Fréttablaðið - 17.12.2008, Qupperneq 37

Fréttablaðið - 17.12.2008, Qupperneq 37
3 H A U S MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2008 Ú T T E K T þar veturinn 1976-77 og Ingi- björg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra sem tók við kyndli samflokksmanns síns árið eftir. Hvort þau hafi spáð í sætaskipan þeirra beggja þrjátíu árum síðar skal ekki fjölyrt um hér. Til gamans má geta að tveim- ur árum eftir að Ingibjörg stóð úr formannsstólnum settist í hann Stefán Jóhann Stefáns- son, í nafni vinstrimanna, nú rit- stjóri í Seðlabankanum. Samtíða honum var lykilmaður í íslensk- um stjórnmálum í dag að stíga sín fyrstu skref. Sá er Steingrím- ur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Í sæti Stefáns næsta vetur sett- ist svo Finnur Ingólfsson, síðar ráðherra Framsóknarflokksins, seðlabankastjóri um tíma og einn arkitektanna að einkavæðingu Búnaðarbankans, nú Kaupþings. Þá var hann einn af stærstu hlut- höfum Icelandair Group og fé- lögum sem tengdust gamla Sam- bandinu með einum eða öðrum hætti. Seta hans í Stúdentaráði var í nafni Umbótasinna, sem síðar sameinaðist Félagi vinstri- sinna undir merkjum Röskvu. Tæpum áratug síðar settust tveir háskólastúdentar sem nokkuð hefur kveðið að upp á síðkastið í formannsstólinn. Það voru jafnaldrarnir Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeft- irlitsins, sem sat í Stúdentaráði í nafni Vöku veturinn 1989 til 1990, þá 23 ára, og Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi forstjóri Landsbankans, sem sat í nafni sömu hreyfingar næsta vetur á eftir. Krókurinn beygðist snemma hjá Jónasi Fr. en árið 1989 setti hann sig upp á móti því að Stúd- entaráð ætti hlutabréf í útvarps- félaginu Rót, sem Stúdentaráð tók þátt í að stofna tæpum tveim- ur árum fyrr þegar Félag vinstri- manna og umbótasinnaðra stúd- enta sat í ráðinu. Vökuliðar, sem voru í minnihluta þá, voru frá upphafi mótfallnir fjárhagslegri aðild Stúdentaráðs í rekstrinum og var félaginu slitið í tíð Jónas- ar með sextán atkvæðum Vöku gegn tólf atkvæðum Röskvu, sem þá samanstóð af miðju- og vinstriflokkunum í háskólapólit- íkinni og komin í minnihluta. Af Sigurjóni var það að frétta að hann virðist hafa gefið sig allan í háskólapólitíkina og stóð ásamt öðrum að ýmsum hags- muna- og þjóðþrifamálum, svo sem notkun á endurunnum papp- ír, bættum dagvistunarmálum og uppbyggingu stúdentagarða fyrir háskólanemendur í Vatns- mýrinni undir yfirskriftinni: „Stúdentahverfi 2000“. Þótt þess- ar fyrirætlanir hafi hljómað eins og hver önnur framtíðarmúsík árið 1991 varð raunin önnur eins og sjá má við mýrina. Aðrir sem setið hafa í for- mannsstóli Stúdentaráðsins hafa sömuleiðis látið talsvert að sér kveða á opinberum vettvangi síðustu ár en einn þeirra landaði borgarstjórastólnum til skamms tíma. Sá heitir Dagur B. Egg- ertsson. Þá var heimspekingur- inn Björgvin G. Sigurðsson, nú viðskiptaráðherra, ritstjóri Stúd- entablaðsins á árabilinu 1997 til 1998. Þótt ekki sé ætlunin að halla á aðra í upptalningunni mun fram- tíðin ein skera úr um hvar við- komandi lenda í sögubókum. Þeir myndu hvort eð er liggja undir radar ættfræðinga. Eða svo vitn- að sé til Braga á ný: „Ættfræð- ingarnir eru ekki í neinum fer- tugum og yngri.“ FJÁRMÁLAFORINGJAR ÚR VÖKU Að öðrum ólöstuðum er listi Vöku á níunda og tíunda áratug síðustu aldar athyglisverður en þar á listum eru margar af lykil- persónum í íslensku efnahagslífi Nýja Íslands. Þannig var Jónas Fr. gjald- keri stjórnar Vöku veturinn 1987 til 1988 en varaformað- ur árið eftir. Formaður stjórnar Vöku á sama tíma var Lárents- ínus Kristjánsson, nú formað- ur skilanefndar Landsbankans. Lárentsínus var nokkuð í frétt- um í fyrra þegar fjárfestingar- félagið Gnúpur lenti í hremm- ingum eins og frægt er orðið. Mun fleiri bankamenn bættust í stjórn Vöku eftir því sem nær dró nútímanum. Illugi Gunnars- son, nú þingmaður sjálfstæðis- manna, var ritari veturinn 1989- 90. Í stjórninni veturinn 1991 til 1992 sat ungur maður sem átti eftir að láta að sér kveða örfá- um árum síðar. Það var Hreið- ar Már Sigurðsson, síðast for- stjóri Kaupþings, þá gjaldkeri, sem hélt um buddu Vöku. Hann var þá 21 árs. Tæpur mánuður er síðan hann fagnaði 38 ára af- mælinu. Eru þá aðeins fáeinir stjórn- armenn upp taldir sem hafa látið að sér kveða í framvarð- arlínu íslensks efnahagslífs síð- ustu ár. Erfitt er að átta sig á stjórnar- setum manna á öðrum listum en Vöku. Þetta félag lýðræðissinn- aðra stúdenta hefur í gegnum tíðina staðið sig með eindæm- um vel að halda öllu til haga er varðar stjórnarmenn. Öðru máli gegnir um aðra flokka skólans, svo sem Félag vinstrimanna, Umbótasinna og aðra eldri flokka. FREKAR RUNNI EN TRÉ Hér hefur ekki verið ætlun- in að birta tæmandi lista yfir tengsl allra lykilpersóna í því umróti sem riðið hefur yfir ís- lenskt samfélag heldur einungis að vekja athygli á þeim. Þau eru án nokkurs efa mun fleiri. Líkt og Bragi Kristjónsson benti á í upphafi greinar eru tengsl manna hér á landi algeng og gjarnan bundin fjölskyldu- og vinaböndum. Næsta ómögu- legt sé því að koma í veg fyrir að leiðir manna skarist ekki á ein- hvern hátt. Þó verði að hindra að einstaka menn hagnist umfram aðra af slíkum tengslum. Með þetta á bak við eyrað væri nær að kalla stöðuna sem komin er upp Litla Ísland en það nýja. BRAGI BÓKSALI „Þótt öll þessi mál nú séu morkin og rotin er ekki beint við neinn að sakast.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.