Fréttablaðið - 29.12.2008, Page 26

Fréttablaðið - 29.12.2008, Page 26
22 29. desember 2008 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Manstu eftir hryllingsmyndinni „Hrærð“? Þetta er framhaldið ... Kannski … gírkassinn? Nei, ég hef notað hann á hana áður. Hmm... glussi... gaffall... Glussagaffallinn! Það hljómar alla vega nógu dýrt! Jájá, það er málið! Jájájá! Svona, þetta var nú alls ekki svo slæmt? Ég skal svara þér þegar ég næ andanum aftur. Þetta var bara flott. Besta í dag. Þessi frammistaða á eftir að koma í bakið á þér seinna. Hæ, elskan, á ég að kippa einhverju með mér á leiðinni heim? Ekkert annað? Ókei, ég sé hvort ég næ að redda því. Hvar ertu með frið og ró? Sólar- hliðin snýr upp Síðustu mánuðir ársins hafa verið helgaðir matargerðarhæfileikum húsfreyjunnar sem tóku að blómstra þegar kreppan tók öll völd og bókin Maturinn hennar mömmu: leyndarmálin á bakvið uppstúf, soðningu, bjúgu og búðing, kom sér notalega fyrir uppi á eldhúsborðinuu. Öll þessi skrif um mat og matargerð höfðu augljóslega skilað sér til ættingja og vina fyrir þessi jól. Þeir höfðu séð fyrir sér að allt heimilislífið snerist um að steikja, sjóða og baka. Klukkustundunum sem hafði verið eytt í óþarfa afþreyingu á borð við enska boltann hafði verið komið fyrir upp á hillu og allur tíminn notaður til að elda allan liðlangan daginn, allt árið um kring. Þess vegna komu jólapakkarnir ekki ýkja á óvart. Upp úr kössunum komu hvorki tölvuleik- ir, golfkylfur né treyja frá Liverpool heldur hnífaparasett, sem mér skilst reyndar að sé Ping hnífaparanna, hrærivél, tvær mat- reiðslubækur og sósuskál. Þakklætið fyrir gjafirnar er ótvírætt. En mér finnst samt ekki vanþörf á að gefa út yfirlýsingu fyrir næsta ár. Því þá verður nefnilega ekki einu orði minnst á elda- mennsku. Allar hugsanlegar pælingar um matagerð verða látnar eiga sig og þess í stað verður öllum setningum eytt í knattspyrnu- spekúlasjónir, kenningar um rétta sveiflu eða gagnsemi þess að stunda tölvu- leikjadráp- eða íþróttir. Næst er nefnilega komið að húsfreyjunni að fá alltof stóran dræver, FIFA00 og spánnýja treyju, merkta Steven Gerrard í XL. Ef henni finnst hún ekki geta notað þessar glæsilegu gjafir, skal ég glaður taka við þeim. Yfirlýsing fyrir næstu jól NOKKUR ORÐ Freyr Gígja Gunnarsson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.