Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 2
2 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR HEILSA „Í fyrstu hugsaði ég bara um að verða grönn og fyrstu vikurnar hrundu af mér kílóin,“ segir Eva Margrét Einarsdóttir, sem hefur grennst um 30 kíló á sex árum eftir að hún fór að stunda hlaup. Margrét hleypur nú allt að 90 kílómetra á viku og varð Íslandsmeistari kvenna í Laugavegs- hlaupinu 2008. „Það er ekki bara andleg og líkamleg líðan sem hefur gjörbreyst ... heldur er félagslega hliðin líka kostur. Sigurvegaratilfinningin fleytir manni svo áfram á flestum stöðum í lífinu,“ segir hún. - þlg / sjá Heilsa og lífsstíll Léttist um 30 kíló á sex árum: Hljóp í sig lífs- þrótt og gleði EVA MARGRÉT EINARSDÓTTIR Er mataræðið óreglulegt? LGG+ er fyrirbyggjandi vörn! Skyndibitafæði, sætindi, óreglulegar máltíðir – allt þetta dregur úr innri styrk, veldur þróttleysi, kemur meltingunni úr lagi og stuðlar að vanlíðan. Regluleg neysla LGG+ vinnur gegn þessum áhrifum og flýtir fyrir því að jafnvægi náist á ný. Dagleg neysla þess tryggir fulla virkni. H V Í T A H Ú S IÐ / S ÍA LÖGREGLUMÁL Kristján Svein- björnsson sem nýlega sagði af sér embætti forseta bæjarstjórnar á Álftanesi var áður yfirheyrður af lögreglu vegna nafnlausra ummæla á vef Álftanesbæjar. Miklar deilur hafa staðið um Miðskóga 8 sem er sjávarlóð fram- an við einbýlishús Kristjáns Svein- björnssonar. Eigendur lóðarinnar vilja byggja þar íbúðarhús en meirihluti Á-listans í bæjarstjórn stendur gegn því. Hinn 20. nóvember síðastliðinn birtist á umræðuvef Álftanesbæj- ar nafnlaus færsla með grófum ásökunum á hendur Hlédísi Sveins- dóttur, sem er einn af eigendum Miðskóga 8. Daginn áður var reynt að setja sams konar færslu inn á bloggsíðu eigenda lóðarinnar. Eftir að skrifin birtust á vef Álft- nesbæjar sagði Hlédís á bloggsíðu sinni að þau væru mesta níð og lygar sem hún hefði séð ritað um nokkurn mann. „Þessi skrif voru birt á ábyrgð sveitastjórnar Álfta- ness og vefstjóra og var þessi óhróður á vefsíðunni allt þar til lögmaður minn sendi sveitarstjóra og vefstjóra harðort bréf um að hér væru á ferðinni meiðyrði af verstu sort,“ skrifaði Hlédís sem kærði málið til lögreglu. Vegna málsins var umræðuvef Álftanesbæjar lokað. „Þeir sem kunna að hafa orðið fyrir aðdrótt- unum vegna skrifa einstaklinga á umræðuvef sveitarfélagsins eru beðnir velvirðingar á því,“ sagði vefstjórinn í tilkynningu. Rannsókn lögreglunnar leiddi til tölvu á Grand Hóteli á Reykjavík. Myndir úr eftirlitskerfi sýndu karlmann ganga inn í tölvuher- bergi hótelsins rétt áður en fyrr- greindar færslur voru settar inn. Myndirnar voru bornar undir eig- endur Miðskóga 8 sem töldu ljóst að maðurinn væri Kristján Svein- björnsson og var hann kallaður til skýrslutöku. Kristján staðfestir að lögreglan hafi haft samband við hann og spurt hann út í málið. „Síðan veit ég ekki meira. Ég veit ekki til þess að þetta hafi verið tengt mér á nokkurn annan máta,“ segir Kristj- án sem vill hvorki svara því hvort hann skrifaði ummælin né heldur hvort hann hafi verið á hótelinu þegar skeytið var sent og vísar á lögmann sinn. Stuttu eftir þetta, eða um miðjan desember, sagði Kristján af sér embætti forseta bæjarstjórnar og sem bæjarfulltrúi á Álftanesi vegna „persónulegra mála“ að því er sagði í yfirlýsingu. „Nú er til vinnslu meiðyrðamál