Fréttablaðið - 08.01.2009, Síða 12

Fréttablaðið - 08.01.2009, Síða 12
12 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ Vonarstrætisleikhúsið var stofnað árið 2007 af tveim- ur fyrrverandi leikhússtjór- um Leikfélags Reykjavíkur, þeim Vigdísi Finnbogadótt- ur, fyrrum forseta Íslands, og Sveini Einarssyni. Fyrsta viðfangsefni hóps- ins er leiklestur á verkinu Kaupmannahöfn eftir Mi- chael Frayn í Iðnó. „Það er eins með leikhúsið og skát- ana. Eitt sinn skáti, ávallt skáti. Eitt sinn í leikhúsi, ávallt með hug- ann við leikhúsið,“ segir Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for- seti Íslands og leikhússtjóri Leik- félags Reykjavíkur (LR) í Iðnó á árunum 1972 til 1980. Vigdís og Sveinn Einarsson, sem gegndi stöðu leikhússtjóra LR á árunum 1963 til 1972, eru stofnendur Von- arstrætisleikhússins, sem stendur fyrir leiklestri á verkinu Kaup- mannahöfn eftir Michael Frayn í Iðnó í næstu viku. Vonarstrætisleikhúsið var form- lega stofnað árið 2007 fyrir atbeina fyrrverandi leikhússtjóranna tveggja og er Kaupmannahöfn fyrsta viðfangsefni þess. Að sögn Vigdísar er markmið hópsins að vekja athygli á leikritum sem efnis síns vegna eru líkleg til að vekja umræðu um málefni líðandi stund- ar. „Okkur hefur lengi dreymt um að setja Kaupmannahöfn upp hér á landi, en fengum ekki til þess fjárveitingu þegar við sóttum um á síðasta ári. Þess vegna brugðum við á það ráð að leiklesa verkið, enda hentar það prýðilega til leik- lesturs,“ segir Vigdís. Kaupmannahöfn var frumsýnt í breska Þjóðleikhúsinu árið 1998 og hefur farið sigurför um heim- inn. Kveikjan að verkinu var fræg- ur fundur danska nóbelsverð- launahafans Niels Bohr og fyrrum nemanda hans, þýska vísinda- mannsins Werners Heisenberg árið 1941. Sveinn Einarsson. sem leikstýr- ir leiklestrinum í Iðnó, segir þenn- an fund vísindamannanna þekktan sem einn þann afdrifaríkasta í sögu raunvísinda á tuttugustu öld. „Til þessa dags hefur engum manni tekist að færa sönnur á hvað fór þeim á milli, en fundur- inn gat haft heimsögulegar afleið- ingar. Í verkinu er velt upp mörg- um og stórum spurningum varðandi kapphlaupið um kjarna- klofnunina, og svo blandast mann- eskjulega dramað auðvitað inn í líka. Þessi fundur var mjög við- kvæmt mál.“ segir Sveinn. Vigdís segir verk á borð við Kaupmannahöfn eiga erindi á öllum tímum. Það fjalli um sið- ferðilega ábyrgð og kalli á almenna umræðu. Einnig sé ánægjulegt að starfa með Sveini Einarssyni, sem Vigdís tók af sem leikhússtjóri LR á sínum tíma. „Ég og Sveinn höfum verið miklir vinir lengi og unnið að mörgum góðum málum saman. Ég sinni hlutverki blaðafulltrúa innan leikhópsins, þannig að það mætti segja að ég sé komin hringinn,“ segir Vigdís og hlær. Hún bætir við að ef vel takist til með leiklest- urinn á Kaupmannahöfn sé aldrei að vita nema frekara framhald verði á starfseminni. Árni Bergmann þýddi verkið yfir á íslensku en flytjendur eru Valgerður Dan, Jakob Þór Einars- son og Þorsteinn Gunnarsson. Að undanförnu hefur hópurinn verið við stífar æfingar á heimili Sveins við Tjarnargötuna. „Í gegnum árin hefur margoft verið æft hérna við gamla borðstofuborðið mitt, skal ég segja þér. Heilu útvarpsleikrit- in hafa verið tekin hér upp,“ segir leikstjórinn og skellir upp úr. Kaupmannahöfn verður leikles- ið þriðjudaginn 14. og miðvikudag- inn 15. janúar næstkomandi. Miða- sala er í Iðnó. kjartan@frettabladid.is Vigdís komin hringinn SVEINN EINARSSON OG VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR Sveinn og Vigdís stofnuðu Vonarstrætisleikhúsið árið 2007. Í næstu viku hefst leiklestur á verkinu Kaupmannahöfn eftir Michael Frayn í Iðnó, en Kaupmannahöfn er fyrsta viðfangsefni leikhússins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Getur verið að þetta hafi heyrst áður? „Afstaða ESB er mjög skýr. Við styðjum ekki eða sam- þykkjum einhliða upptöku evru.“ OLLI REHN, STÆKKUNARSTJÓRI EVRÓPUSAMBANDSINS Morgunblaðið 7. janúar Hvurslags er þetta eiginlega? „Við vorum ekki einu sinni spurð hvort töfin hefði valdið okkur vandræðum.