Fréttablaðið - 30.12.2008, Síða 38

Fréttablaðið - 30.12.2008, Síða 38
 30. desember 2008 ÞRIÐJUDAGUR STÓRKOSTLEGT EPÍSKT MEISTARAVERK EFTIR LEIKSTJÓRA MOULIN ROUGE STÓRKOSTLEGT EPÍSKT MEISTARAVERK EFTIR LEIKSTJÓRA MOULIN ROUGE NÝTT Í BÍÓ!GLEÐILEG JÓL! GLEÐILEG JÓL! SÍMI 462 3500 SÍMI 564 0000 12 12 L 10 12 7 L 12 SKOPPA OG SKRÍTLA Í BÍÓ * kl. 3.30 - 4.45 INKHEART ** kl. 6 - 8 AUSTRALIA kl. 6 - 9 THE DAY THE EARTH STOOD STILL kl. 10 FOUR CHRISTMASES kl. 4 * 27. - 28. kl. 2 - 3.30 - 4.45 ** 27. - 28. kl. 2 - 6 - 8 L 10 12 7 AUSTRALIA D kl. 4.30 - 8 AUSTRALIA LÚXUS D kl. 1 - 4.30 - 8 SKOPPA OG SKRÍTLA Í BÍÓ D kl. 1 - 2.30 - 4 - 5.30 INKHEART kl. 1 - 3.20 - 5.40 THE DAY THE EARTH STOOD STILL D kl. 8 - 10.20 FOUR CHRISTMASES kl. 1 - 4 - 6 - 8 - 10 IGOR kl.1 QUANTUM OF SOLACE kl. 8 - 10.30 16 L 10 16 12 7 14 AUSTRALIA kl. 5.30 - 9 SKOPPA OG SKRÍTLA Í BÍÓ kl. 2.30 - 4 INKHEART kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 TAKEN kl. 8 - 10 THE DAY THE EARTH STOOD STILL kl. 5.40 - 8 - 10.20 FOUR CHRISTMASES kl. 4 - 6 REYKJAVÍK-ROTTERDAM kl. 3.20 SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000 12 16 16 12 16 AUSTRALIA kl. 3 - 6.30 - 10 THE DAY THE EARTH STOOD STILL kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20 ZACK AND MIRI MAKE A PORNO kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 QUANTUM OF SOLACE kl. 3 - 5.30 - 8 SAW 5 kl.10.20 500kr. 500 kr. AÐEINS ÞÚ MUNT ALDREI TRÚA ÞVÍ HVERNIG ÞETTA ENDAR! EKKERT GETUR UNDIRBÚIÐ ÞIG FYRIR HÖRKUSPENNANDI MYND ÚR SMIÐJU LUC BESSON SÝNINGARTÍMARNIR GILDA FRÁ 26.DESEMBER - TIL OG MEÐ 30. DESEMBER Bráðskemmtileg mynd þar sem heimur galdra og ævintýra lifnar við SELFOSS AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLUNNIÁLFABAKKA BOLTI m/ísl. tali kl. 4 - 6 L YES MAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 7 MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 4 L DAY THE EARTH STOOD kl. 8 - 10:20 12 BOLT m/ísl. tali kl. 4 - 6 L YES MAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 7 APPALOOSA kl. 10:20 16 ZACK AND MIRI MAKE A PORN kl. 8 16 MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 4 L BOLT m/ísl. tali kl. 4 - 6 L YES MEN kl. 6 - 8 - 10 7 MADAGASKAR 2 m/ísl. tali kl. 4 L CITY OF EMBER kl. 8 7 TWILIGHT kl. 10 16 Láttu YES MAN koma þér og þínum í jólaskap, segðu já við JÓLAGRÍNMYNDINNI Í ÁR JIM CARREY ER HREINT STÓRKOSTLEGUR Í SINNI BESTU GRÍNMYND SÍÐAN DUMB AND DUMBER ROCKNROLLA Síðasta sýning ársins kl. 00:30 (Ekkert tilboð) 16 YES MAN kl. 1:30 - 3:40 - 6 - 8D - 8:20 - 10:20D -10:40 7 YES MAN kl. 3:40 - 6 - 8:20 - 10:40 VIP BOLTI 3-D m/ísl. tali kl. 2(3D) - 4(3D) - 6(3D) L CITY OF EMBER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:40 7 TWILIGHT kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 2 - 4 L MADAGASCAR 2 m/Ensku tali kl. 6 L BODY OF LIES kl. 8:10 - 10:40 16 HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 3:40 L GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 2 L DIGITAL ROCKNROLLA (Ekkert tilboð) kl. 00:30 16 YES MAN DIGITAL kl. 2 - 4:10 - 6:20 - 8 - 8:30 - 10:20 -10:50 7 BOLT 3-D m/ísl. tali kl. 2(3D) - 4(3D) L BOLT 3-D m/Ensku tali kl. 6(3D) L CITY OF EMBER kl. 6 7 MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 2 - 4 L TWILIGHT kl. 8 12 W kl. 10:20 12 SÝND KL. 00:30 Í KRINGLUNNI OG ÁLFABAKKA FORSÝNING SÍÐASTA SÝNING ÁRSINS þriðjudags tilboð kr. 500 í SAMbíóin á ALLAR MYNDIR alla þriðjudagaÞRIÐJUDAGSTILBOÐ Í DAG! þ r i ð j u d a g s t i l b o ð