Fréttablaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 20
20 21. desember 2008 SUNNUDAGUR M ér finnst aldrei nægjanlega mikið sagt í samræðum, það bjagast allt, kemur illa út,“ segir Steinar Bragi, eins og hann vilji vara blaðamann við að gera sér ekki of miklar vænting- ar í upphafi spjalls. Augun eru límd á tebolla sem hann hrærir í án afláts í nokkrar mínútur. „Ég er ekki sérstaklega góður í að færa hugsanir mínar í orð í töluðu máli, það er kannski ein helsta ástæðan fyrir því að ég fór upp- haflega að skrifa.“ Klukkan er að ganga ellefu á fimmtudagskvöldi, fannfergi úti og Steinar Bragi farinn að sýna þreytumerki eftir þeytinginn á milli bæjarhluta við kynningu á sinni fimmtu skáldsögu, Konum. Þetta er saga um unga konu sem snýr aftur til Íslands eftir nokk- urra ára dvöl erlendis og reynir að raða saman brotunum í lífi sínu í samfélagi sem hún kemst að að hefur gjörbreyst. Smám saman fær hún á tilfinninguna að verið sé að leiða hana í gildru. Bókin hefur skýra skírskotun í atburði líðandi stundar; á kápu- texta segir að hún varpi ljósi á íslenska þjóð eins og hún sé nákvæmlega núna. „Ég skrifaði þessa bók reyndar fyrir nokkrum árum, tók mér hlé og lauk við hana rétt áður en hún kom út. Ég er að sumu leyti hepp- inn að samtíminn uppfyllir allt það sem þessi bók lofaði. Þegar hún var skrifuð var valdið ekki búið að taka ofan grímuna; þetta var enn á frumstiginu, þegar við vorum öll saman í baráttunni og allir fengu sinn skerf af hamingj- unni. Það hefur núna breyst. Kerfið er hrunið og það er sterk almenn tilfinning að það séu nokkrar klík- ur að togast á um þetta hræ sem er íslenska efnahagskerfið. Þeir hafa varla fyrir því að hylja þetta, þess vegna segi ég að valdið sé orðið grímulaust.“ Hvert skref kvöl og pína Þetta er óyggjandi sú skáldsaga Steinars Braga sem bestar við- tökur hefur hlotið og bókarýnar keppast við að hlaða hana lofi. Sjálfur segist Steinar Bragi ekki hafa haft á tilfinningunni þegar hann skrifaði bókina að hún myndi falla í kramið. „Þetta var eins og að rífa úr sér æxli sem var samgróið hjartanu,“ segir hann. „Hvert einasta skref í vinnslu bókarinnar var hrein og klár pína. Það er ógeðfelld reynsla sjálfs mín á bak við þetta og úrvinnslan var erfið.“ Hann segist ekki finna fyrir „kaþarsis“ eða hreinsun, þegar hann skrifar; hann eigi í heldur ógeðsblendnu sambandi við skriftir. „Ég hef alltaf haft sterk- lega á tilfinningunni að ég sé að fást við rangt form, þess vegna á ég í átakamiklu sambandi við tungumálið og formið. Ég hefði átt að verða steppdansari finnst mér, það hefði fært mér milliliða- lausa gleði í hvert sinn sem ég steppaði – þá myndi ég hverfa inn í listræna gjörninginn og gleyma sjálfum mér. Þegar ég skrifa finnst mér eins ég sé að leita inn í sjálfan mig og þenja mig út í hvern kima hugs- unarinnar og tilfinninganna. Ég finn ekki beinlínis hamingjuna í skriftunum. Kannski einhvern tíma á eftir þegar verkið er farið að fjarlægjast mig. En ég á frek- ar erfitt með að finna til einhverr- ar sjálfsánægju þegar kemur að skriftum.“ Að næra þjáninguna Hann líkir þessu við að vera klof- inn í tvennt í gegnum miðjuna, sem hann kveðst ávallt hafa haft sterkt á tilfinningunni að eigi við um sig. „Mér finnst ég í eigin lífi, í öllu sem ég geri, vera bæði við- fang og gerandi; mér finnst ég ekki hafa fundið skotheldar for- sendur fyrir mínu sjálfi, ég er stöðugt að renna út í sandinn, leysast upp í ólíkar persónur. Það er til fólk sem segir að ég hafi persónu, að ég sé nokkurn veginn eins milli daga og vikna og ára. Sjálfur hef ég mjög óljósa til- finningu fyrir því, eins og kannski margir listamenn í mismiklum mæli. Kannski erum við stöðugt að reyna að sviðsetja þessar mörgu persónur sem eru „ég“, og reyna að finna eitthvað sem getur sam- einað þær, til dæmis söguþráð, tesu. Á þann hátt erum við kannski að reyna að nálgast okkur sjálf. Svo er það þetta próblematíska samband við listir yfirhöfuð, til- finningin að maður sé stöðugt að næra einhverja þjáningu. Í stað þess að gangast á hólm við sjálfan sig af heiðarleika og útrýma vandamálinu – eins og þeir sem eru ekki listamenn geta kannski leyft sér – fara listamenn að líta á vandamálið sem mjólkurkúna; eintthvað sem sér þeim fyrir starfa. Það er kannski eitthvað bernskutrauma sem hefur eyði- lagt líf þitt og grafið um sig alls staðar og maður tekst ekki á við það nema óbeint í verkum sínum. Í öllum sínum verkum það sem eftir er ævinnar. Það er þetta sem mér finnst ógeðslegt við listsköp- un. Listin er einhvern veginn allt það sem er stærrra en einstakl- ingarnir sem veita henni áfram og það er eitthvað sem er óbæri- lega ópersónulegt við alla list- sköpun.