“ SIGRÚN ÓLAFSDÓTTIR SEM VAR UM BORÐ Í FLUGVÉL SEM TAFÐIST DV 7. janúar RV U N IQ U E 01 09 01 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Ný og betri RV tilboð, á nýju ári - fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili, sem vilja spara og hagræða! Nýr o g len gri opnu nartím i í verslu n RV mán ud o g fim mtud 800 -2 100 þriðju d, m iðviku d og föstu d 8 00 -18 00 lauga rd 10 00 -16 00 Vesturlands vegur Bæjarháls Réttarháls Há lsa br au tH öf ða ba kk i ■ Þótt ótrúlegt megi virðast er bréfsíminn eldri en talsíminn. Skoski uppfinninga- maðurinn Alexander Bain fær oftast heiðurinn af fyrsta bréfsímanum, árið 1843. Frederick Blackwell betrumbætti faxið og sýndi á heimssýningunni í London 1851. Tíu árum síðar, 1861, kom fyrsta faxvélin á markað og átti Ítalinn Caselli heiðurinn af henni. Fyrsta samtalið í síma varð ekki fyrr en 1876. Árið 1900 bjó Þjóðverjinn Arthur Korn til myndsíma og var hann notaður til að senda myndir af eftirlýstum glæpamönnum á milli landa. BRÉFSÍMINN ELDRI EN SÍMINN „Ég er á fullu í tökum á lögfræðingaþættinum Rétti sem fer í loftið um miðjan janúar,“ segir Víkingur Kristjánsson leikari. „Það eru nokkrir dagar eftir í tökum, þeim lýkur væntanlega í þessari viku eða þeirri næstu.“ Tökurnar, sem hófust í nóvember, verða því að klárast um það leyti sem fyrsti þátturinn fer í loftið. Það verður að teljast nokkuð óvenjulegt að leikarar fái svo fljótt að sjá afrakstur erfiðis síns. „Oftast nær þarf maður nú að bíða tölu- vert lengur, svo þetta er mjög skemmtilegt.“ Réttur er lögfræðikrimmi sem sýndur verður á Stöð 2. Í þáttunum leika þau Víkingur, Magnús Jónsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir lögmenn á lög- fræðistofunni Lögum og rétti sem eru harðir í horn að taka. „Handritið að þátt- unum er mjög áhugavert. Þeir eru líka aðeins öðruvísi en þeir þættir sem hafa verið framleidd- ir fyrir íslenskt sjónvarp að undanförnu. Þetta eru vissulega glæpaþættir en horft frá öðru sjónarhorni en vant er. Þar að auki eru þetta sjálfstæðir þættir, eitt mál leyst í hverjum þætti. Það er nokkuð skemmtilegt.“ Víkingur segist kunna vel við sig í lögmanns- hlutverkinu. Hann býst þó síður við að söðla um og snúa baki við leikara- störfunum. Hann hefur líka nóg að gera og sér ekki fram á verkefnaskort. „Ég hef verið heppinn með verkefni og þau hafa hlaðist upp hjá mér. Það er ýmislegt í pípunum hjá mér en það er vissara að bíða með að segja frá því þangað til búið er að skrifa undir samning.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? VÍKINGUR KRISTJÁNSSON LEIKARI Kann vel við sig í hlutverki lögmanns Brynhildur Guðjónsdóttir leik- kona hlaut Íslensku bjartsýnis- verðlaunin í gær. Það var Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for- seti, sem tilkynnti val dómnefnd- ar og Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi forseti, sem afhenti Brynhildi viðurkenningargripinn og verðlaunafé sem nemur einni milljón króna. Verðlaunin eru, líkt og segir í tilkynningu um þau, í senn viður- kenning og hvatning fyrir íslenska listamenn. Þetta var í 28. sinn sem Íslensku bjartsýnisverðlaunin voru afhent, en það var Garðar Cortes sem fyrstur hlaut verðlaunin árið 1981. Það er Alcan á Íslandi sem er bak- hjarl verðlaunanna og hefur verið frá árinu 2000, og forseti Íslands hefur verið verndari þeirra frá upphafi. - ss Íslensku bjartsýninsverðlaunin veitt í Iðnó í gær: Brynhildur fékk bjartsýnisverðlaunin BRYNHILDUR GUÐJÓNSDÓTTIR OG ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Vigdís Finnboga- dóttir tilkynnti val dómnefndar bjartsýnisverðlaunanna og Ólafur Ragnar Grímsson afhenti Brynhildi verðlaunin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Ég held að Sigmundur Davíð Gunn- laugsson geti orðið bjargvættur fyrir flokkinn,“ segir Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona, betur þekkt sem Diddú, um formannsslaginn í Framsóknar- flokknum. „Hinir frambjóðendurnir hafa verið áberandi framsóknarmenn en hann kemur þarna ferskur inn því fólk hefur ekki verið að samsama hann flokknum. Hann er líka eitthvað svo skeleggur, sér hlutina í réttu ljósi og kemur fram með raunhæfar lausnir. Þannig að innkoma hans er gleðifrétt fyrir flokkinn.“ En fleiri en Sigmundur Davíð hafa ákveðið að láta til sín taka í Framsókn en nýlega varð ljóst að Guðmundur Steingrímsson, varaþing- maður Samfylkingarinnar og sonur Steingríms Hermannssonar, hefur ákveðið að ganga til liðs við fram- sóknarmenn. „Honum var greinilega svo ofboðið að hann ákvað bara að fara heim ef svo mætti segja. Það er oft svona þegar mönnum verður mikið við þá leita þeir í það sem þeir þekkja best.“ Diddú segist annars ekki bera neinn sérstakan hlýhug til Framsóknar- flokksins. „Þetta er reyndar afskap- lega gott fólk í flokknum sem ég hef haft kynni af en þetta er ekki minn flokkur.“ SJÓNARHÓLL DIDDÚ RÆÐIR UM FORMANNSSLAG- INN Í FRAMSÓKNARFLOKKNUM Kannski er bjargvættur- inn fundinn SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR söngkona

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.