gilles Mbang Ondo 3 (61., Andri Steinn
Birgisson 5), Marinko Skaricic 4 (80., Emil Símonars.
- ), Tomasz Stolpa 5.
VALUR 0-1 ÍA
0-1 Arnar Gunnlaugsson (3.)
Vodafonevöllurinn, áhorf.: 960
Þorvaldur Árnason (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9-7 (5-5)
Varin skot Kjartan 4 – Trausti 5
Horn 12-3
Aukaspyrnur fengnar 13-15
Rangstöður 2-0
Valur 4-4-2 Kjartan Sturl. 5 - Rasmus Hansen 7
(46., Hafþór Vilhj. 5), Barry Smith 7, Atli Sv. 4,Rene
Carlsen 6, Baldur Aðalsteins. 4, Baldur Bett 5 (84.,
Guðm. Hafsteins. -), Bjarni Eiríks. 4, Sigurbj. Hreið.
6, Guðm. Ben. 6 (67., Albert I. 6), Helgi Sigurðs. 6.
ÍA 4–4-3 Trausti Sigurbjörns. 8 - Árni Thor Guðm.
8, Heimir Einars. 8, Helgi P. Magnús. 8, *Kári
Steinn Reynis. 8, Pálmi Haralds. 7, Þórður Guð-
jóns. 5 (64., Aron Péturs. 6), Jón Vilhelm Á. 6, Bjarki
Gunnlaugs. 7 (Guðm. B. Guðj. 7), Arnar Gunnlaugs.
7 (73., Guðjón Sveinsson -), Björn Bergmann
Sigurðarson 7.
Flaga Group hf.
Hluthafafundur 8. september 2008
Hluthafafundur í Flaga Group hf. verður haldinn mánudaginn
8. september 2008 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut
2, Reykjavík og hefst fundurinn kl. 8:00 árdegis.
Dagskrá:
1. Kynning á starfsemi félagsins.
2. Tillaga stjórnar um breytingar á 2. gr. samþykkta:
a. Tillaga um endurnýjun á heimild stjórnar til hækkunar
hlutafjár með útgáfu nýs hlutafjár um allt að 80.000.000
króna að nafnverði til að efna kaupréttarsamninga við
starfsmenn félagsins og dótturfélaga sem og annarra
sem starfa í tengslum við félagið. Forgangsréttur hluthafa
að aukningunni fellur niður.
Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu
félagsins hluthöfum til sýnis frá og með mánudeginum
1. september. Enn fremur verður hægt að nálgast þær á vefsíðu
félagsins www.flagagroup.com frá sama tíma.
Fundargögn verða afhent á fundarstað að
Hilton Reykjavík Nordica.
Reykjavík 1. september 2008
Stjórn Flaga Group hf.
1. Keflavík 18 12 4 2 46-24 40
2. FH 17 11 2 4 38-19 35
3. Valur 18 10 2 6 31-22 32
4. Fram 18 10 1 7 23-15 31
5. KR 18 9 2 7 30-20 29
6. Breiðablik 17 7 6 4 34-25 27
7. Grindavík 18 7 3 8 24-32 24
8. Fjölnir 18 7 1 10 29-30 22
9. Þróttur 18 4 7 7 22-37 19
10. Fylkir 18 4 4 10 18-32 16
11. HK 18 4 3 11 22-39 15
12. ÍA 18 2 5 11 16-38 11
STAÐAN
FÓTBOLTI Keflavík náði
fimm stiga forystu á
toppi Landsbanka-
deildar karla með því
að leggja Grindavík,
3-0, á heimavelli
sínum.
Grindvíkingar
voru komnir til
Keflavíkur til
að verja stigið
og sýndi
Keflavík
mikla þolin-
mæði sem
skilaði að
lokum sigrin-
um.
„Það skipti
miklu máli að ná inn markinu til
að losa þá aðeins úr sínum
varnar pakka. Við náðum ekki að
hreyfa boltann nógu hratt í fyrri
hálfleik og komumst ekki nógu
oft upp í hornin en það tókst
aðeins betur í seinni hálfleik og
það var flott að við náðum að
skora eftir innkast,“ sagði
Kristján Guðmundsson, þjálf-
ari Keflavíkur.
