Fréttablaðið - 03.12.2008, Síða 4
4 3. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
Í frétt um lokun vinstri beygju við
Bústaðaveg í blaðinu á sunnudag
var ranglega haft eftir formanni
umhverfis- og samgönguráðs að við
breytinguna yrði Bústaðavegur að
hverfisgötu. Þá eru nokkrir mánuðir
síðan borgarráð hafnaði því að leggja
mislæg gatnamót á umræddum stað.
LEIÐRÉTTING
EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnin hefur
tilkynnt aðgerðir í tólf liðum sem
eiga að bæta rekstrarumhverfi
fyrirtækja. Ríkisstjórnin ætlar að
greiða fyrir uppgjöri við erlenda
kröfuhafa með því að bjóða þeim
hlutafé í nýju bönkunum, breyta
lögum þannig að fyrirtækjum
verði gert kleift að gera upp árs-
reikninga í erlendri mynt aftur-
virkt frá 1. janúar 2008 og fara
yfir nýsettar reglur um gjaldeyr-
ishömlur til að takmarka neikvæð
hliðaráhrif þeirra eins og kostur
er.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra segir að „í prinsippinu“
komi til greina að erlendir kröfu-
hafar geti eignast allt að 100 pró-
senta hlut í nýju bönkunum „en
það er allt útfærslu- og samninga-
atriði við þessa aðila. Okkur finnst
mikilvægast að koma á góðu sam-
bandi við þessa kröfuhafa og síðan
er hitt útfærsluatriði hversu langt
væri gengið ef á annað borð er
vilji til að fara þessa leið,“ segir
hann.
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
segir að ríkisstjórnin ætli að gera
bankaráðum nýju bankanna að
setja sér skýrar viðmiðunarreglur
um fyrirgreiðslu við fyrirtæki í
landinu með það að markmiði að
vernda störf og stuðla að áfram-
haldandi starfsemi lífvænlegra
fyrirtækja. Stofnuð verði eigna-
umsýslufélög á vegum bankanna
til að hefja umsjón með eignar-
hlutum í fyrirtækjum og óháður
umboðsmaður viðskiptavina
verður skipaður í hverjum banka.
Hvað atvinnumálin snertir
ætlar ríkisstjórnin að liðka fyrir
stofnun endurreisnarsjóðs, öflugs
fjárfestingarsjóðs atvinnulífsins
með þátttöku lífeyrissjóða, banka
og annarra fjárfesta, þar á meðal
erlendra fjárfesta. Ný lög eiga að
rýmka heimildir lífeyrissjóða til
að taka þátt í fjárfestingum.
Þrátt fyrir niðurskurð í ríkisút-
gjöldum leggur ríkisstjórnin
áherslu á mannaflsfrekar og
atvinnuskapandi framkvæmdir og
leitar eftir samstarfi við sveitar-
félögin um tímasetningu fram-
kvæmda. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir utanríkisráðherra segir að
þrátt fyrir samdrátt í framkvæmd-
um skipti máli að þær fram-
kvæmdir sem þó séu í gangi
útheimti meiri mannafla en ann-
ars væri ráð fyrir gert.
Ekki er gert ráð fyrir neinum
fjármunum frá ríkinu vegna
björgunaraðgerðanna. Geir segir
erfitt að segja hver áhrifin af
björgunarpakkanum verða.
ghs@frettabladid.is
Erlendir kröfuhafar
myndu fá bankana
Ríkisstjórnin vill bjóða erlendum kröfuhöfum hlutafé í nýju bönkunum, leyfa
fyrirtækjum að gera upp ársreikninga í erlendri mynt afturvirkt og breyta ný-
settum gjaldeyrishöftum. Erfitt að segja um áhrifin, að mati forsætisráðherra.
BANKARNIR BOÐNIR KRÖFUHÖFUM Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra tilkynntu tólf liða björgunaráætlun fyrir fyrirtækin
í landinu á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í gær. Einn liður í aðgerðunum
er að bjóða erlendum kröfuhöfum hlutafé í nýju bönkunum, jafnvel sem nemur fullu
eignarhaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 Bankaráð setji sér skýrar við-
miðunarreglur um fyrirgreiðslu
við fyrirtæki.
2 Sérstök eignaumsýslufélög
stofnuð á vegum bankanna til
að hafa umsjón með eignar-
hlutum í fyrirtækjum.
3 Óháður umboðsmaður við-
skiptavina skipaður í hverjum
banka.
4 Við endurskipulagningu fyrir-
tækja valdar leiðir til að hamla
samkeppni sem minnst.
5 Ríkisstjórnin liðkar fyrir stofnun
endurreisnarsjóðs með þátt-
töku lífeyrissjóða, banka og
annarra fjárfesta. Breytir lögum
til að lífeyrissjóðir geti tekið
þátt í slíkum fjárfestingum.
6 Endurreisnarsjóður hvattur til
að taka tillit til góðra stjórn-
unarhátta og samfélagslegrar
ábyrgðar fyrirtækja.
7 Ríkisstjórnin greiðir fyrir upp-
gjöri við erlendra kröfuhafa
með því að bjóða þeim hlutafé
í nýju bönkunum.
8 Fyrirtæki geti gert
upp ársreikninga í
erlendri mynt frá 1.
janúar 2008.
9 Lífeyrissjóðir geti átt
fasteignir til lengri tíma.
10 Áhersla á mannaflsfrekar
atvinnuskapandi aðgerðir á
vegum ríkisins.
11 Ákvæði hlutafélagalaga,
skattalaga og annarra laga
endurskoðuð til að auðvelda
fyrirtækjum að komast í gegn-
um efnahagsástandið.
