Fréttablaðið - 01.12.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 01.12.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er mánudagurinn 1. desember, 336. dagur ársins. 10.47 13.16 15.47 10.55 13.01 15.08 Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Uppbúið rúm í svefnpokaplássi kr. 2.000 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is Rétt fyrir og eftir jól bregst ekki að á hverju ári eiga börn- in mín afmæli. Án þess að hafa fræðilega rannsókn til stuðnings tel ég einsýnt að margt fólk eigi sinn persónulega fengitíma eins og hver annar búfénaður og hafi þannig sterka tilhneigingu til að eignast börnin sín á einni og sömu árstíðinni. Vegna þess að mér er ýmislegt betur gefið en hagsýni eiga allar dæturnar afmæli um þessar mundir. Einmitt á mesta útgjaldatíma ársins. Kreppa eða ekki kreppa. Á HÁSKÓLAÁRUNUM var þessi staðreynd frekar óheppileg vegna þess hversu naumlega námslánin eru reiknuð. Á þeim tíma var raunar aðeins stakur lítill grís í kotinu svo hjá skynsömu fólki hefði eitt barnaafmæli ekki sett strik í reikninginn. En vegna frammistöðukvíða kornungrar móður var íburðurinn slíkur að gestirnir fengu ofbirtu í augun. Hverjum og einum var ætlað að innbyrða svona þyngd sína af brauðtertum og súkkulaðikökum því enginn skyldi hanka mömm- una á að standa ekki sína plikt. Barnunginn var hlaðinn fíneríis- gjöfum, nostursamlega pökkuðum inn í sérvalinn úrvalspappír og merktum með handgerðum, syngj- andi afmæliskortum. Miðað við flottheitin á þessu stöðuprófi hefði mátt ætla að foreldrarnir væru verðbréfasalar og árið væri 2007. MEÐ hverju barni hefur kæru- leysið vaxið með lógaritmískum hraða svo núorðið er markmiðið einna helst að lágmarka fyrirhöfn- ina. Blessað örverpið er enn of ungt til að gera sér ljóst að hún er fórnarlambið í systraröðinni, því þegar loks kom að henni var nostrið uppurið. Afmælisgjöfin er ekki lengur ákveðin með löngum fyrirvara í yfirveguðu ljósi sál- fræðikenninga um mikilvæga þroskaþjálfun, heldur keypt í snarheitum korter í afmæli. REYNDAR hafði hún nefnt að hana langaði helst af öllu í flugvél. Með stóru gjöfinni – sem þrátt fyrir allt er enn þá keypt – flaut því aggalítil leikfangaflugvél. Lærdómurinn sem hægt er að draga af viðtökunum sannar hið fornkveðna: Það eru litlu hlutirnir í lífinu sem skipta máli. Telpu- kornið leit ekki við flottasta hlaupahjólinu í bænum en var alsæl með flugvélina. Það er nefni- lega bæði hægt að láta hana fljúga í þykjustunni og stinga í vasann. Þetta er gott að muna í kreppu. Kannski splæsi ég á hana sportbíl í jólagjöf. Gott að muna í kreppu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.