Fréttablaðið - 09.12.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
9. desember 2008 — 337. tölublað — 8. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Vilma Bacianskaite er fædd og
uppalin í Litháen, en settist að hér
á landi ásamt fjölskyldu sinni á ið2000 Ma t k
útskýrt fyrir mér,“ segir hún oghlær. þ
Jólasveinninn ekki sáttur
Vilma Bacianskaite flutti frá Litháen til Íslands árið 2000 og gleymir seint fyrstu jólunum hérlendis.
Vilma ætlar að verja jólunum í Litháen í ár og hlakkar til að hitta alla fjölskylduna á ný.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GERVIJÓLATRÉ geta verið til alveg jafn mik-illar prýði og lifandi tré ef þau eru falleg og kost-ur að geta notað sama tréð ár eftir ár. Þeir sem eru sæmilega handlagnir geta jafnvel smíðað sitt eigið jólatré.
Minnum á vefverslunina
kristy.isKristy sf | Skúlagötu 13 | 310 Borgarnesi | tel/fax. 437 1234
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
50%
AFSLÁTTUR
90 x 200 cm
120 x 200 cm
150 x 200 cm
180 x 200 cm
Verð frá kr. 44.450,- Verð frá Kr. 55.950,-Verð frá Kr. 67.450,-Verð frá Kr. 80.950,-
Verðdæmi með afslætti:
af öllum rúmum
út nóvember
VERÐHRUN
Patti lagersala
VEÐRIÐ Í DAG
1
0
-4
-5
-1
HLÝNANDI Í dag er minnkandi
norðanátt austan til en vaxandi
suðaustanátt vestan til, 10-15 m/s í
kvöld. Úrkomulítið í fyrstu en slydda
og síðar rigning vestan til þegar
líður á síðdegið og kvöldið. Hlýnar.
VEÐUR 4
VILMA BACIANSKAITE
Skilaði skónum bara á
sinn stað í forstofunni
• jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
jólagjöfin hansÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 2008
Leysa börn úr ánauð
Unglingar úr Vídalínskirkju afhentu
Hjálparstarfi
kirkjunnar
nýlega 400
þúsund
króna gjöf.
TÍMAMÓT
Á aðventu
„Ekki fer hjá því að leiftur frá liðn-
um tíma fari öðru hvoru um hug-
ann á aðventunni og minni mann
á hver maður er og hvers vegna“,
skrifar Jónína Michaelsdóttir.
Í DAG 16
Ætlaði alltaf
alla leið
Gillzenegger á sinn
þátt í velgengni Arons
Pálmarssonar.
FÓLK 24
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
Bráðum
koma
blessuð
jólin
www.postur.is
Sendu jólakortin
og jólapakkana
tímanlega!
JÓLAGJÖFIN HANS
Útivist, afþreying og al-
mennt dekur um jólin
Sérblaðið Jólagjöfin hans
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VIÐSKIPTI „Stjórn Nýja Kaupþings
gerir alvarlegar athugasemdir við
þessi vinnubrögð stjórnar Existu
og mun leita allra leiða til að fá
þessum áformum hnekkt.“ Svo
segir í yfirlýsingu sem stjórn Nýja
Kaupþings sendi frá sér síðdegis í
gær.
Málið varðar mikla þynningu
hluta í fjárfestingafélaginu Existu,
sem hefur að mjög miklu leyti verið
í eigu Bakkabræðra, þeirra Ágústs
og Lýðs Guðmundssona.
Þeir tilkynntu um flókin viðskipti
til Kauphallarinnar í gær. Þeir hafi
stofnað félagið BBR sem á að kaupa
50 milljónir nýrra hluta í Existu, af
Kvakki, sem þeir eiga sjálfir. Exista
fær svo einn milljarð króna fyrir.
Hver hinna nýju hluta kostar því
tuttugu aura.
Eftir viðskiptin, gangi þau eftir,
eiga þeir bræður 87,9 prósenta hlut
í Existu og hlutir annarra hluthafa
minnka til muna hlutfallslega.
Bræðurnir gera þetta með fyrir-
vara um samþykki Fjármálaeftir-
litsins.
Stjórn Nýja Kaupþings unir
þessu ekki, segir í yfirlýsingunni.
Hún hafi sjálf undirbúið að taka
stjórn Existu yfir til þess að verja
hagsmuni bankans. Hagsmunirnir
munu, eftir því sem næst verður
komist, vera fólgnir í milljarða
króna lánum með veði í hlutabréf-
um í Existu. Þá herma heimildir
blaðsins innan bankans að yfirlýs-
ingin jafngildi því að segja Bakka-
bræðrum stríð á hendur.
Ætla megi að mikið gæti glatast,
þynnist hlutirnir verulega.
