Tíminn - 16.11.1982, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982
7
erlent yfirlit
■ VALDATAFLINU, sem menn
buggust við, að myndi fylgja í kjölfar
láts Brésnjefs er lokið að sinni. Juri
Andropof hefur verið valinn í hina
valdamiklu stöðu aðalritara Kommún-
istaflokksins.
Pað var fyrst að ráði farið að tala um
Andropof, sem líklegasta eftirmann
Brésnjefs, þegar hann var færður á
síðastl. vori úr stöðu yfirmanns leynilög-
reglunnar KGB og í eina af tíu fram-
kvæmdastjórastöðum flokksins.
Það er ekki úr vegi að rifja hér upp
grein, sem birtist hér í blaðinu 5. júní
sl. og var á þessa leið:
„Það er bersýnilegt, að mikið valdatafl
hefur farið fram og fer enn fram bak við
Kremlarmúra, þar sem teflt er um það
hver eigi að taka við af Brésnjef.
Ýmsir fréttaskýrendur töldu líklegt,
að þetta tafl hefði verið á enda kljáð,
þegar Juri Andropof var skipaður einn
af tíu framkvæmdastjórum eða riturum
Kommúnistaflokksins og lét litlu síðar
af framkvæmdastjórn leynilögreglunnar,
sem gengur undir skammstöfuninni
KGB.
Þeta þótti styrkja verulega stöðu
Andropofs, þar sem óheppilegt hefði
þótt að færa hann beint úr framkvæmda-
stjórastarfinu hjá KGB í sæti Brésnjefs.
Yfirleitt er líka blærinn sá hjá rússnesk-
um fjölmiðlum, þegar þeir fjalla um
þessa breytingu á högum Andropofs, að
skilja má, að menn hafi færzt upp á við.
Aðrir fréttaskýrendur eru þeirrar
skoðunar, að keppninni um eftirmann
Brésnjefs sé engan veginn lokið. Enn
mun Brésnjef sjálfur halda því til streitu,
■ Juri Andropof.
Valdatafli í Kreml
er lokid ad sinni
Andropof valinn eftirmaður Brésnjefs
að nánasti samverkamaður hans, Kon-
stantin U. Chemenko, taki við af
honum.
Sumir ganga meira að segja svo langt
að segja, að Andropof hafi verið fluttur
úr framkvæmdastjórastöðunni hjá KGB
vegna þess, að hann lét hefja rannsókn
á fjármálabraski, sem ættmenn og
tengdafólk Brésnjefs hafi verið riðið við.
Þá hafi Brésnjef viljað koma í veg
fyrir, að Andropof gæti notfært sér KGB
í valdataflinu, líkt og Beria reyndi
forðum.
Þótt ekki sé hægt að taka fullt mark
á þessum getgátum, virðist það samt
sennilegast, að umræddu tafli sé engan
veginn lokið. Taflið hafi hins vegar
þrengzt og snúist nú um þá tvo,
Andropof og Chemenko. Fyrirætlanir
Brésnjefs um að gera Chernenko að
eftirmanni sínum hafi mætt mótspyrnu
og andstæðingar hans tefli Andropof
gegn honum. Vel getur farið svo, að
engin ákvörðun verði tekin meðan
Brésnjef er við völd, en verði hún tekin
eftir daga hans, bendir sitthvað til þess
að Andropof verði hlutskarpari.
EINS og málin standa nú, virðist
formleg staða þeirra svipuð. Báðir eiga
sæti í hinni voldugu framkvæmdanefnd
flokksins og báðir em framkvæmdastjór-
ar eða ritarar hjá flokknum. Síðan
Andropof fékk ritarastöðuna hefur þeim
báðum verið teflt fram til meiri háttar
ræðuhalda. Það er eins og reynt sé að
gera ekki upp á milli þeirra.
Þegar nánar er aðgætt, virðist
persónuleg staða Andropofs öllu betri.
Hann er búinn að vera lengur í
framkvæmdanefndinni og er sennilega
heldur vinfleiri þar.
