Tíminn - 19.09.1982, Blaðsíða 16

Tíminn - 19.09.1982, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 17 ■ Á dögum vísindabyltingarinnar miklu á 17. öld sótti sú hugsun mjög á fólk aö kannski væri mannlífið bundið óhaggalegum orsakalögmálum á sama hátt og til aö mynda himintunglin í stjömufræði Newtons. Það væri vélgengt eins og úrverk, reiknivélar eða vatnsdælur. Að frjáls vilji væri sjálfsblekking og mannfólkið jafn sálarlaust og dýr og vélar. Þessi skoðun hefur verið nefnd VELHYGGJÁ og hefur fram á okkar daga verið ein máttugasta hugmyndin í andlegu lifi Vesturlanda. í samræmi við framvindu tækni hefur hún nú tekið á sig þá mynd að mönnum - eða réttara sagt mannsheilanum -er líkt við tölvur; hugur manna, það sem áður fyrr var kallað sál, er forritið og heilinn vélbúnaðurinn. Þegar þessar hugmyndir kviknuðu upphaflega á 17. öld kvaddi heimspek- ingurinn Descartes sér hljóðs. Á litlu kveri Orðræðu um aðferð (1637) leiddi hann að því rök að áhyggjur manna væru ástæðulausar. Af því að menn vissu af sér - gætu hugsað - hefðu þeir sál og frjálsan vilja - öndvert við dýr og vélar. Þessi hugmynd að vélar og dýr væru sálarlaus og tilfinningalaus hafði svolitla hliðarverkan. Menn fóru að líta svo á framfarir á þessu sviði m.a. á þeim vanda að kenna tölvum að skilja mannlegt mál. Kannski er sá vandi óyfirstíganlegur - það leiðir tækni framtíðar í ljós - en mjög margir tölvufræðingar eru þeirrar skoðunar að svo sé ekki. Þeir eru fullir bjartsýni um að innan tíðar munum við eignast tölvu sem hefur vitsmuni af svipuðu tagi og mannfólkið. Mannfólk og tölvur: ■ Hér er verið að leggja síðustu hönd á gerð vélmennis í bandariskri tilraunastofu en - til allrar hamingju kynni einhver að segja - hxfileikar þess eru af mjög skornum skammti. ■ Dr. Jörgen Pind sálfræðingur. Myndm er tekm ■ Menntaskolanum við Hamrahlíð þar sem hann kennir sálfræði, og notar m.a. þessar tölvur við kennsluna. Tímamynd:Róbert Mannlegt mál enn of flókið fyrir tölvur Rætt við Jörgen Pind sálfræðing um ■ „Það er mikið álitamál hvort við komumst nokkru sinni yfir þær tak- markanir sem málskilningi tölva eru settar. Á því hvernig okkur gengur að kenna tölvum að læra að skilja mannlegt mál, þ.á.m. að þýða úr einu máli yfir á annað, veltur hvort þær verða nokkru sinni jafnokar manna hvað greind varðar“ sagði dr. Jörgen Pind, sál- fræðingur, í samtali við Helgar-Tímann. Jörgen sótti norræna námstefnu um hagnýtingu tölva fyrir sálarfræði og málfræði í Mullsjö í Svíþjóð fyrrihluta ágústmánaðar, en þar komu fram ýmsar athyglisverðar upplýsingar um fram- vindu tölvutækni á sviði gervigreindar. Með gervigreind eða tölvugreind (á ensku „artificial intelligence“) er átt við tilraunir til að búa til tölvur sem eru svo „greindar" að þær geta staðið mönnum jafnfætis eða verið þeim fremri að fást við ýmis verkefni sem mannlega vits- muni þarf nú til að leysa. Að sögn Jörgens hófust máltilraunir í tölvufræðum með því að búin voru til forrit sem gátu þýtt einstök orð úr einu tungumáli yfir á annað. Verulegir erfiðleikar komu fyrst í Ijós þegar reynt var að láta þýða heilar setningar eða frásagnir. Til dæmis á tölva í erfiðleikum með að þýða ensku setninguna „The soldiers shot at the women. They fell down.“ yfir á íslensku. „Hermennirnir skutu á konurnar“ mundi tölvan hafa þýtt, en hika síðan er að framhaldinu kæmi. „They“ getur merkt bæði „þeir“ og „þær“ í ensku máli og ekkert í inntaki setningarinnar segir hvorn kostinn beri að velja. Mannleg greind leysir vandann auðveldlega, en hvernig á að búa til tölvuforrit sem getur gert hið sama? Lausnin fundin? Upp úr 1974 heldu menn að þeir væru komnir á sporið. Tölvufræðingar hófust þá handa um að semja forrit er skilið gátu einfaldar frásagnir, s.s. tvær-þrjár setningar. Dæmi: „Jói á afmæli í dag. Siggi vinur hans fór út í búð með fimmtíu krónur. Hann keypti leikfanga- bíl.“ Fólk scm svona frásögn sér getur hæglega lesið á milli línanna, þ.e. áttað sig á því að Siggi vinur hefur farið að kaupa afmælisgjöf handa Jóa, þótt það sé hvergi sagt beinlínis. Lausn tölvufræðinga var að útbúa geymsluforrit sem eru einskonar upp- lýsingabanki. Sérstök geymsluforrit fjalla t.d. almennt um afmælisveislur, aðdraganda þeirra, framkvæmd o.þ.h. Með hjálp slíkra varanlegra forrita héldu menn að tölvur gætu „lesið milli lína“ eins og menn gera. Tökum annað dæmi, t.d. um veitinga- hús. Geymsluforritið á að vita hvað þar gerist og í hvaða röð og þannig hjálpa aðalforritinu að skilja setningar um húsið og það sem þar ber við. Ófullnægjandi lausn „Á ráðstefnunni í Mullsjö kom í Ijós að þessi lausn hefur reynst ófull- nægjandi, enda þótt við eigum nú takmörkuð forrit sem geta glímt við mjög afmarkaða texta. Við sitjum enn uppi með gamla vandamálið11 segir Jörgen. Það er nefnilega svo að fólk getur svarað alls kyns spurningum um til að mynda veitingahús sem engum dytti í hug að setja í geymsluforrit um slík hús, s.s. hvort þar séu gluggar og gólf eða hvaðeina. Það er aldrei hægt að tilgreina allar staðreyndir er tengjast afmælisveislum eða veitingahúsum, svo dæmi séu tekin. Óendanlega margir hlutir geta gerst og staðreyndir eru ótakmarkaðar. Af þessum vanda virðist mega draga eina athyglisverða niðurstöðu, þá að mannleg rökhugsun er ákaflega bundin við þekkingu. Menn álykta út frá þekkingu, og ef hún er ekki fyrir hendi kemst skilningur ekki að. Þetta eru líklega uppörvandi fréttir fyrir þá kennara sem hafa verið tryggir hefð- bundinni áherslu á staðreyndir í skóla- starfi! Gervisjón tölva Tölvurannsóknir í sálarfræði og mál- fræði snúast einnig um tilraunir með tölvueftirlíkingar af mannlegri sjón og heyrn. Það hefur ekki reynst unnt að búa til forrit sem látið getur tölvu skilja mælt mál og snúa því yfir á ritmál. Bandaríkjaher stóð fyrir umfangsmikl- um rannsóknum á þessu sviði á síðasta áratug en þær báru ekki árangur. Meiri árangur hefur orðið á sviði tölvusjónar, þökk sé brautryðendastarfi bandaríkjamannsins David Marr og samstarfsmanna hans við M.l.T. Þeim hefur tekist að gera tölvuforrit sem geta þekkt raunverulega hluti, „séð“ þá í þrívídd. Marr samdi forrit sín á grundvelli líffræðilegrar þekkingar á sjónkerfi manna og forrit hans, þótt takmörkuð séu, varpa kannski ljósi á þaðhvernigviðförum að því aðsjáhluti. Áhyggjur tölvufræðinga Á ráðstefnunni í Mullsjö kom fram að það er nú mönnum vaxandi áhyggjuefni hve flókin sum tölvuforrit eru orðin. Þess eru mörg dæmi að forrit sem í upphafi var fremur auðvelt að átta sig á, en hafa í tímans rás tekið breytingum og verið lagfærð af ýmsum ástæðum, eru nú orðin öllum óskiljanleg. í því sambandi vakna t.d. spurningar um það hver ábyrgð beri á niðurstöðu tölvufor- rits sem enginn skilur. Óviss framtíð Ef til vill er áþreifanlegasti árangur rannsókna á sviði tölvugreindar sér- fræðiforrit í lyflækningum, og örfá önnur af svipuðu tagi, t.d. í efnafræði. í tilviki lyflæknisfræði geymir forrit gríðarlegt magn upplýsinga, þ.e. alla mikilvægustu lyflæknisþekkingu okkar. Með því að spyrja tölvuna einfaldra spurninga má fá á skjótvirkan hátt upplýsingar um lyf og læknisráð, jafnvel greina sjúkdóma o.s.frv. En forrit af þessu tagi gerir engar uppgötvanir, eins og menn vilja að greindar tölvur geri í framtíðinni. „Ég veit ekki - og það veit raunar enginn -“, segir Jörgen Pind, „hvort þeir dagar kunna að koma að spádómar um tölvur sem jafnoka manna að greind verði að veruleika. Sem stendur bendir allt til að slík tíðindi séu ekki á næstu grosum. - GM Geta tölvur orðið jafn- okar eða ofjarlar manna? að óp og skrækir dýra sem voru skorin eða flegin lifandi væru sambærileg við hávaða í biluðum vélum. En látum þann þátt þessarar sögu eiga sig. Annar franskur heimspekingur, La Mettrie, sendi síðar frá sér bók er hann nefndi Vélmennið (1747) þar sem hann hafnaði hugmynd Descartes uiií sálina í mannfólkinu. La Mettrie hélt því fram að enda þótt bæði dýr og menn vissu af sér væri vitundarlíf þeirra aðeins partur af vélbúnaðinum, þáttur í vélgengninni. Á endanum væru menn og dýr á sama báti í lögmálsbundnum heimi. Athafnir manna stjórnuðust af orsökum sem þeir réðu ekki yfir. Heila líkt við tölvu Nú á dögum er vinsælast að líkja starfsemi mannsheilans við starfsemi tölvu. Þeir sem þessu eru andvígir benda á að enda þótt tölvur nútímans geti leyst margs konar reikniþrautir, teflt skák eða haldið uppi einföldum samræðum, þá sé greind þeirra fjarri því að vera sambærileg við hæfni manna. Þessi röksemd er ekki ýkja merkileg, því enginn mælir gegn henni. Það er hitt sem menn eru að velta fyrir sér, hvort tölvur gefi síðar meir orðið jafnokar eða ofjarlar manna. Eins og fram kemur í viðtalinu við dr. Jörgen Pind sálfræðing, annars staðar hér á opnunni, stranda Brot úr hugmyndasögu vélhyggju Próf Turings Við þeirri spumingu hvort unnt sé að segja að tölvur geti hugsað átti breski rökfræðingurinn A.M. Turing svar sem margir telja mjög hugvitsamlegt. Tuming hélt því fram (1950) að ef við gætum smíðað tölvu er svaraði spurningum áþannhátt að menn gætu ekki greint á milli hvort tölva eða maður hefði svarað, þá mætti um þá tölvu segja að hún hugsaði. Turning var sjálfur sannfærður um að fljótlega yrði unnt að smíða slíka vél, og aðeins hleypidómar mundu hindra að við teldum starfsemi hennar til marks um hugsun og greind. Þeir sem andmæla Turning benda á að ekki sé nægilegt að kveða upp dóm um greind tölvu eingöngu á gmndvelli svara hennar. Það er hugsanlegt að svör tölvunnar hafi orðið til á einhvern þann hátt sem ekki er hægt að kenna við hugsun. Það sé ekki nóg að niðurstaða tölvunnar beri merki hugsunar, aðferð hennar verður líka að