„Mér fannst við vera
mjög þolinmóðir og ein-
beittir að ná markmiðum okkar í
þessum leik. Með aukinni einbeit-
ingu inni á vellinum kemur þessi
þolinmæði. Leikmenn eru mun
einbeittari að ná því markmiði,
sem hver og einn og liðið í heild
hefur, en áður.“
Keflvíkingar hafa forðast allt
tal um titilbaráttu eins og heitan
eldinn en lið á toppnum þegar fjór-
ar umferðir eru eftir getur það
ekki lengur.
„Við endurskoðun markmiðin
núna í þessari viku. Við erum með
nokkur markmið og það hefur tek-
ist ágætlega að ná þeim í síðustu
átta leikjum. Nú skoðum við stöð-
una eftir þessa umferð,“ sagði
Kristján í leikslok. - gmi
Keflavík hélt sínu striki í Landsbankadeildinni með sigri gegn Grindavík í gær:
Þolinmæðin skilaði stigum
SÁTTUR Kristján
Guðmundsson var
ánægður með sína
menn í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI „Þetta er alveg grátlegt.
Það er eins og töfluröðin taki
okkur alveg úr sambandi. Skaga-
menn komu hingað til að spila
fyrir stoltið í dag og börðust meira
og uppskáru eftir því,“ sagði Will-
um Þór Þórsson, þjálfari Vals,
eftir að liðið tapaði fyrir ÍA á
heimavelli sínum í gær.
Valsmenn hafa þrívegis í sumar
tapað fyrir neðsta liði deildar innar
og aðeins fengið eitt stig úr viður-
eignum sínum gegn HK og ÍA.
Hlíðarendapiltar náðu sér ekki á
strik í gær og var fyrri hálfleikur-
inn sérstaklega slakur.
„Þetta skánaði í seinni hálfleik
og við vorum staðráðnir í því að
berjast. Við unnum fleiri návígi og
þá fengum við færi sem við nýtt-
um þó ekki,“ sagði Willum.
Skagamenn höfðu yfirhöndina í
fyrri hálfleik og komust yfir strax
á þriðju mínútu þegar Arnar
Gunnlaugsson sýndi hvað hann
kann og skoraði frábært mark.
Hann og Bjarki fengu sitt dauða-
færið hvor fyrir hálfleik til að
koma ÍA í tveggja marka forystu
en það tókst ekki.
Valsmenn voru ekki með í fyrri
hálfleiknum og ógnuðu marki ÍA
ekki af neinu viti. Þeir léku mun
betur í seinni hálfleiknum og vildu
í tvígang fá vítaspyrnu en
Þorvaldur Árnason dæmdi ekkert
við mikla gremju Valsmanna.
Hornspyrnur Vals voru stór-
hættulegar í seinni hálfleik en
ekki fundu þeir leið framhjá
Trausta Sigurbjörnssyni sem átti
mjög góðan leik í marki ÍA. Fyrir
framan Trausta léku varnarmenn-
irnir fjórir allir vel en það hefur
ekki gerst oft í sumar.
Von Skagamanna um að bjarga
sér frá falli er enn til staðar þótt
veik sé. Fimm stig eru upp úr fall-
sæti fyrir þá gulu.
„Já, reiknimeistararnir verða
að segja til um það. Þetta kemur
allt í ljós,“ sagði Kári Steinn
Reynis son, sem átti frábæran leik
í bakverðinum.
„Það vantaði púður í þá og þeir
ógnuðu lítið. Við áttum að vera
búnir að gera út um þetta í fyrri
hálfleik þegar við fengum dauða-
færi til að bæta við. Þeir pressuðu
nokkuð mikið í síðari hluta seinni
hálfleiks,“ sagði Kári.
Varðandi framhaldið sagði Kári
að það þyrfti bara að taka einn leik
fyrir í einu.
„Þetta er ekkert endilega í okkar
höndum svo við verðum bara að
hugsa um að klára okkar leiki og
sjá hverju það skilar,“ sagði Kári
Steinn að lokum.
