Tíminn - 12.05.1982, Side 20
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurnfs
Sími (»1 ) 7 - 75-51, (91 ) 7 - 80-30.
ttTr'T-\T-\ T Tr1 Skfmmuvegi 20
rlr . Kópavogi
Mikiö úrval
Opið virka daga
9 19 • Laugar-
daga 10 16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingafélag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiila 24
Sími 36510
■n - • ■
I—■■■ I .. ** _.... —.. _ H .♦11‘
f/7 <$> ■■■■
■ Hér situr Þröstur yfir tafli ásamt vini sinum Siguröi Gunnarssyni. Næst honum stendur verðlaunagripurinn frá skóiaskákmeistarakeppni
Norðurlanda, en riddarinn mikli er farandgripur, sem hann hlaut á skólaskákmótinu um helgina. (Tfmamynd Róbert).
SKÖLASKAKMEISTARI normir-
iANDA VINNIIR ENN EfTT MÓT
— Rætt við Þröst Þórhallsson, 13 ára skákmeistara
■ A tslandi er nóg af upp-
rennandi skáksnillingum og
þeirra á meðal er Skólaskák-
meistari Norðurlanda, Þröstur
Þórhallsson, sem nú um helgina
vann yngri flokkinn á skólaska'k-
mótinu í Hafralækjarskóla en
hann hlaut þar 8.5 vinninga af 9
mögulegum. Eina jalnteflið sem
hann gerði var á móti Tómasi
Björnssyni úr Hvassaleitisskóla,
sem hlaut 8 vinninga, en þeir
Tómas hafa lengi att kappi
saman.
Þrösturer 13ára og er nemandi
i Breiðagerðisskólanum. Hann
byrjaði að tefla aðeins 6 ára
gamallog það var 8 ára kunningi
hans sem sagði honum til í byrj-
un. Hann var þá i Fossvogs-
skólanum, en fluttist 7 ára i
Breiðagerðisskóla. „Þar var
meiri skákáhugi en i Fossvogs-
skóla og þar byrjaði ég að tefla
fyrir alvöru og fór að sækja skák-
kennslu hjá T.R. enda félags-
heimiliT.R. rétt hjá okkur,” seg-
ir Þröstur, en við litum við hjá
honum i gær.
Þröstur var llklega áhuga-
samasti skákmaðurinn i Breiða-
gerðisskóla og skipaöi sér
snemma i sveit i unglingaflokkn-
um hjá T.R. Tiu ára gamall tók
hann þátt i opna flokknum f Skák-
þingi Reykjavikur og 11 ára fór
hann á Islandsmótið. Hann tók þá
þegar að vekja athygli sem efni-
legur skákmaður enda byrjaður
að- njóta kennsiu bestu skák-
manna i Skákskólanum að Kirkju-
bæjarklaustri. Þangað fór hann
fyrst tiu ára gamall, en þetta er
einnar viku kennsla á ári og er
teflt stift allan timann. Auðvitað
ætlar Þröstur á skákskólann aftur
i ár, en hann hefst þann 20. mai
n.k. Hann er nú með 1500 skákstig
og aðeins einn annar á hans aldri
er með jafn mörg, — auðvitað
Tómas Björnsson.
Eins og áður er á minnst er
Þröstur skólaskákmeistari
Norðurlanda en þann titil vann
hann i febrúar siðastliðnum. Það
mætti þvi ætla að hann mundi
hvila sig i sumar eftir tvö erfið
mót. En Þröstur segist siður en
svo ætla aðslaka á. Hann er þvert
á móti ákveðinn i þvi að tefla af
krafti i sumar og eina hvildin sem
hann hyggst taka sér frá skákinni
verða fótboltaæfingarnar með
Vikingi en hann leikur i 4. flokki
Vikings. Þröstur býr nefnilega
við Melgerði i Reykjavik og þar i
grennd á Vikingur ætt og óðul, —
KR-ingar og Valsarar þora varla
að koma þar nærri.
1 sumar mun hann lika taka
þátt i helgarskákmótinu i Borgar-
nesi þann 6. júni, svo hann hafi
áfram að einhverju að stefna.
Við óskum Þresti til hamingju
meðárangurinn og biðum eftir að
heyra hans getið aftur, þegar
efstu nöfn verða lesin á skákmót-
um framtiðarinnar. Þess verður
varla langt að biða.
