Fréttablaðið - 01.12.2008, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 01.12.2008, Blaðsíða 36
20 1. desember 2008 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Sérðu eitthvað? Já. Vertu alveg kyrr, og ég næ þessu út. Ókei, ég kom semsagt heim í gærkvöldi. Tveimur mínútum eftir að ég kem inn byrjar mamma að nöldra um níu mismun- andi hluti og pabbi hótar að taka af mér vasapeningana ef ég taki mig ekki saman í andlitinu. Úps. Það er slæmt. Já. Yfirleitt gengur þetta fljótt yfir. Ég vona að þau séu ekki veik eða eitthvað. Rigning, rign- ing. Er engin leið að losna við þetta? Ég held að sé engu tauti við hann komið. Hey! Ég finn fyrstu tönnina hennar Lóu! Er þetta ekki gaman?? Ég veit ekki hvort þetta sé „gaman“, þetta er nú bara tönn. En þetta er fyrsta tönn barnsins þíns! Já, en þetta er þriðja barnið mitt... þetta er nú ekki beint neitt nýtt. Þetta er það kaldranaleg- asta sem ég hef heyrt! Þér finnst ég víst kald- ranalegur líka? Heldur betur, ef það þýðir að þú gefur mér gjöf til að ég geti jafnað mig. Hæ, þú hlýtur að vera kom- inn á blint stefnumót, Harry... ... og þannig hófst ferill Harrys Hou- dini, töframanns- ins sem gat látið sig hverfa... Fyrirsagnir síðustu daga hafa ekki beint reynst prozak-skammturinn handa þunglyndri þjóð. Orðin „hópuppsagnir“, „greiðslustöðvun“ og „gjaldþrot“ falla ekki beint undir skilgreininguna „gleðigjafar“. Stutt er til jóla og manni er það hreinlega til efs að einhver geti tekið undir með jólalög- unum. Fyrir ári lýstu SÞ því yfir að Íslendingar væru hamingjusamasta þjóð í heimi. Við ættum gommu af cashi, glæsikerr- um og Gucci-skóm. SÞ komust að þeirri niðurstöðu að þjóðin réði sér varla fyrir kæti út af öllum þessum hlutum. Gleðin hvarf eins og dögg fyrir sólu þegar bankarnir hurfu. Íslendingar breyttust á einni nóttu úr ham- ingjusömu hórunni sem glöð fækkaði fötum fyrir yfirdráttar- lán í syrgjandi ekkju kapítal- ismans. En kannski ætti ekkjan ekkert að vera að gráta karlinn. Enda var hann eigingjarn fauti sem skildi ekkert eftir sig nema skuldir. Kannski ættum við að vera rosalega glöð. Kerfið sem hvatti til skilyrðislausrar hlýðni og ástar á guðinum Mammon er hrunið. Þjóðinni hefur verið rétt tækifæri til að byggja upp nýtt samfélag sem grundvallast á einhverju öðru en afbrýði- semi út í fótanuddtæki náungans. Við gætum þess vegna orðið fyrsta gjaldþrota þjóðin sem toppar tilgangslausan hamingju- lista SÞ ef menn vilja. Góðærið gerði okkur heimsk. Íslenska þjóðin er loksins að ranka við sér eftir að hafa verið mötuð á kræklingi og humri af matseðli heimsendingarþjónustu greining- ardeildanna. Eðlilega er hún nokkuð úrill enda var svefninn góður. Til að vakna almennilega þarf hún róttækar breytingar í morgunmat. Ekki bara kaffi og sígó. Kaffi og sígó NOKKUR ORÐ Freyr Gígja Gunnarsson Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.