Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 4
4 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR 20–70% afsláttur RISA- ÚTSALA ELLING SEN Reykjavík, Fiskislóð 1 Opið mánudag–föstudag 10–18 laugardag 10-16 Akureyri, Tryggvabraut 1–3 Opið mánudag–föstudag 8–18 laugardag 10-16 BANDARÍKIN, AP Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, segir að stríðskostnaður Bandaríkjanna í Írak, Afganistan og víðar muni nema nærri 136 milljörðum dala fyrir fjárhagsárið 2009, sem hófst í október, ef haldið verður áfram á sömu braut og til þessa. Gates, sem verður varnar- málaráðherra áfram eftir að Barack Obama tekur við af George W. Bush, sagði leiðtogum Bandaríkjaþings í áramótabréfi til þeirra að ráðuneytið þyrfti 70 milljarða dala til viðbótar þeim 66 milljörð- um, sem þegar hefur fengist samþykki fyrir. - gb Robert Gates: Stríðskostnaður mun tvöfaldast ROBERT GATES VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysisbæt- ur hækkuðu frá áramótum um 13.500 krónur miðað við bætur eins og þær voru á árinu 2008. Grunnatvinnuleysisbætur miðað við fullan bótarétt eru tæpar 150 þúsund krónur á mánuði. Greiðslur á atvinnuleysisdag verða 6.900 krónur og greiðslur vegna barna 18 ára og yngri verða 276 krónur á dag. Hámarksgreiðslur vegna tekjutengdra atvinnuleysisbóta verða rúmar 242 þúsund krónur á mánuði. Frítekjumark verður óbreytt, tæpar 54 þúsund á mánuði. - ghs Atvinnuleysisbætur: Hækka um 13.500 krónur STJÓRNSÝSLA Sendiherrarnir Eiður Guðnason og Helgi Ágústsson láta af störfum í utanríkisþjónustunni nú í upphafi árs. Við starfi Eiðs sem aðalræðismaður í Þórshöfn tekur Albert Jónsson, sendiherra í Washington. Við starfi Helga sem prótókollstjóra tekur Guðmundur Eiríksson, sendiherra í Pretoríu í Suður-Afríku. Hjálmar W. Hannesson, fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, verður sendiherra í Washington, Gunnar Pálsson, sendiherra í Nýju-Delí, tekur við af Hjálmari og Finnbogi Rútur Arnarson sendifulltrúi mun veita sendiráðinu í Nýju-Delí forstöðu tímabundið. - bþs Hrókerað í utanríkisþjónustunni: Eiður og Helgi láta af störfum HEILBRIGÐISMÁL Fulltrúar Sam- fylkingar og Vinstri grænna í umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur hafa óskað eftir upplýsingum um innihald úða sem lögreglan notar „gegn borgurum þar sem mótmæli eru höfð í frammi“. Spurt er um hvort til séu leiðbeiningar um hvernig bregðast skuli við áhrifum úðans, verklagsreglur um viðbrögð við alvarlegum tilvikum og hvort nauðsynlegt sé að koma á framfæri ráðgjöf um viðbrögð. Þá er vísað í erlendar fréttir um að notkun úðans hafi leitt til alvarlegra skaða „og í einhverj- um tilvikum dauðsfalla“. - kóp Nefndarmenn hjá Reykjavík: Spyrja um inni- hald piparúða Minningarhlaup að slysstað Frískir Flóamenn ætla að hlaupa minningarhlaup í dag til að heiðra minningu Guðjóns Ægis Sigurjóns- sonar hlaupara sem lést í umferð- arslysi nýlega. Hlaupið verður frá Sundhöll Selfoss og verður lagt af stað klukkan 18.15. SELFOSS VIÐSKIPTI Verði framvirkir gjald- eyrissamningar sjávarútvegs- fyrirtækja eða annarra við gömlu bankana færðar í nýju bankana á öðru en skráðu gengi er það skýrt brot á viljayfirlýsingu Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, segir Gunnar Tómasson hagfræð- ingur. Í 22. lið viljayfirlýsingar íslenskra stjórnvalda til Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (AGS) skuld- binda stjórnvöld sig til þess að koma ekki á laggirnar tvö- faldri gengis- skráningu hér á landi. Einar K. Guð- finnsson sjáv- arútvegsráð- herra sagði í Fréttablaðinu á þriðjudag að rök séu fyrir því að nota ekki það gengi krónunnar sem gildi í dag þegar þessar skuldir sjávar- útvegsfyrirtækja verði færðar í nýju bankana. Þá hafa forsvars- menn lífeyrissjóða lagt til að svipaðar aðferðir verði notaðar varðandi framvirka gjaldeyris- samninga þeirra. „Það er ekki nógu gott í samfé- lagi sem komið er á heljarþröm fjárhagslega vegna óreiðu í fjár- málum að ætla sér að byrja end- urhæfingarstarfið með því að hleypa öllum að jötunni og halda óreiðunni áfram,“ segir Gunnar, sem starfaði hjá AGS í Washing- ton í aldarfjórðung. Gunnar segir ákvæði um bann við tvöfaldri gengisskráningu alltaf eitt af skilyrðum fyrir aðstoð sjóðsins. Mörg dæmi eru til um ríki sem fengið hafa aðstoð sjóðsins og reynt hafa að nota líkar aðferðir og sjávarútvegs- ráðherra ræddi, segir Gunnar. Hugmyndin sé að koma skuld- bindingum