gagnvart gerandanum og stjórn- sýslukæra á sveitarfélagið sem er ábyrgt fyrir birtingu níðsins,“ segir Hlédís Sveinsdóttir. gar@frettabladid.is kolbeinn@frettabladid.is Forseti bæjarstjórnar hætti eftir rógskæru Myndir úr öryggiskerfi virðast sýna þáverandi forseta bæjarstjórnar Álftaness við tölvuherbergi Grand Hótels þaðan sem rógur um lóðareiganda var sendur á umræðuvef bæjarins. Forsetinn sagði af sér eftir yfirheyrslu hjá lögreglunni. Davíð, spilið þið sem sagt ekkert þungarokk? „Nei, við sláum fyrst og fremst á létta strengi.“ Davíð Smári Harðarson, einkaþjálfari og tónlistarmaður, leitar að gítarleikara í hljómsveit sína en „engar bollur“ koma til greina. BANDARÍKIN, AP Fimm forsetar Bandaríkjanna hittust í Hvíta húsinu í Washington í gær. George W. Bush, núverandi forseti, bauð arftaka sínum, Barack Obama, ásamt föður sínum, George H. W. Bush, Bill Clinton og Jimmy Carter í Hvíta húsið, tæpum tveimur vikum áður en forsetaskipti verða. Fyrir fundinn sagðist Bush yngri reikna með því að Obama myndi spyrja þá alla spurninga, en „ef ekki, þá skiptumst við bara á stríðssögum“. Síðast var boðið til fundar af þessu tagi í Hvíta húsinu árið 1981. Hugmyndin um að endur- taka leikinn kviknaði á fundi þeirra Bush og Obama nýverið. - gb Óvenjuleg samkoma: Fimm forsetar í Hvíta húsinu FIMM Í EINU Bush eldri, Obama, Bush yngri, Clinton og Carter saman í Hvíta húsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Skömmu fyrir áramót var um 30 rafmagnsnudd- stólum og nokkrum dýnum stolið við innbrot í fyrirtæki í Hafnar- firði. Stólarnir eru af gerðinni Luxory Royal í svörtu leðri, Gary- hvíldarstólar alkæddir svörtu leðri og með rafstýringu, Roman dökkbrúnir leðurhvíldarstólar og Rinoa-tungusófar, svartir og dökkbrúnir, leðurklæddir með hvíldarstól í enda. Dýnurnar eru King Elegance og Queen Com- fort air. Þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregl- una á höfðuborgarsvæðinu í síma 444-1100. - jss Lögregla leitar aðstoðar: Lýst eftir 30 nuddstólum HEILBRIGÐISMÁL Gunnar K. Gunn- arsson, forstjóri Heilbrigðisstofn- unar Vestmannaeyja, segir að þær breytingar á starfsemi í heilbrigðis- þjónustunni sem heilbrigðisráð- herra hefur kynnt geti ekki átt við Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Til stendur að hún verði sameinuð Heilbrigðisstofnun Suðurlands. „Rannsóknarstofa Selfoss og Vestmannaeyja geta aldrei unnið saman, það eru ekki samgöngur til þess,“ segir hann. „Og með það að vaktsvæði heilsugæslanna verði sameinuð; ég get ekki séð að menn taki vakt í Vestmannaeyjum og á Selfossi til skiptis. Hvernig eigum við að sameina sjúkraflutninga í Vestmannaeyjum og uppi á landi? Það er ljóst að margt af þessum breytingum sem eiga við uppi á landi geta ekki átt við hjá okkur.“ - jse Forstjóri heilbrigðisstofnunar: Undrandi á heil- brigðisráðherra HEILBRIGÐISMÁL „Hafnfirðingar hafa áður þurft að slá skjaldborg um spítalann og ég er nokkuð viss um að þeir muni ekki sitja undir þessu,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, um fyrirhugaðar breytingar sem á að gera á St. Jósefsspítala-Sólvangi. Hann er afar óánægður með að bæjaryfirvöld skyldu ekki hafa verið höfð með í ráðum varðandi breytingarnar. „Við höfum farið fram á það að fá fund með heil- brigðisráðherra þar sem rætt verður um framtíð spítalans og önnur mál sem þessu tengjast.