Tíminn - 07.05.1982, Síða 19
Föstudagur 7. mai 1982
19
■ Vélaborg h/f hefursclt 100 til 150Ursus dráttar- ■ Baldur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Véla-
vélar á ári undanfarinn áratug. borgar. Timamyndir Róbert.
„Bindum miklar vonir
vid IMT dráttarvélina”
— segir Baldur Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri í Vélaborg h/f.
Supaspread — —*
♦
Mjög öflugur kastari
Stórir hjólbarðar
Húmtak 4,1-5 rúmmetrar
GOTT VERÐ OG
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR
■ ,, Uppistaðan í rekstri okkar er
innfiutningur og sala á dráttar-
véium og þjónusta þar aö iút-
andi”, sagði Baldur Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri f Vélaborg
þegar Timinn spurði hann um
hvað rekstur fyrirtækisins sner-
ist. ,,Það eru alls niu gerðir drátt-
arvéia sem við höfum á boðstól-
um, fimm frá Ursus i Póllandi og
fjórar frá IMT i Júgósiaviu. Við
höfum verið með Ursus I tiu ár og
útbreiðsia þeirra er kunnugri en
frá þurfi að segja. Hins vegar er
aðeins rúmt ár siðan við höfum
innflutning á IMT dráttarvéium
og við þau viðskipti bindum við
miklar vonir.”
— Standast þessar tegundir
samanburð við dráttarvélar frá
Vesturlöndum?
„Já, það held ég tvimælalaust.
Mér virðist þróun undanfarinna
ára hafa verið sú að framleiðsla
landbúnaðarvéla, og þá sérstak-
lega dráttarvéla, hefur tekið stór-
stigum framförum i Austur-
Evrópulöndum á meðan Vestur-
landaframleiðslan hefur staðið i
stað”, sagði Baldur.
„Svo má gjarnan bæta þvi við”,
sagði Baldur, ,,að IMT dráttar-
vélarnar eru gerðar eftir fyrir-
mynd frá Massey Ferguson, en
eru þrátt fyrir það mikið ódýrari
en sambærilegar vélarfrá þeim.”
... tætarar, plógar og
dreifarar...
— Þið seljið fleira en dráttar-
vélar?
„Jú, jú, mikil ósköp. Við erum
alltaf að bæta einhverju við. T.d.
þá flytjum við inn og seljum mik-
ið af allavega jarðvinnslutækjum
frá Póllandi. Svo sem tætara,
plóga og dreifara.”
— Hefur stjórnmálaástandið i
Póllandi engin áhrif á viðskiptin?
„Nei, stjórnmálaástandið hefur
alls ekki staðið i vegi fyrir okkur
enda er þeim lifsnauðsyn að
koma þessum vörum frá sér.”
— Hverjar eru helstu nýjungar
sem þið hafið uppá að bjóða?
„Að undanförnu höfum við ver-
ið að fikra okkur áfram með inn-
flutning á heyvinnuvélum. Við
höfum nýlega fengið góð umboð,
m.a. frá British Lely, Stoll i V-
Þýskalandi. Þá erum við i þann
mund að fá umboð fyrir tækjum
frá Austurriki og Frakklandi.”
— Einhverja innlenda fram-
leiðslu seljið þið?
„Já við höfum orðið þeirrar á-
nægju aðnjótandi að fá að stuðla
að vexti islensks iðnaðar með þvi
að hafa söluumboð fyrir Vikur-
sturtuvagna. Þeir hafa sýnt að
þeir eru vel samkeppnisfærir við
álika framleiðslu, erlenda”, sagði
Baldur. „Auk þess sem fram-
leiðsla þeirra er lifibrauð fyrir
einar fimm eða sex fjölskyldur
austur i Vik i Mýrdal.”
Svo má það gjarnan koma fram
að nú erum við að hefja sölu á
loftræstibúnaði fyrir gripahús af
gerðinni Alfa Laval.”
— Hvað um varahlutaþjón-
ustu?
„Við höfum frá upphafi lagt
mikið uppúr þvi að eiga til góðan
varahlutalager sem viðast á
landinu. En það má alltaf gera
betur og þvi stefnum við að þétta
þjónustunetið enn með fjölgun
uinboðsmanna úti á landsbyggð-
inni. Meðþvi viljum viðgera góða
þjónustu betri”, sagði Baldur að
lokum.
^-Sjó.
Suðurlandsbraut 32 - Sími 86500
Reykjavík
TINDARNIR TALA SÍNU MÁLI
Úrval tinda í allar heyvinnuvélar
Múgavélatindar
VICON
FAHR
KUHN
Bestu kaupin
úr beinum
innflutningi
HEYÞYRLUTINDAR
^ KAUPFÉLAGIÐ
Við eigum úrval af heyvinnuvélatindum