Fréttablaðið - 03.12.2008, Qupperneq 34
18 3. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
RITHÖFUNDURINN JOSEPH CONRAD
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1857.
„Smjaðrarar líkjast vinum – eins og
úlfar líkjast hundum.“
Joseph Conrad var pólskur að uppruna.
Hann gerðist sjómaður á bresku skipi
tvítugur og varð síðar breskur þegn.
Hann hætti sjómennsku 36 ára og gerð-
ist rithöfundur. Innstu myrkur, Meistari
Jim og Nostromo eru meðal bóka hans.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
Hörður Jónasson
húsasmíðameistari, Mánabraut 6,
Kópavogi,
andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfara-
nótt mánudagsins 1. desember. Útförin auglýst síðar.
Sigrún Eliseusdóttir
Ellert Ingi Harðarson Oddný Jóna Þorsteinsdóttir
Jónas Freyr Harðarson Anna Soffía Reynisdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Viktor Hjaltason
fyrrverandi bifreiðastjóri,
Garðstöðum 31, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn
4. desember kl. 13.00.
Elín Pálmadóttir
Elvira Viktorsdóttir Guðmundur St. Sigmundsson
Kristín Viktorsdóttir Sveinbjörn Guðjónsson
Lýður Pálmi Viktorsson Sigríður Jóna Eggertsdóttir
Elín Berglind Viktorsdóttir Unnar Smári Ingimundarson
Rúnar Viktorsson Kristín Guðjónsdóttir
Marteinn E. Viktorsson Sigríður M. Gestsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Huld Þorvaldsdóttir
frá Svalvogum í Dýrafirði,
sem andaðist á Hrafnistu 22. nóvember, verður
jarðsungin frá Digraneskirkju fimmtudaginn
4. desember kl. 15.00.
Elís R. Helgason Inga G. Guðmannsdóttir
Unnur R. Helgadóttir
Sigurborg Þóra Helgadóttir Sigtryggur Ingi Jóhannsson
Marta B. Helgadóttir Jón Magnússon
og ömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Kristín Hannesdóttir
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
lést mánudaginn 1. desember á hjúkrunarheimilinu
Vífilsstöðum. Útför auglýst síðar.
Gréta Lárusdóttir
Indríður Lárusdóttir
Ingunn Lárusdóttir
Sigfríður Lárusdóttir Páll Steinarsson
Svanur Lárusson Sigurborg Óskarsdóttir.
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigrún Guðný
Guðmundsdóttir
frá Bala, Stafnesi, Stapavöllum 19,
Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudag-
inn 30. nóvember sl. Útför hennar fer fram frá
Safnaðarheimilinu í Sandgerði laugardaginn
6. desember nk. kl. 14.00.
Guðmundur H. Ákason
Guðrún Gunnarsdóttir
Jón Gunnarsson Guðrún Gunnarsdóttir
Kristþór Gunnarsson Ásrún Rúdólfsdóttir
Guðmundur G. Gunnarsson Þórhalla M. Sigurðardóttir
Þjóðbjörg Gunnarsdóttir Reinhard Svavarsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
Guðlaug Einarsdóttir
Víghólastíg 14, Kópavogi,
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 28. nóvember, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn 10. desember kl.
15.00.
Sveinbjörn Björnsson
Björn Már Sveinbjörnsson
Einar Örn Sveinbjörnsson Guðrún Karlsdóttir
Hólmfríður Frostadóttir
Ísak Helgi Einarsson
Þorvaldur Bragason Guðrún Jóhannsdóttir
Birna Þorvaldsdóttir
Bragi Þorvaldsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Helgi Þorsteinsson
fyrrum skólastjóri og bæjarritari á Dalvík,
Skálagerði 4, Akureyri
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 5.
desember kl. 13.30.
Þórunn Bergsdóttir
Yrsa Hörn Helgadóttir Gunnar Gíslason
Ylfa Mist Helgadóttir Haraldur Ringsted
Guðrún Jónína Friðriksdóttir Steinar Smári Júlíusson
Steingrímur Friðriksson J. Freydís Þorvaldsdóttir
Guðný Friðriksdóttir Einar Viðar Finnsson
Hrefna Þórunnardóttir
og barnabörn
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og
bróðir,
Einar Sigurðsson
viðskiptafræðingur, Norðurbrún 1,
lést fimmtudaginn 27. nóvember. Jarðarförin fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 5. desember
kl. 13.00.
Katrín Einarsdóttir Jónas Kristjánsson
Dóra Gróa Þórðar Katrínardóttir Heiðar Þorri Halldórsson
Berglind Hrund Jónasdóttir
Auður María Jónasdóttir
Kristján Jónasson
Örn Frosti Katrínarson
Geirlaug Sigurðardóttir
Magnús Sigurðarsson
Júlíana Sigurðardóttir Kristján Björnsson
Gunnar Sigurðsson Sigríður Einarsdóttir
Fyrstu nærmyndir af Júpíter bárust jörðinni þenn-
an dag árið 1973. Þær myndir komu frá geimfarinu
Pioneer 10, sem var fyrst til að fljúga
fram hjá Júpíter. Í kjölfar Pioneer 10
fylgdi systurfarið Pioneer 11. Hætt var
að fylgjast með Pioneer 10 árið 1997
en síðast heyrðust merki frá því í jan-
úar 2003.
