Fréttablaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 8
8 10. október 2008 FÖSTUDAGUR                               !"#$!%&%&#'(#) "*$'*+,%'-%!& %&,./%/#)    1. Hvaða stofnun hefur alþjóð- legu skammstöfunina IMF? 2. Hver er undirtitill væntan- legrar bókar um Ólaf Ragnar Grímsson? 3. Hvaða sparisjóður tekur nú við stöðugum straumi nýrra viðskiptavina í kreppunni? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 EFNAHAGSMÁL „Ég hef ekki orðið vör við að nokkuð hafi breyst hér. Ég hef að minnsta kosti ekki heyrt mikið krepputal frá Kínverjun- um,“ segir Kristín Aranka Þorsteinsdóttir, starfsmaður íslenska sendiráðsins í Peking í Kína. Kristín segist fylgjast vel með kínverskum fréttum. „Maður heyrir fréttir af hrunum markaða víðs vegar um heiminn, og sérstaklega í Evrópu. Maður heyrir líka að markaðir í Kína hafi eitthvað lækkað eins og annars staðar í Asíu, en ástandið er greinilega ekki eins alvarlegt hér,“ segir Kristín. - kg Íslensk kona í Kína: Heyri ekki mik- ið krepputal KRISTÍN ARANKA ÞORSTEINSDÓTTIR EFNAHAGSMÁL Vilhjálmur Egils- son, formaður Samtaka atvinnu- lífsins, segist ekki velta því fyrir sér hvort eigi að skipta um Seðla- bankastjóra. Hann gagnrýnir hins vegar peningastefnu bankans og telur aðkomu Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins óhjákvæmilega. „Mér sýnist ekki vera neitt annað í stöðunni en að sjóðurinn komi að málum og við í Samtök- um atvinnulífsins myndum ekki setja okkur á móti því. Ég tel bráðnauðsynlegt að lækka stýri- vexti, það hefði átt að vera búið að því. Ég hef verið ósammála bankastjórum Seðlabankans hvað það varðar en ætla ekki að taka þátt í neinum nornaveiðum,“ segir Vilhjálmur. Grétar Þorsteinsson, formaður Alþýðusambands Íslands, segir stjórnvöld, og þar með Seðla- bankann, ekki ráða við stöðuna. Því sé rétt að leita til Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. „Menn ráða ekkert við atburða- rásina hér og nýjar fregnir bíða manns á hverjum morgni. Ég held að aðkoma sjóðsins væri af hinu góða og myndi veita okkur ráðgjöf og þann aðgang að fjár- munum sem við þurfum á að halda,“ segir Grétar. Hann segir mjög mikilvægt að lækka stýrivexti og kallar eftir því að ríkisstjórnin taki ákvarð- anir þar um. - kóp Menn ráða ekkert við at- burðarásina hér og nýjar fregnir bíða manns á hverjum morgni. GRÉTAR ÞORSTEINSSON FORSETI ASÍ EFNAHAGSMÁL Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Sam- fylkingarinnar, hefur krafist þess að skipt verði um bankastjóra í Seðlabankanum. Nú eru banka- stjórarnir þrír; Ingimundur Frið- riksson, Eiríkur Guðnason og Davíð Oddsson. Heimildir Fréttablaðsins herma að málið hafi verið rætt á þing- flokksfundi Samfylkingarinnar á miðvikudag og Ágúst Ólafur sé að tjá þá skoðun sem fram kom á þeim fundi. Hins vegar verður bankastjóraskipta ekki krafist á meðan mesta gjörningaveðrið gengur yfir. Ekki sé talið skyn- samlegt að rugga bátnum frekar en orðið er. Þeir þingmenn sem vildu tjá sig um málið voru allir orðvarir. Helgi Hjörvar vísaði í þá stefnu Samfylkingarinnar að yfir Seðla- bankanum ætti að vera einn fag- legur bankastjóri. „Það hefur lengi verið stefna okkar. Þetta eru hins vegar ekki þeir sólarhringar sem við eigum að verja til að