Fréttablaðið - 14.09.2008, Side 53
SUNNUDAGUR 14. september 2008 17
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Sunnudagur 14. september
➜ Fyrirlestrar
15.00 Fresh Light on Þorleifur
Repp Dr. Andrew Wawn flytur fyrir-
lestur í Stofnun Árna Magnússonar,
stofu Sigurðar Nordals, Þingholts-
stræti 29.
➜ Myndlist
15.00 Listamannaspjall Sólveig
Aðalsteinsdóttir ræðir um verk sín
og sýningu á Listasafni ASÍ. Sýning
hennar mun standa til 21.septem-
ber. Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41.
14.00 Bjarni Sigurbjörnsson
mynd listarmaður leiðir gesti um
sýninguna Sjóndeildahringir í Gerð ar-
safni. Auk hans eiga myndhöggvar-
arnir Kristinn E. Hrafnsson og Svava
Björnsdóttir verk á sýningunni. Lista-
safn Kópavogs, Gerðasafn, Hamra-
borg 4.
Gráir veggir samsýning sjö götu-
listamanna sem er bland af götulist
og myndlist. Sýningin stendur til 24.
sept. Opið þri-sun. frá 14.00-17.00.
Reykjavík Art Gallery, Skúlagötu 30.
Gyða Ölvisdóttir er með myndlistar-
sýningu á veitingahúsinu Af lífi og
sál, Laugavegi 55b. Sýningin stendur
til 30. sept. og er opin alla daga frá
kl. 11.00-23.00.
➜ Sýningar
Helgi K. Pálsson innanhúsarkitekt
sýnir handgerða leikfangabíla á
skörinni hjá Handverki og hönnun,
Aðalstræti 10. Sýningin stendur til
17. september og er opin alla virka
daga frá kl. 9-18, fimmtudaga til kl.
22 og um helgar frá 12-17.
„Þetta er gamall draumur að ræt-
ast; að fá að snerta hið mikla goð
og það á heimaslóðum úti í Nor-
egi,“ segir Jón Ársæll Þórðarson
um fyrsta þátt Sjálfstæðs fólks
þar sem Eiríkur Hauksson verður
í brennidepli. „Mér fannst eins og
ég væri kominn heim eftir ellefu
hundruð ár. Þarna er allt í stíl því
Eiríkur býr í Grettisvík í Aust-
hold þar sem Grettir Ásmundar-
son drap björninn forðum eins og
segir í Grettissögu Ásmundarson-
ar. Tilfellið er að þeir eru ekkert
ósvipaðir Eiríkur og Grettir því
báðir eru þeir svakalega rauð-
hærðir og hafa báðir gaman af að
kveða stemmur og voru ódælir í
æsku. Þetta var eins og að standa
allt í einu með annan fótinn í
nútímanum í þungarokki og hinn
fótinn í ellefu hundruð ára gam-
alli sögu sem sífellt er ung,“ segir
hann.
Áttunda þáttaröð Sjálfstæðs
fólks hefst á Stöð 2 í kvöld og
hlakkar Jón Ársæl mikið til vetr-
arins. „Við erum búnir að safna
örlítið í sarpinn og sögurnar hafa
aldrei verið meira spennandi. Það
hefur hver maður sögu að segja
og kúnstin er sú að hlusta á fólk
og fá að endursegja sögurnar sem
eru að verða til allt í kringum
okkur.“
-fb
Eiki í Sjálfstæðu fólki
Um eitt hundrað manns eru á
biðlista vegna fyrirhugaðrar
ferðar á tónleika Tinu Turner í
London næsta vor. Fjörutíu
miðar voru upphaflega í boði á
tónleikana og seldust þeir upp á
aðeins nokkrum klukkutímum.
„Þetta var miklu meiri eftir-
spurn en ég átti von á en Tina er
náttúrulega stórt nafn,“ segir
Ágúst Valsson hjá Expressferð-
um sem skipuleggja ferðina.
Verð fyrir miðann og tvær
nætur á hóteli kostar tæpar 77
þúsund krónur en það virðist
engu máli skipta fyrir harða
aðdáendur söngkonunnar hér á
landi. „Það er mikið búið að
hringja og endalaust verið að
bæta á listann, segir Ágúst.
Hann vinnur nú hörðum hönd-
um að því að útvega fleiri miða
á Tinu en takist það ekki býst
hann við því að skipulögð verði
hópferð á aðra tónleika með
söngkonunni síungu.
Þess ber reyndar að geta að
þeir sem vilja komast á tónleik-
ana hinn 7. mars án aðstoðar
ferðaskrifstofunnar geta gert
það auðveldlega á breskri
heimasíðu Ticketmaster, því
ekki er enn orðið uppselt á þá.
Leikkonan Bryndís Ásmunds-
dóttir fer einmitt á tónleikana á
eigin vegum ásamt manni
sínum, leikaranum Atla Þór
Albertssyni, og hárgreiðslu-
manninum Ólafi B. Hreiðars-
syni, eða Óla Bogga.
„Þetta er náttúrulega draum-
ur að verða að veruleika, þetta
verður alveg klikkað,“ segir
Bryndís sem lýkur um helgina
Tinu-sýningu sinni á Akureyri
ásamt Siggu Beinteins. „Ég hef
verið aðdáandi
síðan ég var
krakki, hún
er bara
amma
mín,“ segir
hún og
hlær. - fb
Hundrað á biðlista
eftir Tinu Turner
TINA TURNER
Rokkamman, sem verð-
ur sjötug á næsta
ári, syngur fyrir
framan fjölda
Íslendinga
í London
næsta vor.
GAMALL DRAUMUR RÆTTIST
Jón Ársæll sést hér með Eika Hauks og
Steingrími tökumanni. Jón Ársæll segir
að gamall draumur hafi ræst þegar hann
fékk að hitta Eirík á heimaslóðum hans í
Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki