Tíminn - 29.06.1982, Qupperneq 22
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1982
22
á hestaslóðum'
flokksstarf
Nú eru flestir búnir að sleppa hestum sínum á gras og timi ferðalaganna '
er að hefjast. Mikið mun verða um ferðalög á hestum i sumar og mest i
tengslum við landsmótið, sem hefst i næstu viku á Vindheimamelum í
Skagafirði. Þessi mynd var nýlega tekin af tveim mönnum, sem við vitum
ekki deili á, á reið yfir á að kvöldlagi. Tímamynd Ari.
Sleipnir og Smári á Murneyri:
Fjolmerim
og mikill
áhugi
■ Mumeyramótin eru einkum
þekkt fyrir tvennt. Annað er það að
þar er yfirleitt mjög mikill áhugi á
gæðingakeppninni og þátttaka í
henni er svo mikil að nú var tekinn
upp sá háttur, sem tiðkast orðið á
stórmótum, að hafa sérstaka
dómnefnd fyrir hvorn flokk. Hitt er
að þar er mikið lagt uppúr að
kappreiðareglur séu i heiðri hafðar
og þeim er jafnan framfylgt með
áminningum til þeirra knapa, sem
gerast brotlegir. Hvorutveggja þetta
einkenndi mótið um helgina, að
venju, að sögn Jóns Vigfússonar á
Húsatóftum, sem Timinn leitaði
upplýsinga hjá um mótið.
Á Murneyri hefur um margra ára
bil tíðkast að félögin Sleipnir og
Smári halda sameiginleg mót, og svo
er enn.
Svæði félaganna nær yfir stórt og
þéttbýlt svæði og félagar eru margir.
Stöðugt vex áhorfendafjöldi mót-
anna þar og nú voru þeir fleiri en
nokkru sinni.
Gæðingakeppninni er hagað
þannig að hvort félag verðlaunar
sína gæðinga og i þetta sinn sigraði
Rauði-Núpur, Skúla Steinssonar í
A-flokki Sleipnis, með einkunninni
7.89. Skúli á einnig Kjarval,
sigurvegarann í B-flokki, sem hlaut
8.50 i meðaleinkunn. Skyldi annars
nokkur maður hafa átt eins marga
hesta i efstu sætum á mótum
einstakra félaga og Skúli hefur átt
hjá Sleipni? Það er ekki að
ástæðulausu að menn kalla Murneyra
mótin stundum Skúlaskeið i gamni.
Reynir, hinn 19 vetra gæðingur
Þorsteins Vigfússonar sigraði í
A-flokki Smára með 8.05 í
meðaleinkunn og. Skúmur Harðar
Bjarnasonar sigraði í B-flokknum
með 8.41 i meðaleinkunn.
Unglingakeppni var háð á mótinu
og að sjálfsögðu kappreiðar, en
enginn þeirra, sem Tíminn leitaði
upplýsinga hjá gat sagt frá árangri
þar.
SV
Mót Dreyra í Ölveri:
Tvö um sama
bikarinn
Dreyramenn héldu sitt mót um
helgina í Ölveri. Gæðingakeppnin
var háð á laugardag og sagði
Finnbogi Gunnlaugsson formaður
Dreyra að einkunnir hefðu verið
óvenju lágar í þetta sinn. Hann taldi
að tvennt hefði valdið því, annað að
landsmótsgæðingar félagsins hefðu
ekki mætt til leiks og svo hitt að
dómarar hefðu verið strangir, en þó
sanngjarnir. Sigurvegari í A-flokki
varð Ljúfur Jóns Sigurðssonar í
Skipanesi og fékk 8.12 i meðaleink-
unn, en Sómi, Eiriks Óskarssonar,
sem Benedikt Þorbjarnarson sýndi,
sigraði í B-flokknum með 8.04 í
meðaleinkunn.
í eldri flokki unglinga voru María
Finnbogadóttir á A1 og Gisli
Geirsson á Gáska jöfn i fyrsta sæti
með 7.96 i meðaleinkunn. Þau tóku
saman við bikamum, sem er veittur
sigurvegaranum og ætla vafalaust að
skiptast á um að geyma hann.
Vilborg Viðarsdóttir sigraði i
yngri flokknum og sat Lukku.
Meðalcinkunn þeirra var 7.71.
í kappreiðunum var ágæt þátttaka,
að sögn Finnboga, og best í 800 m
brokki. Þar sigraði Glampi, Jóns í
Skipanesi á 1:51,6 mín. Annarsvoru
ekki stór afrek unnin i kappreiðunum
og kenndi Finnbogi því um að
völlurinn væri ekki nægilega harður.
Einna mesta athygli vakti að sú
gamla hlaupakempa Loka tók þátt í
400 m stökki og náði öðru sæti, en
það var einmitt í Ölveri, sem hún
setti met í þessari grein, skömmu
áður en hún hætti keppni árið 1980.
Og menn höfðu gaman af að nú sat
Sigurbjörn Bárðarson Loku, en
hann hefur ekki setið hest á stökki i
kappreiðum i mörg ár.
Knapaverðlaun mótsins fékk Gísli
Geirsson, en bikar, sem Árni
Höskuldsson gaf til að veita
glæsilegasta hesti mótsins, var
dæmdur Ljúfi í Skipanesi.
