Fréttablaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 10
17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
SVÍÞJÓÐ Jarðskjálfti varð á Skáni í
Suður-Svíþjóð snemma í gærmorg-
un. Skjálftinn mældist meira en 4,6
á Richter og er sá stærsti í Svíþjóð
í rúma öld. Fólk vaknaði og hljóp
út, bókahillur hristust og hlutir
duttu úr hillum og skemmdir urðu
á húsum. Engin alvarleg slys urðu
á fólki. Skjálftinn fannst í Dan-
mörku og suður- og vesturhluta
Svíþjóðar.
Íbúar vöknuðu upp við jarð-
skjálftann sem varð rétt upp úr sex
að staðartíma í Svíþjóð í gærmorg-
un. Jóhanna Matthíasdóttir er
öryrki í Landskrona, ekki langt frá
Malmö. „Ég vaknaði við að rúmið
mitt lék á reiðiskjálfi. Ég hélt fyrst
að hundurinn væri til fóta og væri
að klóra sér. Ég vissi ekki hvaðan á
mig stóð veðrið því að ég hef aldrei
heyrt um jarðskjálfta á þessu
svæði en dóttir mín sagði mér bara
að fara að sofa aftur, mig hefði
verið að dreyma,“ segir Jóhanna.
Hún fékk sms frá vinkonu sinni í
Simrishamn. „Þar lék allt á reiði-
skjálfi,“ segir hún. Fólk hafi heyrt
titring í veggjunum en ekkert dott-
ið niður. „Ég hefði búist við þessu
heima á Íslandi en aldrei hér. Það
koma víst stundum litlir skjálftar
hér sem við verðum ekkert vör
við,“ segir hún.
Anna Jóna Loftsdóttir býr í
Malmö. Hún segir að sonur sinn
hafi komið hlaupandi og sagt að
bækurnar hafi dottið úr hillunni
við rúmið og niður á gólf. Hann
hafi ekkert meiðst.
Andrea Þorbjörg Sigurðardóttir
fann fyrir skjálftanum í íbúð sinni
í Kaupmannahöfn. „Ég vaknaði við
að rúmið mitt hristist en var ekk-
ert að pæla í því. Svo hringdi ég í
foreldra mína af því að ég bý hérna
ein og þau vissu ekkert og svo í
kærastann minn og þá hafði hann
fundið líka fyrir þessum skjálfta,“
segir Andrea Þorbjörg.
Hlutir hrundu ekki úr hillum en
hún segir að titringurinn hafi verið
greinilegur. „Maður verður alltaf
smá hissa þegar maður finnur jarð-
skjálfta en ég fann Suðurlands-
skjálftann þegar hann var,“ segir
Andrea.
Talið er að ekki hafi orðið miklar
skemmdir vegna skjálftans. Ari
Tryggvason, jarðskjálftafræðing-
ur við Háskólann í Uppsölum, segir
að á hverjum degi eigi sér stað 1-2
jarðskjálftar í Svíþjóð og að fólk
finni fyrir 1-2 skjálftum á ári. Síð-
ast hafi svona stór skjálfti orðið 13.
október 1904. ghs@frettabladid.is
Íslendingar héldu ró
sinni í skjálftanum
Jarðskjálfti varð í Svíþjóð í gærmorgun og mældist yfir 4,6 á Richter. Hann er
sá stærsti í eina öld. Skjálftinn fannst greinilega á Skáni og í Kaupmannahöfn
en Íslendingar héldu ró sinni. „Rúmið lék á reiðiskjálfi,“ segir öryrki í Svíþjóð.
Tvöfaldir punktar
í Nettó!
Verið velkomin í Nettó
Mjódd - Salavegi - Hverafold
Akureyri - Höfn - Grindavík
ww.netto.is
Sendum vinum jólakveðju
TILBOÐIN GILDA 17. -21. DESEMBER
w
w
w
.m
ar
kh
on
nu
n.
is
50%
AFSLÁTTUR
JÓLAPAPPÍR
OG MERKIMIÐAR
JÓLAKORT STÓR, 10 STK.
299 kr
598 kr
JÓLAKORT LÍTIL 10 STK.
249 kr
498 kr
JÓLAKORT STÓR 24 STK.
499 kr
998 kr
50%
afsláttur
50%
afsláttur
50%
afsláttur
og farsælt komandi ár
Gleðileg jól
UPPTÖK SKJÁLFTANSMALMÖ
KAUPMANNAHÖFN
LANDSKRONA
SVÍÞJÓÐ
DANMÖRK