Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.01.2009, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 08.01.2009, Qupperneq 62
46 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 MORGUNMATURINN LÁRÉTT 2. skipalægi, 6. í röð, 8. berja, 9. fugl, 11. rás, 12. vansæmd, 14. hlátur, 16. drykkur, 17. gerast, 18. næra, 20. frá, 21. áætlun. LÓÐRÉTT 1. elds, 3. mannþyrping, 4. tungumál, 5. hvíld, 7. pergament, 10. grús, 13. skjön, 15. sinni, 16. skaði, 19. samtök. LAUSN LÁRÉTT: 2. höfn, 6. áb, 8. slá, 9. lóm, 11. æð, 12. skömm, 14. fliss, 16. te, 17. ske, 18. ala, 20. af, 21. plan. LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. ös, 4. flæmska, 5. náð, 7. bókfell, 10. möl, 13. mis, 15. sefi, 16. tap, 19. aa. „Ég fæ mér yfirleitt hafragraut í morgunmat, ég er svo heppin að mér finnst hann sjúklega góður. Drita reyndar töluverðu af sykri yfir hann, en það er allt í lagi, hann er svo hollur.“ Brynja Björk Garðarsdóttir blaðamaður. „Myndin var tekin að kvöldi jóla- dags í kirkjugarðinum við Suður- götu. Ég tók margar myndir en þessi er sú eina þar sem sjá má þessa þoku eða slæðu,“ segir Stuart Peacock lögfræðingur. Þau undur og stórmerki gerðust um jólin að bandarískur lögmaður, sem starfar fyrir bandarísk stjórn- völd, náði að festa á mynd það sem virðast vera draugar í Hólavalla- kirkjugarði. Fréttablaðið leitaði til helsta sérfræðings Íslands á þessu sviði, Magnúsar Skarphéðinsson- ar, formanns Sálarrannsóknar- félags Reykjavíkur, sem segir þúsundir vitna hafa séð þessar undarlegu slæður hringinn í kring- um hnöttinn og í seinni tíð síefldrar ljósmyndunar almennings hafi all- margar myndir slæðst til rann- sóknaraðila á þessum málum. „Auðvitað er ekki hægt að full- yrða nokkuð um svona lagað fyrir víst, en allmargar sannfærandi röksemdir liggja fyrir því hjá alvöru sálarrannsóknarfélögum heims að þetta sé raunveruleg ljósmynd af „draug“, eða fram- liðnum eins og vér nefnum yfir- leitt framliðna sem eru viljandi eða óviljandi að reyna að birtast í okkar heimi,“ segir Magnús. Peacock-fjölskyldan, Stuart, Nicole, kona hans, og synirnir tveir, þeir Scott og Kurt, hafa komið hér undanfarin fjögur ár um hátíðarnar og er þetta orðin hefð. „Við fórum ekki í kirkju- garðinn til að leita drauga heldur til að skoða hin fallegu kerti. Við sáum enga þoku eða slæður en þegar ég skoðaði myndina í vél- inni sá ég þetta.“ Stuart segir konu sína ekki trúa á drauga heldur djöfla og hún telur þessar myndir vera af slíkum. „Persónu- lega trúi ég á hvor- ugt. Hins vegar þekkist í fjöl- skyldu minni að sjá hluti fyrir – sem er eitthvað yfir- náttúrulegt sem ég kann ekki að útskýra. Þegar við komum heim og fórum að skoða myndina betur má sjá rauðar slettur á gröf- inni en ég held að það sé frekar kertavax en blóð,“ segir Stuart. Sagan um þessa dularfullu mynd er ekki öll. Eftir þessa reynslu skráði fjölskyldan sig í draugagöngu á vegum ferðaþjón- ustunnar Goecco. Þau reyndu að sýna leiðsögumanninum myndina við umrædda gröf en þá brá svo við að myndavélin