Tíminn - 08.08.1982, Page 19

Tíminn - 08.08.1982, Page 19
SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 !(?!(» 19 (á bókamarkaði :TH£Y HAO CN£ VÍAR TO WORK A MIRAClE. THtS t§JHE COMPUISJVE ACCOUNT Of HOW THEY 01011 THESOUL OFANEW MACH FUKUNDS TRACY KIDOER GONRICT - th« Arijentlne ínvasíon. th« British counter-attack,the navaí and mílitafy gains and tosses and the diplomatíc ínítísttves ~ writtcn by a top ínvestígative team CHRISTOPHER DOBSOM- •ÍOMN MILLER-RONALD PAVNE John Godey: Nella Sphere Books 1982 ■ Fína hverfið í New York, þar er fína fólkið. Þar er líka lögreglu- maðurinn Roehmer, töff nokkuð. Og svo vill til einn daginn að ungri stúlku, Nellu Massey, sem er af ríku fólki, er rænt af samviskulausum þorpurum. Fyrst fær Roehmer kröfu um lausnargjald, síðan fötin hennar og loks hringinn sem hún bar á fingri sér. Fingurinn fylgir að vísu með. Þetta er eins konar Paul Getty-saga. Ákaflega hraður og spennandi reyf- ari, ofbeldi verður sæmilega uppi eins og tíðkast nú til dags, og Roehmer kafar ofan í hryllilega undirheima New York borgar þar sem ekki er fagurt um að litast. En hvar er Nella? Og tekst að bjarga henni áður en ræningjamir myrða hana? Og er allt eins og það á að vera? Roehmer á við vanda að etja... En ætli allt leysist ekki í lokin. D. M. Thomas: Birthstone Penguin / King Penguin 1982 ■ Eftir að Hvíta hótelið eftir D. M. Thomas sló svona h'ka rækilega í gegn tóku menn eftir því að höfundurinn hafði skrifað aðrar bækur sem lítið hafði farið fyrir. Bæði The Flute-Player og Birthstone fengu að vísu mikið lof gagnrýnenda og sjálfsagt einhver verðlaun en megnuðu ekki að meika það á almennum markaði. Nú gerir Pen- guin aðra tilraun með þessa sögu en hún er reyndar svolítið óvenjuleg. Fantasía í meira lagi, sumir yngjast aðrir eldast og stórskrýtnir atburðir verða. Bókin býr hins vegar yfir sínu eigin lögmáli sem hún fylgir út í ystu æsar og líklega veltur það á því lögmáli hvort bókin hittir heima hjá lesara sínum. Er hann tilbúinn til að gangast undir sama lögmál? En stíll Thomas er fallegur, enda ku maður- inn vera Ijóðskáld og hefur m.a.s. þýtt Púshkin úr rússnesku. ■ Bckunar hér að ofan eru fengnar hjá Bókabóð Máls og menningar. Tekið skal fram að hér er um kynningar að neða en öngva ntdöma. Christopher Dobson / John Miller / Ronald Payne: The Falklands Conflict Coronet 1982 ■ Fyrsta bókin, alveg sjóðheit úr pressunni, um Falklandseyjastríð Breta og Argentínumanna sem enn er séð hvaða afleiðingar hefur. Þetta var stríðið sem hefði mátt koma í veg fyrir, eins og höfundarnir þrír, allir blaðamenn og höfundar svipaðra bóka, sýna fram á. En úr því það braust út gat hvorugur aðili dregið sig til baka. Bókin ber þess víða merki að hún er samin í miklum flýti en þó tekst að varpa nokkru ljósi á flesta þætti máisins og atburðarásin er rakin skýrt og greinilega þó kannski sé ekki alltaf kafað mjög djúpt. Bókin ber þess líka merki að höfundamir, allir Bretar, héldu með sínum mönnum og þeim fannst gagninnrásin fín. En hér er aðgengi- legur og hentugur fróðleikur ef menn vilja vita. Tracy Kidder: The Soul of a New Machine Penguin 1982 ■ Þetta er sönn saga. Og sögu- hetjumar em við hæfi í nútímanum, sömuleiðis söguefnið: hópur af ungum vísindamönnum situr og reynir að setja saman tölvu. Þeir em í kapphlaupi við tímann og keppi- nautana, allt á þetta að vera alveg rosalega spennandi og æsilegt og gaman. Höfundur skrifar bókina sem væri hún reyfari en það er hætt við því að sumir lesarar muni eiga í efiðleikum með að taka þetta havarí nægjanlega hátíðlega. What’s the fuzz? Stílbrögð þau sem Kidder þessi beitir em nú mjög í tísku en eiga ekki alls staðar við. Raunar eiga þau voða sjaldan við í „sönnum sögum“. En fullyrðum ekkert: kannski er hér kominn hinn fullkomni reyfari fyrir tölvufrík og aðra af því taginu... holt GO c 01 . _r» ikelter JOHN I Auttíor of THE TAKIN' tSnap'clTlTlo?" ‘DEY WLHAM 123 Eggjaframleiðendur - Kaupmenn Höfum jafnan fyrirliggjandi eggjapakkningar fyrir 10 og 12 egg. VAKA Á VEGI Á NÓTTU SEM DEGI Gerum tilboð I að sœkja bíla hvert á land sem er. Simi 33700, Reykjavlk. Guðbjörn Guðjónsson heildversiun Korngarður 5 sími 85677 Öskjuhlíðarskóli óskar eftir dvalarheimilum fyrir nemendur utan af landi skólaárið 1982-1983. Upplýsingar um greiðslu og annað fyrirkomulag í símum 17776 eða 23040 ® SILVER STEREO SYSTEM 85 Hörkuglæsileg samstæða á vinalegu verði, kr. 9.995 (staðgreitt) með 2 stk. 50 vatta WHT Dantax hátölurum EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI I699S Greiðsluskilmálar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.