Þá er hann þremur ámm yngri en
Chemenko. Andropof verður 68 ára 14.
þ.m.
Annars þekkj a erlendir fréttaskýrend-
ur lítið til þeirra Andropofs og Chern-
enkos persónulega, því að þeir hafa
unnið mest að tjaldabaki. Þó þykjast
þeir hafa heimildir fyrir því, að Androp-
of sé viðfelldnari í viðmóti og geti verið
þægilegri og léttari í viðræðum. Hann sé
einnig vanari að taka ákvarðanir á eigin
spýtur sem framkvæmdastjóri KGB.
■ Chemenko.
Sennilega sé Chernenko enn meiri
línumaður og þrengri í skoðunum,
annars sé erfitt að dæma um þetta, því
að Chernenko hefur í enn ríkari mæli
þurft að vera bergmál af Brésnjef en
Andropof.
Þegar allt kemur til alls, virðist
niðurstaðan sú, að Andropof sé að ýmsu
leyti betur til forustu fallinn. Valið
myndi því falla á hann, ef Brésnjef stæði
ekki enn með Chernenko.
ANDROPOF verður eins og áður
segir 68 ára 14. þ.m. Hann er kominn
af fátækum ættum og fór ungur að
starfa hjá flokknum. Um skeið var hann
leiðtogi æskulýðssamtaka kommúnista í
Kyrjálafylkinu og varð þá náinn sam-
starfsmaður Kuusinens, sem Rússar
hugðu eitt sinn að gera að stjómanda
Finnlands. Sagan segir, að Andropof
hafi ýmislegt lært af Kuusinen, en hann
þótti fremur frjálslyndur afkommúnista
að vera.
Andropof hækkaði fljótt í tign og var
orðinn sendiherra Sovétríkjanna í Ung-
verjalandi, þegar uppreisnin varð þar
1956. Hann átti sinn þátt í að bæla hana
niður, en ýmsir þakka honum, að
Ungverjum hefur verið veitt meira
svigrúm en öðrum austantjaldsþjóðum
til að fara eigin leiðir í efnahagsmálum.
Árið 1957 var Andropof kvaddur
heim frá Ungverjalandi og skipaður einn
af tíu ritumm eða framkvæmdastjórum
Kommúnistaflokksins. Hann fékk það
hlutverk að stjórna þeirri deild flokksins,
sem hafði með höndum samskiptin við
Austur-Evrópulöndin. Andropof þekkir
því vel til málefna Austur-Evrópu.
Þessu starfi gegndi Andropof í 10 ár.
Árið 1967 lét hann af ritarastarfinu,
þegar hann var skipaður yfirmaður
KGB. Sú skipan kom nokkuð á óvart,
því að hann hafði aldrei áður tekið þátt
í störfum leynilögreglunnar. Þessu starfi
hefur Andropof gegnt í 15 ár, eða
þangað til að hann lét nýlega af því, eins
og áður segir. Andropof hefur átt sæti í
framkvæmdanefnd flokksins (politbur-
eau) síðan 1973.
Það er talið, að Brésnjef hafi ráðið
mestu um, að Andropof var skipaður
yfirmaður KGB, því að hann hafi verið
búinn að fá traust á honum. Síðan hefur
verið góður kunningsskapur milli þeirra
að sögn. Andropof er sagður hafa verið
tfður gestur í hinum veglega sumarbú-
stað Brésnjefs.
Eftirmaður Andropofs sem yfirmaður
KGB hefur verið skipaður Vitaly V.
Federochuk. Hann byrjaði ungur að
starfa hjá KGB. Hann hefur síðan 1970
verið yfirmaður KGB í Úkraínu. Hann
er 64 ára.“
Þórarinn Þórarinsson, j
ritstjóri, skrifar
erlendar fréttir
■ Dauði Brésnjéfs gaf þjóðaleiðtogum tækifæri til að bera saman bækur
Útför Brésnjévs fór fram
f gær:
Viðræður
í Moskvu
■ Útför Leonids Brésnjévs leiðtoga
Sovétríkjanna fór fram í gær að
viðstöddum mesta fjölda erlendra
sendimanna, sem komið hafa til
Moskvu við eitt og sama rækifærið.
