Tíminn - 17.02.1982, Blaðsíða 20
VARAHLUTIR Mikið úrval
Séndum um land allt
Kaupum n ýlGffR. Opið virka daga
bíla til niðurrifs f 19 ,^aufar
Simi (»1) 7- 75-51, (91) 7 - 80-30. daga 10 16
HEDD HF. SkeKópaUvo|/ HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiila 24
Sími 36510
„SÍNIST IRYGGT AD HJALPIN
BERIST f RÉTTAR HENDUR"
— segir Björn Tryggvason, ad lokinni Póllandsför
■ „Aö lokinni þessari för til Pól-
lands, þá sýnist mér aö mjög brýn
þörf sé á áframhaldandi hjálpar-
sendingum tslendinga þangaö og
tel mig hafa sannfærst um að
dreifingarkerfi Rauöa kross Pól-
lands sé i góöu lagi og ekki siöur
tryggt að hjálpin berist i réttar
hendur fyrir tilstilli hans en eftir
leiöum kirkjunnar,” sagði Björn
Tryggvason stjórnarmaður i
Rauöa krossi Islands, þegar viö
hittum hann aö máli i gær.
Eins og kunnugt er sendu
Islendingar 30 tonn af lýsi til Pól-
lands á vegum Rauða krossins og
komu sendingarnar til Póllands
13. og 23. janúar sl. Verðmæti
þessa farms var 300 þúsund krón-
ur og greiddi rikið helming þess-
arar upphæöar, en Rauði kross-
inn afganginn. Var Björn
Tryggvason sendur til Póllands'
dagana 8.-12. febrúar sl. og fylgd-
ist hann með dreifingu fyrri lýsis-
sendingarinnar þessa daga.
Björn kvaðst hafa komið til
Gdansk mánudaginn 8. febrúar.
Þar eru þrjár birgðastöðvar
Rauða krossins og heimsótti
Björn eina þeirra, sem er i Sopot,
en þaö er útborg Gdansk. 1
Gdansk var útgöngubann lengra
en t ,d. i Varsjá vegna ótryggs á-
stands, eða frá kl. 20 á kvöldin til
kl. 5 á morgnana. Ekki bætir úr
skák að i sveitum og smærri
borgum er ástandiö miklu verra
en i stórborgunum.
2.7 tonn I hverja birgða-
stöð
1 þeirri birgðastöð sem Björn
heimsótti hafði 2.7 tonnum af lýs-
inu frá Islandi verið komið fyrir i
sérstökum geymslusal, en þetta
var það margt úr fyrri sending-
unni, sem hver birgðastöð fær.
Lýsinu er pakkað á 250 ml. flösk-
ur og er þvi svo ráðstafað i skól-
um, læknamiðstöðvum og viðar.
Mörg lönd pakka matvæla-
sendingum sinum i neytendaum-
búðir, sem ýmist eru ætlaðar
gamalmennum eða börnum og
þetta hafa bæöi kirkjan og ASl
gert hér. Lýsið frá RKl hins
vegar sent i 5 litra dósum, en
mun liklega framvegis verða sent
i minni umbúöum.
t birgðastöð þeirri sem Björn
heimsótti var eldhús ætlað öldr-
uðu fólki, en 2.5 milljónir Pól-
verja eru yfir sjötugt og 60 þús-
und manns falin umsjá Rauða
krossins.
Hjálparsendingar berast frá
Norðurlöndum með trukkum,
sem aka þeim til 8 birgðastöðva
hér og þar i landinu. Hermenn af-
ferma bilana og hefur það sætt
nokkurri gagnrýni, en Björn
kvaðst hafa sannfærst um að eigi
að siður mætti treysta á að hjálp-
inni sé ráðstafað eins og til er
ætlast af gefendum. Margir eru
upp á náð Rauða krossins komnir,
þar á meðal mikill fjöidi faltaöra
og 60 þúsund börn, sem fæðast i
mánuöi hverjum fá nauðsynlegan
matarskammt á hans vegum. Þá
erunúum 80þúsundmannsi neyð
viö ána Vislu vegna flóða.
Ástandið mun enn
versna
Björn sagði lækna og aðra sem
hann þóttist geta tekið mark á
telja að ástandið mundi fara enn
versnandi og það allt til næsta
uppskerutima.
Björn heimsótti tvo skóla þar
sem hjálparsendingum var dreift
og var þar mikil viðhöfn i tilefni
af heimsókn hans, en hann var
þar fulltrúi Rauða krossins við
útdeilingu á banönum frá Italiu
og Portúgal. Kom i ljós að Pól-
verjum er þungt i huga að verða
að þiggja aðstoð, og vonuðust
menn til aö geta sjálfir lagt að-
stoð af mörkum siðar til annarra
þegar úr hefði ræst.
Hjálparstöðvar i Póllandi
annast dreifingu á matarsending-
um meö þvi að útdeila sérstökum
kortum og eru hinir verst settu i A
flokki, þeir sem siður eru hjálpar
þurfi i B flokki og barnmargt fók i
C flokki. Það eru eins og fram
hefur'komið einkum matvælisem
Pólverjar þurfa á aö halda, en
ekki t.d. klæðnaður. Er nú kjöt-
skammtur fyrir fullorðinn mann
t.d. aðeins 2 kg. á mánuði.
