Fréttablaðið - 30.12.2008, Side 2
2 30. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR
NEYTENDUR Leiguverð hefur lækkað
um 18,5 prósent á stórum íbúðum
frá því í vor. Þetta kemur fram í
könnun sem Neytendasamtökin
gerðu. Könnunin er ekki tæmandi,
einungis var skoðað verð hjá tveim-
ur leigumiðlunum. Oftar en ekki er
leiguverð samkomulagsatriði á
milli leigjenda og leigusala og því
erfitt að ná utan um hvert það er.
Mest hefur
leiguverð stórra
íbúða lækkað,
um 18,5 prósent,
en minnst á 3
herbergja íbúð-
um, eða 6 pró-
sent. Stórar
íbúðir eru fimm
herbergi og
oftar en ekki
einbýlishús.
Þeim hefur mjög fjölgað á leigu-
markaði. Hvort það stafar af því að
eigendur hafi gefist upp á sölu hús-
anna af því að þeir eru fluttir af
landi brott eða einhverju öðru skal
ósagt látið.
Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lög-
fræðingur hjá Neytendasamtökun-
um, segir ljóst að leiguverð hafi
lækkað umtalsvert. Þó þurfi að
halda þeim fyrirvörum til haga að
aðeins sé kannað uppsett leiguverð
hjá leigumiðlunum. Oftar en ekki
sé óskað tilboða.
„Þetta er umtalsverð lækkun í
öllum flokkum. Sé tekið tillit til
neysluverðsvísitölu, sem hefur
hækkað um 18 prósent á árinu, er
lækkunin mun meiri.“ Það skýrist
af því að leigusamningar eru fram-
virkir og oftar en ekki er leiguverð
bundið neysluverðsvísitölunni.
Leiga nú er því enn lægri en upp-
sett leiguverð samninga í fyrri
könnuninni, þar sem sú upphæð
hefur hækkað í takt við vísitölu, þó
það komi ekki fram í könnuninni.
Hildigunnur segir leigumarkað á
Íslandi ólíkan þeim löndum sem við
berum okkur saman við. „Það hefur
vantað allt utanumhald og reglu-
verk á leigumarkaðinn. Það breyt-
ist kannski núna þegar bankarnir
og Íbúðalánasjóður eru orðnir
leigusalar. Það er öðruvísi umgjörð
þar en þegar Jón leigir Gunnu.“
Þá skorti tilfinnanlega samtök
leigjenda. „Þau eru nauðsynleg
til að markaðurinn verði öruggur
og stöðugur. Við höfum ítrekað
rætt við félags- og trygginga-
málaráðuneytið um að þeim verði
komið á fót. Neytendasamtökin
eru reiðubúin til að taka það að
sér, en hvort sem það verða við
eða aðrir eru hagsmunasamtök
nauðsynleg. Leigjendur í dag
eiga sér engan sameiginlegan
málsvara.“
kolbeinn@frettabladid.is
IÐNAÐARMÁL Álþynnuverksmiðja Becromal á
Krossanesi við Eyjafjörð tekur til starfa í byrjun
sumars. Framkvæmdir á iðnaðarsvæðinu eru í
fullum gangi og áætlað er að framleiðsla hefjist í
byrjun sumars.
Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Strokks
fjárfestingarfélags, sem er annar eigandi Becromal
á Íslandi, segir að unnið sé að því að ljúka við
spennistöð og í verksmiðjuhúsinu sjálfu. Lítils
háttar tafir hafi orðið á verkinu sem sé eðlilegt við
stóra framkvæmd. „Það hefur gengið mjög hratt að
vinna þetta verk miðað við önnur stóriðjuverkefni
því gengið var frá samningum um þessa verksmiðju
í ágúst í fyrra. Nú stefnir allt í að framleiðsla hefjist
í sumarbyrjun. Þá eru tvö ár liðin frá því ákveðið
var að fara í þetta verkefni og þangað til framleiðsla
hefst.“
Það verður vandalaust að manna nýja verksmiðju
að sögn Eyþórs og þegar hafa nokkrir starfsmenn
verið ráðnir. „Farið hefur verið í gegnum hundruð
umsókna og ráðningar hefjast á fullu eftir áramót-
in.“ Níutíu ný störf skapast í verksmiðjunni.
