Fréttablaðið - 03.11.2008, Qupperneq 32
20 3. nóvember 2008 MÁNUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
12
16
L
14
L
L
QUARANTINE kl. 8 - 10*
MY BEST FRIENDS GIRL kl. 6 - 8 - 10
SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 6
* KRAFTSÝNING
16
12
L
QUARANTINE kl. 8 - 10.10
QUARANTINE LÚXUS kl. 5.50 - 8 - 10.10
MY BEST FRIENDS GIRL kl. 5.40 - 8 - 10.20
MAX PAYNE kl. 8 - 10.15
HOUSE BUNNY kl. 3.40 - 5.45
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.50 - 8 - 10.10
SKJALDBAKAN & HÉRINN kl. 4 - 6
LUKKU LÁKI OG DALTON BRÆÐUR kl. 3.45
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
10
L
L
14
16
WHERE IN THE WORLD IS OSAMA BIN LADEN kl. 6 - 8 - 10
HÉR ER DRAUMURINN kl. 6 - 8 - 10
THE WOMEN kl. 5.30 - 8
REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 5.40 - 8 - 10.10
BURN AFTER READING kl. 10.15
5%
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
12
16
L
16
MY BEST FRIENDS GIRL kl. 5.45 - 8 - 10.15
MAX PAYNE kl. 5.45 - 8 - 10.15
HOUSE BUNNY kl. 5.50 - 8 - 10.10
BURN AFTER READING kl. 5.45 - 8 - 10.15
ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI!
550kr.
fyrir börn
650kr.
fyrir fullorðna
KOMIN Í BÍÓ
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 6 - 8 L
NIGHTS IN RODANTHE kl. 6 L
EAGLE EYE kl. 8 12
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 L
SEX DRIVE kl. 8 - 10:20 12
BURN AFTER READING kl. 10:10 16
HSM 3 kl. 6D - 7:30 - 8:30D - 10:10 L
HIGH SCHOOL MUSICAL kl. 5:30 VIP
EAGLE EYE kl. 5:40 - 8 - 10:30 12
EAGLE EYE kl. 8 - 10:30 VIP
SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:10 12
NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 L
DARK KNIGHT kl. 10:10 vegna áskorana 12
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 L
ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA!
Hörkuspennandi mynd frá STEPHEN SPIELBERG
MEÐ SHIA LABEOUF Í AÐALHLUTVERKI.„STÆRSTA OPNUN Á DANS & SÖNGVAMYND ALLRA TÍMA Í U.S.A“
HIGH SCHOOL MUSICAL kl. 5:40 - 8 - 10:30 L
EAGLE EYE kl. 8 - 10:30 12
SEX DRIVE kl. 8:20 - 10:30 12
JOURNEY 3D kl. 5:50 L
WILD CHILD kl. 5:50 L
DIGITAL
DIGITAL
DIGITAL-3D
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 L
MAX PAYNE kl. 10:10 16
HAPPY GO LUCKY kl. 8 14
BANGKOK DANGEROUS kl. 10:10 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
QUARANTINE kl. 6, 8 og 10 16
EAGLE EYE kl. 8 og 10.15 16
SKJALDBAKANN OG HÉRINN kl. 6 (650 kr.) - ÍSL.TAL L
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 10 12
MAMMA MIA kl. 6 og 8 L
TEKJUHÆSTA MYND ALLRA
TÍIMA Á ÍSLANDI
ATH! 650 kr.
Alls ekki fyrir viðkvæma!
The Viking Giant Show byrjaði
sem sólóverkefni Heiðars Arnar
Kristjánssonar fyrir þremur
árum, en Heiðar er þekktastur
sem meðlimur hafnfirsku rokk-
sveitarinnar Botnleðju. Fyrsta lag
The Viking Giant Show var Party
at the White House sem sló í gegn
og það sama gerði næsta lag í spil-
un, The Cure. Nú er The Viking
Giant Show orðin hljómsveit og
fyrsta platan, The Lost Garden of
the Hooligans, komin út.
