Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.12.2008, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 29.12.2008, Qupperneq 12
12 29. desember 2008 MÁNUDAGUR EVRÓPUMÁL Tékkar taka um ára- mótin við formennskunni í Evr- ópusambandinu af Frökkum, en á eftir Slóvenum eru Tékkar þar með önnur fyrrverandi austan- tjaldsþjóðin sem gegnir for- mennskuhlutverkinu. Þar sem tékkneski forsetinn, Vaclav Klaus, er þekktur fyrir að vera þjóðernissinnaður efa- semdamaður um Evrópusamrun- ann, og íhaldsflokkur hans og for- sætisráðherrans Mireks Topolanek, ODS, þykir deila þeirri hugmyndafræði, eru margir spenntir að sjá hvernig hinni sundurlyndu samsteypustjórn Topolaneks, sem ræður ekki yfir þingmeirihluta, ferst for- mennskuhlutverkið úr hendi. Klaus er að vísu nýgenginn úr ODS, flokknum sem hann stofnaði sjálfur eftir fall kommúnismans að fyrirmynd breska Íhalds- flokksins. Hann yfirgaf flokkinn í því skyni að leggja sitt af mörk- um til að lægja innanflokksdeilur, en óvíst er að það dugi til. Víst er að alþjóðlega fjármála- kreppan mun setja mjög mark sitt á formennskumisseri Tékka. Þá er þess líka vænst að örlög Lissabon-sáttmálans svonefnda skýrist á tímabilinu, en Klaus for- seti hefur neitað að undirrita staðfestingu sáttmálans fyrir Tékklands hönd uns ljóst er orðið hvað írska stjórnin ætlar að gera eftir að írskir kjósendur höfnuðu staðfestingu sáttmálans í þjóðar- atkvæðagreiðslu í sumar sem leið. Írlandsstjórn hefur boðað nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um málið í haust − það er í for- mennskutíð Svía − eftir að komið hefur verið til móts við helstu áhyggjuefni Íra varðandi sátt- málann, í samræmi við það sem um samdist á leiðtogafundi ESB í desember. Önnur helstu áherslumál Tékka í formennskuhlutverkinu í ESB verða þessi: að gæta hagsmuna smærri aðildarríkja, að ríkisaf- skipti af efnahagsmálum skuli vera takmörkuð, að grannríki ESB í austri skipti máli og tengsl- in yfir Atlantshafið skipti meira máli en tengslin við Rússa. Fari svo að Ísland ákveði að leggja inn aðildarumsókn að ESB í vor myndi það verða Karl zu Schwarzenberg fursti, utanríkis- ráðherra Tékklands, sem tæki við umsókninni fyrir hönd sambands- ins. audunn@frettabladid.is Formennska í hend- ur efahyggjumanns Tékkar taka um áramót í fyrsta sinn við formennskunni í Evrópusambandinu. Veik staða stjórnarinnar í Prag og efahyggja Vaclavs Klaus forseta um Evrópu- samrunann valda því að náið verður fylgst með hvernig til tekst. FORMENNSKUÁÆTLUN KYNNT Karl zu Schwarzenberg utanríkisráðherra, Mirek Topolanek forsætisráðherra og Alexandr Vondra Evrópumálaráðherra kynna ESB-formennskuáætlun Tékka í Brussel 11. desember síðastliðinn. NORDICPHOTOS/AFP GRINDAVÍK Bæjaryfirvöld í Grindavík hafa ákveðið að halda útsvarsprósentunni óbreyttri á næsta ári í stað þess að nýta sér möguleika til hækkunar eins og mörg sveitarfélög hafa gert. Bærinn lækkar gjaldskrána ef eitthvað er til að mæta þrengingum og standa með sínu fólki. Til að mæta þröngri stöðu fjölskyldnanna verður niður- greiðsla á matarkostnaði grunn- skólabarna aukinn og fer máltíðin úr 230 krónum niður í 180 krónur. Þá verður tónlistarnám grunn- skólabarna gjaldfrjálst frá og með næsta hausti. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir bæjarstjóri segir að bærinn sé þokkalega settur, hafi selt í Hitaveitu Suðurnesja og eigi sjóð. „Við komum kannski til með að þurfa eitthvað að nýta okkur sjóðinn, nota ávöxtun af honum og verðbætur fremur en að taka lán,“ segir hún. - ghs Grindavíkurbær: Lækkar matar- kostnað barna JÓNA KRISTÍN ÞORVALDSDÓTTIR HEILBRIGÐISMÁL Fóstureyðingar á Grænlandi á árinu 2006 voru 1.030 miðað við hver 1.000 lifandi fædd börn. Þetta er langhæsta hlutfall fóstureyðinga á Norðurlöndunum að því er sjá má í Talnabrunni, fréttabréfi Landlæknis. Hlutfallslega næstflestar fóstur- eyðingar á Norðurlöndunum voru í Svíþjóð þar sem þær voru 340 á hverjar eitt þúsund fæðingar sam- kvæmt Norræna heilbrigðistöl- fræðiráðinu. Hlutfallið á Íslandi er 205 fóstureyðingar. Það er fimmtungur hlutfallsins á Græn- landi. Hér á landi fæðast um 4.300 börn á ári en fóstureyðingar eru um 900 talsins. Fóstureyðingar eru áberandi fæstar í Færeyjum en mjög fáar eru einnig í Finnlandi, eða aðeins 181 á hverja þúsund fædda. Matthías Halldórsson, starfandi landlæknir, segir að ekkert sé að marka tölurnar á Grænlandi því að svo margt sé öðruvísi í græn- lenska samfélaginu en á hinum Norðurlöndunum. Því þurfi að taka Grænland út fyrir sviga og þá séu fóstureyðingarnar flestar í Svíþjóð. Matthías segir að Íslendingar standi frekar vel hvað fóstureyð- ingar varðar, fóstureyðingar séu ekki of margar hér og hafi heldur farið fækkandi síðustu árin fremur en hitt. Það sé meðal ann- ars vegna neyðargetnaðarvarnar- innar sem kom fyrir nokkrum árum. „Svo hefur verið töluverð fræðsla, læknanemar hafa til dæmis farið í framhaldsskólana, og þetta hefur lagst á sveif hvort með öðru,“ segir hann. - ghs, gar Tiltölulega lítið er um fóstureyðingar á Íslandi í samanburði við hin Norðurlöndin: Fæðingar á Grænlandi færri en fóstureyðingar FÓSTUREYÐINGAR 2006 Á 1.000 lifandi fædda Danmörk 242,1 Færeyjar 61,0 Grænland 1.029,7 Finnland 181,0 Álandseyjar 226,2 Ísland 204,8 Noregur 246,3 Svíþjóð 340,3 HEIMILD: TALNABRUNNUR Á GRÆNLANDI Hlutfall fóstureyðinga er langhæst á Grænlandi þegar Norður- löndin eru borin saman. FYRRVERANDI FORSETAHJÓN George H.W. Bush, fyrrverandi Bandaríkja- forseti, fór í gær ásamt Barböru eigin- konu sinni að viðra hundinn þeirra á flugvellinum í Waco í Texas eftir að þau komu þangað með forsetaflugvél- inni Air Force One. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIRKJANIR Landsvirkjun hefur kynnt matsáætlun vegna rann- sóknarborana í Gjástykki í Þingeyjarsveit. Áformað er að bora þrjár rannsóknarholur á svæðinu í samvinnu Landsvirkj- unar og Þeistareykja ehf. Í áætluninni kemur fram að Landsvirkjun fyrirhugar að bora allt að þrjár rannsóknarholur frá einum borteig á orkuvinnslu- svæðinu í Gjástykki. Árið 2007 var boruð kjarnahola á sama svæði. Boranir munu fara fram að sumri til þegar snjóa hefur tekið upp að mestu leyti. Frestur til athugasemda vegna matsáætlunarinnar er til 14. janúar. - kóp Umhverfismatsáætlun: Matsáætlun fyrir Gjástykki VINNUMARKAÐUR Atvinnulausum fjölgar enn og 28. desember voru 9.582 án atvinnu á landinu öllu. Af þeim eru 6.033 karlar og 3.549 konur. Mest er atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu þar sem 3.896 karlar eru án atvinnu og 2.097 konur; alls 5.993 eða um 63 prósent þeirra sem eru án atvinnu. Í skýrslu Vinnumálastofnunar kemur fram að atvinnuleysi var 75 prósentum meira í nóvember í ár, þegar það var 3,3 prósent eða 5.445 að meðaltali, en á sama tíma í fyrra. Þá hafði atvinnuleysi ekki verið meira síðan í maí 2004 og nú hefur það enn aukist. - kóp Atvinnulausum fjölgar: Tæp tíu þúsund eru atvinnulaus VERKALÝÐSDAGURINN Mikill samdráttur hefur orðið á vinnumarkaðnum. Ölvun í miðborginni Talsverð ölvun var í miðborginni aðfaranótt sunnudags. Þrátt fyrir það komu engin alvarleg mál til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en þrír gistu fangageymslur. LÖGREGLUFRÉTTIR Tveir í fangageymslum Tveir gistu fangageymslur lögreglunn- ar á Suðurnesjum aðfaranótt laugar- dags. Annar þeirra fannst ofurölvi fyrir aftan skemmtistað en hinn var handtekinn fyrir ölvun og óspektir. Enginn gisti fangageymslur aðfaranótt sunnudags.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.