drap á sér. „Þegar ég kom til baka í hótelher- bergið og ætlaði að hlaða batteríið var vélin fullhlaðin. Kannski að kuldinn hafi haft þessi áhrif – þetta er gamalt batterí,“ segir Stu- art sem að endingu lýkur miklu lofsorði á Ísland; fjölskyldan kunni vel að meta kyrrðina sem hér ríkir, börnin eru svo elsk að sundlaugunum að þau gætu vel hugsað sér að flytjast til Íslands. jakob@frettabladid.is STUART PEACOCK: NÁÐI DULARFULLUM FYRIRBÆRUM Á MYND Á JÓLADAG Draugar í Hólavallakirkjugarði FRAMLIÐNIR GERA VART VIÐ SIG Það var að kvöldi jóladags sem þessar slæður birtust í Hólavallakirkjugarði. MYND/STUART PEACOCK STUART PEACOCK LÖGMAÐUR Náði að festa dularfull fyrirbrigði á mynd þegar fjölskyldan fór til að skoða kertin í kirkjugarðinum. MAGNÚS SKARPHÉÐINSSON Allmargar röksemdir eru fyrir því að þetta sé raunveruleg mynd af framliðnum. „Jahhh, svíkja Nýhil? Nei, nei, það var mjög gott samkomulag um að ég færi,“ segir Steinar Bragi rithöfundur sem nýverið söðlaði um og gekk til liðs við Mál og menningu sem er hluti Forlags-veldisins. Konur, nýjasta skáldsaga Steinar Braga, sem hið anarkíska forlag Nýhil – sjálfseignarstofn- un rekin án arðsemissjónarmiða, gaf út, er uppseld hjá forlagi. Þúsund eintök farin. Bókin hlaut einróma lof; Fréttablaðið, Morgunblaðið og DV gáfu henni allar fimm stjörnur og nú tekur Forlagið við og gefur Konur út í kilju. „Það þótti óhentugt að dreifa einni vesældar- legri kilju um allt land fyrir Nýhil, forlag sem hefur ekki einu sinni afnot af bíl nema hugsan- lega í gegnum móður einhvers. Jón Bjarki, DV- maðurinn heiðarlegi, fékk stundum lánaðan bíl hjá móður sinni til að dreifa en hann nennti ekki að tuða lengur í henni,“ segir Steinar Bragi óþarflega lítillátur. Viðar Þorsteinsson, heimspekingur hjá Nýhil, segir þetta laukrétt og fagnar því að Steinar Bragi sé kominn til stöndugs útgefanda og vonast til að honum verði sinnt sem hann á skilið. Nýhil einbeitir sér að grasrótinni. Aðspurður segist Steinar Bragi finna lítið fyrir því að vera kominn á mála hjá stórveldi. Hann hitti Silju Aðalsteinsdóttur, útgáfustjóra Máls og menningar, af og til. Bókmenntapáfinn Egill Helgason sagði í viðtali við Steinar Braga í Kiljunni að hann hlyti að teljast „cult“-fígúra, væri ekki allra og í framhaldi af því spyr blaðamaður Steinar Braga hvort hann sé nú orðinn við allra skap? „Nei, ég ætla að halda áfram að vera cult-fígúra. Sama hvar ég er þá verð ég það alltaf. Engar áhyggjur.“ Og trúr þeim frómu fyrirheitum segir hann það áhyggjuefni að hafa fengið slíkt einróma lof og raun ber vitni fyrir Konur. „Já, það var krípí.“ - jbg Forlagið stelur Steinari Braga „Ég er í andlitshreinsun í þess- um töluðu orðum,“ segir Frið- rik Ómar söngvari. Friðrik Ómar er nú staddur í Póllandi í bráðskemmtilegu föruneyti Jónínu Benedikts- dóttur en Fréttablaðið sagði frá því í gær að þar væri nú staddur á hennar vegum kátur hópur: Geiri á Goldfin- ger, Gunnar í Krossinum og Árni Johnsen meðal annarra. Þá mun söngkonan Hera einnig vera stödd í Póllandi ásamt systur sinni og óneitanlega virðist þarna vera kom- inn efniviður í frábært tríó: Friðrik, Hera og Árni. „Nei, ég er voðalega lítið í að syngja núna. Ég er bara að taka mér frí. Þetta er rosa- lega gott. Við erum svo að fara, þegar þessu lýkur, við Regína, til Þýskalands. Þar komum við fram á árlegu skemmtikvöldi í München ásamt Söndru Kim.