frá fyrirtækjum eða lífeyrissjóðum yfir á ríkissjóð. Niðurstaða sjóðsins sé alltaf sú sama, hvaða aðferð sem þau beita. Sjóðurinn frysti lán til við- komandi lands þar til slíkt hafi verið látið ganga til baka. „Starfsreglur verða að vera klárar. Um leið og einn aðili fær undanþágu koma aðrir í kjölfar- ið. Þar með er búið að brjóta niður það sem stefnt var að, sem er að koma reglu á kerfið,“ segir Gunnar. Arnór Sighvatsson, aðalhag- fræðingur Seðlabanka Íslands, vildi í gær ekki segja til um hvort bankinn hafi sama skilning á yfir- lýsingu íslenskra stjórnvalda. Hann vísaði á AGS um túlkun á ákvæðinu. Ekki fengust svör hjá sjóðnum um málið þegar eftir því var leitað í gær. brjann@frettabladid.is Sérkjör á gjaldeyri brot á samkomulagi Verði skuldir sjávarútvegs eða annarra færðar í nýju bankana á öðru en skráðu gengi mun AGS frysta lán til landsins segir sérfræðingur sem starfaði hjá sjóðn- um. Ómögulegt sé að byrja endurhæfingu eftir óreiðu með meiri óreiðu. SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsráðherra segir koma til greina að framvirkir gjaldeyris- samningar sjávarútvegsfyrirtækja verði færðir í nýju bankana á öðru en skráðu gengi. Það brýtur í bága við viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda vegna aðstoðar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VIÐSKIPTI „Neyðarlögin heimila okkur ekki að sækja rétt okkar gagnvart skilanefnd Kaupþings. En hins vegar munum við verja þennan rétt ef nefndin fellst ekki á kröfur okkar um þennan skulda- jöfnuð,“ segir Hjörleifur Jakobs- son, forstjóri Kjalars. Eftir því sem næst verður kom- ist hyggst félagið hætta að greiða af skuldum sínum við Kaupþing og bíða þess að vera stefnt fyrir dómstóla. Kjalar og skilanefndin hafa frá falli Kaupþings deilt um gjaldeyr- issamninga sem eru nú í höndum skilanefndarinnar. Kjalar skuldar bankanum jafnframt stórfé. Skuldirnar munu vera komnar til vegna ýmissa fjárfestinga en Kjalar átti tíu prósenta hlut í Kaupþingi. Þá á félagið verulega eignarhluti í Samskipum, Alfesca, Granda og fleiri félögum. Ólafur Ólafsson athafnamaður ræður öllu sem gerist í Kjalari en hann á 94 prósent hlutafjár í félag- inu. Kjalar vill jafna skuldir á móti gjaldeyrissamningunum en jafn- framt að þeir verði gerðir upp miðað við markaðsgengi þeirra á gjalddaga, 14. október. Þá kostaði evran 305 krónur hjá evrópska seðlabankanum og Kjalarsmenn vilja miða við það. „Enda var gjaldeyrismarkaður hér á landi þá handstýrður og óvirkur,“ segir Hjörleifur. Haft var eftir Kristni Hall- grímssyni, lögmanni og stjórnar- manni í Kjalari í Morgunblaðinu í gær, að krafa félagsins sé miklum mun hærri en sem nemur skuld- unum. Gjaldeyrissamningarnir voru gerðir snemma í fyrra. Þá lét Kjal- ar 650 milljónir evra á því gengi sem þá var, og hugðist fá evrurnar aftur um miðjan október, en á sama gengi og þær voru keyptar á. Gengi krónunnar hafði þá lækk- að verulega í millitíðinni og var með allra lægsta móti á megin- landi Evrópu. Kjalarsmenn telja að þeir hefðu auðveldlega getað selt útlendingum evrurnar hefðu þær verið afhentar. Skilanefndin og fulltrúar Kjal- ars munu hafa rætt saman alveg frá falli Kaupþings en án sam- komulags. Ekki náðist í Steinar Guðgeirs- son, formann skilanefndar Kaup- þings. - ikh Félag Ólafs Ólafssonar vill að gjaldeyrissamingar við gamla Kaupþing verði gerðir upp á móti skuldum: Hætta að borga og bíða eftir málsókn GUNNAR TÓMASSON VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 9° 2° -1° -4° 4° -1° -4° -2° 5° 4° 19° 5° 3° 21° 1° 0° 12° 2° Á MORGUN 5-10 m/s LAUGARDAGUR 8-18 m/s, hvassast með ströndum NV- og SA-til 6 7 5 4 2 1 4 6 5 8 8 8 7 3 4 5 4 3 6 5 8 2 66 3 1 0 5 5 4 31 KÓLNAR UM HELGINA Á laugardag verða tvær lægðir að störf- um. Það þýðir að víða verður úrkomusamt sem og hitt að búast má við hvassviðri vestast á Vestfjörð- um og við suður- og suðaustur-ströndina. Lægðirnar draga smám saman inn á landið norðanátt með kólnandi veðri. Fyrst á Vestfjörðum en að- faranótt sunnudagsins verður víðast komin norðanátt með frosti. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur ÓLAFUR ÓLAFSSON GENGIÐ 07.01.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 216,2786 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 122,50 123,08 182,39 183,27 166,69 167,63 22,362 22,492 17,652 17,756 15,667 15,759 1,3128 1,3204 186,31 187,43 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.