Fréttablaðið - 30.12.2008, Síða 26
30. DESEMBER 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Meðferð flugelda er alvörumál.
Nauðsynlegt er að fylgja reglum
um öryggi því öllu gamni fylgir
alvara. Slysavarnafélagið Lands-
björg gefur ráðleggingar á vef-
síðu sinni um meðferð flugelda en
þar segir meðal annars:
Börnum yngri en 16 ára eru
ekki seldir flugeldar og fullorðnir
skulu ávallt aðstoða börn við með-
ferð flugelda.
Mikilvægt er að hafa trausta
undirstöðu þegar flugeldum er
skotið upp og velja skotstað í að
minnsta kosti 20 metra fjarlægð
frá húsum. Það má aldrei kveikja
í flugeldum á meðan haldið er á
þeim, heldur aðeins á sérmerktum
handblysum.
Víkja skal vel frá eftir að búið
er að kveikja í flugeldinum. Ekki
skal standa nálægt flugeldum sem
sprengdir eru því hávaði frá þeim
getur skaðað heyrn. Allir skulu
vera með öryggisgleraugu. Líka
þeir sem horfa á.
Ekki má handleika flugelda
eftir að kveikt hefur verið á þeim.
Þeir geta sprungið fyrirvaralaust.
Ef þeir springa ekki skal hella yfir
þá vatni.
Halda skal dýrum innandyra.
Hundar, kettir og hestar eru sér-
staklega viðkvæmir fyrir hávað-
anum.
Flugeldar og smádót sem fylgir
eru ekki leikföng og ekki skal nota
það í hrekki. Alvarlegustu slysin
af völdum flugelda verða sökum
fikts. Mjög hættulegt er að taka
þá í sundur og búa til heimagerð-
ar sprengjur.
Sjá www.landsbjorg.is. - rat
Flugeldasýningar eru ævintýralegar á að horfa en gæta þarf fyllsta öryggis.
Aðgát skal höfð um áramót
Gamlárskvölds er jafnan beðið
með óþreyju og eftirvæntingu,
enda stendur mikið til. Allt á að
vera fullkomið og hjá mörgum
rennur upp aðalpartíkvöld
ársins. Til að krydda sam-
fagnað í heimahúsi má leika
skemmtilega samkvæmisleiki,
sem valdir eru af kostgæfni,
hvort sem partíið er fjölmennt
fjölskyldukvöld eða tveggja
manna rómantík.
Gamla árið kvatt með stæl
Drykkjuleikir eru vinsælir á gamlárs-
kvöld, enda viðeigandi að skála fyrir
nýju ári um leið og gamla árið er kvatt.
Notið teskeið til að fylla vínstaup í
keppni, en sá sem fyrstur nær að fylla
fær einnig að skála og drekka í botn.
Um áramót fá allir koss, og í fjörlegum
leik fá allir á sig varalit hver í sínum lit.
Á tilsettum tíma eiga þeir að kyssa eins
marga og þeir komast yfir, en á eftir eru
kossarnir taldir með því að telja kossa-
för á kinnum hinna. Sá sem kyssir flesta
fær sigurlaun.
Það er erfiðara en sýnist að borða epli
hangandi spotta og án þess að mega
nota hendur. Veldur mikilli spennu og
hlátri meðal viðstaddra.
Að dansa þétt saman með blöðru er
strembin þraut en skemmtileg. Tvö pör
eða fleiri eru valin til að dansa saman
á þennan hátt og það par sem dansar
lengst án þess að missa blöðruna vinnur
leikinn.
Hattar og grímur eru ómissandi á
gamlárskvöld. Gaman er að binda fyrir
augu í leik þar sem reynt er að þekkja
úr vini og vandamenn með snerti- og
lyktarskyninu einu saman. Þá er þreifað
á til dæmis fótum þriggja manneskja til
að skera úr um hver á hvað.
N
O
R
D
IC
P
H
O
T
O
S
/G
E
T
T
Y
Feluleikur er skemmtilegt fjölskyldugam-
an. Lítil börn geta verið kjánar í að finna
stað og koma ekki upp um sig, og því
hreinasta ánægjustund að fela sig með
þeim í dillandi hlátri og ískrandi fjöri.