“ Hann segir að Hafnfirðingar hafi engin haldbær rök fengið fyrir breytingunum. Almar Grímsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, tekur í sama streng. „Ég hef talað við heilbrigðisráðherra og reynt að fá þessari ákvörðun hnikað,“ segir hann. Hann segist ekki hafa heyrt nokkur fagleg rök fyrir breytingunum og því var hann spurður hvort hann héldi að pólit- ískar ástæður byggju þar að baki. „Sá grunur læðist að fólki og ég er þar ekki undanþeginn,“ svarar hann. Spurður hvort afstaða hans sé ekki óheppileg þar sem hann sé fulltrúi Sjálfstæðisflokks líkt og heilbrigðisráðherrann. „Nei, það er ekki óheppilegt að fara eftir eigin sannfæringu og ég held að þessar breytingar séu ekki í anda þess sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir.“ - jse Hafnfirðingar segjast engin fagleg rök hafa fengið fyrir breytingunum: Sætta sig ekki við breytingarnar LÚÐVÍK GEIRSSON Bæjarstjórn Hafn- arfjarðar hefur farið fram á fund með heilbrigðisráðherra en fagleg rök fyrir breytingum á starfsemi St. Jósefsspítala- Sólvangi hefur hún ekki fengið að sögn bæjarstjóra. KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON HLÉDÍS SVEINSDÓTTIR HEIMASÍÐA ÁLFTA- NESS Umræðu- svæði á heimasíðu bæjarfélagsins var lokað vegna ítrekaðra brota á reglum. VIÐSKIPTI Skilanefnd gamla Glitnis segir samráð og samþykki fyrir- tækja hafa legið við því þegar þrjú lánasöfn voru sett að veði gegn lán- veitingu í Seðlabanka Evrópu. Hluti lánasafnanna voru kvótaveð sem eru nú í höndum bankans. Skila- nefnd hefur samið um að færa yfir- ráð yfir þeim veðum til Íslands og eru samningar þar um á lokastigi. „Við vonumst til þess að samn- ingar náist og okkur verði treyst til að hafa umsjón með lánunum og sjá um innheimtu og skila Seðlabank- anum síðan afborgunum, þar til skuldin er að fullu greidd,“ segir Árni Tómasson, formaður skila- nefndar. Þess vegna sé mjög mikil- vægt að félögin sem um ræðir lendi ekki í vanskilum og tryggi sér end- urfjármögnun um leið og aðstæður leyfa. Árni segir skilanefndina hafa lagt mikið á sig til að efla traust bankans ytra. „Ef aðrir aðilar hefðu leyst veðin til sín á brunaútsölu og lánin hefðu verið gjaldfærð hefði getað komið upp vond staða.“ Ábyrgð lán- þeganna um að standa í skilum sé því mikil. Hluti samkomulagsins gengur út á að fasteignalán sem dótturfélag bankans í Lúxemborg á, og lánuð hafa verið einstaklingum ytra, hafi verið notuð til að greiða niður lán hjá Seðlabanka Evrópu. - kóp Skilanefnd segir samráð hafa verið haft við eigendur fyrirtækja um kvótaveð: Yfirráð kvótaveða til Íslands ÁRNI TÓMASSON Formaður skilanefnd- ar segir samninga í gangi um að færa yfirráð yfir kvótaveðum til Íslands, en þau eru nú hjá Seðlabanka Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn gengu á milli tveggja fylkinga sem áttu í útistöðum um klukkan hálf átta í gærkvöldi á gatnamót- um Lönguhlíðar og Mávahlíðar. Að sögn lögreglunnar voru þarna tíu til fimmtán ungir menn meðal annars frá Ítalíu, Portúgal og Kólumbíu. Sökum tungumála- örðugleika fékk lögreglan ekki botn í það hvað mennina greindi á um. Lögreglan segir það koma fyrir að hún þurfi að hafa afskipti af fylkingum sem þessum þó ekki rati það alltaf í fjölmiðla. - jse Lögreglan gekk á milli: Kom í veg fyrir hópslagsmál SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.