Pioneer-flaugarnar tóku fyrstu nær-
myndirnar af reikistjörnunni og stærstu
fylgitunglunum. Geimflaugarnar kom-
ust að því að segulsviðið í nánd við
Júpíter var mun sterkara en menn áttu von á. Í
ljós kom að segulsviðið er fjórtán sinnum sterkara
en segulsvið jarðar. Ferðalag geimfaranna var enn
fremur notað til að mæla nákvæmlega massa Júp-
íters og tunglanna, sem og stærð reikistjörnunnar.
Sex árum síðar, eða árið 1979, flugu Voyager
1 og 2 framhjá Júpíter og byltu þekkingu okkar á
reikistjörnunni og Galíleótunglunum. Flaugarnar
uppgötvuðu að Júpíter hafði hringakerfi og stað-
festu að Stóri rauði bletturinn var há-
þrýstisvæði. Samanburður á mynd-
um Voyagers og Pioneer sýndi að litur
Stóra rauða blettsins var að breytast.
Hingað til hefur aðeins eitt geim-
far komist á braut um Júpíter. Hinn 7.
desember 1995 komst Galíleógeim-
farið á braut um reikistjörnuna eftir
ríflega sex ára ferðalag um geiminn.
Galíleófarið sveimaði um Júpíter í rúm
sjö ár og flaug nokkrum sinnum framhjá Galíleó-
tunglunum, sem og Amalþeu. Leiðangurinn gekk
ekki alveg þrautalaust fyrir sig því loftnet geim-
farsins opnaðist ekki að fullu og takmarkaði tals-
vert upplýsingaflæðið til jarðar. Engu síður hlaust
góður árangur af leiðangrinum og mest af því sem
við vitum um Júpíter var aflað í þeim leiðangri.
ÞETTA GERÐIST: 3. DESEMBER 1973
Fyrstu nærmyndir af Júpíter berast
MERKISATBURÐIR
1818 Illinois verður 21. ríki
Bandaríkjanna.
1825 Tasmanía verður sjálfstæð
nýlenda Breta.
1857 Á Kollsvík við Patreksfjörð
farast þrír þegar hvirfilvind-
ur skellur á bæjarhúsum og
brýtur þau niður.
1944 Borgarastyrjöld brýst út í
Grikklandi milli kommún-
ista og konungssinna.
1970 Verslunarmiðstöðin
Glæsibær tekin í notkun í
Reykjavík.
1971 Indland ræðst inn í Pak-
istan og stríð brýst út.
Hundruð manna farast.
1976 Morðtilræði við tónlistar-
manninn Bob Marley.
Hann hlýtur tvo skotsár
en heldur tónleika tveim
dögum seinna.
Forseti Íslands mun afhenda hvatningarverðlaun Öryrkja-
bandalagsins í dag við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi.
Þau eru veitt í þremur flokkum, til fyrirtækis, stofnunar og
einstaklings sem þykja hafa skarað fram úr og endurspeglað
nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku
fatlaðra í samfélaginu. Undirbúningsnefnd hefur tilnefnt þrjá
í hverjum flokki.
Alþjóðadagur fatlaðra er í dag og kjörorð hans er Virðing
og réttlæti fyrir alla. Þetta árið er því fagnað að samningur
Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra var fullgiltur í maí
á þessu ári. Það var mikið framfaraskref, að sögn Báru Snæ-
feld, upplýsingafulltrúa Öryrkjabandalags Íslands, enda fjöl-
mörg lönd aðilar að þeim sáttmála. Hún segir sérstaka nefnd
vera að yfirfara íslensk lög til að athuga hvort þau falli að sátt-
málanum.
„Fyrirmynd að hvatningarverðlaunum er frá Írlandi og
voru fyrst veitt hér á landi í fyrra,“ segir Bára spurð hvort
verðlaunin séu íslenskt fyrirbæri. „Þá fékk Móðir náttúra þau
í hópi fyrirtækja, Starfsendurhæfing Norðurlands í flokki
stofnana og Freyja Haraldsdóttir sem einstaklingur fyrir
að bæta ímynd fatlaðra í samfélaginu og knýja á um að þeir
fengju fé sem þeir gætu ráðstafað sjálfir til dæmis í nám eða
stoðtæki. Svo bíðum við spennt eftir því hverju dómnefndin
komst að núna.“
Tilnefningarnar til hvatningarverðlaunannna eru fjölbreytt-
ar og snerta meðal annars umfjöllun fjölmiðla um fatlaða,
uppbyggingu á námi og óheft aðgengi. „Í raun geta fatlaðir
gert allt ef þeir eru ekki bundnir af því sem samfélagið hefur
búið til og miðar allt við fullfríska,“ bendir Bára á. „Þar þarf
oft bara rétta hugsun í upphafi.“ gun@frettabladid.is
HVATNINGARVERÐLAUN ÖBÍ: AFHENT Í DAG Á ALÞJÓÐADEGI FATLAÐRA
Virðing og réttlæti fyrir alla
BÁRA SNÆFELD, UPPLÝS-
INGAFULLTRÚI ÖBÍ Við
bíðum spennt eftir því
hverju dómnefndin komst
að núna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR