Tíminn - 23.05.1982, Page 14
14
Sunnudagur 23. mai 1982
Kappakstur er vinsæl iþrótta-
grein i útlöndum en bönnuð hér:
einna mestra vinsælda nýtur svo-
kölluð Formúlu I keppni, Grand
Prix. Sú keppni er háð á hverju
ári og þykir æsispennandi og
skemmtileg en jafnframt mjög
hættuleg. Keppt er á brautum
viða um heiminn og sumar þeirra
hafa orðið mörgum ökumannin-
um að aldurtila. Það má heldur
ekki mikið út af bregða þegar bil-
arnir ferðast um á rúmlega 200
kilómetra hraða á klukkustund.
Fréttaritari Timans i Kaliforniu,
Tryggvi Þormóðsson, fór i siðasta
mánuði á Grand Prix kappakst-
urinn á Long Beach og fer frásögn
hans hér á eftir.
Sumir bilstjóranna i Formúlu I
eru þjóðsögur i lifanda lifi. Einn
M Finninn Rosberg var fulltrúi Norðurlanda á Long Beach og stóö sig
mjög vel. Hann hreppti annaö sætiö.
■ Kanadamaöurinn Villeneuve varö í þriöja sæti en hann fórst I
keppni skömmu eftir kappaksturinn á Long Beach.
— Fréttaritari Tímans á Grand Prix kappakstri á Long Beach
■ Nicki Lauda slasaöist mjög illa fyrir nokkrum árum i Formúlu I keppni og var um tima talinn af. En
liann náöi sér og hóf keppni á nýjan leik og á Long Beach vann hann yfirburðarsigur. Myndir: Tryggvi
Þormóösson.
þeirra er Nicki Lauda, Austurrik-
ismaður og fyrrum heimsmeist-
ari i þessari grein, en hann kom,
sá og sigraði á brautinni hér á
Long Beach. Sigurhans var mjög
öruggur en kom flestum á óvart
vegna þess að þetta var aðeins i
þriðja sinn, sem Lauda tók þátt i
siðan hann slasaðist mjög alvar-
lega á kappakstursbraut i Nurn-
berg fyrir nokkrum árum. Hann
brenndist þá svo alvarlega að
honum var um tima vart hugað
lif, eða eins og hann sagði sjálfur:
„Þegar presturinn fór að lesa
yfir mér bænirnar, áður en ég
svifi inn i eilifðina, ákvað ég að ég
væri alls ekki tilbúinn til að deyja.
Ég einsetti mér að sýna presti
það með þvi að keppa aftur i For-
múlu I svo fljótt sem ég gæti...”
Það leiö að visu langur timi áð-
ur en Lauda var i ökufæru ásig-
komulagi, en við skulum vona að
prestur hafi frétt af sigri hans á
Long Beach.
Engin meiri-
háttar slys
Kappaksturinn gekk annars
mjög vel. Það urðu engin meiri
háttar slys en þvi fleiri bilanir og
smá árekstrar. Strax á fyrstu
fimm minútunum rákust þrir bil-
ar saman, en tveir þeirra
skemmdust svo litið að þeir gátu
haldið áfram keppni. Eftir fyrsta
hringkeppninnar var röð fremstu
manna þessi: i fararbroddi var
ttalinn Cesaris á V-12 Marlboro
Alfa-Romeo, bill númer 22, i öðru
sæti var Frakkinn Arnoux á V-8
Elf/Renault, bill númer 16, en
Nicki Lauda var i þriðja sæti á bil
sinum V-8 Marlboro McLaren,
sem var númer 8. Hélst röðin
svipuð framan af en i áttunda
hring lenti Frakkinn Arnoux i á-
rekstri við bil númer 23 og urðu
báðir að hætta keppni. Cesaris
var fyrstur sem fyrr, Lauda i
öðru cæti en i þriðja sætið var
kominn Kanadamaðurinn Ville-
neuve á V-6 Turbo SpA/Ferrari,
bill númer 27. Var svo um hrið að
röð fremstu manna breyttist ekki.
A fimmtánda hring færðist fjör
i leikinn. Þá tók bill númer 8,
Nicki Lauda, forystuna og hafði
um þetta leyti 2.4 sekúndna for-
skot sem þykir allgott i keppni
sem þessari. Nokkru siðar, i nitj-
ánda hring, varð Mario Andretti,
einn fremsti kappakstursmaður
heims, að hætta vegna þess að
afturöxullinn á V-8 Williams bil
hans hafði bognaö og eitt dekkið
sprungið eftir árekstur utan i
vegg.
Nicki Lauda
tryggir sér sigur
Er komið var inn i tuttugasta
hring fóru forsvarsmenn Marl-
boro keppnisliðsins að kætast,
enda voru þeirra menn i öllum
þremur efstu sætunum. Nicki
Lauda var enn fremstur, siðan
kom bill númer 22, Cesaris, en i
þriöja sætinu var nú Bretinn Wat-
son á V-8 Marlboro McLaren,
númer 7. Watson varð þó fljótlega
að láta undan siga. Fyrst náði
fulltrúi Norðurlanda, Finninn
Rosberg á V-8 Tag/Williams
(númer 6), þriðja sætinu af hon-
um, og siðan féll Watson úr fjórða
sætinu niður i það áttunda er
skipta varðum útslitin dekk a bii i
26ta hring. Hafði þá keppnin stað-
ið i einn klukkutima og íimmtiu
minútur, og geysiþykk dekkin
orðin að nær engu! Þætti það
jafnvel slæm nýting á holóttum
vegum Islands!
A 34ða hring var hætta á ferð-
um. Cesaris á bil 22 ók utan i vegg
og kom upp eldur i bilnum. Cesar-
is slapp þó ómeiddur en var úr
leik i þetta sinn. Við þetta færðist
Rosberg upp i annað sætið en
Villeneuve náði þriðja sætinu á
nýjan leik. Af 27 bilum sem hófu
keppnina voru nú aðeins 12 eftir!
Alls óku bilarnir 75 og hálfan
hring en röð þeirra þriggja efstu
breyttist ekki. Segja má að Nicki
Lauda hafi verið búinn að tryggja
sér sigurinn er keppnin var hálfn-
uð, en þá var hann kominn með
hvorki meira né minna en 50.3
sekúndna forskot. Þá dró hann úr
hraðanum ogók tiltölulega rólega
það sem eftir var svo forskot hans
minnkaði sifellt er á keppnina
leið, án þess þó að sigur hans væri
i hættu. 1 lokin kom hann i mark
14.7 sekúndum á undan Rosberg,
sem varð i öðru sæti, og 1
minútu og 4 sekúndum á undan
Villeneuve sem varð i þriðja sæti.
„Engin ástæða til
að drepa sig...”
Eftir keppnina ræddu blaða-
menn viö Lauda. Er hann var
spuröur að þvi hvort hann hefði
búist við að sigra kvaö hann svo
vera. Hann minntiá að hann hefði
alltaf haldið þvi fram að það tæki
hann þrjár keppnir að komast i
æfingu á nýjan leik eftir mjög
langt hlé og þvi hefði hann gert
ráð fyrir að sigra að þessu sinni.
Einnig var hann spuröur að þvi
hvers vegna hann hefði dregið úr
hraðanum undir lok keppninnar.
Hann svaraði: „Það er engin á-
stæða til að reyna að drepa sig
þegar maður er búinn að vinna
hvort sem er.”
Eftir slysið sem hann lenti i er
Lauda oröinn mun varkárari öku-
maöur en áður og hann lætur sig
öryggismál á kappakstursbraut-
unum miklu varða. Hann
kvartaði yfir þvi við blaðamenn
aö brautin hefði veriö slæm: á
21 stað væru grófar skiptingar úr
malbiki i steinsteypu og þar að
auki hefði malbikið verið nýtt og
þar af leiðandi brotnað upp á köfl-
um sem aftur hefði valdið miklu
dekkjasliti og bilunum.
Og það kom i ljós i næstu keppni
að varkárni Nicki Lauda á fuílan
rétt á sér. Eins og komið hefur
fram i fréttum först Kanada-
maðurinn Villeneuve nýlega eftir
árekstur i Formúlu I keppni og
kom það Lauda i mikið uppnám.
Hann hefur sakað annan bilstjóra
um að vera valdan að dauða
Villeneuve sem flestum þykir
varla sanngjarnt. Sýnir þetta alla
vega hversu hættuleg þessi
iþróttagrein er.
En Nicki Lauda sigraði sem sé.
Hann setti auk þess brautarmet
er hann ók 12ta hringinn á að
meðaltali 135.9 kilómetra hraða á
klukkustund, en hringinn fór hann
á einni minútu, 30.8 sekúndum.
Og i lokin nokkrar staðreyndir
um Grand Prix keppnina.
Vélin gerð upp eftir
hverja keppni
Nicki Lauda ekur nú bil með V-
8 vél en ók eingöngu V-12 bilum
áður ... Hann hefur unnið samtals
18 Grand Prix keppnir, en metiö á
að sjálfsgöðu Jackie Stewart,
margfaldur heimsmeistari sem
nú er hættur keppni fyrir all-
löngu, en hann sigraði 27 sinn-
um... Naumasti Grand Prix sigur
sem um getur var er Marino
Andretti sigraði i einni slikri
keppnifyrir nokkrum árum, hann
var aðeins 0.11 sekúndum á undan
NickiLauda iöðrusæti... Ferrari-
Bilar háfa oftast komið fyrst i
mark á Grand Prix, eða i 81
skipti. Næstir koma Lotus-bilar
með 71 sigur...
Rúmlega helmingur bilanna i
ár er með V-8 Ford Cosworth
vél... Það kostar um átta milljón-
ir dollara að gera út keppnisliö
Ford Cosworth i ár (3-5 bilar)....
V-8 Ford Cosworth vél kostar
splunkuný 50 þúsund dollara, og
þaö kostar 20 þúsund doilara að
endurbyggja hana... Og það þarf
að endurnýja slika vél eftir
hverja einustu keppni...
Svo það er fleira en togaraút-
gerð á Islandi, sem kostar
peninga.
TÞ./Kaliforniu.
■ ttalinn Cesaris var framan af keppninni i flokki fremstu manna, en ■ Nicki Lauda i harðri keppni viö ttalann Patrese, bill númer 2, en sá
ök siöan utan I vegg. Myndin er tekin rétt áöur en eldur kom upp I bil varö aö lokum I fjóröa sæti.
hans.