Fréttablaðið - 17.12.2008, Page 31

Fréttablaðið - 17.12.2008, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 17. desember 2008 3 „Ég hugsaði ekki neitt um peninga, hélt við myndum standa á Lauga- veginum og gleðja fólkið á laugar- dögum og sunnudögum. Svo allt í einu var farið að bóka okkur,“ segir Sandra Þórðardóttir, sem myndar ásamt þeim Kenyu Emil og Ingu Þyri Þórðardóttur, tríóið Þrjár raddir. „Við höfum allar sungið frá því við vorum litlar,“ segir Sandra sem kynntist Kenyu árið 2003 þegar þær sungu saman í Motown-sýningu á Broadway. „Ég spurði hana í nóvember hvort hún vildi syngja með mér jólalög og þá fékk hún Ingu til liðs við okkur,“ útskýrir Sandra tilurð tríósins en Inga Þyri söng sem bakrödd í hljómsveit sem Kenya hefur verið með um nokkurt skeið. Sandra segir að það hafi komið henni á óvart hversu vinsælar þær urðu á stuttum tíma. „Það er búið að vera mikið að gera og við erum að syngja allt upp í fimm sinnum á kvöldi. Svo keyrum við sveittar á milli,“ lýsir hún og bætir við: „Enda er Inga dugleg að finna fyrir okkur gigg, hún dregur þetta áfram.“ Þrjár raddir eru líflegt tríó. „Við vildum hljóma eins og barber- kvartett og erum því svolítið gam- aldags og hressar,“ segir Sandra sem kom það á óvart hve mikinn tíma fólk gæfi sér til að hlusta á þær í jólaösinni. „Það stoppaði, hlustaði og klappaði,“ segir Sandra hissa en ánægð yfir viðtökunum. Þær stöllur stefna á áframhald- andi samvinnu á komandi ári. „Okkur langar að koma fram á árs- hátíðum og þorrablótum og erum þegar byrjaðar að æfa þorra- og árshátíðartónlist. Svo gæti verið gaman að syngja í brúðkaupum enda getum við með einhverjum fyrirvara æft þau lög sem fólk vill láta flytja.“ Sandra, Kenya og Inga syngja ekki aðeins í verslunarmiðstöðv- um heldur troða einnig upp á spít- ölum og nokkrum góðgerðarsam- komum. Meðal annars verða þær á styrktarkvöldi samtakanna Blátt áfram næstkomandi laugardags- kvöld. solveig@frettabladid.is Hljóma þrjár raddir í kór Tríóið Þrjár raddir var stofnað í lok nóvember af þremur söngelskum stúlkum, þeim Kenyu, Söndru og Ingu. Ætlunin var að komast í jólaskap með jólasöng en nú hafa þær varla undan að anna eftirspurn. Kenya Emil, Sandra Þórðardóttir og Inga Þyri Þórðardóttir mynda tríóið Þrjár raddir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.