Tíminn - 16.02.1982, Síða 1
--------------------------------------------^
Skákskýrandi Tímans í dag: Helgi Ólafsson
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
> FRÉTTABLAD!
Þriöjudagur 16. febrúar 1982
36. tölublað — 66. árg.
** '< \ Hí
■Oftmlon SkjoMhwniMo:
Krigstid,
kjærleik,
komikk
Skjald
Noregi
— bls. 2
Hvað
kostar
fiskur?
— BLS. 14
Kokka-
raunir
I- BLS. 22
Skemmdarverk unnin á listmunum sem sýna átti hér á landi:
„ÓBÆTANLEGT TJÓN"
— segir Ann Sandelin, forstöðumaður Norræna hússins
■ ,,Það voru gamlar
listasmiðar. í eigu Nor-
diska Museet i Stokk-
hólmi, sem komu
skemmdar úr gámi
sem sendur var hingað
til lands frá Kaup-
mannahöfn og innihélt
muni sem eiga að fara
á Samasýninguna sem
við erum að fara að
opna hér i Norræna
húsinu.” sagði Ann
Sandelin. forstöðumað-
ur Norræna hússins
þegar Timinn spurði
hana um þetta mál i
gær.
„Þa6 voru þrir kassar sem
búi6 var að rifa upp og skemma.
Við vitum ekki enn hvernig, en
allar likur benda til að
skemmdirnar hafi verið unnar
úti i Kaupmannahöfn, þvi
gámurinn var innsiglaður áður
en hann fór i skip.”
— Hvað var þaö sem
skemmdist?
,,Það vantar þrjá hluti og sex
voru skemmdir. Þetta eru smá-
hlutir, svona nytjagripir sem
samarnir notuðu i daglegu lifi,
t.d. öskjur úr hreindýrabeini,
snældur, skálar og flaska úr
hreindýrabeini.
— Þetta er mikið tjón?
,,Já, það er óhætt að segja að
þetta sé óbætanlegt tjón, þvi
margir þessara hluta eru mjög
sjaldgæfir,” sagði Ann.
— Sjó.
Manhattan-
málið: ,
„STAÐAN I
EINU ORÐI
SAGT
ÖMURLEG”
■ „Staðan i þessu máli er i
einu orði sagt ömurleg. Viö
sögðum upp og gengum út 31.
jan. sl. þegar mörg okkar áttu
enn inni desemberlaunin og
eygðu enga von um að fá
janúarlaunin á næstunni,”
sögðu rúmlega 20 fyrrum
starfsmenn veitingahússins
Manhattan á fundi sem þau
héldu i gærkveldi, en þá biðu
þau, 26 talsins svara frá eigend-
um Manhattan, um það hvort
þau fengju launin fyrir janúar-
mánuð greidd.
Sögðu þau að annar eigand-
inn, Baldvin Heimisson vildi
greiða þeim, en Samúel Grétar
Sveinsson, þvertæki fyrir það.
,,Viö erum búin að lána launin
okkar til langs og skamms tima
i allan vetur,” sagði einn tals-
maöur s ta r f sm a nna n na ,
Gunnar Þór Jóhannsson, ,,og
það má segja að staðurinn hafi
verið meira og minna rekinn á
okkar launum i vetur. Við erum
búin aðfá nóg af þessu, og erum
nú komin meö lögfræðing i mál-
ið fyrir okkur.” Sögðust þau
eiga inni hjá eigendunum um
100 þús. krónur fyrir störf unnin
i janúar.
„Afstaða min mótast einfald-
lega af þvi að hér er um janúar-
laun að ræða, og þessir krakkar
hættu fyrirvaralaust 31. janúar.
Þetta er flestfólksem er búið að
vinna 3 mánuði eða lengur, og
ég vil þvi athuga það frá réttar-
farslegu sjónarmiði hvort það
getur hætt fyrirvaralaust,”
sagði Samúel Grétar Sveinsson,
annar eigenda Manhattan,
þegar blm. spurði hann hvers
vegna hann neitaði að greiða
fólkinu laun.
Eigendurnir hafa nú ráðið
fólk i stað þess sem hætti um
slðustu mánaðamót, þannig að
Manhattan er ekki hætt, þótt að
allir þessir starfsmenn hafi hætt
hjá fyrirtækinu. —AB
Frá fundi starfsfólks Manhattan i gærkvöldi.
Timamynd: Róbert.