Ráðgert er að útflutningsverðmæti verksmiðjunn-
ar verði um sjö til níu milljarðar á ári miðað við full
afköst. Orkuþörfin er 75 megavött sem er fimmföld
orkuþörf Akureyrarbæjar. - shá
Verklok nálgast við álþynnuverksmiðjuna á Krossanesi við Eyjafjörð:
Gangsetning í byrjun sumars
KROSSANES Iðnaðarsvæðið þykir henta sérlega vel fyrir
álþynnuverksmiðju. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Viltu selja vöruna þína í Bandaríkjunum?
Einstakt sölutækifæri fyrir Íslensk fyrirtæki.
Tökum að okkur að markaðssetja og selja íslenskar vörur í U S A.
Milkil þekking á bandaríska markaðnum.
Bjóðum einnig uppá ýmsa þjónustu fyrir íslensk fyrirtæki í U S A.
Frekari upplýsingar í síma 825 0070
eða bravohakon@gmail.com
Buiness beyond borders
ÞÉNAÐU Í BANDARÍSKUM
DOLLURUM
C2C international servecis Inc.
Stúdíó 38 fm. 80.363 91.313 11 12,0% 10.950
2 herbergja 65 fm. 110.988 119.574 41 7,2% 8.586
3 herbergja 88 fm. 132.225 140.674 49 6,0% 8.449
4 herbergja 117 fm. 148.857 169.500 35 12,2% 20.643
5 herbergja 161 fm. 186.731 229.000 26 18,5% 42.269
Meðal-
stærð
Meðal-
verð
Meðalverð í
apríl 2008
Fjöldi íbúða
í könnun
Í pró-
sentum
Í krón-
um
Lækkun
meðalverðs
LÆKKUN LEIGUVERÐS
SKIPULAGSMÁL Framtíð tónlistar-
og ráðstefnuhúss við Reykjavík-
urhöfn mun ekki ráðast fyrir
áramót. „Það eru margir hnútar
sem þarf að leysa,“ segir Stefán
Hermannsson, framkvæmda-
stjóri Austurhafnar, félags í eigu
ríkis og borgar. „Ég á von á að
lausn fáist snemma í janúar.“
Óvissa hefur ríkt um framtíð
tónlistarhússins frá því að Portus,
sem byggði húsið, fór í þrot í lok
nóvember.
Fulltrúar gamla og nýja
Landsbankans, ríkis og borgar, og
stærsta verktakans ÍAV hafa
fundað stíft á undanförnum
vikum. - hhs
Tónlistar- og ráðstefnuhús:
Óvissa fram
yfir áramót
Leiguverð hefur
lækkað umtalsvert
Leiguverð hefur lækkað um allt að fimmtung síðan í vor og enn meira sé tillit
tekið til vísitöluhækkana. Neytendasamtökin hafa hvatt félagsmálaráðherra til
að koma á fót leigjendasamtökum og segja umgjörð leigumarkaðar ábótavant.
Í FRAMTÍÐINNI Enn er framtíð tónlistar-
húss óráðin. MYND/PORTUS
HÚSNÆÐI Leiguverð hefur lækkað um allt að fimmtung síðan í vor. Neytendasam-
tökin segja samtök leigjenda nauðsynleg til að leigumarkaður verði þroskaður.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
HILDIGUNNUR
HAFSTEINSDÓTTIR
FÓLK „Þetta var nýtt fyrir öllum.
Sjónvarpið var bara búið að starfa
í þrjá mánuði því það hóf útsend-
ingar 30. sept-
ember 1966,“
segir Andrés
Indriðason dag-
skrárgerðar-
maður um gerð
fyrsta áramóta-
skaupsins.
Margir af
fremstu
skemmtikröft-
um þjóðarinnar
komu fram í skaupinu en fram-
leiðslan gekk ekki átakalaust fyrir
sig að sögn Andrésar. „Það var
bara til eitt myndbandstæki fyrir
upptökur í myndverinu og var
þeim annmörkum háð að ekki var
hægt að klippa í því. Ef einhver
mismælti sig eða endirinn var ekki
á réttum tíma varð að byrja upp á
nýtt.“ -gun/sjá sérblaðið Áramót
Fyrsta áramótaskaupið:
Allt tekið upp
í einu rennsli
ANDRÉS
INDRIÐASON
REYKJAVÍK Um 3.300 gestir verða
á hótelum og gistiheimilum í
Reykjavík yfir áramótin miðað
við bókanir. Það eru heldur færri
en í fyrra þegar þeir voru um
3.600. Um jólin voru um 1.200
bókaðir á gististaði og er það um
20 prósenta aukning frá í fyrra.
