Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 8
8 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR 20% AFSLÁT TUR Sá er reynt hefur vörur þessar, notar ekki aðrar af krakka pollagöllum í janúar FREYR FREYJA Pollagalli á krakkana Pollagalli á krakkana Mjög sterkur vind- og vatnsheldur pollagalli. Jakkinn er með endurskins merkjum á ermum og teygju í hettu og ermum. Hægt er að smella hettunni af. Buxurnar eru með endurskini á skálmum og teygjur fyrir skó eða stígvél. Léttur vind- og vatnsheldur pollagalli. Jakkinn er með endurskins merkjum á ermum og teygju í hettu og ermum. Hægt er að smella hettunni af. Buxurnar eru með endurskini á skálmum og teygjur fyrir skó eða stígvél. 1 Hvað létust margir í heima- og frítímaslysum í fyrra? 2 Hvað er langt síðan hljóm- sveitin Sigur Rós var stofnuð? 3 Hvenær hefst keppnin um að taka þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46 BANDARÍKIN, AP Andstaðan við setu Rolands Burris í öldunga- deild Bandaríkjaþings hefur eitthvað minnkað, bæði meðal demókrata og repúblikana á þinginu. Demókratar á þingi höfðu heit- ið því að fallast aldrei á þingsetu neins, sem Rod Blagojevich, hinn umdeildi ríkisstjóri í Illinois, myndi skipa sem arftaka Baracks Obama í öldungadeildinni. Burris hugðist mæta til þings, þegar það kom saman í fyrsta sinn á þriðjudag, en var neitað um inngöngu. Málið virðist hins vegar flóknara en svo, að demó- kratar geti meinað honum þing- setu öllu lengur. - gb Roland Burris í öldungadeildina: Andstaða þingsins hefur minnkað GAZA, AP Ísraelar sögðust í gær fagna vopnahléstillögum Frakka og Egypta, en héldu engu að síður áfram hernaði sínum á þéttbýlu Gazasvæðinu eftir stutt hlé. Ísraelar krefjast trygginga fyrir því að Hamas-samtökin bæði hætti að skjóta sprengiflaugum á ísra- elskar íbúðabyggðir og noti ekki vopnahlé til þess að afla sér víg- búnaðar á ný, en Hamas-samtökin krefjast þess á hinn bóginn að Ísra- elar opni landamæri Gazasvæðis- ins. Þriggja klukkustunda hlé á árás- um Ísraela í gær var notað til þess að koma matvælum og eldsneyti til íbúa á Gazasvæðinu, sem búa við algera neyð. Einnig var hléið notað til að ná í lík á svæðum, sem þótti of hættulegt meðan bardagar geisuðu, auk þess sem særðu fólki var hraðað að landamærum Egyptalands þar sem hægt var að flytja það á sjúkrahús. Strax að hléinu loknu hófu Ísra- elar loftárásir á ný, og Hamas-liðar byrjuðu sömuleiðis að skjóta heimagerðum sprengiflaugum sínum yfir landamærin þar sem hending ein ræður hvort þær valda tjóni. Blóðbaðið á Gaza hefur nú staðið yfir í þrettán daga stanslaust, ef undan er skilið þetta stutta hlé í gær. Loftárásir og landhernaður Ísraela hefur kostað nærri 700 manns lífið, en hátt í helmingur þeirra eru óbreyttir borgarar, að því er bæði Palestínumenn og Sam- einuðu þjóðirnar fullyrða. Að minnsta kosti 130 hinna drepnu eru börn. Þetta eru mannskæðustu árásir Ísraela á Palestínumenn síðan í sex daga orrustunni árið 1967, þegar Ísraelar hertóku bæði Gazasvæðið og Vesturbakkann. Árásirnar hafa vakið hörð við- brögð víðast hvar í heiminum. Hamas-samtökin sögðust í gær fagna því að Hugo Chavez, forseti í Venesúela, hafi rekið sendiherra Ísraels úr landi, en Ísrael bræddi með sér hvort svara eigi í sömu mynt og reka sendiherra Venesú- ela úr landi. Barack Obama, sem innan hálfs mánaðar tekur við forsetaembætti í Bandaríkjunum, hefur verið gagnrýndur fyrir þögn sína um árásirnar á Gaza. Hann gaf þó ótví- rætt til kynna í gær að hann sé á öndverðum meiði við George W. Bush, fráfarandi forseta, þegar hann ítrekaði að ástæða