- egm
Botnliðin leika Valsmenn grátt
Botnlið Skagamanna gerði sér lítið fyrir og lagði Íslandsmeistara Vals að velli í gærkvöldi. Valsmenn hafa
aðeins náð í eitt stig úr fjórum leikjum gegn botnliðunum ÍA og HK og eru nú átta stigum frá toppsætinu.
HK vann í gær sannfærandi 4-0 sigur á Þrótti og þar
með sinn þriðja sigur í röð. Liðið hefur fengið tvöfalt
fleiri stig í síðustu fjórum leikjum liðsins en í öllum
hinum fjórtán leikjum sumarsins. Fyrir vikið er liðið
nú aðeins einu stigi frá Fylki, sem er í tíunda sæti
deildarinnar.
Almir Cosic skoraði fyrsta mark HK í fyrri hálfleik
en þeir Hörður Magnússon, Rúnar Már Sigur-
jónsson og Aaron Palomares bættu við þremur
í þeim síðari.
„Seinni hálfleikurinn var betri en sá fyrri,“ sagði
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari HK. „Við vorum
svolítið langt á eftir mönnunum okkar en náðum
samt að fá nokkur ágæt færi. En í heildina er ég
hrikalega ánægður með leikinn.“
Kollegi hans, Gunnar Oddsson, þjálfari Þróttar,
var vitanlega ekki eins sáttur.
„Það var ömurlegt að horfa upp á þetta.
Við vorum gjörsamlega teknir í bakaríið af
spræku liði HK og vorum engan veginn klárir í bardagann. Við
vorum búnir að fara vel yfir síðasta leik og æfðum grimmt í vik-
unni og tónninn var fínn fyrir.“
HK-ingar hafa nú komið fjölmörgum sparkspekingum á óvart enda
voru margir búnir að afskrifa þá. Rúnar Páll var þó ekki einn þeirra.
„Ég sá þetta fyrir enda veit ég allt um getu liðsins. Við höfum
aldrei misst trúna á okkur og það hefur fleytt okkur langt. Liðsheild-
in og samstaðan er einnig mjög góð og það er að skila sér.“
„Ég þarf ekkert að pæla í hvað aðrir segja enda höfum við
aðeins verið að einbeita okkur að okkar eigin markmiðum. Ef
við höldum áfram að safna stigum þá munum við ná þeim
og halda okkur í deildinni.“
Þróttarar eru nú átta stigum á undan botnliði ÍA og fjórum á
undan HK. Þeir eru því ekki hólpnir og telur Gunnar að liðið
þurfi meira en einn sigur til að bjarga sér.
„Ég hef áhyggjur af því að við skulum ekki ná að rífa okkur
úr þessum pakka. Einn sigur í viðbót mun ekki duga. En við
eigum ÍA næst og við þurfum að nota þær tvær vikur sem eru
í leikinn vel og vandlega.“ - esá
LANDSBANKADEILD KARLA: HK-INGAR UNNU SINN ÞRIÐJA SIGUR Í RÖÐ ÞEGAR ÞRÓTTARAR KOMU Í HEIMSÓKN
HK-ingar hleyptu meiri spennu í botnbaráttuna
> Íslandsmótið í holukeppni í dag
Spennan magnast nú í Íslandsmótinu í holukeppni
en úrslitin í karla- og kvennaflokki ráðast í dag á
Korpúlfsstaðavelli. Ottó Sigurðsson og Arnór Ingi
Finnbjörnsson úr GR, Sigmundur Einar Másson
úr GKG og Hlynur Geir Hjartarson úr GK leika í
undanúrslitum í karlaflokki. Í kvennaflokki eru það
Þórdís Geirsdóttir úr GK, Ragnhildur Sigurðardóttir
úr GR, Ásta Birna Magnúsdóttir úr GK og Valdís Þóra
Jónsdóttir úr GL sem leika í undanúrslitum. Ottó og
Þórdís fóru með sigur af hólmi
í fyrra og geta því enn varið
titil sinn. Leikar hefjast kl. 8.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/D
A
N
ÍE
L
VONIN LIFIR ÍA heldur enn í vonina
um að halda sér uppi.