Fréttablaðið - 17.12.2008, Page 32
FERDALANGUR.NET er athyglis-
verð vefsíða fyrir þá sem hyggjast leggja
land undir fót. Á síðunni má finna upp-
lýsingar um ferðamáta og fleira.
„Okkur gekk vel að sýna og við
fengum forkunnar góðar viðtökur.
Fólk kallaði bravó á eftir okkur á
götunum, það var mjög óvenjulegt,“
segir Aðalheiður Halldórsdóttir
dansari sem er nýkomin frá Frakk-
landi með Íslenska dansflokknum
og lýsir síðan óvæntri heimsókn til
franskrar fjölskyldu.
„Eina frídaginn sem við höfðum
ætluðum við fjögur saman að skoða
það markverðasta í þessum litla bæ
sem við vorum í og heitir Caen. Þá
hittum við hjón á förnum vegi sem
gáfu sig á tal við okkur. Þau höfðu
komið á báðar sýningarnar okkar
með dætur sínar tvær og vildu endi-
lega bjóða okkur heim í te. Við
þáðum það með þökkum. Fórum
bara fyrst að skoða kirkju og kast-
ala og bönkuðum svo upp á hjá þeim
því þau höfðu gefið okkur heimilis-
fangið. Hjónin tóku skælbrosandi á
móti okkur, frúin var búin að baka
og bar fram japanskt te og alls konar
kræsingar. Dæturnar voru þarna og
amman mætti meira að segja. Mikið
var spjallað og fólkið lýsti yfir
ánægju með að fá okkur í heimsókn
en heiðurinn var auðvitað okkar.
Þetta var á sunnudegi og þegar
við spurðum hjónin um veitinga-
stað til að fara á um kvöldið sagði
frúin að lítið væri um opna staði á
sunnudögum. „En ef þið lendið í
vandræðum þá komið þið bara hing-
að,“ sagði hún. „Ég bý til súpu og
baka köku. Fimmtán manns? Það er
ekki neitt. Hringið bara með svona
klukkutíma fyrirvara.“ Til þess
kom þó ekki. Við fundum lítinn veit-
ingastað og skrifuðum hjónunum
póst um kvöldið. Við höfum aðeins
verið í póstsambandi við þau síðan
því nú er þetta „franska fjölskyldan
okkar“. Hjónin eru arkitektar og
búa í fallegu frönsku húsi með
tveimur dætrum. Heimsóknin til
þeirra var skemmtileg og óvænt og
setti svip á ferðina.“
Aðalheiður segir dansflokkinn
hafa verið í Caen í viku og notið
gestrisni og gjafmildi. „Sá sem hélt
um alla þræði heitir Jeróne Rémy
og hann gerði það mjög vel. Þarna
var líka myndlistarfólk og rithöf-
undar frá Íslandi og vel var mætt á
alla viðburði.“ gun@frettabladid.is
Óvænt teboð í Frakklandi
Íslenski dansflokkurinn sýndi fimm verk á hátíðinni Les Boreales í Frakklandi í síðasta mánuði. Fjór-
menningar úr flokknum voru stöðvaðir á götu af aðdáendum og boðið í te og nýbakað í heimahúsi.
„Okkur gekk vel að sýna og við fengum forkunnar góðar viðtökur,“ segir Aðalheiður í
Íslenska dansflokknum sem fór nýlega í frægðarför til Frakklands. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Opið laugardaga til jóla kl. 11-16
Lyftu þér upp um jólin
Rafknúnir hægindastólar sem auðvelda þér að
setjast og standa upp.
• Fást með tveimur mótorum • Einfaldar stillingar • Falleg hönnun • Fjölbreytt úrval
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Leitið upplýsinga hjá sölufulltrúum;
Jóna María Hugi
512 5473 512 5447