Fréttablaðið - 29.12.2008, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
29. desember 2008 — 355. tölublað — 8. árgangur
SIRRÝ SIGFÚS SPÁKONA
Birtir til í þjóðfélaginu
í vor og sumar
• áramót
Í MIÐJU BLAÐSINS
BJÖRN MALMQUIST
Erfiðar svipmyndir
Fréttamenn hafa úr nægu að moða
fyrir annál 2008
FÓLK 34
Tónleikar fyrir
eldri borgara
Fjölmargar gamlar
hetjur sóttu
landið heim.
FÓLK 24
Iceland þýðir
gjaldþrot
Orðið Iceland
fær nýja
merkingu.
FÓLK 26
JÓI OG GÓI
Veðja um Skaupið
Bjórkippa um hvor birtist á undan í skaupinu
FÓLK 34
Sömu hagsmunamálin
Útvegsmannafélag Norðurlands
kveður aldarafmælisár sitt.
TÍMAMÓT 20
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
BJÖRGUNARSVEITIR safna gömlum farsímum undir yfirskriftinni
Svaraðu kallinu. Símarnir verða sendir til þýsks fyrirtækis sem endurnýtir
símana og sendir suma þeirra til þróunarlanda. Björgunarsveitirnar munu
taka á móti símum á flugeldasölustöðum um allt land.
Ekki stendur á svörum hjá Sirrý
spákonu þegar hún er beðin um að
rýna inn í árið 2009. Hún segir að
á flestum brenni sú spurning hvað
verði um ríkisstjórnina. „Ég get ekki séð að það verði
kosningar enda væri það að mínu
mati fásinna að boða til þeirra. Þá
myndu þeir sem tækju við baraafsaka gjörði í
úr vasa fjárglæpamanna eins og
hún kýs að kalla þá. „Mér finnst
líka eins og fleiri hneyksli, sem
tengjast Jóni Ásgeiri og Björ-
gólfsfeðgum, eigi eftir að koma
upp á yfirborðið. Nú ef við snúum
okkur að Davíð Oddsyni þá get égekki séð að hann komi ilh
skjálftavirkni en ég á ekki von á
alvarlegum hamförum. Ég á hins
vegar von á því að fíkniefnalög-
reglan eigi eftir að finna mikið
magn af fíkniefnum og að hún
muni jafnvel ná að uppræta tóan fík i f
Fleiri hneyksli koma upp á yfirborðið á næsta ári
Í lok árs lítur fólk um öxl og skoðar farinn veg en mörgum leikur einnig forvitni á að vita hvað framtíðin
ber í skauti sér. Fréttablaðið fékk Sirrý Sigfús spákonu til að skyggnast inn í framtíðina.
Sirrý setur sig í sérstakar stellingar og þannig streyma upplýsingarnar til hennar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nóatúni 4 · Sími 520 3000www.sminor.is
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
Hringdu í síma
“Glæsilegt undir áramótadressið!”
VÍÐAST MILT Í dag verður sunnan
strekkingur norðvestan og vestan
til, annars hægari. Rigning á Vest-
fjörðum, hætt við súld sunnan til og
vestan, annars yfirleitt bjart veður.
Frost til landsins eystra, annars milt.
VEÐUR 4
7 3
-3
58
33,4%
70,7%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Fréttablaðið er með 112%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft... ... alla daga
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008.
BANDARÍKIN, AP Laura Bush,
eiginkona George W. Bush
Bandaríkjaforseta, segist
sannfærð um að seinni kynslóðir
eigi eftir að átta sig á ágæti verka
eiginmanns hennar.
„Ég held að kynslóðirnar muni
brátt fara að þakka þessum
forseta fyrir það sem hann hefur
gert. Þessi kynslóð mun gera
það,“ sagði hún í sjónvarpsviðtali
í gær.
Meðal annars telur hún Bush
forseta hafa lagt grunninn að
stofnun Palestínuríkis, og hún
segir að maðurinn, sem kastaði
skó í Bush í Írak nýverið, hafi
sýnt að „Írökum finnst þeir hafa
mun meira frelsi til að tjá sig“.
- gb
Laura Bush forsetafrú:
Trúir á verk
eiginmannsins
BRETLAND, AP Lögreglan í Skot-
landi fann á föstudag konu sem
hafði verið bundin í skotti
bifreiðar sinnar í allt að tíu daga.
Þrjátíu og fimm ára gamall
maður hefur verið handtekinn,
grunaður um mannrán.
Lögreglan segir að konan, sem
er hjúkrunarkona að nafni
Magdeline Makola, hafi síðast
sést 15. desember, en tilkynnt
hafi verið um hvarf hennar þegar
hún mætti ekki til vinnu 18.
desember.
