Fréttablaðið - 03.11.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Komdu upp á Klettháls með gamla bílinn og settu hann upp í jeppling
árgerð 2004 eða nýrri. Við metum bílinn þinn á kr. 500.000,
sama hvernig hann er, bara að hann sé skoðaður 2009.
HEKLA NOTAÐIR BÍLAR KLETTHÁLSI
500.000
FYRIR ÞANN
GAMLA!
UPP I KAUP A NOTUÐUM JEPPLINGI
Opið 10–18 virka daga | Opið 12–16 laugardaga
Kletthálsi sími 590 5040 www.heklanotadirbilar.is notadirbilar@hekla.is
Árið 1467 tóku Englendingar upp á því að drepa Björn Þor-
leifsson hirðstjóra og brytja niður
lík hans í smábita svo að það er
ekki eins og við Íslendingar höfum
ekki áður fengið að smakka á
enskri ofbeldishneigð. Þá mælti
ekkja hans, kvenskörungurinn
Ólöf ríka Loftsdóttir á Skarði:
„Eigi skal gráta Björn bónda held-
ur safna liði.“ Síðan galdraði þessi
kjarnakona fárviðri yfir Englend-
ingana og fórust þá þrjátíu enskar
duggur. Auk þess kærði Ólöf
ofbeldið til Danakonungs sem
þegar í stað hóf stríð við Englend-
inga og stóð sú styrjöld í fimm ár.
EKKI fannst Ólöfu þó nóg að gert
heldur fór hún vestur á fjörðu og
tók þar enskar skipshafnir til
fanga og flutti heim með sér. Svo
er sagt að eitt sumarið hafi verið
fimmtíu Englendingar hjá henni í
haldi og Ólöfu hundleiddist að
horfa upp á mennina iðjulausa
eins og alþingismenn og lét þá
byggja stéttina stóru sem enn sést
á Skarði og kölluð er Englendinga-
stétt.
NÚ eru aðrir tímar og þeir erfið-
leikar sem við stöndum frammi
fyrir eru að stórum hluta sjálfs-
kaparvíti. Áður en við mögnum
seið á hendur Gordon Brown og
hans lagsbræðrum (megi þeir
aldrei þrífast) ættum við að gera
upp sakirnar hérna heima fyrir.
MANNI verður hugsað til Ólafar
ríku ef maður lítur við á vefsíð-
unni photo.blog.is. Höfundur
þeirrar síðu heitir Kjartan Pétur
Sigurðsson og kveðst vera „leið-
sögumaður og fræðingur með fjöl-
breytileg áhugamál“. Í stað þess
að láta hugfallast hefur Kjartan
Pétur breytt vefsíðu sinni í verð-
mætan hugmyndabanka og kveðst
hæversklega hafa „verið að taka
saman nokkra punkta um hvernig
má bæta íslenskt samfélag“.
NÚ er lag að safna liði og efla
Hugmyndabanka þjóðarinnar með
Kjartan Pétur sem bankastjóra og
mynda sjóð sem sér okkur far-
borða í framtíðinni − ólíkt þeim
bönkum sem kafna í eigin græðgi
og eru engum góðum manni harm-
dauði. Nú þarf að safna liði og
hefja tiltekt. Upplagt að byrja þar
sem sóðaskapurinn hefur verið
mestur og hreinsa burt bruðl og
spillingu. Með því að safna liði má
snúa niðurlægingu og ósigri í sig-
urgöngu. Oft var þörf en nú er
nauðsyn.
„Eigi skal
gráta …“
9.18 13.11 17.03
9.14 13.56 16.37
Í dag er mánudagurinn
3. nóvember, 308. dagur ársins.