Tíminn - 19.09.1982, Blaðsíða 14

Tíminn - 19.09.1982, Blaðsíða 14
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 erlendir leigupennar ■ Halló, (lagsmaður!!) nú er illt í efni! Hér hafa undanfarið gerst slík feikn og býsn af firnum og fjarskalega undarleg- um stórtíðindum, að allt er komið í ó- skunda einn óguðlegan og gífurlegri öðr- um slíkum á undan komnum. Ég á ekki við svona smotterí einsog um daginn þeg ar Loðinbarði læddist inn til drottningar- innar í morgungufunni fáklæddur, né aðgerðaleysi annarra manna í milljónavís, sem ekki eru jafn lævísir að næturþeli. Nei, maður lifandi, allt var það ókey (Sbr.: „Hey Gummi, þetta reddast allt...“), og enda fátt um slíkt rætt fram á nótt á siðuðum heimilum. Heldur og öllu fremur á greinarhöfundur við það írafár allt, sem gripið hefur alla hérlenda alþýðu manna og kvenna, sem og aðrar innfluttar sortir, þegar henni hefur orðið Ijós sú óvéfengjanleg staðreynd, að ekki er allt með felldu, og annað í verra ásigkomulagi og aumara á heimili breska ljónsins. Sumir telja það sjálft jafnvel orðið dáldið sloj!! Já, herra minn trúr, þetta eru hörmuleg tíðindi. Gagnvart uppljóstrun- um af svona kalíberi standa menn og konur ráðþrota og aðgerðarlaus, ef undan er skilin sú hógværa leikfimi, ■ Undanfarnar vikur og mánuði hefur enska þjóðin verið döpur í bragði sökum ástandsins á þjóðarskútunni. HVÍ ER BRETLAND STÓRFENGLEGT OG MAGNAÐ! Bretland er undursamlegt vegna þess að þjóðin er slík - sýnum nú heiminum kvuddnin við erum sam- an soðin! Undir þessi digurbarkalegu ummæli skrifar svo Mary Whitehouse, CBE, og þá liggur málið ljóst fyrir. Ef einhver skyldi samt vera svo djúpt sokkinn, að ekki megi hafa bata af svona löguðu, þá eru fleiri reiðubúnir að leggja orð í belg: HVÍ ER BRETLAND STÓRFENGLEGT OG MAGNAÐ! Mér finnst að við ættum að gera allt til þess að heimta úr helju fyrri stórfenglegheit okkar lands; hin vansæla veröld nútímans þarfnast illilega áhrifa frá hinu jafnvæga og þaulreynda Englandi. Þetta segir hnefaleikagarpurinn og nefbrjóturinn Alan Minter, og má gera ráð fyrir að honum sé hin fúlasta og mesta alvara. Og í sama streng togar háttvirtur þingmaður og leiðtogi Frjáls- lynda flokksins. Honum falla svo orð: HVI ER BRETLAND STOR- FENGLEGT OG MAGNAÐ? WHY BRITAINIS QREATl Brltaln Is great because her people are—let’s show the world what we’re made ofl Ma/y Whltohouoo CBE WHY BRITAINISGREATI I thlnk we should do whatever we can to make our once great country great again, a steadying and experienced infiuence such as England, is badly needed In the chaotic world of today. Alan Mlnter WHY BRITAIN IS GREATI Britaln Is great because it stlll possesses one trump card not avallable to others—the inventive- ness, the tolerance, the common sense; in fact the neglected genius —of its peoples. The Rt. Hon. DavldSteel, M.P. WHY BRITAIN ISGREATI Help to defeat unemployment. Buy British produots. Buy Britlsh matches. Joe Qormley OBE grátur og gnístran tanna (heppilegt innisport), og enda fátt um fína drætti í þjóðarreddingarbransanum. Reyndar fréttist af tilraunum ríkisstjórnarinnar í vor, þegar reynt var að „peppa liðið upp“ suðrí Falklandi, en helsti fáar heimildir bárust þaðan marktækar um úrslitin í því experímenti. Að öðru leyti hefir verið hér þvísemnæst snoðið framkvæmdaleysi og ekki að undra. Þangað til nýskéð,... það er að segja. Það er altalað á flcstum tungumálum, að fátt sé óbrigðulla hér á heimsins tárakúlu, en að þegar neyðin er stærst, þá sé hjálpin næst, og mun sé gæfulegra að bíða átekta þegar fokið er í flest skjól, fremur en að grafa sig í fönn eða mýri (á þessu snjallræði eru til staðfestar undantekningar-grhöf) Enda fór einmitt svo í þessu tilviki, að hjálpin barst á elleftu stund, og urðu allir hérlendis og ofanjarðar vitni að giftusamlegri björgun. Nú skal sagt frá henni. Ekki telur undirritaður sig verri mann fyrir vikið, þótt hann viðurkenni á prenti fáfræði sína um öll þau vísindi, sem fjalla um sálartötrið í sjálfum sér (og öðrum, vitaskuld), enda vafamál hvort það geti þrifist heilbrigð sál í svo ófrískum líkama sem hann hefir yfirumsjón með. Hinu ber þó síst að leyna, að hann hefur af ótakmarkaðri eljusemi í þágu lesenda Helgar-Tímans viðað að sér hinum og þessum fróðleiksmolum um þá lógýju, og (og nú verður hann hátíðlegur, helv. maðurinn) vill nú bjóða lysthafendum að smakka á einum slikum, svo sem