“ Nei, engin hljómsveit á döfinni að sögn Friðriks Ómars á hinu ágæta heilsuhæli í Pól- landi sem margir láta svo vel af. „Ég reyni að hugsa sem minnst um það núna.“ Ýmislegt er þó á döfinni hjá Friðriki Ómari í kjölfar fræki- legrar framgöngu hans og Regínu í síðustu Eurovision-keppni sem haldin var í Bel- grad. Friðrik segir ekki tímabært að greina frá því að svo stöddu en í það stefnir að þau Regína muni syngja á útsendingar- svæði sem telur hundruð milljóna áhorfenda. - jbg Friðrik Ómar á heilsuhæli í Póllandi FRIÐRIK ÓMAR Er í bráðskemmtilegum detox-hópi Jónínu Benediksdóttur í Póllandi. STEINAR BRAGI Segist verða „cult“-fígúra eftir sem áður þótt hann sé nú genginn til liðs við Forlagið. HERA Söngkonan Hera er einnig á heilsuhælinu en ekki stendur þó til að stofna tríó að sögn Friðriks. DV bendir nú daglega á að Mogginn skuldi hátt í fimm milljarða, ríkið leggi til 150 milljónir til blaðsins mánaðarlega sem má sam- kvæmt því teljast í ríkis- eigu. Skelfilegt hlýtur það að vera fyrir Björgvin Guðmundsson, sem er yfir viðskipta- fréttum, að vera nú starfandi á ríkisblaði. Björgvin fór fyrir SUS á sínum tíma og hefur eflaust tekið þátt í ályktunum á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins um að ríkinu bæri að selja Rás 2 en þá voru einmitt rökin fyrir því hversu fráleitt væri að ríkið stæði í rekstri fjölmiðla meðal annars þau hvort fólk vildi virkilega að ríkið færi að reka dagblað! En það var á velmektarárum Morgun- blaðsins. Nú heyrist að Ómar R. Valdimars- son sé farinn að starfa fyrir Reuters á Íslandi. Við þau tíðindi má ætla að hárin rísi á höfði hins aldna ritstjóra Jónasar Kristjánssonar en eitur í hans beinum eru menn sem hafa starfað sem almannatenglar og snúa aftur í frétta- mennsku – en Ómar var einmitt talsmaður Impregilo þegar Kárahnjúka- virkjun var í byggingu. Aldrei fór ég suður verður haldin í sjötta sinn á Ísafirði um páskana enda ekkert kreppuvæl þar á bæ. Nefndin kom saman um jólin og byrjaði að spá í spilin. Margir eru að vanda áfjáðir í að koma og spila og Mugison hefur sagt ýmsum útlenskum böndum að þau megi sækja um. Mugison tók annars lagið á sunnudaginn í fimmtugsafmæli Rönku sem rekur Tjöruhúsið þar vestra. Hann tók lagið „Sweetest melody” sem er um pabba Rönku, hinn goðsagnakennda Dóra Her- manns. Hann treður iðulega upp á Aldrei fór ég suður hátíðinni og er jafnan hápunktur hátíðarinn- ar. Dóri sönglaði með Mugison á sinn hátt en kannaðist ekkert við lagið, enda mun meira fyrir Wit- hney Houston. -jbg, drg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Ellefu manns. 2 Fimmtán ár. 3 Á laugardagskvöld.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.