gera það. Vélmenni Greindar tölvur em stundum kallaðar vélmenni. Vélmenni eru sem kunnugt er mikið hugðarefni vísindaskáldskapar. En víðar koma þau við. Til eru þeir sem í fullri alvöm eru famir að velta fyrir sér jff ■ m «v 0 •%*«* * ■ Heldur ófrýnilegt vélmenni - eða hvað? Teikninguna gerði Masami Miya- moto. siðferðilegum og lagalegum réttindum vélmenna í framtíðini, ef tölvufræðum skyldi takast að búa til svo greindar tölvur að þær verði jafnar mönnum að vitsmunum og ef til vill líkar þeim í útliti. Er saklausara að „drepa“ eða skemma slík vélmenni en menn? Eiga vélmenni að hafa kosningarétt? Á að taka tillit til tilfinninga sem þau kunna að segjast hafa? Vísindarithöfundurinn Carl Sagan, sem íslenskum sjónvarpsáhorf- endum er að góðu kunnur, hefur samið ritgerð til varnar vélmennum. Hann telur að siðferðilega getum við ekki leyft okkur að láta sem þau séu réttlaus sem lífvana steinn. Hugsunarlaus hugsun? Skoðun Carl Sagan er líklega í minnihluta. Ætli hinir séu ekki fleiri sem telja að að kalla megi hugsun slíkra framtíðarvélmenna „hugsunarlausa". í þeim hóp er Brynjólfur Bjarnason. í heimspekiriti sínu Á mörkum mannlegr-1 ar þekkingar 1965) fjallar hann m.a. um tilbúna gervimenn framtíðar: „Slíkir gervimenn", segir hann, „mundu taka við „upplýsingum" skyndihrifanna, geyma þær og vinna úr þeim og haga sér í einu og öllu í samræmi við boð þeirra, á þann hátt er mannsmiðurinn ætlaðist til Það sem greinir slíkan gervimann frá raunverulegum manni, er sú staðreynd, að hann er sálarlaus. Úrvinnslan úr skynhrifunum, sem svarar til hugsunar mannsins, er með öllu ómeðvituð. Hann getur haft sömu viðbrögð og maður gagnvart öllu, sem skaðlegt er fyrir líf hans, og sóst eftir því, sem honum er nauðsynlegt og hagkvæmt, en hann finnur ekki til. Hann gæti hagað sér eins og hann væri haldinn ótta við hið hættulega og fullur græðgi og girndar til alls þess er hann þarfnast til viðhálds lífsins. Samt finnur hann ekki til ótta eða sársauka og nýtur einskis fremur en hver önnur vél. Athafnir hans líkjast að öllu leyti viljaathöfnum mannsins, en sjálfur hefur hann engan vilja. Vilji skapara hans birtist í hverri athöfn hans.“ Kannski, kannski ekki... Kannski hefur Brynjólfur og aðrir andmælendur rétt fyrir sér. Samt er ástæða til efasemda. Er nokkur rökleg ástæða til að halda að í framtíðinni verði ekki hægt að gera forrit handa vélmcnnum sem líkir eftir tilfinningalífi manna, sársaukaskyni, ótta og ánægju? Og ef atferli vélmennis verður ekki greint á neinn hátt frá atferli manna, getum við þá sagt að einhver markverður munur sé fyrir hendi? -GM Leysa tölvur geðlækna af hólmi? ■ Til eru tölvuforrit sem haldið geta uppi einföldum samræðum við menn um tiltekin efni. Spurningar eða staðhæfingar eru vélritaðar og sendar inn í tölvuna. Viðbrögð birtast svo á skjánum. Fyrsta forrit af þessu tagi var samið af Joseph Wiezenbaum, fyrrum prófessor við M.I.T. í Bandaríkjunum, og ein útgáfa þess hefur verið nefnd DOCTOR. DOCTOR líkir eftir samræðum geðlæknis og sjúklings og forritið er samið með ákveðna viðræðu- tækni í geðlækningum í huga. Hún felst í þvi að reyna að fá sjúklinginn til að tjá sig sem mest og halda sér við efnið. Hér er dæmi