Tíminn - 17.02.1982, Blaðsíða 18

Tíminn - 17.02.1982, Blaðsíða 18
18 Kvikmyndir og leikhús l| iH'll l| í'il'ii Mibvikudagur 17. febrúar 1982 kvikmyndahornid ■ Angela og Pablo búa sig undir vopnafi rán I „Fljótt, fljótt”. Unglingar á refilstigum FLJÓTT, FLJÓTT (Deprisa, deprisa). Leikstjórn og handrit: Carlos Saura. Afialhlutverk: José António Valdelomar, José Maria Hervás Roldán, Jesús Ariás Aranzeque, Berta Socuellamos Zarco. Myndataka: Teo Escamilla. Framleiöandi: Elias Querejeta, Toni Moliére, Spáni, 1981. ■ Carlos Saura er tvimæla- laust einn af forystumönnum spænskrar kvikmyndagerðar siðustu ára, og hann hefur hlotið góðar viðtökur á kvik- myndahátiðum allt frá árinu 1976 aö mynd hans, Cria Cuer- vos/Cria!, fékk verðlaun i Cannes. Þær kvikmynda 'Saura, sem fjallað hafa um borgarastyrjöldina á Spáni og atburði tengda henni, hafa þótt um margt merkilegar. Fyrsta leikna kvikmyndin i fullri lengd, sem Saura gerði, hét Los Golfos og fjallaði um afbrotaunglinga. Þeirri mynd var að visu illa tekið, bæði i Cannes og annars staðar, en er þó að sumu leyti eins konar aðdragandiað „Fljótt, fljótt”, sem fengið hefur mun betri viðtökur og m.a. verðlaun i Berlin i fyrra, að visu um- deild. „Fljótt, fljótt” segir frá nokkrum afbrotaunglingum á Spáni. Höfuðpaurarnir i glæpaflokknum eru Pablo og Sebas. Þeir ræna bilum og stunda vopnuð rán i fyrirtækj- um, þar sem peninga er að hafa. Pablo veröur hrifinn af An- gelu, sem er afgreiðslustúlka i veitingahúsi, og hún af hon- um. Eftir nokkur kynni er An- gela tekin inn i glæpaflokkinn, enda hefur hún sýnt sig að vera mjög fær i skotfimi. Þau fremja nokkur rán saman, Angela kaupir ibúð fyrir sig og Pablo, en hann fær sér nýjan bfl. Peningarnir fara næstum þvi jafn fljótt og þeirra er afl- að, og þess vegna leggja þau alltaf i ný og ný rán. Loks gera þau tilraun til að ræna banka og komast undan með veru- legt fjármagn, en einn i flokknum er skotinn til bana á staðnum, og Pablo særist hættulega á flóttanum. Sebas og Angela koma honum heim i ibúð Angelu, en siðan fer Se- bas að brenna bifreiðina, sem þau notuðu við ránið, til að þurrka út öll spor. En lögregl- an verður vör við brunann og umkringir staðinn og Sebas fellur. Angela hringir i lækni og borgar honum milljón pe- seta til að gera að sárum Pablos. Læknirinn tekur pen- ingana og kveðst þurfa að ná i græjur, en kemur ekki aftur. Pablo deyr að lokum en An- gela tekur peningana, sem eft- ir voru, og vopnin og heldur út i borgina. Mynd Saura er óneitanlega spennandi, og honum tekst vel að lýsa stuttu timabili i sögu nokkurra ungmenna, sem leiðst hafa út á glæpabrautina. Hinsvegar fer litið fyrir skýringum á þvi, hvers vegna þau velja þá braut: ef marka má dæmið um Angelu virðist ástæðan vera ást hennar á Pabló, en hvað með hina? Það hefði vissulega gefið myndinni aukna þýðingu ef nánar hefði verið farið ofan i orsakir þess, að unglingarnir gerast glæpa- menn. —ESJ. Elias Snæland Jónsson skrifar ★ ★ FljÓtt, fljótt -¥■ Hver kálar kokkunum? ' ★ ★ ★ Járnmaðurinn ★ ★ ★ Báturinn er fullur ★ ★ Stalker ★ ★ Barnaeyjan ★ ★ Systurnar ★ ★ Private Benjamin ★ Glæpurinn i Cuenca -¥■ Jón Oddur og Jón Bjarni ★ 1941 Stjörnugjöf Tímans * * * * frábær ■ * + * mjög göð - * * góð - * sæmileg - O léleg

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.