Tónlistin hefur þróast töluvert
frá þessum fyrstu lögum, en eitt
hefur þó ekki breyst. The Lost
Garden of the Hooligans ber það
með sér að það er verið að búa til
alþjóðlega tónlist og tengingum
við Ísland viljandi haldið í lág-
marki. Þetta er mjög áberandi í
tónlistinni. Party at the White
House er amerískur smellur mitt
á milli Nirvana og Presidents of
the USA, seinnitíma efni sveitar-
innar er líka mjög amerískt, en
meira út í hillbillý og kántrýskotið
jaðarrokk. Annars staðar er öðrum
stílbrigðum beitt, t.d. í rokkabillí-
laginu The Funeral sem gæti verið
úr einhverjum mexíkóskum
vestra. Þessi alþjóðlegi blær á líka
við um textana. Party at the White
House fjallar um bandaríska
pólitík, The Cure um kristna trú
og samkynhneigð og lokalagið
Let’s Hear it For the CEO’s gæti
átt við hvar sem er í hinum kapít-
alíska heimi og passar reyndar
mjög vel inn í kreppuumhverfi
dagsins í dag. Eins og til að undir-
strika þetta enn frekar er umslag-
ið prýtt myndum skoska ljósmynd-
arans Brians Sweeney. Engin
tenging við Ísland þar.
The Lost Garden of the Hooli-
gans er ágæt plata. Lagasmíðarn-
ar eru flestar fínar og það er
hressilegur blær yfir plötunni.
Hljóðfæri eins og banjó, mandólín
og nikka lífga upp á hljóðheiminn
og strákarnir sýna oft ágæt tilþrif
í hljóðfæraleik. Gítarleikurinn er
t.d. skemmtilega „loose“ á köflum.
Þetta er hálfgerð partítónlist og
ætti að falla í kramið hjá mörgum,
getur t.d. höfðað jafnt til hlust-
enda X-ins, FM957 og Rásar 2.
Mér finnst samt þessa tónlist
vanta eitthvað sem gerir hana sér-
staka. Platan er skemmtileg og
það er greinilega gerjun í gangi,
en þetta hljómar samt í það heila
of kunnuglega til að það haldi
athygli manns mjög lengi.
Trausti Júlíusson
Hresst rokk með alþjóðlegum blæ
TÓNLIST
The Lost Garden of the
Hooligans
The Viking Giant Show
★★★
The Lost Garden of the Hooligans er
hressileg og skemmtileg rokkplata
sem hefur yfir sér mjög alþjóðlegan
blæ, en sérkenni vantar.
Þrjú af stærstu plötufyr-
irtækjum landsins hafa
ákveðið að fresta fjölmörg-
um útgáfum fyrir jólin sök-
um erfiðs efnahagsástands.
Sena hefur slegið á frest sjö
plötum, Smekkleysa mun
líklega fresta fjórum og 12
Tónar tveimur.
Á meðal þess sem frestast hjá
Senu er plata Friðriks Karlssonar
og Hönsu og safnplötur með
Ladda, Savannatríóinu og Páli
Rósinkrans. Einnig hefur fyrir-
tækið hætt við að framleiða plötu
Steed Lord, Truth Serum. Kemur
það ekki að sök því hljómsveitin
mun halda sínu striki, framleiða
hana sjálf og reyna að gefa út
síðar í mánuðinum. Alls gefur
Sena því út 30 plötur í ár í stað 37.
Veljum íslenskt
„Við ákváðum að grynnka aðeins á
þessu heldur en að fara alveg
óbreytt inn í þetta,“ segir Eiður
Arnarsson, útgáfustjóri Senu.
„Þetta er bara skynsemi. Í öllum
tilfellum voru þetta plötur sem
lágu vel við höggi því þær
voru stutt á veg komnar.
Auðvitað var þetta allt
gert í samráði við flytj-
endur og þetta hefur ekki
orsakað nein vandræði. Í
einhverjum tilfellum var
þetta aðeins erfitt en það
skildu allir rökin,“
segir hann. „Við
erum með ofsalega
sterka útgáfu og
höfum trú á að
íslenskir neyt-
endur líti sér
nær á erfiðum
tímum og leiti
eftir íslenskum vörum.“
Hætt við klassíkina
Smekkleysa frestar líklega fjór-
um plötum úr klassíska geiranum,
þar á meðal jólaplötu með Hamra-
hlíðarkórnum. „Við ætlum að gefa
þessu ástandi nokkra daga en ef
það dregst mikið lengur hefur það
óneitanlega áhrif,“ segir Ásmund-
ur Jónsson hjá Smekkleysu og
bætir við að útgáfan núna sé minni
en undanfarin ár.
