Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Dr. Gunna Eins og mannskepnan getur nú verið frábær – nægir að nefna uppfinningu sushísins, kvikmynd- ir Hitchcocks og verk Fræbbbl anna því til staðfestingar – er hún algjör- lega ömurleg líka. Handónýt og vonlaus dýrategund. NÚ fer fram slátrun á fólki sem var svo óheppið að fæðast í Palest- ínu. Raunalegar eru fréttirnar. Þó sýna þær ekki allt. Engin limlest smábörn trufla sjónvarpsgláp landsmanna í smáatriðum á flenni- skjánum. Sem betur fer. Nóg er nú samt. Bogi Ágústsson var gráti næst hjá Þóru í Kastljósi yfir órétt- lætinu og geðveikinni. Læknar vaða blóð og sundurtætta líkama. ÉG man eftir svipuðum fréttum aftur til frumbernsku. Ég sat yfir fréttunum með foreldrum mínum og það var verið að drepa einhvers staðar úti í heimi. Drepa og drepa. Aflima og örkumla. Sprengja og skera. Skjóta og berja. Nýfædd smábörn, gamalmenni og allt þar á milli saxaðist ofan í fjöldagrafir einhvers málstaðar sem einhverjir karlar voru búnir að telja sér, og þjóðunum, trú um að væri þess virði að drepa allt þetta fólk fyrir. „Fórnarkostnaður“ varð það síðar kallað – Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson vita hvað ég á við. Það var alltaf eitthvað. Dauðasveitir í El Salvador, þjóðernishreinsanir á Balkanskaga, ég man þetta ekki allt. Yfir öllu vofði svo möguleik- inn á lokalausn mannkynsins – gjöreyðingarstríði á milli austurs og vesturs. VIÐ létum flöktandi sjónvarps- blámann grilla á okkur tærnar. Pabbi varð brjálaður eins og vana- lega. Það hvein í honum þegar hann fór með ræðuna sem hann fór alltaf með þegar eitthvað veru- lega suddalegt var í fréttunum. Að við sem dýrategund ættum ekki skilið að vera til og að við værum mistök náttúrunnar. Að við værum grimmasta og ógeðslegasta teg- undin sem drægi andann á þessari lánlausu jörð. Að það væri fyrir bestu að losa veröldina við þessa óværu og að líklega væri allsherj- ar kjarnorkustyrjöld það besta sem gæti gerst. ÞESSI skoðun síaðist inn í mig enda hefur ekkert breyst. Dýra- tegundin verður bara ógeðslegri eftir því sem tækninni „fleygir fram“. Ég sé þó ekki tilganginn í að „taka pabba“ á fréttirnar. Ég slekk bara þegar myndirnar verða of svæsnar. Ýti hugsuninni úr hausnum á mér með valdi og hugsa af alefli um eitthvað annað. Þú mátt vel kalla þetta veruleikaflótta mín vegna. Þetta er það. Vonlausasta dýrategundin Í dag er fimmtudagurinn 8. janúar, 8. dagur ársins. 11.09 11.34 16.00 11.18 13.19 15.20 Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi OPIÐ 8-24 ALLA DAGA - Lifið heil
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.