efni greinarinnar verði þeim sem Ijósast að loknum lestri. ÞOKKALEGUR FRÓÐLEIKSMOLL Það er samdóma álit sálfræðimanna - >að fátt sé vænlegra til geðbóta niðurbrotins manns en að færa honum í löngum bunum gleðifréttir og góðtíðindi af þeim frænda, fugli eða fyrirbæri, sem ætla má að valdi þunglyndi sjúklingsins og hemji hann frá þátttöku í starfi og leik nágranna sinna. Þannig má tilamynda sprækja deprimeraðan dreng, sem er nýbúinn að jarðsetja fugl í rabbarbarabeði móður sinnar, með því að fullvissa hann um vænni stundir dýrsins meður engla. Á sama hátt er þjóðráð að gleðja vondauft púplíkúm, sem övæntir um hag sinn á næstu dögum með hvatningarorðum og vilhollum málsháttum, semog upprifjunum á gömlum glæsifréttum og skemmtisögum. Ætla má, að ef málið er sótt fast, og ekki slakað á eina ögurstund, þá muni skjótt hýrna yfir sjúklingnum og hann vonum fyrr taka aptur bæði gleði sína óske'rta, og hlutverk sitt í samfélaginu á ný. Ég þykist géta nærri um, að forráðamenn eldspýtnagerðarinnar Bry- ant & May’s hafi haft undir höndum viðlíka haldgóða fróðleiksmola, þegar þeir ákváðu að láta ekki lengur vaða með aðge'rðarleysi sitt gagnvart vaxandi vansælu íbúa Stóra-Bretlands og geigvænlegt hugarvíl, heldur öllu fremur að spyrna nú við fótum hart, og segja hátt og snjallt: „Hingað og ekki lengra. Nóg er að starfað í bili, og mál til komið að hemja vágestinn Vonleysi; slíkt skítseyði og fretnaglaforingja viljum við trauðla ala lengur, heldur senda hann í sextugt sædýpi, sjúskaðan og velktan." Og ekki létu þeir sitja við orðin tóm (fremur en endranær, geri ég ráð fyrir), heldur upphófu samstundis eina magnaða baráttu gegn andskota sínum, með síkvika síkólógíkina að bakhjarli. Fyrr en varði (Sigurður Dagsson) birtust á markaðnum slíkir eldspýtnastokkar, sem ætla má að séu kraptmesti elexír gegn fyrrgreindu volæði mögnuðu. Ekki er hæfilegt að hafa mörg orð svosem um gæði eldspýtnanna, né skortir margt á fagurfræðilegan frágang umbúðanna. En séu menn útbúnir athyglisgáfu í meðalupplagi, þá leggja þeir skjótt merki til einnar dándífínnar lesningar aptan á stokknum. Hér fylgja örfá sýnishorn: HVÍ ER BRETLAND STÓRFENGLEGT OG MAGNAÐ! Bretland er stórfenglegt og magnað sökum þess að það hefir það tromp á hendi, sem ekki er öðrum þjóðum gefið - snjallræðni, þolinmæðina, skynsemina! já reyndar vanrækta snilligáfu þjóðarinnar allrar. Önnur stórmenni hafa einnig tjáð sig um málið, og enda varla feimnismál að leggja hönd á plóginn í svo veigamikilli baráttu. En látum Jóa Gormley hafa lykilorðið, enda sá eini af öllu þessu liði, sem hefur samúð með upphafsmönnum björgunartilraunarinnar, þeim Bryant og May. Hann leggur eptirfarandi til: HVÍ ER BRETLAND STÓRFENGLEGT OG MAGNAÐ! Hjálpumst að til að hnekkja atvinnuleysinu. Kaupið enskar vörur. Kaupið enskar eldspýtur. Séu saman spyrtar í drjúga syrpu allar uppástungur þeirra fjórmenninganna, semog annarra sem ekki er getið hér, þá má ætla að fáir ef nokkrir standi úrræðalausir í baráttunni, ef hugur stendur til aðsjónar, en hinir hafi nokkra huggun harmi gegn. Og því má það heita óhressandi sjúklingur, sem þverskallast við að hafa af þessari speki nokkra lækningu, heldur þvert á móti ítrekast enn í víli sínu og volæði. Og enda hefur ekki enn frést af slíku hyski, heldur eru allir læsir eldspýtnanotendur orðnir hinir sprækustu, og þeirra ættingjar og vinir í mikilli betrun. Er von manna og trú að skjótt muni skipast veður í lofti, og að í hönd fari betri tíð með blóm í haga. Ekki telur undirritaður þó sennilegt að svo muni fara, bókstaflega séð, þar sem nú haustar að með næturfrostum og nokkrum rigningum, en hér er nú ekki verið að ræða um efnisheiminn, heldur andleg verðmæti, ekki satt? Og því má ætla, ef menn hlýta boðorðum hans Jóa Gormley, og fari að kaupa enskar eldspýtur til stórreykinga og matseldar, semog annarra uppljóstr- ana, þá verði deprimeruð ensk alþýða jafn fágæt sjón á götum úti og ég veit bara ekki hvað. (t.d. refir.) Ekki tel ég hæfilegt að fara að minnast á önnur smátíðindi á eptir svona stórfrétt, enda falla önnur mál í skuggann af þessu áttunda undri veraldar. Læt ég því staðar numið að sinni, og ef ég tek sjálfur þvílíkri stökkbreytingu og aðrir hérlendis, þá er eins víst að næsta pistil riti nýr og betri maður. Annars bara ég. Gunnlaugur 6. Johnson skrifar frá London

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.