Fréttablaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 21.12.2008, Blaðsíða 6
6 21. desember 2008 SUNNUDAGUR ORKA „Þegar Grindavík seldi okkur var miðað við að æskilegt væri að Hitaveita Suðurnesja yrði í eigu opinberra aðila. En í ljósi þess að núverandi meirihluti er myndaður af Reykjanesbæ og Geysi Green Energy, og í ljósi nýrra laga frá Alþingi, eru þær forsendur brostn- ar,“ segir Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Orkuveitan samþykkti nýverið að selja hlut sinn í Hitaveitu Suður- nesja, og hefur fulltrúi VG í stjórn Orkuveitu, Svandís Svavarsdóttir, gert athugasemd við að ekki sé tryggt að auðlindirnar haldist í eigu almennings. Guðlaugur bendir á að meiri- hlutasamstarf GGE og Reykjanes- bæjar sé sterkt. Reynt hafi verið að fá hluthafasamþykkt fram, sem átti að tryggja hagsmuni minnihlutans, en því hafi verið hafnað. „Við höfum því skilið það svo að menn ætluðu í uppskiptingu fyrir- tækisins og það hefur engu skipt hvort um sveitarfélög er að ræða eða ekki,“ segir hann. Hitaveitan sé nú allt annað fyrirtæki en þegar hluturinn var keyptur. Þann 1. desember var Hitaveitu Suðurnesja skipt í tvennt. HS-Veita á að sjá um dreifingu orkunnar, og HS-Orka um framleiðslu og sölu hennar. Samkvæmt nýjum orkulög- um skulu opinberir aðilar eiga dreifingarfyrirtæki, en einkaaðilar mega eiga framleiðslufyrirtæki. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæj- arstjóri Grindarvíkur tekur í svip- aðan streng og Guðlaugur, nú sé „nýr tími í öllu tilliti“. „Ég myndi segja að ríkið sjálft hafi gefið tóninn í þessu þegar það steig fram og seldi sinn hlut. Þá hófst þessi darraðadans allur. En HS-Veita verður þó í eigu almenn- ings áfram,“ segir hún. Jóna hefði líka viljað sjá hluthafasamþykkt ganga í gegn. Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir bæjarfélag- ið hafa áhuga á að styrkja stöðu sína í veitufyrirtækinu. „Við höfum sýnt því mikinn áhuga og það fer enginn [opinber aðili] út úr henni nema með því að selja öðrum slík- um,“ segir hann. Reykjanesbær muni engu að síður halda einhverj- um hlut í samkeppnisfyrirtækinu HS-Orku. Ekki náðist aftur í Árna til að spyrja hann um hluthafasam- þykktina, sem var hafnað. klemens@frettabladid.is Það hefur engu skipt hvort um sveitarfélög er að ræða eða ekki. GUÐLAUGUR G. SVERRISSON STJÓRNARFORMAÐUR OR T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA \ 0 8 3 8 6 8 Allir sem eiga miða í desember 2009 geta átt von á sérstökum 75 milljóna króna vinningi sem dreginn verður út í seinni útdrætti þann mánuðinn. Númerið fer einu sinni í pottinn fyrir hvern greiddan mánuð, þannig að sért þú með strax frá upphafi árs, getur þú tólffaldað möguleikana. Nú fást miðar í sérstakri gjafaöskju á afmælissýningu okkar í Smáralind, hjá aðalumboði og umboðsmönnum um allt land. Gleddu vin og stuðlaðu um leið að uppbyggingu Háskólans. Svo getur þú auðvitað keypt einn fyrir þig í leiðinni! Nánari upplýsingar á sölustöðum, í síma 800 6611 eða á hhi.is. SAMGÖNGUR „Þetta er algjör hand- arbaksvinna,“ segir Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, FÍF. Flugumferðarstjórar hjá Flug- málastjórn Keflavíkurflugvallar fengu í september bréf um að störf þeirra yrðu lögð niður og Flugstoðir ohf. tækju við ráðningarsamningi þeirra 1. jan- úar 2009. Kristján L. Möller samgöngu- ráðherra tilkynnti á föstudag að ekkert yrði af fyrirhuguðum flutningi um áramótin heldur tækju þeir við starfi í nýju opin- beru hlutafélagi Keflavíkurflug- vallar ohf. sem tekur við rekstri Flugmálastjórnar Keflavíkur- flugvallar. Loftur segir að flug- umferðarstjórum hafi ekki verið tilkynnt þetta sjálfum. „Það fyrsta sem við sáum um þetta var frétt á mbl.is á föstu- daginn,“ segir Loftur, en FÍF hefur enn ekki borist formleg til- kynning þess efnis. Samgöngu- ráðherra hefur heldur ekki falast eftir fundum við félagið. Stjórn FÍF sendi frá sér til- kynningu í gær þar sem