—AM
mm
Miðvikudagur 12. maí 1982
fréttir
Eldsvoði i
Vestmannaeyjum
■ Geysilegar
skemmdir af eldi og
reyk urðu á nýlegu
einbýlishúsi við
Dverghamar 9 i Vest-
mannaeyjum i fyrri-
nótt.
Það var laust eftir
klukkan 04.00 að
slökkviliðinu í Vest-
mannaeyjum var tii-
kynnt að eldur væri
laus I húsinu. Þegar
komið var aö var mik-
ill eldur I húsinu og
reyk lagði upp um þak
og út um glugga og
dyr. Slökkviliðsmenn
þurftu að brjóta sér
leið i gegnum þak
hússins til að komast
að eldinum sem fljót-
lega gekk að slökkva
eftir það.
Húsið var mann-
laust þegar eldurinn
braust út. Eldsupptök
eru ókunn.
— Sjó.
ók á styttu á
miðju torgi
■ Unglingar sem
sátu á bekk við stytt-
una af sjómanninum á
Akratorgi á Akranesi
áttu fótum fjör að
launa aðfaranótt
laugardagsins þegar
að þvi er virtist mann-
laus bill kom á mikilli
ferð út á torgið, i átt að
bekknum. Aðeins
andartaki eftir að þau
voru rokin af bekkn-
um lenti billinn á hon-
um og siðan á stytt-
unni, af svo miklu afli
aö hún haggaðist tals-
vert þótt á traustum
grunni standi. Þegar
kikt var inn I bilinn
eftir að hann lenti á
styttunni kom i ljós að
i honum voru tveir
ungir menn, báðir
mjög ölvaöir. Annar
þeirra slasaðist mikið,
m.a. lærbrotnaði, en
hinn slapp meö minni
meiðsl. Billinn er
ónýtur.
— Sjó.
dropar
Fangavard-
arraunir
■ Þær eru margar
raunir fangavarðanna
austur á Litia Hrauni.
Einn lenti til dæmis I þvl
siðastliðið sumar þótt
hljótt hafi farið, að vera
vfttur I starfi fyrir að
vanvirða einkennis-
búning, og það sem meira
var: fyrir að vera að
þvælast með fanga út I
fangelsisgarði að nætur-
lagi.
Þannig var að fanginn
kom að máli við fanga-
vörðinn og sagðist vita
nákvæmlega hvar
nokkrir samfangar hans
hefðu falið hass. Hann gaf
fangaverðinum mjög ná-
kvæma lýsingu á þvl hvar
hassið væri að finna
niðurgrafið I fangelsis-
garðinum.
t góðri trú fór fanga-
vörðurinn með skóflu og
haka út I garðinn um nótt-
ina og byrjaði að grafa.
Hann gróf og gróf, en
fann hvergi hassið. Ekki
trúði hann þó fanganum
til að fara með lygamál,
fór hann þvl til hans strax
að morgni næsta dags og
bað hann gefa sér nánari
lýsingu á þvi hvar hassið
væri að finna. Þegar
fanginn sagðist ekki geta
gefið nákvæmari lýsingu
þá bað vörðurinn hann að
koma með sér út I garð og
vlsa sér á staðinn. Ekki
vildi fanginn það, og bar
við hræðslu við að hann
yrði tekinn I gegn ef sam-
fangar hans kæmust að
þvl að hann hefði vlsað á
hassið. Fangavörðurinn
dó ekki ráðalaus, heldur
bauð fanganum að koma
með sér út að næturlagi,
og til þess að tryggja það
að enginn bæri kennsl á
hann stakk fangavörð-
urinn upp á þvl að fanginn
klæddist fangavarðar-
búningi á meðan á greftr-
inum stæði. Fanginn sió
til.
Um nóttina fóru þeir
út og grófu og grófu en
ekkert fannst. önugur
sneri fanga vörðurinn
heim á leið, og ekki bætti
úr skák þegar hann veitti
þvl athygli að allir
fangarnir, sem höfðu
glugga út að fangelsis-
garðinu, höfðu fylgst með
athöfnum þeirra allan
timann. Málið var sem sé
eitt allsherjar sjónarspil
af háifu fanganna —
væntanlega gert I þvl
skyni að stytta sér
stundir.
Krummi ...
heyrði að mottó Fanga-
varðafélagsins sé nú: Sér
grefur gröf þóttgrafi...