þess að hann vill ekki tjá sig sé sú, að bandarísk stjórnvöld geti ekki haft tvenns konar afstöðu í málinu. Þess vegna vilji hann láta Bush eftir að tala um þetta þangað til forseta- skiptin verða. gudsteinn@frettabladid.is Stutt vopna- hlé notað til hjálparstarfs Ísraelar hafa drepið að minnsta kosti 130 börn með árásum sínum á Gaza, sem hafa staðið í þrettán daga. Vopnahléstillaga frá Frökkum og Egyptum vekur veikar vonir. Stutt hlé gert á árásunum í gær. FJÓRTÁN MANNS JARÐSUNGNIR Fjórtán manns voru grafnir í Jabaliya-flóttamanna- búðunum á Gazasvæðinu í gær. Allir fórust þeir þegar Ísraelar gerðu á þriðjudag árás á skóla, sem Sameinuðu þjóðirnar reka, en þangað hafði fjöldi fólks leitað skjóls undan árásunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐSKIPTI Reykjavíkurborg hefur gert afsláttarsamning við Jóhann Ólafsson og Co., umboðsaðila OSRAM á Íslandi, um kaup á ljósaperum næstu tvö árin. Borgin gekk til samninga við fyrirtækið að undanfenginni verðkönnun. Samkvæmt upplýsingum frá Jóhanni Ólafssyni og Co. nota fyrirtæki og stofnanir Reykjavík- urborgar um 20 þúsund ljósaper- ur á ári. Nema viðskipti borgar- innar við fyrirtækið um tíu milljónum króna á ári. - bþs Samið um ljósaperukaup: Reykjavík notar tuttugu þúsund ljósaperur á ári LÖGREGLUMÁL Skynsamlegt var að móta þá stefnu að efla sérsveit Rík- islögreglustjóra í mars 2004, segir Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra. Hann segir sérstakan sak- sóknara í Baugsmálinu hafa eflt saksókn efnahagsbrota og nýr sér- stakur saksóknari vegna banka- hrunsins geri það einnig. Björn segir í tölvupósti til Frétta- blaðsins að unnið hafi verið að upp- byggingu sérsveitarinnar í sam- ræmi við það sem samþykkt hafi verið í ríkisstjórn. Uppbyggingin hafi skilað því sem stefnt var að. Fram kom í Fréttablaðinu í gær að rekstrarfé sérsveitarinnar hafi aukist um 45 prósent milli áranna 2005 og 2007. Rekstrarfé efnahags- brotadeildar dróst á sama tímabili saman um tæplega níu prósent. Björn segir samanburðinn ekki gefa heildarmyndina, þar sem til viðbótar við það sem þar komi fram hafi settur saksóknari í Baugsmálinu og samstarfsmenn hans starfað að saksókn efnahags- brota. Til þess hafi verið aflað fjár af fjáraukalögum. Spurður hvort efla þurfi efna- hagsbrotadeildina segir Björn að nú sé unnið að því að koma á lagg- irnar embætti sérstaks saksóknara sem rannsaka á bankahrunið. Gert sé ráð fyrir 50 milljóna króna fjár- veitingu til embættisins. „Ég tel, að til framtíðar verði tekið mið af störfum hans og umsvifum við skipulag efnahags- brotarannsókna,“ segir Björn. - bj Dómsmálaráðherra segir sérstaka saksóknara efla saksókn efnahagsbrota: Uppbygging sérsveitar skilað sínu BAUGSMÁLIÐ Sérstakur saksóknari í Baugsmálinu efldi saksókn efnahags- brota, segir Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ROLAND BURRIS Rod Blagojevic, ríkisstjóri í Illinois, er sakaður um að hafa reynt að selja þingsæti Obamas hæstbjóðanda. FERÐAÞJÓNUSTA Unnið er að því innan ferðaþjónustunnar að fjölga fuglaskoðurum meðal ferðamanna sem koma hingað til lands. Í tilefni af því boðar Útflutningsráð til fundar á föstudaginn. Þar mun meðal annars ráðgjaf- inn Connie Lovel, sem hefur tekið þátt í uppbyggingu svipaðra verkefna á Falklandseyjum, kynna niðurstöður sínar og tillögur. Hún heimsótti fjölda staða hér á landi á síðasta ári. Fundurinn stendur frá klukkan 9 til 16.30. Hann er öllum opinn og ókeypis inn. - hhs Útflutningsráð boðar til fundar: Vilja auka hlut fuglaskoðunar VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.