í d a g „…besta Disney teiknimyndin í áraraðir”  - V.I.B fréttablaðið NÝTT Í BÍÓ - bara lúxus Sími: 553 2075 BOLT 3D - Íslenskt tal kl. 2(800 kr), 4 og 6 L INKHEART kl.2(500 kr), 4, 6, 8 og 10 10 SKOPPA OG SKRÍTLA kl. 2(700 kr) og 4 L TAKEN kl. 6, 8 og 10 16 FOUR CHRISTMASES kl. 8 og 10 7 LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR Tilboð í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu! GLEÐILEG JÓL  S.V – MBL. Bráðskemmtileg mynd þar sem heimur galdra og ævintýra lifnar við "Þrælgóð spennumynd" V.J.V – Topp5.is/FBL “…besta Disney-Teiknimyndin í áraraðir” V.I.B – Fréttablaðið 1/2 S.V – MBL Landsmenn eru nú margir hverjir orðnir þrútnir af rambi kringum jólahlaðborð, eigi veit ég hvort nokkur verður beinlínis þrútinn af því að upplifa leiksýningu, en Sumarljósið í Þjóðleikhúsinu var líkara hlaðborði af fólki og hug- dettum fremur en heildstæðu verki. Hvernig væri ef ríkisleikhús allra landsmanna endurheimti metnað sinn og færi að sýna tilbú- in leikverk? Leikrit sem annað- hvort eru skrifuð af leikritaskáld- um eða unnin af fagþekkingu upp úr þeim bókum eða hugmyndum sem verið er að fjalla um? Leik- sýning sú sem boðið var upp á annan í jólum er ekki tilbúin sem leikverk heldur frekar eins og einhvers konar flettiverk undir áhrifum bókar Jóns Kalmans Stef- ánssonar. Gamla tuggan „bókin er betri“ á hér alls ekki við vegna þess að við erum að tala um tvo mismun- andi miðla og grundvallarhug- myndir sem skarast lítið eða ekk- ert. Frumsýningargestir voru eftir- væntingarfullir, þeir sem sátu á fremsta bekk duttu nær inn í leik- myndina og hefðu getað horfið þar því nóg var nú af dóti og drasli sem hægt var að týnast í. Þorpið var kynnt heldur stirð- busalega, bara með kynningu eins og væri verið að hefja ljósmynd til lífs og svo hófst þessi enda- lausa upptalning á örlögum manna og kvenna í þessu þorpi. Það fór lítið fyrir því að hér væri þorp í sárum, í sárum sökum þess að allar konurnar höfðu misst atvinnuna þar sem aðalatvinnu- rekandinn, burgeis bæjarins, var nú farinn að leita að sjálfum sér og tilgangi lífsins með hjálp stjörnufræðinnar. Í upphafi leik- sýningar á þessi stjörnufræðing- ur í nokkru orðaskaki við eigin- konu sína og gegnum það samtal, sem var örstutt, fáum við að vita að hann hefur selt allt fyrir þess- ar skruddur, hún rífst smá, slær hann í hausinn með bók og struns- ar svo í burtu. Þar fór það ævi- verk og búið að vinna úr því. Kjaftakerlingin þusaði eitthvað og sú er fór í fjarnám gaf lítillega í skyn að hún væri að læra vegna þess að hún hefði ekki vinnu, en að öðru leyti var það mikla högg í samfélaginu þegar burðarstoðin Prjónastofan leggur upp laupana ekki neitt hugðarefni höfundar sýningarinnar. Ástríðan og sorgin yfir örlögum lögregluforingjans sem lifði fyrir það eitt að koma væskilslegum syni sínum til manns, og þar með lögreglu- manns, fékk ágæta kynningu en svo var þeirri sögu ekkert fylgt eftir. Það var nú kannski ekki hægt að fylgja henni neitt ógur- lega langt eftir því faðirinn hengdi sig innan þriggja mínútna og þar með hengu flestir íbúar þorpsins í snörum í leikmyndinni sem gaf svifhughrif líkt og þegar húsið tekst á loft án þess að fljúga. Tónlist Ragnhildar Gísladóttur var hugljúf og laumaðist inn undir atburðarásina af varfærni en þó nokkuð áræðin, sérstaklega var sorgarsöngur góður í fjarlægum kór þá er hinir hengdu birtust áhorfendum. Hljóðmynd hennar var einnig heillandi og mörgum brá þegar hvellurinn mikli undir lokin með ljósglæringum