Fréttablaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 3. nóvember 2008 19 Vertu orkugjafi framtíðarinnar. RES Orkuskólinn res.is Umsóknarfrestur til meistaranáms í vistvænni orkunýtingu er til 1. desember næstkomandi. Um er að ræða eins árs alþjóðlegt meistaranám (90 ECTS) í vistvænum orkugjöfum og er ætlað nemendum sem lokið hafa B.Sc. námi í verkfræði eða raungreinum, eða B.A. námi í hagfræði (braut um orkukerfi og orkustjórnun). Námsárið hefst í febrúar 2009 og verður boðið upp á sérhæfingu á fimm námsbrautum: Jarðhitaorku ; Efnarafölum og vetnisorku ; Lífmassaorku og vistvænu eldsneyti ; Vatnsaflsorku ; Orkukerfi og orkustjórnun. Boðið er upp á meistaranámið í nánu samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, sem útskrifa nemendur skólans. 1. Innlit/útlit verður Nurlað/ hamstrað 2. Jón og Hannes fara ekki í gumball 3000 heldur í paintball 2009. 3. Sumarhöll Sig- urðar verður Sumarhöllin, dvalarheimili Borgfirð- inga. 4. Greiningardeildir byrja að litgreina. 5. Hús DeCode verður Hitt húsið. 6. Forseti Íslands veitir Vúd beitusölu útflutningsverðlaun forsetans. 7. Glitnishlaupið verður Reykjavík- armaraþonið. 8. Sérstakri auðmannastúku verð- ur komið fyrir á Ölveri. 9. 50 Cent verður verður ekki í 45 ára afmælinu heldur pönk- bandið Hemmi króna. 10. Hallgrímur Helgason selur fullklárað málverk á góðgerða- uppboði á 15 þúsund. TOPP 10: HVAÐ BREYTIST Í KREPPUNNI? Trúnaðarmál nefnist nýr diskur með Guðmundi Guðfinnssyni og Tómasi Malmberg. Í dag á milli kl. 17 og 18 ætla þeir að gefa diskinn út í bakaríi Guðmundar, Brauðhúsinu í Grímsbæ. „Okkur fannst það bara hljóma vel að gefa út diskinn á þennan hátt,“ segir Guðmundur. „Þú þarft ekki einu sinni að kaupa mitt frábæra lífrænt ræktaða brauð til að fá disk, það er bara nóg að mæta og þá færðu eintak. En bara á milli kl. 17 og 18.“ Þetta mun vera í fyrsta skipti sem diskur er „gefinn út“ á þennan hátt á Íslandi. En hvað er svo á diskinum? „Þetta er allt á rólegu nótunum hjá okkur. Við notum gítar, píanó og bassa, og smá munnhörpu sem skraut. Þetta er lágstemmt þjóðlagapopp. Ég veit ekki hvort það er réttlæt- anlegt að bera þetta saman við einhverja fræga, þetta eru eiginlega bara við. Og við höfum til dæmis sameiginlega mikið dálæti á Bob Dylan.“ - drg Gefa út geisladisk í bakaríi Á RÓLEGU NÓTUNUM Trúnaðarmál fæst ókeypis í Brauðhúsinu í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Jennifer Hudson og fjölskylda hennar hafa ákveðið að stofna sjóð til styrktar fjölskyldum þeirra sem hafa orðið fórnarlömb árása. Söngkonan og Óskarsverðlauna- leikkonan Jennifer stofnaði sjóðinn í minningu móður sinnar, bróður og sjö ára frænda sem voru öll skotin til bana í síðustu viku. Tilgangur Hudson-King-sjóðsins er að sinna þörfum fjölskyldna sem hafa misst nána ættingja í ofbeldisárásum með því að veita þeim matarstyrk, föt, skjól og sálfræðiaðstoð í sorgarferlinu. Fyrrverandi eiginmaður eldri systur Hudson er talinn hafa orðið fjölskyldumeðlimum hennar að bana, en hann er í haldi lögreglu og málið er enn í rannsókn. Stofnaði styrktarsjóð STYÐUR FJÖLSKYLDUR FÓRNARLAMBA Jennifer Hudson hefur stofnað styrktar- sjóð sem er ætlað að styðja fjölskyldur fórnarlamba ofbeldisárása. Hafi nánir vinir Madonnu og Guy Ritchie vonast til þess að skilnaður þeirra yrði lágstemmdur þá verð- ur þeim ekki að ósk sinni. Breska pressan keppist nú við að segja hryllingssögur af hjónabandi þeirra og samskiptum eftir að til- kynnt var um að þau hygð- ust skilja. Nýverið var greint frá því að Guy Ritchie hefði þurft að fylgja ákveðnum reglum innan veggja heimilis þeirra Madonnu og hafa þær reglur verið birtar á flestöll- um fréttaveitum. Madonna ku víst vera ansi sár yfir þessum „leka“ og sendi Guy sms-skeyti þar sem hann var staddur á tökustað nýj- ustu kvikmyndar sinnar um einka- spæjarann Sherlock Holmes. Skilaboðin voru ekki löng en ákaf- lega kjarnyrt og skýr: „You‘re going down“ sem hægt væri að útleggja á íslensku, „þú ert ekki búinn að bíta úr nálinni“. Samkvæmt Daily Mirror kippti Guy sér ekki upp við þetta upp- átæki söngkonunnar heldur sýndi öllu tökuliðinu skilaboðin. Heim- ildarmaður blaðsins segir að þetta sé tilraun Madonnu til að vera fyndin. „En honum finnst þetta ekkert fyndið,“ hefur blaðið eftir heimildarmanni sínum. „Og nú getur fólk ímyndað sér hvernig það var að búa með henni,“ bætir hann við. Vinir leikstjórans segja hann þó hafa mestar áhyggjur af börnun- um; Lourdes, Rocco og David. „Hann hefur ekki séð þau í marg- ar vikur vegna þess að þau eru á tónleikaferðalagi með mömmu sinni. Hann á að fá þau í byrjun þessa mánaðar en Madonna segist vera of upptekin til að vera við- stödd þá. Honum er alveg sama. Hann vill bara fá að sjá börnin.“ Madonna sendir Guy tóninn ALLT Í HÁALOFT Madonna og Guy virðast ekki ætla að fara hljóðlátu leiðina í skilnaði sínum þrátt fyrir beiðni Lourdes, dóttur Madonnu. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.