Fréttablaðið - 03.12.2008, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég keypti bílinn í mars í fyrra.
Hann heillaði mig strax þegar ég
sá hann því mér fannst hann svo
sérstakur í útliti. Áður vissi ég
ekki að þessi gerð væri til,“ segir
Íris Blómlaug um Toyotuna sína
sem hún telur mjög rúmgóða.
„Þegar búið er að leggja niður
sætin er hún orðin að litlum
sendibíl og ég hef notað hana í
flutninga bæði fyrir sjálfa mig
og fjölskylduna. Maður stígur
líka upp í hana en sest ekki niður
eins og marga aðra bíla og sér vel
í kringum sig úr sætunum,“
bendir hún á og bætir við stolt:
„Systir mín á jeppling og minn er
jafnhár.“
Spurð út í aksturseiginleika og
kraft svarar hún: „Ég man ekki
upp á hár hver hestaflafjöldinn
er en bíllinn er að minnsta kosti
nógu kraftmikill fyrir mig.“
Aðeins kveðst Íris Blómlaug
hafa notað Toyotuna sem ferða-
bíl. „Maður getur komið enda-
laust miklu útilegudóti í hann.
Undir sætum og undir gólfinu
líka. Þar er hægt að leggja niður
eitt sæti eða eitt og hálft. Eitt er
enn óupptalið. Ef ég hef lagt bíln-
um við verslunarmiðstöð og man
ekki hvar hann er þá finn ég hann
alltaf mjög fljótlega því hann er
hærri en aðrir fólksbílar.“
Synir Írisar kunna líka vel að
meta farkost móður sinnar. Bíla-
áhuginn er þeim í blóð borinn.
„Pabbi var bifvélavirki og dreng-
irnir mínir hafa erft bílaáhug-
ann,“ segir Íris Blómlaug bros-
andi. „Þegar ég var á leið heim úr
leikskólanum með þá kunnu þeir
að nefna flesta bíla sem þeir
mættu. En þegar ég sagði þeim
að ég væri búin að kaupa Toyota
Yaris Verso Luna voru þeir ekki
vissir hvernig hann liti út. Ég
lýsti honum þannig að hann væri
eins og venjulegur Toyota Yaris
nema hvað það væri eins og Guð
hefði togað upp toppinn og
stækkað hann. Það fannst þeim
æðislegt!“ gun@frettabladid.is
Eins og Guð hefði togað
upp toppinn á bílnum
Íris Blómlaug Jack virðist endalaust geta talið upp kosti bílsins síns sem er af gerðinni Toyota Yaris Verso
Luna, árgerð 2002. Hún kann vel við hann í snjó og hálku og kvíðir ekki vetrinum.
Íris Blómlaug, Fannar Hrafn og Pétur William við fjölskyldubílinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
PIPARKÖKUR getur verið sniðugt að kaupa fyrir
þá sem hafa nóg að gera. Svo er hægt að fá tilbúinn
litaðan glassúr í túbum sem fljótlegt og auðvelt er að
sprauta beint á kökurnar.
– gefðu af skynsemi
Sölustaðir: Járn og gler · Garðheimar
Húsasmiðjan · Búsáhöld Kringlunni · Pottar og Prik Akureyri
X
E
IN
N
JG
08 11 002
www.weber.is
Jólagjöf fyrir þá
sem „eiga allt“
Gefðu hlýju og samveru um jólin!
Allir kunna að meta það að hafa tækifæri á að komast í gott
frí í sólina eða annað. Gjafabréf Heimsferða er jólagjöf, sem
er í senn hagnýt, skemmtileg og sveigjanleg og felur í sér
hlýju og samveru með sínum nánustu. Lágmarksupphæðin
er 3.000 kr. en annars ræður þú upphæðinni.
Nánar á www.heimsferdir.is og í síma 595 1000.