Mikil þörf er einnig fyrir
hjúkrunargögn og fyrir atbeina
Rauða krossins og heilbrigðis-
yfirvalda hérlendis, hefur nú
verið óskað eftir að safnað sé
saman ýmsum hjúkrunargögnum
á sjúkrahúsum hér, sem menn
geta verið án, svo sem einnota
hlutum ýmsum og þetta sent til
Póllands. Sömuleiðis hafa
islenskar lyfjaverksmiðjur verið
beðnar um lyf, sem ella væri
hætta á að mundu fyrnast. Hefur
verið komið upp geymslurými i
Borgarspitalanum fyrir þessar
vörur.
Skýrsla Björns verður rædd
nánar á stjórnarfundi Rauða
krossins nk. laugardag og verður
þar 'tekin ákvörðun um hvert
næsta skrefið skuli verða i aðstoð
íslands við Pólverja.
AM
BÍar" HAy®gVaSOnSegÍrírá Pó,,and8l&r8innl-Meðh0n“m * myn'dlnni/érú þeir ólafur Mixa, stjórnarformaður ákT og Jón Asgeirsson. frám"-
kvæmdastjóri.
(Tlmamynd Róbert).
dropar
Fram-
bods-
raunir í
Eyjum
■ Það ætlar ekki að
ganga andskotalaust fyr-
ir krata I Vestmannaeyj-
um að koma saman lista
fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar I vor. Við
höfum áður sagt frá próf-
kjöri kratanna i Eyjum,
og þætti sjálfstæðis-
manna f kjöri Þorbjörns
Pálssonar, sem þar hlaut
efsta sætið. Margir Eyja-
kratar munu una þvi illa
að íhaldið skuli hafa úr-
slitaáhrif á skipan fram-
boðslistans, og hafa þeir
haft uppi háværar kröfur
um að prófkjörið veröi
ógilt — ella muni þeir
ekki styðja Alþýðuflokk-
inn I kosningunum.
Ofangreindur Þorbjörn
mun að sfnu leyti vera
sárreiður út af viðbrögö-
um samflokksmanna
sinna við prófkjörsniður-
stöðunni, og þaö svo að
hann sendi flokksforyst-
unni bréf þar sem hann
sagðist vera hættur I
flokknum vegna þess
hvað þaö hefði verið talaö
illa um hann. Sfðustu
fréttir herma þó aö Þor-
björn vilji draga úrsögn-
ina til baka, sem aftur olli
miklum vonbrigðum
þeirra sem heitastir eru
út í Þorbjörn.
Þorbjörn kveðst fús til
að rýma efsta sætið fyrir
Guömundi Þ.B. Ólafs-
syni, en sá siöarnefndi
mun mjög tregur til að
taka annað sæti en hann
vann i prófkjörinu.
Það er þvi ckki séð fyrir
endann á framboðsraun-
um krata i Eyjum.
Poppaðí
sjónvarpi
■ Poppunnendur fs-
lenskir hafa löngum þóst
illa sviknir af frammi-
stöðu sjónvarpsins f gerð
poppþátta, — hefur þótt
fremur litið til þess fram-
taks koma, að lepja upp
auglýsingakvikmyndir
útlendra plötufyrirtækja.
Eflaust má þó til sanns
vegar færa aö slikt sé
skárra en að sýna alls
ekkert popp.
Heldur mun þó vænkast
hagur Strympu að þessu
leytinu á næstunni, þvf
mm
Miðvikudagur 17. febrúar 1982
siðustu
fréttir
Reykja-
víkur-
skák-
mótið
— helstu
úrslit
D. Gurevic vann
skák sina gegn Alburt
i 7. umferð Reykja-
víkurskákmótsins,
sem fram fór á Kjar-
valsstöðum i gær-
kvöldi. Onnur úrslit
urðu sem hér segir:
Abramovic vann
Helga, Schamkovic
vann Bischoff, Bajo-
vic vann Krahenbuhl,
Forintos vann Friðrik,
Jóhann Hjartarson
vann Margeir,
Kindermann vann
Leif Jósteinsson, Kuli-
gowski vann Jónas P.
Erlingsson, Stefán
Briem vann Elvar
Guðmundsson, Höi
vann Hilmar Karls-
son, Westerinen vann
Benedikt Jónsson og
Július vann Goodman.
Jafntefli gerðu
Schneider og Adorjan,
Kogan og Sahovic,
Guðmundur Sigur-
jónsson og Horvath,
Iskov og Mednis, Frey
og Grunberg, Karl
Þorsteins og Róbert
Harðarson og einnig
þeir Asgeir Þ. Árna-
son og Jóhann Þórir
Jónsson.
Skák Roberts Byrne
og Ivanovic fór i bið i
gærkvöldi. Sömu sögu
var að segja af skák-
um eftirfarandi
kappa: Jón L. Arna-
son og Helmers, Wed-
berg og Burger, Zalts-
man og Sævar Bjarna-
son, De Firmian og
Haukur Angantýsson,
Hansson og Savage og
loks fór skák þeirra
Magnúsar Sól-
mundarsonar og Jó-
hanns Arnar Sigur-
jónssonar f biö.
sjónvarpiö vinnur að gerð
tveggja stuttra þátta um
islenskar popphljóm-
sveitir. Annar þátturinn
fjallar um Purrk-Pillnik-
flokkinn, eins og Jón Múli
myndi væntanlega orða
það, en f hinum munu
Grýlurnar láta ljós sitt
skina. Umsjónarmaður
þáttanna er hið rómaða
poppmenni Gunnar Sal-
varsson.
Krummi ...
heyrði aö ekkert i heimin-
um sé alrangt. Jafnvel úr
sem hefur stöðvast er rétt
tvisvar á sólarhring...