auka upplausn. Nú bíðum við þess að Davíð Oddsson þiggi lán af Rúss- um og þegar við höfum unnið okkur út úr vanda dagsins er tíma- bært að ræða endurskipulagningu Seðlabankans,“ segir Helgi Hjörv- ar, þingmaður Samfylkingarinn- ar. „Ég hef enga skoðun á þessu og held að betra sé að leita að lausn- um en sökudólgum. Þessir menn voru ráðnir í embættið og eru þar þangað til annað er ákveðið,“ segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Spurður hvort hann treysti bankastjórunum til að leysa efnahagsvanda þjóðar- innar segir hann: „Ég hef ekki skoðun á því á þessu augnabliki.“ Kristján Þór Júlíusson, Sjálfstæðisflokknum, segir umræðuna ekki tímabæra og það væri ábyrgðarlaust í núverandi stöðu að skipta um stjórnendur. „Ég treysti þeim á meðan mér eru ekki boðnir aðrir betri kostir.“ Ellert B. Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, er hins vegar ekki í neinum vafa um að skipta eigi um bankastjóra. „Það þarf að gjörbreyta peningastefnu bank- ans og það verður ekki gert nema að skipta um menn í brúnni. Ummæli Davíðs í Kastljósinu höfðu gríðarleg áhrif og ég á erf- itt með að sjá að hann geti setið eftir þau.“ Karl V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að þegar um hægist eigi að fara yfir allt sviðið. „Komi í ljós að bankinn hafi gert alvarleg mistök hljóta menn að skoða hvort þar þarf að stokka upp.“ kolbeinn@frettabladid.is Samfylkingin vill að Davíð Oddsson víki Samfylkingarmenn vilja skipta um bankastjóra í Seðlabankanum. Heimildir Fréttablaðsins herma að ólíklegt sé að það gerist á meðan mesta gjörningaveðr- ið gangi yfir en líklegt er að Davíð taki pokann sinn þegar hægist um. PÉTUR BLÖNDAL ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON DAVÍÐ ODDSSON Varaformaður Samfylkingarinnar fer fram á að skipt verði um bankastjóra í Seðlabankanum. Líklega verður það gert þegar hægist um í efnahags- málunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fulltrúar SA og ASÍ vilja aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins: Aðkoma gjaldeyrissjóðs góð GRÉTAR ÞORSTEINSSON VILHJÁLMUR EGILSSON EFNAHAGSMÁL Efnahagsþrengingar á Íslandi og óhagstætt gengi krónunnar hefur orðið til þess að opnun byggingarvöruverslunar- innar Bauhaus undir Úlfarsfelli í Reykjavík hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Halldór Óskar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bauhaus á Íslandi, skýrði frá því í Frétta blað- inu í gær að kreppan myndi ekki hafa áhrif á fyrirhugaða opnun í desember. Hann segir að nú sé frestun óhjákvæmileg enda ekki hægt að panta inn vörur vegna gengisins. „Þetta gætu bara verið nokkrar vikur. Maður vonar það besta.“ Húsnæðið sem nú mun standa autt er 22 þúsund fermetrar. Þar er ætlunin að 150 manns starfi og yrði þetta stærsta byggingar vöru- verslun á Norðurlöndum. - kdk Frestun um óákveðinn tíma: Bauhaus frestar opnun á Íslandi RÚSSLAND, AP Rússneskir ráða- menn, sem boðið hafa Íslandi aðstoð í fjármálakreppunni, segja nú tíma kominn til að lægja öld- urnar í samskiptum við Vestur- lönd. Engin hætta sé á köldu stríði og leiðtogar Vesturlanda þurfi að halda ró sinni. Á miðvikudag hélt rússneska herliðið á brott frá flestum þeim svæðum í Georgíu, sem eru utan aðskilnaðarhéraðanna Abkasíu og Suður-Ossetíu, þótt áfram séu her- menn á nokkrum umdeildum svæðum. Dmitrí Medvedev, forseti Rúss- lands, notaði þessi tímamót til að hvetja Vesturlönd til þess að hætta nú öllum illdeilum um Georgíu: „Ekkert hefur gerst sem ekki má laga. Engin hætta er á nýju köldu stríði.