Fréttablaðið - 17.12.2008, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 17.12.2008, Qupperneq 26
MARKAÐURINN 17. DESEMBER 2008 MIÐVIKUDAGUR F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Ingimar Karl Helgason skrifar „Hlutur Stoða í Refresco hefur verið í söluferli í fjóra mánuði, frá því áður en bankarnir hrundu,“ segir Júlíus Þorfinnsson, talsmaður Stoða, áður FL Group. Hann segir að samið hafi verið við fjárfesting- arbankann Rothchild um að annast sölu á hlutnum. „Við vonumst til þess að samningar um sölu á 49 prósenta eignarhlut okkar í Refresco náist á næst- unni.“ Þá sé ljóst að hrun íslensku bankanna og erfið staða Stoða hafi haft slæm áhrif á rekstur Refres- co. „Því er brýnt að selja áður en skaðinn verður meiri,“ segir Júlíus. Hann bætir því við að kaupverðið á 49 prósenta hlut Stoða á sínum tíma hafi numið um 5,2 milljörð- um króna, vorið 2006. Samkvæmt frétt Vísis nam kaupverðið 461 milljón evra, en þá voru skuldir teknar með og fleira. Hlutur Stoða er nú geymdur í félagi sem skráð er í Hollandi og heitir Ferskur Holding 2 B.V. Eigend- ur félagsins eru Stoðir, Vífilfell og Kaupþing. Fé- lögin eiga saman 2.680.000 hluti í Refresco, eða um 80 prósent af heildinni. Vífilfell hefur ekki í hyggju að selja, samkvæmt heimildum Markaðarins. Ekki hefur náðst í Steinar Guðgeirsson, formann skila- nefndar Kaupþings. Samkvæmt síðustu ársskýrslu Refresco námu eignir félagsins ríflega 611 milljónum evra. Þá námu skuldir félagsins ríflega 367 milljónum evra. Stærstur hluti skuldanna kom til vegna sam- bankaláns sem var tekið um það leyti sem FL Group keypti í félaginu. Það nam 260 milljónum evra og var tekið undir forystu FIH bankans, sem var í eigu Kaupþings. Stoðir eru enn í greiðslustöðvun og verða til 20. janúar. Félagið var stærsti eigandi Glitnis. Tilraunir félagsins til að selja Tryggingamiðstöð- ina (TM) fóru út um þúfur þegar veðhafinn, Lands- bankinn, neitaði að ganga til samninga við Kaldbak. „Það kom okkur satt best að segja á óvart enda sam- þykkti stjórn Stoða einfaldlega hærra tilboðið af tveimur tilboðum sem höfðu borist,“ segir Júlíus. „Eftir sem áður er það vilji Stoða að selja TM, þetta er okkar stærsta eign og sala hennar myndi létta verulega á okkur,“ bætir hann við. „Vonandi geng- ur sala TM eftir sem fyrst í góðu samkomulagi við bankann.“ Stoðir eiga líka hlut í Landic Property, Royal Unibrew og Bayrock Group. Refresco á sölulista Stoða í fjóra mánuði Stoðir reyna að selja helmingshlut sinn í hollenska drykkjar- framleiðandanum Refresco. Íslenskt eignarhald er félaginu óþægilegt. Vífilfell og Kaupþing eiga félagið ásamt Stoðum. Eign milljónir evra Óefnislegar eignir 274 Efnislegar eignir 333,6 Fjármunaeignir 3,8 Skuldir 367 Tap árið 2007 27 Eign Stoða, Vífilfells og Kaupþings 80% R E F R E S C O Í T Ö L U M GLUGGAÐ Í REIKNINGANA Jón Ásgeir Jóhannesson og Jón Sigurðsson glugga í reikninga Stoða á uppgjörsfundi. Drykkjarvöruframleiðandinn Refresco er meðal eigna félagsins sem ekki eru skráðar á markað. MARKAÐURINN/ANTON 2 Verulegar breytingar hafa orðið á hluthafalista Existu eftir að Bakkabræður settu einn millj- arð króna í félagið í gegnum eign- arhaldsfélagið Kvakk/BBR fyrir rúmri viku. Exista var með lán á gjalddaga og nýju hlutafé varið til greiðslu á því. Í kjölfarið varð eignar- haldsfélagið yfirtökuskylt. Nýja- Kaupþing setti sig upp á móti yf- irtökunni og keypti í kjölfarið tíu prósenta hlut í Existu. Viðskipti hófust með hluta- bréf Existu í byrjun síðustu viku eftir níu vikna hlé. Talsverð upp- stokkun var á eignasafni félags- ins á þeim tíma. Gengi bréfa Ex- istu hrundi í fyrstu viðskiptum úr 4,62 krónum á hlut í 10 aura. Fallið jókst í gær, endaði í fjór- um aurum á hlut og hefur aldrei verið lægra. - jab Breyttur hluthafalisti Hluthafi Eignahlutur nú / var BBR ehf* 77,9% 45,21% Nýi Kaupþing banki 10,4% 0,86% Kista fjárfestingarfélag 1,1% 5,17% Arion safnreikningur 1,1% 4,81% L.sj.verslunarmanna 1,0% 4,53% Gift fjárfestingarfélag 1,0% 4,34% Castel SARL 0,9% 4,09% Gildi-lífeyrissjóður 0,9% 4,06% Singer & Friedlander Ltd 0,9% 3,95% Spron 0,5% 2,41% * var áður Bakkabræður Holding T Í U S T Æ R S T U Viðskiptaráðherra hyggst skipa nefnd til að endurskoða lög um fjármálamarkað. Kanna á „viðskipti starfs- manna við fjármálafyrirtæki, töku hlutabréfa fjármálafyrir- tækja sem veð gegn láni, hlut- verki, hæfisskilyrðum og regl- ur stjórna, krosseignarhald, tak- markanir á stórum áhættum og náin tengsl“, að því er segir í til- kynningu. Fylgjast á með sam- bærilegri vinnu á vegum ESB. Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki störfum 15. apríl næstkom- andi. - ikh Ný lög um fjármálamarkað Fulltrúar erlendra kröfuhafa í íslensku bankana hafa mikið verið í ferðum hingað og sumir opnað skrifstofur. Þetta stað- festir Sigmundur Sigurgeirs- son, aðstoðarmaður fjármála- ráðherra. „Sumir búast allt eins við því að vera hér í tvö ár,“ segir hann, en í þeim hópi séu einkum evrópskir bankar. Meðal banka sem lánuðu þeim íslensku voru Commersbank og Bayern Landesbank, Fortis-bankinn og Barclays-bankinn. „Þeir hafa verið í sambandi við okkur frá fyrsta degi og fjármálaráðherra hefur lagt sig allan fram um að eiga við þá góð og greið sam- skipti,“ segir Sigmundur. Sam- skiptin við erlendu kröfuhaf- ana skipti miklu máli. Ekki ein- göngu vegna bankanna, heldur einnig atvinnufyrirtækja, ekki síst orkufyrirtækjanna. „Það er klár skilningur milli manna að Íslendingar fái ráð- rúm til að vinna úr sínum málum,“ segir hann. - ikh Kröfuhafar flytja hingað „Ríkið ákvað fyrir nokkrum árum að vera á óverðtryggða markaðnum, en Íbúðalánasjóður hefur verið á hinum verðtryggða. Við erum að skoða núna hvort ástæða sé til að breyta því, en við erum ekki komin að neinni nið- urstöðu, til að mynda hvort við færum okkur aftur yfir á hinn verðtryggða enda,“ segir Þór- hallur Arason, skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu, um vænt- anlega skuldabréfaútgáfu ríkis- ins. Óverðtryggða útgáfan hafi í grundvallaratriðum gengið vel. Bréf fyrir 100 milljarða voru á gjalddaga fyrir skömmu. Á móti gaf ríkið út ný skulda- bréf. Bréf voru keypt fyrir 27 milljarða króna. „Það hljóta að hafa verið nokkur vonbrigði fyrir ríkið,“ segir Jón Bjarki Bents- son, hjá Greiningu Glitnis. „Ætla má að greiða hafi þurft um 108,5 milljarða, þar sem vext- ir leggjast við,“ segir Jón Bjarki um eldri útgáfuna. Erlendir að- ilar hafi verið í meirihluta eig- enda. Stór hluti mismunarins hljóti að hafa verið greiddur út af viðskiptareikningi ríkisins hjá Seðlabankanum. „Ætla má að það hafi þurft að greiða út á bilinu 50 til 70 milljarða.“ Útgreiðsl- an sé lægri en sem nemur mis- muninum á nýju útgáfunum og þeirri eldri. Það skýrist af því að um helmingur hinnar eldri var lán til aðalmiðlara. Hluti fari því aðra leið. Ríkið átti um 163 milljarða á viðskiptareikningi í Seðlabank- anum um mánaðamótin. - ikh JÓN BJARKI BENTSSON Skoða útgáfu verðtryggðra bréfa Reglur um undanþágur frá gjald- eyrishöftum hafa verið rýmkaðar, samkvæmt breyttum reglum um gjaldeyrismál sem Seðlabankinn birti á vef sínum síðdegis í gær. Breytingarnar snúa helst að „tilteknum hópum vegna brýnna hagsmuna og því að litlar líkur eru taldar á að viðskipti þeirra muni valda alvarlegum og veru- legum óstöðugleika í gengis- og peningamálum“. Ríki og sveitarfélög fá undan- þágu og einnig fyrirtæki í opin- berri eigu sem starfa samkvæmt sérlögum. Auk þess fyrirtæki sem eru aðilar að fjárfesting- arsamningum við ríkið og fyr- irtæki sem fengið hafa leyfi til olíuleitar. Skilanefndir bankanna fá líka undanþágu og fyrirtæki sem hafa yfir 80 prósent af tekj- um og gjöldum erlendis geta sótt um undanþágu. - óká Undanþágur rýmkaðar Vika Frá ára mót um Alfesca 2,6% -42,3% Bakkavör -7,6% -94,4% Eimskipafélagið -2,3% -96,3% Exista -71,4% -99,8% Icelandair -0,4% -52,4% Kaupþing 0,0% -100,0% Marel -6,7% -25,8% SPRON 0,0% -79,2% Straumur -15,1% -83,6% Össur -1,0% -1,0% *Miðað við lokagengi í Kauphöll í gær. Úrvalsvísitalan OMXI15 371.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.