12 Ríkisstjórnin í samvinnu við
aðila vinnumarkaðarins fer yfir
nýsettar gjaldeyrishömlur.
BJÖRGUN
FYRIRTÆKJA
EFNAHAGSMÁL Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, SA, fagnar aðgerða-
pakka ríkisstjórnarinnar til björg-
unar fyrirtækjum í landinu. Vil-
hjálmur segir að áætlunin, sem er í
tólf liðum, sé skref í rétta átt og „í
samræmi við það sem við höfum
lagt til“ en vinna þurfi meira í
þessum atriðum.
„Sumt af þessu eru frumvörp
sem þarf að smíða, sumt af þessu
eru aðgerðir, til dæmis í sambandi
við bankana, sem krefjast áfram-
haldandi vinnu en það er þó komin
stefnumótun hvert á að fara. Síðan
þarf að bakka út úr gjaldeyrishöft-
unum, það er mjög gott að opnað sé
á það og svo er nauðsynlegt þetta
með ársreikninga í erlendum gjald-
miðlum,“ segir hann.
„Mér finnst þetta mikilvægt inn-
legg,“ segir Gylfi Arnbjörnsson,
forseti Alþýðusambands Íslands,
ASÍ. „Vonandi er þetta fyrsta skref
í því að reyna að koma til móts við
fyrirtækin þannig að það geti dreg-
ið úr og vonandi gengið til baka í
þessum uppsögnum sem hafa verið.
Ég fagna því að vilji stjórnvalda
kemur fram í því að endurskoða
með okkur gjaldeyrishöftin og tak-
marka neikvæð hliðaráhrif.“
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
fagnar aðgerðapakka ríkisstjórnar-
innar og segir að hægt sé að beina
kröftunum í mannaflsfrekar fram-
kvæmdir á borð við snjóflóðavarnir
og brúabyggingu víðs vegar um
landið þrátt fyrir samdrátt í fram-
kvæmdum sveitarfélaganna. - ghs
Aðilar vinnumarkaðarins fagna aðgerðapakka til björgunar fyrirtækjum:
Fyrstu skrefin í rétta átt
Rangt er sem fram kom í Fréttablað-
inu í gær að öllu starfsfólki veitinga-
staðarins Við tjörnina hefði verið
sagt upp. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
BANDARÍKIN, AP Bandarísk
þingnefnd telur líklegt að innan
fimm ára verði Bandaríkin fyrir
árás hryðjuverkamanna sem
notast við annaðhvort kjarnorku-
vopn eða eiturefnavopn.
Í skýrslu nefndarinnar sem
kynnt var í gær er nýskipaðri
ríkisstjórn Baracks Obama, sem
tekur við völdum í janúar
næstkomandi, ráðlagt að búa
Bandaríkin betur undir slíkar
árásir.
Nefnd um varnir gegn
útbreiðslu gjöreyðingarvopna og
hryðjuverka er skipuð þingmönn-
um beggja flokka.
- gb
Bandarísk þingnefnd:
Árás líkleg inn-
an fimm ára
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
13°
5°
5°
5°
4°
5°
1°
2°
5°
5°
19°
1°
9°
20°
0°
5°
14°
5°
Á MORGUN
5-13 m/s, hvassast
suðaustan til.
FÖSTUDAGUR
8-13 m/s
13
13
4
6
3
4
6
18
8
6
1
1
-1
-1
-3
-2
-4
1
0
3
-7
8
-3
-3
-1
-2
-4 -3 -4
-1
-1
-1
HLÝNAR UM
HELGINA
Allt bendir til þess nú
að um helgina, eink-
um á sunnudaginn,
taki að hlýna á land-
inu samfara suðlægri
átt. Á laugardag hlán-
ar með sunnan- og
vestanverðu landinu
en á sunnudag bætir
nokkuð í vindinn sem
ætti að duga til að
koma sæmilegum hlý-
indum yfi r á norðan
og austanvert landið.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
HALLDÓR HALL-
DÓRSSON
VILHJÁLMUR
EGILSSON
VIÐSKIPTI „Það er mjög ánægju-
legt fyrir starfsmennina hér hvað
það er mikill áhugi á rekstrinum
en það hafa mjög margir lýst yfir
áhuga á því að koma inn sem nýir
hluthafar í Árvakri,“ segir Einar
Sigurðsson forstjóri félagsins.
Hann segist þó ekki vilja nefna
nein nöfn. Nokkuð hefur verið
fjallað um það á vefmiðlum að
menn sem eru mótfallnir aðild
Íslands að Evrópusambandinu
vilji eignast ráðandi hlut og hafa
þannig áhrif á stefnu blaðsins í
þeim efnum. „Hópur þeirra sem
hafa lýst yfir áhuga sínum er
mun breiðari en svo að hægt sé að
skilgreina hann með þessum
hætti og ég tel að þetta ferli sem
nú er að fara í gang ráðist ekki af
umræðunni um Evrópusamband-
ið.“ - jse
Þreifingar um Morgunblaðið:
Margir hafa
lýst yfir áhuga
Úttekt á gölluðu íþróttahúsi
Óháður aðili á að taka út undirbún-
ing, hönnun, eftirlit og framkvæmd
við byggingu íþróttahússins Bröttu-
hlíðar á Patreksfirði. Bæjarstjórn
Vesturbyggðar vill með þessu leiða í
ljós misfellur í byggingunni og hvern-
ig bregðast má við með úrbótum.
Ágreiningur er um hver á að bæta úr
göllum hússins.
VESTURBYGGÐ
GENGIÐ 02.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
250,1019
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
147,46 148,16
218,48 219,54
186,48 187,52
25,03 25,176
20,793 20,915
17,691 17,795
1,582 1,5912
218,41 219,71
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR