Tíminn - 14.05.1982, Síða 5
Föstudagur 14. mal 1982
fréttir
| Frambjóðendur i borgarstjórnarkosningunum þeytast nú milli
vinnustaða borgarinnar I þviskyni að kynna málstaðinn og freista þess
aðfá fólk á sittband. Hér eru þau Kristján Benediktsson og Auður Þór-
hallsdóttir I heimsókn I Holtagörðum. Timamynd:GE
Fórsendur kostnaðaráætlana um
lagningu ræsis frá Rauðavatni
dregnar í efa:
Þrefalt skolp-
magn midað við önn
ur borgarhverf i
■ Fulltrúar i Framkvæmdaráði
Reykjavikurborgar hafa dregið i
efa forsendur sem lagðar eru til
grundvallar i kostnaðaráætlunum
Almennu verkfræðistofunnar um
valkosti við lagningu skolpræsis
frá fyrirhuguðu byggingarsvæði
við norðanvert Rauðavatn. „i
áætluninni eru öll atriði teygð i þá
átt að fá sem mest skolp af svæð-
inu”,sagði Adda Bára Sigfúsdótt-
ir, sem sæti á I Framkvæmdaráði
á siðasta fundi borgarstjórnar.
M.a. væri gert ráð fyrir fleiri ibú-
um i hverri ibúð, og fleiri ibúðum
á hvern hektara, en áætlanir
Borgarskipulags Reykjavikur
gæfu til kynna. Fyrir bragðið
væri gert ráð fyrir um þrefalt
meira skólpmagni á hvern ein-
stakling á svæðinu, miðað við
önnur ibúðahverfi borgarinnar.
Verða forsendur kostnaðar-
áætlananna nú athugaðar i fram-
haldiaf framlagningu skýrslu Al-
mennu verkfræðistofunnar i
Framkvæmdaráði. Samkvæmt
kostnaðaráætluninni er gert ráð
fyrir að ræsi frá Rauðavatni geti
kostað eitthvað á bilinu 50-100
millj.kr., eftir þvi'hver valkostur
inn er valinn, þ.e. hvort ræsið
verður lagt i Grafarvog eöa ný
lögn lögð með Fossvogsræsi.
Einnig skiptir máli hvernig staðið
verður að framkvæmd hvors val-
kostsins um sig.
— Kás
Óvíst hvort tæknimenn útvarpsins virði
framlengingu ráðherra á uppsagnarfrestinum:
„ERUM REIÐIR,
HARDIR OG SÍRIR”
■ „Við erum reiðir, harðir og
sárir, er óhætt að segja,” sagði
Þórir Steingrimsson, einn tækni-
manna útvarpsins, þegar frétta-
maður Tímans ræddi við hann um
samningamál tæknimannanna.
Tæknimenn útvarpsins, allir
nema þrir, hafa sagt upp störfum
sinum frá og með 1. júni n.k. Þeir
telja sig vera afskipta i launum,
miðað við aðra rafeindavirkja i
störfum hjá rikinu og benda á að
þeir sem starfa hjá ríkisverk-
smiðjunum taki laun sem svara
til 19. launaflokks eftir fimm ára
starf, en sjálfir komast þeir að-
eins i 15. launaflokk á sama tima.
1 gærmorgun var þeim sem
sagt höfðu upp afhent bréf frá út-
varpsstjóra, þar sem þeim var
tilkynnt að notuð yrði heimild til
að fresta gildistöku uppsagnar
þeirra um þr já mánuði, þannig að
þeir geti ekki hætt fyrr en 1.
september.
Tæknimennirnir töldu sig hafa
loforð um að frestun yrði ekki
beitt, þess vegna eru þeir nú
„reiðir, harðir og sárir.” Þeir
hittust i hádeginu i gær og röbb-
uðu saman en tóku ekki ákvörðun
um hvort þeir mundu virða
frestunina eða ekki. SV.
Rithöfundasambandið kjósi
sína fulltrúa en tilnefni ekki
■ „Markverðustu breytingarnar
sem nefndin leggur til, eru þær að
fjölgað verði i stjórn sjóðsins úr 3
mönnum i fimm, menntamála-
ráðherra skipi formann stjórnar-
innar án tilnefningar og innan
Rithöfundasambands islands fari
fram kosning um hina fjóra full-
trúana i stjórninni, en fram til
þessa hefur stjórn Rithöfunda-
sambandsins tilnefnt fulltrúa i
stjórn Launasjóðs rithöfunda,”
sagði Haukur Ingibergsson, for-
maður nefndar þeirrar sem
menntamálaráðherra skipaöi sl.
haust til þess að endurskoða lög
um Launasjóð rithöfunda, þegar
blaðamaður Timans spurði hann i
gær um helstu niðurstöður
nefndarinnar.
Haukur sagði að nefndin hefði
alls haldið sex sameiginlega
fundi, auk þess sem nefndarmenn
hefðu unnið að ákveðnum verk-
efnum á milli funda.
Auk Hauks, sátu i nefndinni þau
Sigurlaug Bjarnadóttir/'Sjálf-
stæðisfl., Stefán Júliusson/
Alþýðufl., Tryggvi Gislason,
Framsóknarfl. og Vésteinn Ólafs-
son/Alþýðubandalagi, og var hver
áðurgreindra aðila tilnefndur af
þingflokki sinum.
Haukur sagði að nefndin hefði
verið sammála um að það kæmi
Islenskum rithöfundum best að
vera i einu stéttarfélagi. Þannig
gætu þeir best gætt hagsmuna
sinna, ss. varðandi höfundarrétt
og fleira. Þá sagði hann að
breytingin á stjórnarfyrirkomu-
lagi sjóðsins væri tilkomin vegna
þeirrar gagnrýni sem þriggja
manna stjórnin tilnefnd af stjórn
Rithöfundasambandsins hefði
hlotið oft á tiðum.
I tillögum nefndarinnar að nýju
frumvarpi til laga um sjóðinn
kemur fram að nefndin vill
breyta nafni sjóðsins, þannig aö
hann heiti eftir breytinguna
Launasjóður islenskra rithöf-
unda.
Þá leggur nefndin til að árlega
verði varið sem svarar 400
mánaðarlaunum menntaskóla-
kennara i þetta verkefni, og er
þar um aukningu úr þrjúhundruð
slikum mánaðarlaunum að ræða.
— AB
lækkun fasteignaskatts af venjulegu fjölskylduhúsnæöi.
Eigum viö ekki samleiö?
Jósteinn Sveinn Auöur