Tíminn - 07.05.1982, Qupperneq 20
20
Föstudagur 7. mai 1982
ffem
■ Friörik Halldórsson viö einn Maletti jarötætaranna. Tvöfaldar
skifufestingar á hnlfum, valda þvl að biianatlöni er mjög litii.
(Tlmamynd Kóbert).
ORKUTÆKNI er tilhúsa aö Hyrjarhöfða 3 og þar er öll varahluta og viögeröaþjónusta, ásamt lager.
(Timamynd Róbert).
Sláttuvagninn frá Scalvenzi
einfaldar vélakostinn til muna
Rætt við Friðrik Halldórsson hjá ORKUTÆKNI
■ ORKUTÆKNI er ungt fyrir- 1979 og er til húsa að Hyrjarhöfða tveir véltæknifræðingar, þeir
tæki sem stofnað var í október 3 i Reykjavik. Eigendur þess eru Friðrik Halldórsson og Pétur
HEILDSÖLUBIRGÐIR
JOPCO hf. Vatnagörðum 14 Símar 39130 - 39140
Vörn gegn kulda
Kuldagallinn frá Finnlandi
Hlýr - sterkur - loðfóðraður
Haraldsson. ORKUTÆKNI hefur
á boðstólum italskar SAME
dráttarvélar og búvinnuvélar frá
MALETTI og F.lli Scalvenzi.
„Ahugi hefur verið verulegur á
þessum vélum og fer vaxandi”,
sagði Friðrik Halldórsson, þegar
við spurðum hann um SAME
dráttarvélarnar en það eru tvær
italskar verksmiðjur sem fram-
leiða hluti i þær og ein svissnesk.
„Þessar vélar hafa sér það til
gildis að þær eru afar sparneytn-
ar”, sagði Friðrik. Stærðireru frá
30 hö. og upp i 160 hö. og gerðir
eru 27. SAME er nú samkvæmt
skýrslum sjötti stærsti framleið-
andi dráttarvéla i Evrópu.
Þær vélar sem hingað hafa
komið hafa reynst og likað mjög
vel og þegar eru dæmi um að
sömu menn hafa keypt fleiri en
eina vél. Er til þess tekið hve vel
þær hafa gengið I miklum kulda
og snjóþyngslum. Um verð er það
að segja að það er svipað og ger-
ist um margar dráttarvélar i
vandaðri flokki. Já, þetta eru
vandaðar vélar, enda boðin
tveggja ára ábyrgð á þeim og
þriggja ára ábyrgð i Sviþjóð og
Bandarikjunum.
Um þær er það enn að segja að
þeim fylgir mjög vandað hús fyrir
ökumann. Þær vélar sem við höf-
um selt til þessa hafa allar verið
meðframhjóladrifi og ég vil taka
fram að framhjóladrifið er mjög
vandað. Um varahlutaþjónustu
er það að segja að við höfum þeg-
ar komið upp talsverðum lager
fyrir þær gerðir sem við höfum
flutt inn og rekum hér verkstæði
fyrir okkar viðskiptavini. SAMI
dráttarvélarnar hafa verið
prófaðar hjá Bútæknideild á
Hvanneyri og fengu þar mjög
góða umsögn i heild, sérstaklega
fyrir sparneytni.
F.lli Scalvenzi búvinnu-
vélar
Sem áður segir er ORKU-
TÆKNI með umboð fyrir Malletti
og F.lli Scalvenzi. Frá Malletti
er um að ræða jarðtætara sem
byrjað var að flytja inn hjá
OjRKUTÆKNI 1980. Var tæturun-
um vel tekið, þvi fyrirtækið var
með 50% af markaðiá siðasta ári
og er að sjá sem svo verði einnig i
ár. Þeir hafa reynst vel og verð er
sérlega hagstætt.
Frá F.lli Scalvenzi er um að
ræða haugsugur, sem þegar hafa
selst talsvert, þvi verð þykir hag-
stætt og einnig þar er markaðs-
hlutdeild veruleg þegar. F.lli
Scalvenzi taðdreifarar og hey-
hleðsluvagnar eru og að verða
þekktir hér á landi og loks eru
miklar vonir bundnar við at-
hyglisverða nýjung: — sláttu-
vagn sem slær i sig sjálfur. Sagði
Friðrik hann einkum hugsaðan til
notkunar þar sem mikið er slegið
i vothey, enda hafa bændur sem
mikið leggja upp úr votheysverk-
un sýnt honum áhuga. Vagninn
einfaldar vélakost mikið og gerir
einum manni kleift að vinna hey-
skaparstörfin með meiri afköst-
um en áður eru dæmi um.
Auk áðurnefndra tækja hefur
ORKUTÆKNI til sölu rafsuðu-
tæki i mörgum stærðum og
gerðum og hentugar loftpressur,
sem viða geta komið að notum á
bæjum. Friðrik gateinnig um há-
þrystiþvottadælur fyrir vélar og
fjós og enn hefur fyrirtækið verið
mönnum innan handar með að út-
vega vacumdælur i haugsugur.
Þá hefur það boðið aðstoð við
hönnun á verkfærum og aðstoðað
við vandamál sem upp koma i
ýmissi nýsmiði og sagði Friðrik
að vonandi leituðu bændur til
fyrirtækisins með slik vandamál.
Aö endingu skal þess getið að þeir
hjá ORKUTÆKNI gllma nú við að
finna aðferð til þess að auðvelda
losun á votheyi i flatgryfjur og
finnist ekki hagkvæmur búnaður
til þess erlendis, er ekki fráleitt
að þeir muni sjálfir taka upp
framleiðslu slikra tækja.
■ SAME dráttarvéiarnar Itölsku hafa hiotiö lof fyrir sparneytni og
öryggi I snjó og kuldum.