Fréttablaðið - 21.12.2008, Qupperneq 26
6 matur
Í E L D H Ú S K R Ó K N U M
Ilmandi
ábætisréttur
Ris á l´amande er einn af eftirlætis ábætisréttum landsmanna um jólin. Ingvar
Helgi Guðmundsson finnst best að bragðbæta hann með ilmandi kanilstöngum.
HRÍSGRJÓNA-
ÁBÆTIR
2 dl grautar-grjón
(Pudding Rice)
4 dl vatn
6 dl mjólk
3 stk kanilstangir
30 g smjör
2 tsk. salt
4 msk. sykur
2 tsk. vanillu dropar
½ rjómi, þeyttur
150 g flórsykur
vanilludropar eða
vanillusykur eftir
smekk
Sjóðið grjón í vatni
með kanilstöngum þar
til að þykknar. Bætið
síðan mjólk saman við,
lækkið hitann og sjóðið
þar til grjón eru orðin
lin og grautur þykkur.
Kælið grjón. Athugið
að gott er að gera
þetta deginum áður.
Bætið þeyttum rjóma
og flórsykri saman við
grjón og hrærið vel
saman með sleif. Setjið
vanilludropa eða
vanillusykur út í eftir
smekk.
HINDBERJA-
SÓSA
100 g flórsykur
1 dl vatn
100 g hindber, fersk
eða frosin
1 tsk. sítrónusafi
Blandið öllu saman í
matvinnsluvél (blender)
og maukið vel saman.
RIS A L´AMANDE MEÐ HINDBERJASÓSU
Gott orð fer af ris á l´amande að hætti Ingvars Helga Guðmundssonar matreiðslumeistara.
Mér finnst best að sjóða kanilstangir með hrís-grjónunum til að fram-
kalla nett kanilbragð. Við það
verður fyllingin líka meiri og
betri og rétturinn gómsætari,“
segir Ingvar Helgi Guðmunds-
son, matreiðslumeistari og eig-
andi Salatbarsins, um sína
útfærslu af eftirréttinum ris á
l´amande sem gott orðspor fer
af.
„Sumir kjósa að sjóða vanillu-
stangir með réttinum en kanillinn
ljær honum miklu meiri dýpt að
mínu mati. Svo er þetta kælt og
blandað saman við stífþeyttan
rjóma,“ útskýrir Ingvar og segir
að notkun á kanil megi rekja til
Þýskalands. „Þjóðverjar nota
meira börkinn af kaniltrénu á
meðan við Íslendingar þekkjum
bara kanilsykurinn sem vinsælt
er að strá út á grautinn. Segja má
að með kanilstöngunum séum við
enn frekar að nálgast grjóna-
grautinn.“
Hann bætir við að tilvalið sé að
búa til ris á l´amande eftir Þor-
láksmessu til að fá góðan ilm í
húsakynnin að skötuveislu lok-
inni. „Þá myndast nefnilega góð
kanillykt á heimilinu sem slær á
ýldufnykinn sem fylgir skötunni,“
segir hann og hlær. - rve
Ingvar segir heillaráð að sjóða
kanilstangir með grjónunum.
RAUÐ
og jóla-
leg gler-
skál með gull-
laufblöðum hentar
vel til að bera fram smákökur.
Fæst í Tiger á 400 krónur.
BAKKI frá Alessi með
gullmynstri sem gert er eftir
torginu í Feneyjum. Fáanlegt í
Mirale á 35.100 krónur.
JÓLAÖLIÐ mætti
bera fram í þessari
grænu akrýlkönnu sem
fæst í Byggt og búið
og kostar 2.499 krónur.
KÖKUFORM sem sameinar kosti hefðbundinna spring-
forma og sílikonforma. Botninn er gerður úr postulíni en
hliðarnar úr sílikoni. Fæst í Kokku á 3.450 krónur.
Hindberjasósa er höfð
með réttinum en hana
er tiltölulega auðvelt að
búa til svo úr verði
ljúffeng sósa.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
E
Kaffi félagið
Skólavörðustíg 10
Sími 520 8420
Verslunin KAFFIBOÐ
Á horni Grettisgötu og Barónsstíg
Sími 562 1029
Waring® blandarinn
er hin uppruna-
lega mulningsvél
frá Ameríku.
Tveggja hraða
mótorinn er
kannski öfl ugri
en eldhúsið
þarf, en hann
fer líka létt með
erfi ðustu verk. Bara
massíft stál og gler!
Auðveldur í þrifum,
bara að setja könnuna
í uppþvottavélina
Ve
rð frá Kr.
29.900,-