“ Forsíðufrétt á hverjum degi En hvers vegna konur? Af hverju kýs Steinar Bragi að sökkva sér ofan í kvenleikann? „Kannski af því að persónulega reynslan á bak við bókina hefur með konur að gera. En ég lyfti því upp í eitt- hvað almennara lögmál eða geri tilraun til að skilja það. En þetta var ekki tilraun til að skrifa for- framað lesendabréf um kynin og stöðu kynjanna í nútímanum.“ Engu síður megi líta á bókina sem kraftmikið og ögrandi inn- legg í umræðuna um stöðu og hlutskipti kynjanna. „Já, ég blað- aði í bókinni um daginn og rakst á setninguna um að fjórðungi kvenna er á einhverjum tíma- punkti ævi sinnar nauðgað. Þetta er sú tölfræði sem helstu sér- fræðingar styðjast við. Þetta eru sláandi tölur sem eiga við konur og hvernig þær eru beittar ofbeldi af öllum gerðum. Þetta gæti í raun verið forsíðufrétt á hverjum einasta degi ársins. Krafan um breytingar á þessu ætti að vera risavaxin.“ Mannvonska er algengt stef í bókum Steinars Braga. „Mér finnst ekki vera neitt sem heitir illt í náttúrunni, í hinu náttúru- lega fyrirkomulagi. Dýr eru ekki ill, rándýr eru ekki ill. Menn geta hins vegar verið feikilega illir, sérstaklega þegar þeir styðjast við hugmyndafræði, sem bjagar allan veruleika, náttúruna eða eitthvað sem getur verið lífræn dýnamík í samfélaginu. Þeir troða módelunum sínum á heiminn. Þetta er kannski sér-karllegt, ég veit það ekki; kannski hafa konur aldrei haft vald til að troða sínum módelum að. En þessi módel karlmanna eru valdbeiting og yfirleitt enda þau í illsku eða í réttlætingu á illsku. Það birtist í öfgum eins og útrýmingarbúðun- um – eða hruni líkt og því sem reið yfir íslenskt samfélag.“ Kem að betra gagni annars staðar Steinar Bragi hefur búið erlendis undanfarin misseri en frá því hann kom heim fyrir jól hefur hann blandað sér í þjóðmálaum- ræðuna, skrifað greinar, mót- mælt og kallað eftir kosningum. Hann segir það ekki brenna á sér að vera um kyrrt til að fylgja bar- áttunni eftir. Nei, ég held að ég komi að miklu betra gagni annars staðar. Minn styrkur, ef hann er einhvers staðar, liggur ekki í að vera í líkamanum að berja í veggi Landsbankans, þar sem þeir eru sýnilegir, heldur frekar að reyna að fanga það sem er að gerast með mínum hætti. Ég held ég hljóti að gera það betur.“ Steinar kveðst að mörgu leyti sáttur við íslenskt samfélag, hans hæfileiki felist hins vegar í að koma auga á það sem fer úrskeið- is. „Að sumu leyti hef ég sérhæft mig í því. Ég leita á mið þar sem eitthvað hefur brugðist; þar er merking að fæðast, þar eru að verða breytingar. Við vitum ekk- ert hvert þær leiða en það er auð- vitað nauðsynlegt að losna við hugmyndafræði sem er orðin föst í sessi og einráð, hefur nýtt alla möguleika sína og er nú orðin inn- rotin. Þá verður að sparka henni burt því hún hvílir á þjóðfélaginu eins og mara, á nýsköpun og hug- sjónum á borð við réttlæti. Þetta er kerfi sem er búið að ganga sér til húðar, við verðum að samein- ast og losa okkar við það. Þá getum við búið í haginn fyrir nýjar öfgar en við höfum tíu til tuttugu ár fram að því.“ Brýtur af sér formin Steinar Bragi vinnur nú að þrem- ur bókum sem hann gerir ráð fyrir að komi út á næstu fimm árum. Hann heldur til Bandaríkj- anna fyrir áramót en hefur hug á að fara bráðlega til Suður-Amer- íku, á fund við shamen-anda- lækni, fá hjá honum ofskynjunar- lyf „og eiga í gagnlegum samræðum við verur af öðrum heimi“. „Ég naut líkama míns lengi vel framan af, æfði karate þegar ég var tólf ára og spilaði fótbolta með Fylki fram að átján ára aldri. En ég fann mig ekki í hópíþrótt- um, hefði kannski orðið góður tennisleikari. Nú er ég hins vegar að reyna að brjóta af mér öll föst form; ég er búinn að flýja allt sem til er í heiminum. Nú á ég bara eftir að brjótast út úr líkamanum. Þegar það tekst þá sný ég ábyggi- lega ekkert aftur.“ Þjáningin er mjólkurkýr Steinar Bragi Guðmundsson rithöfundur hefur vakið mikla athygli fyrir skáldsögu sína Konur. Í samtali við Bergstein Sigurðsson ræðir Steinar Bragi um togstreituna við skriftirnar, hliðarferil í steppdansi, grímulaust vald og gagnlegar samræður við verur af öðrum heimi. ÓGEÐFELLD REYNSLA SJÁLFS MÍN BAK VIÐ BÓKINA „Þetta var eins og að rífa úr sér æxli sem var samgróið hjartanu,“ segir Steinar Bragi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Í stað þess að gangast á hólm við sjálfan sig af heiðarleika og útrýma vandamálinu – eins og þeir sem eru ekki lista- menn geta kannski leyft sér – fara listamenn að líta á vandamálið sem mjólkurkúna; eitthvað sem sér þeim fyrir starfa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.