Plötur með Jeff Who?, Dr.
Spock og Bob Justman eru þó
allar væntanlegar síðar í mán-
uðinum.
Enginn Víkingur Heiðar
12 Tónar hafa
frestað tveimur
klassískum plöt-
um, þar á meðal
frumburði píanóleikarans Víkings
Heiðars Ólafssonar sem hefur
verið beðið með mikilli eftirvænt-
ingu. „Þetta er diskur sem er búið
að bíða lengi eftir en við höfum
ákveðið að fresta honum fram á
Listahátíð þar sem hann kemur
fram,“ segir Lárus Jóhannesson
hjá 12 Tónum. Útskýrir hann að
bankar og fjármálastofnanir hafi
hingað til stutt duglega við bakið á
klassískum útgáfum en þeir styrk-
ir hafi nú gufað upp og enga pen-
inga sé lengur að fá.
Einnig er óvissa með nýja plötu
rokksveitarinnar Gavin Portland
vegna gengismála.
Aukinn fjöldi ferðamanna
Lárus tekur fram að verslun 12
Tóna standi vel fyrir sínu í þessum
ólgusjó. „Hún nýtur góðs af aukn-
um fjölda ferðamanna, það er
jákvætt. Svo eru útgáfur að
„tikka“ erlendis. Maður heldur
bara sínu striki og reynir að hafa
áhrif á það sem maður getur haft
áhrif á.“ freyr@frettabladid.is
Útgáfu frestað á 13 plötum
VÍKINGUR HEIÐAR ÓLAFSSON Hætt hefur verið við útgáfu nokkurra klassískra platna,
þar á meðal frumburðar píanóleikarans Víkings Heiðars Ólafssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
PÁLL RÓSINKRANS
Safnplötu söngv-
arans geðþekka
hefur verið slegið
á frest vegna
slæms efnahags-
ástands.
Söngvamyndin Mamma Mia! með
Meryl Streep og Pierce Brosnan í
aðalhlutverkum er orðin tekju-
hæsta breska mynd allra tíma í
heimalandi sínu. Síðan myndin
kom út í júlí hefur hún þénað
rúmar 67 milljónir punda, rúmri
milljón meira en fyrsta Harry
Potter-myndin aflaði í Bretlandi.
Mamma Mia! er þar með orðin
önnur tekjuhæsta kvikmynd sög-
unnar í Bretlandi á eftir Titanic.
Bretar eru ekki þeir einu sem hríf-
ast af myndinni því hún er einnig
orðin tekjuhæsta myndin í Þýska-
landi, Nýja-Sjálandi, Suður-Afríku
og Svíþjóð. Hér á landi hafa bíó-
gestir einnig flykkst á myndina.
„Hið áhugaverða er hversu
fljótt myndin hefur náð þessu tak-
marki,“ sagði David Kosse hjá
Universal Pictures International.
„Við erum komin fram úr Harry
Potter og sækjum fast að Titanic.
Ein ástæðan fyrir vinsældunum
er sú að fólk kemur að horfa á
hana aftur og aftur. Við höfum
aldrei séð svona lagað áður.“
Tekjuhæsta mynd allra tíma
MAMA MIA! Söngvamyndin Mama Mia!
er uppfull af lögum sænsku hljómsveit-
arinnar Abba.
VINSÆLUSTU MYNDIRNAR
1. Mamma Mia!
2. Harry Potter and the Philo-
sopher’s Stone
3. Harry Potter and the Chamber
of Secrets
4. The Full Monty
5. Harry Potter and the Order of
the Phoenix
6. Harry Potter and the Goblet of
Fire
7. Harry Potter and the Prisoner of
Azkaban
8. Bridget Jones’s Diary
9. Love Actually
10. Bridget Jones: Edge of Reason