Hún er nú á sjúkrahúsi, en
mesta mildi þykir að frekar hlýtt
hefur verið í veðri miðað við
árstíma. - gb
Handtekinn fyrir mannrán:
Kona fannst í
skotti bifreiðar
LAURA BUSH Er þess fullviss að fólk
muni átta sig á ágæti eiginmannsins.
Stjarnan og
Fram unnu
Kvennalið
Stjörnunnar
og karlalið
Fram urðu
N1-deildarbik-
armeistarar í
gær.
ÍÞRÓTTIR 30
VEÐRIÐ Í DAG
VINNUMARKAÐUR Tannlæknar búa
sig nú undir komu útlendinga í
stólinn hjá þeim, þar sem gengis-
þróun hefur gert tannviðgerðir á
Íslandi fýsilegan kost. Þá hafa
augnlæknar orðið varir við auk-
inn áhuga á starfsemi þeirra að
utan.
Ingibjörg Sara Benediktsdóttir,
formaður Tannlæknafélags
Íslands, segir þessa þróun
jákvæða, ekki veiti af gjaldeyrin-
um. Áður fyrr tíðkaðist að Íslend-
ingar færu út í ódýrar tannlækn-
ingar, en Ingibjörg segir það hafa
verið í litlum mæli. Staðan nú sé
hins vegar allt önnur. „Við erum
örugglega með ódýrustu tann-
lækningarnar á Norðurlöndunum
eins og staðan er í dag út af
genginu.“
Kreppan hefur ekki enn dregið
úr aðsókn Íslendinga í tannlækn-
ingar, að mati Ingibjargar, þó
kannski hafi dregið úr stærri
verkefnum. Það geti þó breyst.
„Við höfum ekki orðið vör við
samdrátt enn þá en eigum von á
honum eins og aðrar stéttir. En
það verður ekkert atvinnuleysi
hjá okkur, enda er verið að biðja
um tannlækna í Noregi. Þar eru
fimmtíu stöður lausar.“ - fb, kóp
Ísland er vinsælt til tannviðgerða vegna hagstæðs gengis krónunnar:
Sækja tannviðgerðir til Íslands
ORKUMÁL Gríðarleg lækkun hefur
orðið á álverði undanfarna mán-
uði, og kemur til greina að arð-
semismat vegna Kárahnjúkavirkj-
unar verði endurskoðað vegna
þessa. Verð á raforku til stóriðju
er tengt álverði, og hefur því
lækkandi álverð lægri tekjur í för
með sér fyrir orkufyrirtæki.
„Ég held að það sé ekki ólíklegt
að arðsemismatið [á Kárahnjúka-
virkjun] verði endurskoðað,“ segir
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar. Það
hafi verið rætt, en engin ákvörðun
tekin.
Upphaflega var talið að arð-
semi eigin fjár vegna virkjunar-
innar yrði um 11,9 prósent. Þar
var miðað við að heimsmarkaðs-
verð á áli væri að meðaltali um
1.550 dollarar á tonnið. Nú er verð-
ið komið niður í 1.500 dollara, og
hefur hrunið úr um 3.300 dollur-
um í júlí.
Landsvirkjun endurskoðaði arð-
semismatið í janúar 2008. Þá var
arðsemi eigin fjár metin um 13,4
prósent. Helsta ástæðan fyrir
þessari aukningu var hærra
heimsmarkaðsverð á áli.
„Tekjur Landsvirkjunar hafa
lækkað á síðustu mánuðum ársins.
Landsvirkjun er þó með varnar-
samninga sem verja fyrirtækið
fyrir hluta lækkunarinnar. En
þetta hefur neikvæð áhrif og það
segir sig sjálft að við viljum hafa
álverð hærra,“ segir Stefán
Pétursson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Landsvirkjunar.
Þorsteinn segir að lægri fjár-
magns- og vaxtakostnaður vegi að
einhverju leyti upp á móti lækk-
andi álverði. Landsvirkjun noti
dollara sem starfrækslumynt, og
því hafi lágir stýrivextir í Banda-
ríkjunum góð áhrif.
Sveiflur á álverði eru algengar,
og þarf því að áætla hvert verðið
verður til lengri tíma þegar arð-
semi af stórum framkvæmdum
eins og Kárahnjúkavirkjun er
metin, segir Þorsteinn. - bj, kóp
Arðsemismat mögu-
lega endurskoðað
Heimsmarkaðsverð á áli hefur lækkað úr 3.300 dollurum í 1.500 dollara á hálfu
ári. Lækkunin hefur bein áhrif á íslensku orkufyrirtækin. Líklegt er að arðsem-
ismat vegna Kárahnjúkavirkjunar verði endurskoðað vegna lækkandi álverðs.
MÓTMÆLI Í PARÍS Meira en þúsund manns komu saman í París í gær til að mótmæla loftárásum Ísraela á Gazasvæðið, sem
kostað hafa nærri 300 manns lífið um helgina. Sjá síðu 4 NORDICPHOTOS/AFP