Jarðneskar leifar sovéska leiðtogans
voru lagðar til hinstu hvílu í Kremlar-
múrnum, þar sem nokkrir af helstu
stórmennum Sovétríkjanna hvíla.
Jurí Andropov, eftirmaður Brésn-
jévs sagði að hinn látni leiðtogi hefði
verið velgjörðamaður sovésku þjóð-
anna, sem og baráttumaður fyrir
friði í heiminum. Hann lýsti því yfir
að starfi hans yrði haldið áfram og
að Sovétríkin vildu lifa í friði og
vináttu við allar þjóðir.
Eftir útförina átti Andropov og
sovéski utanríkisráðherrann, Andrei
Gromyko viðræður við varaforseta
Bandaríkjanna George Bush, en
hann var fyrir bandarísku sendi-
nefndinni við útförina. Bush sagði
eftir fundinn að viðræðurnar hefðu
verið hreinskilnislegar og vinsamleg-
ar. Tass fréttastofan vitnaði til And-
ropovs í frásögn sinni af viðræðunum
og sagði.Andropov hafa lýst yfir vilja
sínum til að bæta sambúð stórveld-
anna tveggja á grundvelli gagn-
kvæmra hagsmuna og gagnkvæmrar
virðingar, með bætta sambúð þjóða
heims að leiðarljósi. Einnig áttu
sovésku leiðtogarnir viðræður við
forsætisráðherra Indlands, Indiru
Gandhi. Þá hefur það vakið athygli
að kínverski utanríkisráðherrann
mun dvelja í Moskvu til þriðjudags,
væntanlega í þeim erindagerðum að
ráðgast við sovéska leiðtoga um
bætta sambúð Sovétríkjanna og
Kína.
Walesa vill
samkomulag
Lech Walesá'leiðtogi Samstöðu í
Póllandi er kominn heim til Gdansk,
en hann var látinn laus úr stofufangelsi
um síðustu helgi. Walesa átti fund
með erlendum fréttamönnum í gær
og var hógvær í tali. Hann kvaðst
trúa því að hægt væri að ráða fram
úr vandamálum Póllands á friðsam-
legan hátt. Walesa sagði að hann
hefði lítið aðhafst í stofufangelsinu,
en hann hefði ekki samið um neitt
við stjórnvöld, né skrifað undir eitt
eða neitt gegn því að verða látinn
Iaus.
Walesa sagði að hann hefði lifað í
einangrun og hann yrði að fá tíma til
þess að átta sig á þeim viðhorfum
sem nú eru ráðandi hjá pólskum
stjórnvöldum. Talið er að um 1000
manns hafi fagnað honum er hann
kom til Gdansk, fólkið hrópaði
vígorð til stuðnings Samstöðu, en
Walesa nefndi ekki Samstöðu á nafn
í stuttu ávarpi sínu. Opinberir fjöl-
miðlar í Póllandi hafa ekki ennþá
greint frá því að Walesa hafi verið
látinn laus.
Jaruzielski lýsir yfir:
Herlögum
verður aflétt
Jaruzielski hershöfðingi, yfirmað-
ur herforingjastjórnarinnar í Pól-
landi lýsti því yfir í Moskvu í gær í
viðræðum við Andreas Papandreou,
forsætisráðherra Grikklands að her-
lögum yrði aflétt í Póllandi fyrir
næstu áramót, það væri ákvörðun
sem ekki yrði breytt. Hann nefndi
ekki nánar hvenær mætti vænta þess
að ákvörðun um afléttingu herlaga
yrði hrint í framkvæmd. 13. desemb-
er n.k. verður eitt ár liðið frá því að
herlög voru sett í Póllandi,
verkalýðssamtökin „Samstaða" voru
bönnuð og leiðtogi þeirra. Lech
Walesa var hnepptur í fangelsi.