SV
Sigurjón
Valdimarsson,
blaðamaður, skrifar
Almennir stjórnmálafundir
. í Norðurlandskjördæmi vestra
Almennir stjórnmálafundir verða haldnir í Norðurlandskjördæmi
vestra á eftirtöldum stöðum:
Skagaströnd i Fellsborg, þriðjud. 29. júní ki. 21
Hvammstanga i Félagsheimilinu, fimmtud. 1. júlí kl. 21
Alþingismennirnir Páll Pétursson, Stefán Guðmundsson
Ingólfur Guðnason eru frummælendur á fundunum.
Allir velkomnir.
og
Frá Vorhappdrætti Framsóknarflokksins
Dregið hefur verið í happdrættinu og um alla útsenda miða. En þar
sem ýmsir eru nýbúnir að greiða miðana á einhverri peningastofnun
á þessum tíma og greiðslur ævinlega nokkurn tíma á leiðinni, verða
vinningsnúmerin innsigluð hjá Borgarfógeta á meðan fullnaðarskil
eru að berast. Viljum við hérmeð tilkynna það.
Ef einhverjir eiga ennþá eftir að greiða heimsenda miða, gefst
tækifæri til að gera það á næstu dögum, allt til 10. júlí n.k„ en þá er
fyrirhugað að birta vinningsnúmerin í Tímanum. Vangreiddir miðar
þann dag verða ógildir.
Við sendum bestu þakkir til allra þeirra sem eru þátttakendur í
miðakaupum og styrkja þannig flokksstarfið og verða skilagreinar
senda>til flokksstjórnar samkvæmt venju.
Happdrætti
Framsóknarfélaganna í Keflavík
1. vlnningur á miða nr. 1879
2. vinningur á miða nr. 428
3. vinningur á miða nr. 1366
4. vinningur á miða nr. 953
5. vinningur á miða nr. 483
Upplýsingar um vinninga I símum 1431 og 1403.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9. Hf.
S. 54595.
Kælitækjaþjónustan
Rcykjavíkurvcgi 62, Hafnarfirði, sími 54860.
Önnumst alls konar nýsmíði. Tökum að
okkur viðgerðir á: kæliskápum,
frystikistum og öðrum kælitækjum. Fljót
og góð þjónusta.
Sendum í póstkröfu um land allt
• Öll almenn prentun
• Litprentun
• Tölvueyðublöð
• Tölvusettir strikaformar
• Hönnun • Setning
• Filmu- og plötugerð
Prentun • Bókband,
PRENTSMIÐJA
ku anu^-j
N C^ddu H F.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 45000
GLUGGAR
0G HURÐIR
Vönduð vinna á hagstæðu verði.
Leitið tilboða.
Kvikmyndir
Sími 78900
FRUMSYNIR
óskarsverdlaunamyndina
Amerískur varúlfur
í London
(An Amerícan Verewolf ín London)
Það má með sanni scgja að þctta cr mynd f
algjörum sérflokki, cnda gcrði JOHN LANDIS
þcssa mynd, en hann gcrði grfnmyndimar
Kcnlucky Fried, Delta klikan, og Blue
Brothers. Einnig lagði hann mikið við að skrifa
handrit að Junes Bond myndinni Thc Spy Who
Loved Me. Myndin fékk öskarsvcrðlaun fyrir
förðun í marz s.l.
Aðalhlutverk: David Naughton, J.enny Agutter
og GrifTin Dunne.
Sýnd U. 5, 7, 9 og 11.
EINNIG FRUMSÝNING
A URVALSMYNDINNI:
Jarðbúinn
(The Earthling)
IIIIOIIMIHN 8H M M IIKMH K
RICKY SCHRODER sýndi það og sannaði I
myndinni THE CHAMP og sýnir þaö einnig I
þcssari mynd, að hann cr fremsta barnastjarna
á hvfta tjaldinu f dag. - Þetta cr mynd scm öll
fjölskyldan man eftir.
Aðalhlutverk: WiDiam Hoiden, Rkky Chroder
og Jack Thompson.
1 Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Patrick
Patrick cr 24 ára coma-sjúklingur scm
býr yfir miklum dulrænum hæfileikum
scm hann nær fullu valdi á.
, Mynd þessi vann til vcrðlauna á
Kvikmyndahátfðinni f Asfu.
Lcikstjóri: Richard Franklfn.
Aðalhlutvcrk: Robert Hclpmann, Sus-
■ an Penhaligon og Rod Mullinar.
Sýnd U. 5, 7, 9 og 11.
Allt í lagi vinur
(ilalleluja Amigo)
(Halleluja Amigo)
bud SPENCER
jack PALANCf
Scrstaklcga skcmmtilcg og spcnnandi
vcstcrn grfnmynd mcð Trinity bolanum
Bud Spencer scm cr f cssinu sínu f
þcssari mynd.
Aðalhlutvcrk: Bud Spencer, Jack
Palance
Sýnd ld.3, 5, 7 og 11.20.
Fram i svidsljósid
(Being Thcre)
(4. mánuður)
Grínmynd i algjörum sérflokki.
Myndin er talin vera sú albesta
sem Peter Sellers lék i, enda fékk
hún tvenn óskarsverölaun og var
útnefnd fyrir 6 Golden Globe
Awards. Sellers fer á kostum.
Aöalhlutv.: Peter Sellers, Shirley
MacLane, Melvin Douglas. Jack
Warden.
tslenskur texti.
Leikstjóri: Hal Ashby.
Sýnd kl. 9