Ferðamennirnir koma víðs
vegar að, en Bretar, Norður-
landabúar, Þjóðverjar, Banda-
ríkjamenn, Rússar og Japanar
eru fjölmennastir. Þá dvelja
fjölmargir erlendir ferðamenn
hér á landi á milli jóla og nýárs,
en halda af landi brott fyrir
áramótin. - kóp
Ferðamenn í Reykjavík:
Á fjórða þús-
und yfir áramót
FERÐAIÐNAÐUR Svipaður fjöldi
skemmtiferðaskipa hefur skráð
komu sína til Íslands og á sama
tíma síðustu ár. Til Reykjavíkur
höfðu verið skráð 76 skipakomur
í byrjun desember. Ekki hefur
orðið verulegur samdráttur í
eftirspurn eftir ferðum með
skemmtiferðaskipum í Evrópu,
en útgerðirnar hafa brugðist við
kreppunni með verðlækkunum og
olíuverð er einnig hagstæðara nú
en til langs tíma. Þetta kemur
fram í Hafnarfréttum.
Sú breyting hefur orðið í
heimsóknum skemmtiferðaskipa
að næturdvöl gerist æ algengari.
Átján af þeim 76 skipum sem
boðað hafa komu sína hyggja á
lengri dvöl en part úr degi, eins
og tíðkast hefur. - shá
Skemmtiferðaskip á leiðinni:
Lengri landlega
sífellt algengari
Snorri, er 101 hin sanna
Reykja-vík?
„Hvað heldur þú? Hér er best að
búa.“
Snorri Guðmundsson, í söluturninum
Drekanum, selur ýmsar tegundir af vafn-
ingstóbaki, þar á meðal með bláberja-
bragði og vanillu.
VIÐSKIPTI Þrír af níu framkvæmda-
stjórum hjá Kaupþingi létu af störf-
um í gær með samkomulagi við
bankann. Finnur Sveinbjörnsson
bankastjóri segir að með því séu
skilin milli gamla og nýja Kaup-
þings skerpt.
Stjórnendurnir þrír eru Bjarki H.
Diego, sem var yfir fyrirtækjasviði,
Guðný Arna Sveinsdóttir, sem
stýrði fjármála- og rekstrarsviði,
og Þórarinn Sveinsson, sem var yfir
eignastýringu Kaupþings. Ekki
voru gerðir sérstakir starfsloka-
samningar við þau en Finnur segir
að eins og aðrir eigi þau sinn upp-
sagnarfrest sem þau fái greiddan.
Finnur vildi ekki tjá sig um það
hvort fleiri stjórnendur bankans
myndu fylgja í kjölfarið.
Eftir að nýju viðskiptabankarnir
tóku til starfa á rústum þeirra
gömlu lögðu stjórnendur þeirra
mikla áherslu á að halda sama fólk-
inu í stjórnunarstöðum. Finnur
segir að það hafi verið sín skoðun,
en nú séu aðstæður breyttar, enda
liðinn talsverður tími frá því að
bankarnir féllu og ringulreiðin
ríkti. Síðan hafi stöðugleiki mynd-
ast og það sé sín skoðun að það
muni ekki veikja bankann að þessir
starfsmenn hverfi á braut.
Finnur vildi í gær ekki tjá sig um
hvort þessir stjórnendur hafi feng-
ið lán hjá bankanum fyrir hluta-
bréfakaupum. Fram hefur komið í
fjölmiðlum að lykilstjórnendur
gamla Kaupþings hafi fengið slík
lán. Finnur segir ekkert breytast
varðandi slík lán þótt starfsmenn
láti af störfum. - bj
Bankastjóri Kaupþings segir nauðsynlegt að skilja á milli nýja og gamla bankans:
Þrír lykilstjórnendur hættir
BREYTINGAR Aðstæður hafa breyst frá
því nýju bankarnir voru stofnaðir, segir
Finnur Sveinbjörnsson. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
MÓTMÆLI Boðað er til útifundar í
dag til að mótmæla árásum
Ísraelshers á Gaza.
Kröfur fundarins eru að
stjórnmálasambandi verði slitið
við Ísrael og fjöldamorð Ísraels-
hers á Gaza verði stöðvuð. Þau
María S. Gunnarsdóttir, formaður
Menningar- og friðarsamtaka
íslenskra kvenna, Ögmundur
Jónasson alþingismaður og Örn
Bárður Jónsson sóknarprestur
flytja ræður.
Fundurinn, sem Félagið Ísland-
Palestína boðar til, verður í dag
klukkan 16 á Lækjartorgi. - kóp
Útifundur á Lækjartorgi í dag:
Árásum Ísraels á
Gaza mótmælt
SPURNING DAGSINS