kom. Á heildina var grunnt á tilfinn- ingunum og stuttir kynningarbút- ar hvers og eins, sem gerði það að verkum að áhorfendur eiga erfitt með að samsama sig eða finna til samúðar með þessu fólki. Það var kannski hugsunin að hver áhorf- andi hefði sína fjarstýringu eða pinna til að benda út uppáhalds- persónu á þessum skjá og fylgja henni eftir. Tvær einmana sálir sem ná að lokum saman þótt dauð- inn skilji þau að eins og aðra í þessu verki eru þau Benedikt bóndi úr norðursveitinni og Þur- íður á heilsugæslunni. Það voru þau Björn Hlynur Haraldsson og Elma Lísa Gunn- arsdóttir sem fóru með þessi hlut- verk. Leikurinn þegar þau voru að kynnast og nálgast hvort annað var viðkvæmur og glettilegur og sú örlagasagnanna sem trúverð- ugust varð á sviðinu. Ásdís á Sámsstöðum, konan sem fór í fjar- nám, verður vitaskuld alveg miður sín þegar hún gerir sér grein fyrir því að eiginmaðurinn Kjartan er farinn að halda fram- hjá upp við snúrustaur í þorps- jaðrinum og eins og svo margar aðrar konur í þessari stöðu kennir hún sjálfri sér um. Elva Ósk fer með hlutverk hennar og gerir það vel þó svo að samspil þeirra hjón- anna hafi verið frekar ótrúverð- ugt því hún leikur á allt öðrum nótum. Ólafur Darri er hér meira í sprelli og grínstíl meðan Elva Ósk er stödd í hreinum natural- isma. Svona sveiflast leikstíllinn allan tímann eins og hver og einn hafi ákveðið heima hjá sér í hvaða isma ætti að birtast. Leikurinn var góður en heildin hvorki fugl né fiskur. Eggert Þorleifsson í nokkrum mismunandi hlutverk- um sprengdi hláturmúrana, eink- um var hann fyndinn sem hinn vandræðalegi fyrrum ráðherra sem ekkert man nema það að hann var eitt sinn ráðherra. Þetta var máske svanasöngur Framsóknar- flokksins, alla vega voru skírskot- anir í þá átt sem segja má að hafi verið einu skírskotanir í vorn samtíma. Ester Thalia Casey var fyndin sem veslings bóndakonan sem lenti á sjens og Vigdís Hrefna Pálsdóttir var trúverðug í hlut- verki Elísabetar, stúlkunnar sem vildi bjarga sér út úr vonleysinu. Ólafur Darri Ólafsson, sem lék Kjartan á Sámsstöðum, er farinn að berhátta sig í hverri einustu sýningu og er það að verða nokk- uð þreytandi leikstjórnarkækur. Edda Arnljótsdóttir berst harðri baráttu fyrir hlutverki Sigríðar sem einnig er nokkuð óskýrt þótt hún sé sterk og fyrirferðarmikil. Jörundur Ragnarsson í gervi Dav- íðs á lagernum var í mjög þakk- látu hlutverki og fór vel með það. Baldur Trausti Hreinsson í hlut- verki þess manns sem umbreytir lífi sínu var heldur pasturslítill og þessi deyfð á karakternum gerði hann fremur ótrúverðugan. Aðrir leikarar, þau Birna Hafstein, Frið- rik Friðriksson, Ragnheiður Stein- þórsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Stefán Hallur Stefánsson og Vign- ir Rafn Valþórsson skiluðu sínum hlutverkum með prýði. Og bæði leikmynd og lýsing voru þó nokk- uð spennandi, meðan leikritið sjálft var alls ekki tilbúið til að fara á svið. Elísabet Brekkan Jóla-sumarljós LEIKLIST Sumarljós byggt á skáldsögu Jóns Kalmans Stefánssonar Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Hilmar Jónsson. Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson Búningar: Þórunn María Jónsdóttir Lýsing: Lárus Björnsson Tónlist: Ragnhildur Gísladóttir Sviðshreyfingar: Sveinbjörg Þórhalls- dóttir ★★ Ekki tilbúið fyrir svið LEIKLIST Ólafur Darri Ólafsson rekur niður staura og hittir á sumardegi skokk- ara sem vill koma sér í form. MYND/EDDI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.