um samræður af þessu tagi. Ung stúlka hefur leitað til geðlæknis (tölvunnar) og hún á fyrsta orðið (viðbrögð tölvunnar eru prentuð með hástöfum): Menn eru hver öðrum líkir. Á HVAÐA HÁIT Þeir vilja ráðskast með mann. HEFURÐU ÁKVEÐIÐ DÆMI í HUGA Nú, kærastinn minn sendi mig hingað. KÆRASTJNN ÞINN SENDI ÞIG HINGAÐ Hann segir að ég sé oflast svo þunglynd. MÉR ÞYKIR LEITT AÐ HEYRA AÐ ÞÚ SÉRT ÞUNGLYND Það er satt. Ég er óhamingjusöm. HELDURÐU AÐ KOMA ÞÍN HINGAÐ HJÁLPI ÞÉR AÐ VERA EKKI ÓHAMINGJUSÖM Ég þarfnast hjálpar, það er á hreinu. HVERS VIRÐI VÆRI ÞAD FYRIR ÞIG AD FÁ HJÁLP Mér gæti kannski samið við mömmu. SEGÐU MÉR MEIRA AF FJÖLSKYLDU ÞINNI Mamma sér um mig. HVER ANNAR I FJÖLSKYLDUNNI SÉR UM ÞIG Pabbi. PABBI ÞINN Þú líkist pabba svolítið HVAÐ ER LÍKT MEÐ OKKUR Þú ert ekki mjög aðgangsharður, en ég held að þú viljir ekki að ég taki eftir því. HVERS VEGNA HELDURÐU AÐ ÉG SÉ EKKI MJÖG AÐGANGSHARÐUR Þú rífst ekki við mig. HVERS VEGNA HELDURÐUR AÐ ÉG RÍFIST EKKI VIÐ ÞIG Þú ert hræddur við mig. LÍÐUR ÞÉR BETUR AÐ TRÚA ÞVÍ AÐ ÉG SÉ HRÆDDUR VIÐ ÞIG Pabbi er hræddur við alla. HVAÐ ANNAÐ DETTUR ÞÉR í HUG ÞEGAR ÞÚ HUGSAR UM PABBA ÞINN Kúgun. HEFUR ÞAÐ EITTHVAÐ AÐ GERA MEÐ ÞAÐ AÐ KÆRASTINN ÞINN SENDI ÞIG HINGAÐ. Viðtökur DOCTORS Forrit Weizenbaums fór víða (mun m.a. vera til við háskólann hér) og höfðu sumir uppi stór orð um ágæti þess. Það var talið boða þáttaskil í tölvufræðum og raunar einnig geðlækningum. Dagar sjálfvirkra geðlækninga virtust vera að renna upp. Einn bjartsýnismanna gerði það að tillögu sinni að slíkt forrit yrði tengt einhvers konar símakerfi, og mcnn gætu pantað samtöl við tölvuna og rætt við hana í rólegheitum gegnum síma fyrir væga þóknun. Wiezcnbaum sjálfum voru þessi viðbrögð mikið áfall, og þau ásamt annarri rcynslu hans af tölvugreindarrann- sóknum, urðu til þess að árið 1976 sendi hann frá sér bók um siðferðileg álitaefni tengd tölvugreind Máttur tölva og mannleg skynsemi. Þar lælur hann m.a. í Ijós hneykslun sína á þeim hugsunargangi sem hann telur búa að baki viðbrögðum við DOCTOR. Geðlækningar felast í samhjálp og skilningi segir hann í bókinni, ekki vélrænum tæknibrellum. Annað sem vakti ugg Weizenbaum var sú trú sem jafnvel skólaðir samstarfsmenn hans tóku á forritið. Ritari Weizenbaums, sem vann að gerð forritsins með honum mánuðum saman, bað hann eitt sltt í fullri alvöru að yfirgefa vinnuherbergið því hún vildi fá að ræða við tölvuna í einrúmi um persónuleg vandamál sín. Geðlæknar og Turingpróf Önnur forrit af svipuðu tagi hafa verið gerð. Eitt slíkt samdi K.M. Colby og líkir það eftir dæmigerðum svörum sjúklings sem þjáist af geðvillu. Colby líkir þessu forriti við Turingpróf, sem minnst er á annars staðar á síðunni. Ef geðlæknar geta ekki gert greinarmun á svönim alvöru sjúkUngs og tölvunnar við spumingum um sjúkdómseinkenni og annað tUheyrandi, þá telur hann það mikinn sigur fyrir sjónarmið tölvugreindar. Geðlæknar hafa falUð á þessu prófi - sumir segja unnvörpum - en menn hafa hins vegar dregið ályktun Colbys af þvi í efa. Geðlækna er enn þörf - og að líkindum mun þeirra verða þörf um langt skeið enn, hvað sem tölvuforritum Uður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.