“ Medvedev sagði hins vegar nauð- synlegt að Rússland geri nýjan varnarsamning við Evrópuríki til þess að vega á móti einhliða aðgerðum Bandaríkjanna. Bæði Medvedev og forveri hans, Vladimír Pútín, sem nú er forsæt- isráðherra, hafa jafnframt ítrekað sakað Bandaríkin um að bera ábyrgð á fjármálakreppunni, sem nú sligar heiminn. Pútín bætti því svo við í gær að kreppan hafi valdið óbætanlegum skaða á ímynd Bandaríkjanna sem leiðtoga hins frjálsa heims og sem leiðtoga frjálsra viðskipta í heim- inum. „Nú verður ekki aftur snúið,“ sagði hann. - gb Rússneskir ráðamenn segja að Vesturlönd þurfi að halda ró sinni: Engin hætta á köldu stríði RÚSSAR Í GEORGÍU Rússneska herliðið hélt á brott frá Georgíu á miðvikudag, að undanskildum aðskilnaðarsvæðun- um og nokkrum umdeildum svæðum öðrum. NORDICPHOTOS/AFP STJÓRNMÁL Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fulltrúi Samfylkingar í bankaráði Seðlabankans, sagði sig úr ráðinu í gærkvöldi. Hún bað jafnframt þjóðina afsökunar á því að hafa ekki fyrr axlað ábyrgð á hagstjórnar- mistökum bankans. „Undanfar- in ár, mánuði, vikur og daga hafa verið gerð alvarleg mistök í hagstjórn Íslands og stjórn fjármálakerfisins. Seðla banki Íslands ber mikla ábyrgð á þeim mistökum,“ segir Sigríður í tilkynningu. „Ég hvet því bankastjóra Seðlabanka Íslands, Davíð Oddsson, Eirík Guðnason og Ingimund Friðriksson, til að axla sína ábyrgð á mistökunum og segja af sér nú þegar.“ - sh Hvetur til afsagnar stjórnar: Segir sig úr Seðlabankaráði SIGRÍÐUR INGIBJÖRG INGADÓTTIR Skuldaklukkan sprungin Skuldir bandaríska ríkisins eru komnar yfir 10 þúsund milljarða dala, sem þýðir að ekki er pláss lengur fyrir nógu marga tölustafi á skuldaklukk- unni svonefndu í New York til að sýna rétta skuldastöðu ríkisins. Skulda- klukkan var sett upp árið 1989 til að vekja athygli á óhóflegri skuldasöfnun ríkisins, sem þá nam „aðeins“ 2,7 þúsund milljörðum dala. BANDARÍKIN Símtöl til spákonu Norska þingkonan Saera Khan hefur viðurkennt að hafa oft notað farsíma, sem þingið greiðir kostnað af, til þess að leita ráða hjá spákonu. Símreikn- ingurinn fyrir síðustu þrjá mánuði nam 48 þúsund norskum krónum. Khan er nú farin í leyfi og ætlar ekki að bjóða sig aftur fram til þings. NOREGUR DÓMSMÁL Tæplega fertugur karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða 70 þúsund krónur til ríkissjóðs og 184 þúsund til konu sem hann sló í andlitið í félags- heimilinu Valhöll á Eskifirði. Konan hlaut nokkra áverka og missti um tíma sjón á öðru auga. Maðurinn neitaði sök frá upphafi. Hann kvaðst sjálfur hafa orðið fyrir árás nokkurra manna á umræddum stað og tíma. Hafi hönd hans lent á konunni þegar hann varði hendur sínar og það verið óviljaverk. Með hliðsjón af framburði vitna taldi dómurinn komna fram sönnun þess að maðurinn hefði slegið konuna. - jss Sekt og skaðabætur: Missti sjón um skeið eftir högg VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.