Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 10
10 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR ÚKRAÍNA, AP Rússar hafa skrúfað fyrir allt gas til þeirra Evrópu- ríkja sem fá gas sitt frá Rúss- landi með leiðslum sem liggja um Úkraínu. Evrópusambandið sakar bæði Rússa og Úkraínu- menn um að halda neytendum í gíslingu vegna deilu sinnar um gasverðið. Um áttatíu prósent af öllu gasi, sem selt er frá Rússlandi til Evr- ópuríkja fer um Úkraínu, en afgangurinn fer í gegnum smærri gasleiðslur um Hvíta-Rússland og Tyrkland. Ríkin eru misjafnlega vel undir þetta búin, sum þeirra eiga gas- birgðir til langs tíma en önnur ekki. Í Búlgaríu, Rúmeníu og víðar liggur við neyðarástandi og víða brá fólk á það ráð að útvega sér aðra eldsneytisgjafa, einkum við eða kol. Tímasetningin er slæm, bæði vegna vetrarhörkunnar sem nú herjar á austurhluta álfunnar og vegna jólahalds á Balkanskaga, þar sem jóladagur var í gær sam- kvæmt tímatali rétttrúnaðar- kirkjunnar. Rússar tapa töluverðum tekj- um af gassölu til Evrópu vegna lokunarinnar. Deilan stafar af því að Rússar vilja að Úkraínumenn borgi sama verð og Evrópuríki fyrir gasið, en Úkraínumenn krefjast þess í staðinn að fá hærra greiðslur fyrir að flytja gasið til Evrópuríkja. - gb Á annan tug Evrópuríkja í vandræðum með húshitun um hávetur: Rússar skrúfuðu fyrir gasið STJÓRNMÁL Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur afráðið að gefa ekki kost á sér í embætti formanns flokksins. Nýr formað- ur verður kjörinn á flokksþingi Framsóknar um aðra helgi. „Ég velti þessu fyrir mér fram að áramótum og tók svo ákvörðun í rólegheitum,“ segir Magnús sem vill ekki upplýsa hvað réði ákvörðuninni. Hann hefur ákveðið hvaða frambjóðanda hann styður en vill ekki gefa upp hver það er. - bþs Formannsstaðan í Framsókn: Magnús gefur ekki kost á sér MAGNÚS STEFÁNSSON PARÍS Eiffel-turninum var lokað í gær vegna mikillar ísingar. PARÍS, AP Vetur konungur minnti rækilega á sig á meginlandi Evrópu í gær. Frost var í lofti og meðal annars þurfti að loka Eiffel-turninum, einu helsta aðdráttarafli ferðamanna í París, vegna snjókomu og ísingar. Allt að tíu sentimetra djúpur snjór mældist víða í Frakklandi. Í Þýskalandi mældist snjórinn mest um sextán sentimetra djúpur. Aflýsa þurfti mörgum flug- ferðum frá flugvöllum í Frakk- landi og Þýskalandi. Veðurstofa í Þýskalandi spáir því að hitinn haldist undir frostmarki næstu daga. - kg Kuldaboli gerir vart við sig á meginlandinu: Eiffel-turninum lokað Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s. Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins. Tækniþróunarsjóður kynnir nýjar áherslur í starfsemi sinni og sprotafyrirtæki kynna nýsköpun á sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. og nýsköpun Vaxtarsprotar Kynning í Ráðhúsi Reykjavíkur, 9. og 10. janúar. Dagskrá föstudag 9. janúar 14:00 - 17:00 14:00 Ávarp iðnaðarráðherra Össurar Skarphéðinssonar 14:15 Nokkur verkefni styrkt af Tækniþróunarsjóði, kynning og sýning Dagskrá laugardag 10. janúar 12:00 - 17:00 12:00 Sýning sprotafyrirtækja opnuð 13:00 Brúarsmíði sjóða og sprota, Tækniþróunarsjóður, Nýsköpunarsjóður, Impra og Innovit Þátttakendur Marorka • Mentor • Mentis Cura • ORF • Kine • Stjörnu-Oddi • Handpoint • Eff2 Clara • TellmeTwin • Matís • Nýsköpunarmiðstöð Íslands Almenningur er hvattur til að kynna sér starfsemi sprotafyrirtækja og opinberan stuðning við nýsköpun. JÓLAHALD Í RÚSSLANDI Í Rússlandi var jóladagur haldinn hátíðlegur í gær, 7. janúar, samkvæmt tímatali rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Á myndinni má sjá Dmitrí Medvedev forseta og Svetlönu eiginkonu hans í jólamessu í