Við seinustu viðskipti var mark-
aðsvirði hlutar Bakkabræðra í
Existu tæpir 30 milljarðar króna.
Exista hefur gengið mjög illa,
ekki síst eftir bankahrunið, en það
var meðal annars stærsti hluthaf-
inn í Kaupþingi, með tæplega fjórð-
ungs hlut.
Aðrir sögðust ekki þekkja við-
skiptafléttu bræðranna en sögðu að
tæplega yrði af nema með sam-
þykki annarra hluthafa. - ikh
Kaupþing í stríð við
bræðurna í Bakkavör
Nýja Kaupþing leitar allra leiða til að hindra að Bakkabræður þynni út hlutafé
í Existu. Þannig á að verja milljarða lán með veði í hlutabréfum. Bræðurnir
vilja gefa út 50 milljónir nýrra hluta, fyrir 20 aura hvern, í flóknum viðskiptum.
MÓTMÆLANDI LEIDDUR Á BROTT Sjö voru handteknir fyrir að hlýða ekki tilmælum lögreglu í Alþingishúsinu í gær. Einn er
grunaður um að hafa bitið og sparkað í lögreglumann. Þingvörður meiddist einnig í átökunum. Mótmælendur sögðu aðgerðir
lögreglu hafa verið harkalegar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fram
pakkað
saman
Bikarmeistarar Vals
unnu ótrúlega auð-
veldan sigur á Fram í
Safamýrinni í gær.
ÍÞRÓTTIR 26
MÓTMÆLI Sjö voru handteknir í
Alþingishúsinu eftir að um þrjátíu
mótmælendum var meinaður
aðgangur að þingpöllum á þing-
fundi í gær. Tveir menn komust
framhjá þingvörðum út á pallana
og stöðvaðist starfsemi þingsins
þegar þeir hófu hróp og köll á borð
við „drullið ykkur út“ og „þetta
hús gegnir ekki hlutverki sínu
lengur“. Til ryskinga kom í stiga
og anddyri þinghússins þegar vísa
átti hópnum á dyr.
Einn karlmaður er grunaður um
að hafa bitið tvo lögreglumenn og
sparkað í þann þriðja. Hinum sem
handteknir voru var gefið að sök
að hafa ekki hlýtt tilmælum lög-
reglu. Einnig meiddist þingvörður
þegar honum var skellt utan í ofn í
þinghúsinu, að sögn Stefáns
Eiríkssonar lögreglustjóra.
Einn mótmælenda sagði aðgerð-
ir lögreglunnar hafa verið harka-
legar. Sturla Böðvarsson, forseti
Alþingis, segist líta atvikið mjög
alvarlegum augum. - kg
Hópi mótmælenda var meinaður aðgangur að þingpöllum á Alþingi í gær:
Sjö handteknir eftir ryskingar
FÉLAGSMÁL Gestir á borgarafundi í
Háskólabíói í gærkvöldi kröfðust
þess að ríkisstjórnin fari frá.
Salurinn var nánast fullsetinn á
um tveggja tíma fundi þar sem
fulltrúar verkalýðsfélaga og
lífeyrissjóða sátu fyrir svörum
ásamt viðskiptaráðherra. Einn
fundarmanna skoraði á forystu-
menn verkalýðsfélaganna að efna
til allsherjarverkfalls til að knýja
ríkisstjórnina frá völdum. Hann
fékk afar góðar viðtökur fundar-
manna en bæði Gylfi Arnbjörns-
son, forseti ASÍ og Eiríkur
Jónsson, formaður Kennarasam-
bands Íslands, sögðu verkfalls-
vopnið of dýrmætt til að beita því
öðruvísi en í lögmætum tilgangi.
- gar
Borgarafundur í gærkvöldi:
Verkfall gegn
ríkistjórninni
Í HÁSKÓLABÍÓI Um átta hundruð manns
voru á borgarafundinum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANKAR Unnið er nú að því að nýir
aðilar komi í stað endurskoðunar-
fyrirtækisins KPMG að rannsókn á
viðskiptum innan Glitnis í aðdrag-
anda þess að bankinn komst í þrot
fyrir rúmum tveimur mánuðum.
Aðkoma KPMG að verkinu hefur
verið gagnrýnd þar sem fyrirtækið
hefur annast endurskoðun fyrir
suma stærstu hluthafanna í Glitni
fyrir fallið. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins vinna stjórnvöld nú
að því að finna leiðir til að fá aðila
sem örugglega eru óháðir til
rannsóknarinnar á Glitni.
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri KPMG, sagði í Fréttablaðinu
í gær að fyrirtækið treysti sér vel
til að annast rannsóknina á réttan
hátt. - gar
Rannsókn á bönkunum:
KPMG skoði
ekki Glitni