segir að stjórnin líti svo á að flugumferðar- stjórarnir hafi verið ráðnir til Flugstoða og verði þar starfs- menn frá og með 1. janúar 2009, en ekki starfs- menn Kefla- víkurflug- vallar ohf. „Það getur vel verið að menn séu til- búnir að fara til Keflavíkur- flugvallar ohf. en það yrði ekki nema samsvarandi samningar yrðu gerðir og gerðir voru við Flugstoðir í janúar 2007,“ segir Loftur. Ekki náðist í Kristján L. Möller vegna málsins. - vsp Félag íslenskra flugumferðarstjóra gagnrýnir vinnubrögð samgönguráðherra: Algjör handarbaksvinna LOFTUR JÓHANNSSON SJÁVARÚTVEGUR Að svo stöddu er ekki hægt að mæla með loðnu- veiðum á komandi vetrarvertíð, miðað við niðurstöður mælinga í nýafstöðnum rannsóknarleið- angri Hafrannsóknastofnunar. Veiðistofninn, tveggja til þriggja ára gömul loðna, reyndist 270.000 tonn, en gert er ráð fyrir að hann sé um 400.000 tonn til að hægt sé að leggja til loðnukvóta. Undanfarin ár hefur ekki tekist að mæla endanlega stærð stofnsins fyrr en á fyrstu tveimur mánuðum ársins og verður því mælt að nýju í janúar. - kóþ Hafrannsóknastofnun: Engin loðna á komandi vertíð Er eðlilegt að innflytjendur þurfi að standast íslenskupróf til að fá ríkisborgararétt? JÁ 88% NEI 12% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu búin(n) að kaupa allar jólagjafirnar? Segðu skoðun þína á vísir.is STJÓRNMÁL Sjálfstæðismenn í Árborg hvetja stjórnvöld til að taka einhliða upp annan gjaldmið- il, óháð inngöngu í Evrópusam- bandið. „Takmarkað- ur áhugi hefur verið á ESB hjá mörgum og við vildum vekja athygli á því að menn hoppi ekki á ESB sem einu lausnina í gjaldeyrismálum,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti bæjarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins í Árborg. Í tilkynningu sem sjálfstæðismenn í Árborg sendu frá sér í gær segir: „Verðmæti sem felast í sjálfstæð- inu eru mikil og þau ber að varðveita með öllum ráðum.“ Fáir fulltrúar landsbyggðarinn- ar eru í Evrópunefnd Sjálfstæðis- flokksins að sögn Eyþórs og þetta var því kjörið tækifæri til að láta heyrast í grasrótinni í Árborg. „Þetta á að vera samtal milli Evrópunefndarinnar og grasrót- arinnar, en ekki eintal,“ segir Eyþór. - vsp Sjálfstæðismenn í Árborg: Vilja einhliða upptöku ann- ars gjaldmiðils EYÞÓR ARNALDS Ók undir áhrifum fíkniefna Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ökumann fólksbifreiðar á þjóðveg- inum við Baulu í Borgarfirði í gær. Við athugun reyndist maðurinn vera undir áhrifum fíkniefna. Hann var því fluttur á lögreglustöð en sleppt að lokinni yfirheyrslu. LÖGREGLURFRÉTTIR Segir forsendur brostnar fyrir opinberri eigu HS Orkuveita Reykjavíkur ætlar að selja hluta sinn í Hitaveitu Suðurnesja, sem Grindavík seldi OR, með það í huga að fyrirtækið yrði í almannaeigu. Stjórnarformaður OR segir forsendur þessa brostnar. Fyrirtækinu hefur verið skipt og er stefnt að því að dreifingarhlutinn, HS-Veita, verði í meirihlutaeigu Reykjanesbæjar. Reykjanesbær er stærsti hluthafi í Hitaveitu Suðurnesja, með 34 prósenta hlut, og nýtir hann í meirihlutasamstarfi við Geysi Green Energy, sem á 32 prósent. Minni hluthafar eru Orkuveita Reykjavíkur, með 16 prósenta hlut, Hafnar- fjarðarbær með 15 prósent, og Grindavík, Garður og Vogar, sem eiga innan við eitt prósent hvert. Orkuveitan ætlaði að kaupa hlut Hafnarfjarðarbæjar í fyrirtækinu en óvíst er um þau kaup, sérstaklega í ljósi úrskurðar Samkeppniseftirlitsins, sem hefur sagt að Orkuveitan megi einungis eiga 10 prósenta hlut. EIGENDUR HITAVEITUNNAR Þegar 15 prósenta hlutur ríkisins í HS var auglýstur til sölu vorið 2007 tók einkavæðinganefnd fjármálaráðherra fram að hann yrði einungis seldur til einkaaðila. Sveitarfélögum var þannig bannað að gera tilboð. RÍKIÐ EINKAVÆÐIR HITAVEITA SUÐURNESJA Allt bendir til að framleiðsla og sala fyrirtækisins verði að meirihluta til í eigu einkaaðila. KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.