Frelsarakirkjunni í Moskvu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ELDIVIÐUR SAGAÐUR Í Bosníu hafði þessi verkamaður nóg að gera við að saga niður eldivið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL „Ávinningurinn er bæði vinnusparnaður hjá lögregl- unni og aukin skilvirkni við rann- sóknir barnaklámsmála,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, um nýjan íslenskan hugbúnað í baráttunni gegn barnaklámi, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun taka í notkun á næstu mánuðum. Björn Bjarna- son dómsmála- ráðherra, lög- reglustjórinn á höfuðborgar- svæðinu og fyr- irtækið Eff2 Technologies hafa undirritað tímabundinn verk samn ing um þróun, uppsetn- ingu og afnot af ofangreindu hug- búnaðarkerfi fyrir lögregluna. Búnaðurinn gerir lögreglu kleift að bera kennsl á barnaklám og annað ólögmætt efni í tölvum sem hafa verið haldlagðar. Með þessu samstarfi lögreglunnar og Eff2 Technologies verður Ísland fyrsta landið í heiminum sem notar slíka lausn í baráttunni gegn barna- klámi og öðru ólögmætu efni. Tæknin sem gerir þetta mögu- legt ber heitið Videntifier Forens- ic og verður fullþróuð í nánu sam- starfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Stefán segir þessa tækni bjóða upp á aukna möguleika til að rann- saka uppruna og dreifingu barna- kláms og að ná þannig frekar til þeirra sem framleiða þetta efni og dreifa í stórum stíl. Slíkt yrði þá unnið í náinni samvinnu við lögregluyfirvöld í öðrum löndum. Eff2 Technologies er sprotafyr- irtæki úr Háskólanum í Reykja- vík, stofnað síðla árs 2007. Það hefur unnið til verðlauna fyrir Videntifier-verkefnið bæði hér heima og á erlendri grundu. „Þetta hófst í lok árs 2003 þegar við Herwig Lejsek hófum að vinna saman að rannsóknarverkefni við Háskólann í Reykjavík,“ segir Friðrik Heiðar Ásmundsson, einn fjórmenninganna sem standa að hugbúnaðargerðinni. „Afurð þessa verkefnis var ný gagna- grind sem við höfum fengið einka- leyfi á og er grunnstoð Videntifi- er Forensic í dag.“ Friðrik segir stefnt að því að afhenda lögregl- unni búnaðinn í næsta mánuði. Kerfið verði að fullu tekið í notk- un næsta sumar. Videntifier getur munað hvern- ig allt að hundrað þúsund klukku- tímar af vídeóefni líta út, og leitað í vídeósöfnum á allt að hundrað- földum rauntíma. Videntifier ber kennsl á vídeóefni jafnvel þótt því hafi verið breytt umtalsvert til dæmis með þjöppun, textun, skekktum hlutföllum, snúningi eða speglun, svo dæmi sé tekið. jss@frettabladid.is Íslenskur hug- búnaður gegn barnaklámi Íslenskt hugbúnaðarkerfi verður tekið í notkun hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári. Það gerir lögreglu kleift að bera kennsl á barnaklám og ólögmætt efni í tölvum sem hafa verið haldlagðar. HUGBÚNAÐARMENN Forsvarsmenn Eff2 Technologies, Kristleifur Daðason, Baldur Jóhannesson, Friðrik Heiðar Ásmundsson og Herwig Lejsek vinna við búnaðinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun nota til að berjast gegn barnaklámi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STEFÁN EIRÍKSSON STJÓRNMÁL Stjórn Kvennahreyf- ingar Samfylkingarinnar fordæmir innrás Ísraelshers á Gazasvæðið. Í tilkynningu frá stjórninni segir meðal annars að loftárásir og innrás hersins bitni helst á íbúum svæðisins sem þegar búi við kröpp kjör. Ekkert réttlæti ofbeldi gegn saklausum borgur- um; konum, börnum og öldruð- um. Þá tekur stjórn kvenna- hreyfingarinnar undir með Friðarráði ísraelskra og palest- ínskra kvenna og krefst þess að árásum Ísraelshers á Gaza verði hætt án tafar. - ovd Kvennahreyfing Samfylkingar: Fordæma inn- rás Ísraelshers
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.