Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 28
Nú í vor mun hannyrðaverslunin
Nálin bjóða upp á námskeið í vél-
prjóni í fyrsta sinn en Nálin hefur
boðið upp á námskeið í handprjóni,
hekli og útsaumi. Helga Jóna Þór-
unnardóttir segir boðið upp á þessa
nýbreytni vegna mikils áhuga.
„Við verðum varar við mikinn
áhuga núna, jafnvel meiri en í
fyrra, en mikið var keypt af garni í
haust. Prjónavélar leynast víða í
geymslum hjá fólki og við erum
þegar farnar að taka við bókunum
á námskeiðin.“
Námskeiðið verður haldið dag-
ana 24. til 25. janúar. Það er ætlað
byrjendum og verða kennd grunna-
triði á prjónavélina. Síðar í vor
verður framhaldsnámskeið. Þátt-
takendur koma með eigin vélar en
eins og Helga bendir á geta þær
leynst í kompum víða. Í námskeiðs-
lýsingu segir meðal annars að
farið verði yfir uppáfitjar, affell-
ingar, úrtökur og útaukningar.
Hægt verður að kaupa garn á
staðnum eða koma með sitt eigið.
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðunni www.nalin.is.
Prjónavélin virkjuð
! "#
$ "% "& ' (
"
)$
*+, -
" .
/- "
- 0& %-
" % "
1
,
Kennd verða bæði byrjendanám-
skeið og námskeið fyrir lengra
komna hjá Skákskóla Íslands í
Faxafeni 12. Bragi Kristjánsson
skákkennari segir námskeiðin
sniðin fyrir börn og unglinga.
„Yngstu krakkarnir sem koma á
námskeiðin eru sex ára en ef áhugi
er fyrir hendi verður hægt að
setja saman námskeið fyrir full-
orðna líka.“ Bragi segir áhuga á
skák hafa aukist fyrir um ári síðan
og sú uppsveifla haldist enn.
Kennsla mun fara fram á laug-
ardögum. Námskeiðið er tíu tímar
og lýkur með skákmóti og verð-
launaafhendingu.
Áhugasamir skrái sig á netfang-
ið siks@simnet.is eða á skrifstofu
Skáksambandsins í síma 568 9141.
Námskeið í manngangi