Tíminn - 16.11.1982, Side 13
Illllllllllll I
ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1982
______21
ályktanir
■ Guðmundor G. Þorannsson a tali við mæðgumar Sigrúnu Sturiudóttur og Auði Þórhallsdóttur.
■ Hér sitja þeir Haukur Ingibergsson, sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins frá næstu áramótum og Þráinn Valdimarsson sem senn lætur
af störfum framkvæmdastjóra, 18. flokksþingið þakkaði honum vel unnin störf
í þágu flokksins um langt árabil. Tímamynd Róbert
■ Meðal framsóknarkvenna sem sátu flokksþingið voru Dóra Guðbjartsdóttir,
Þóra Þorleifsdóttir og Sigrún Magnúsdóttir. Tímamynd Ella
1) Með því að koma á annarri rás við
Ríkisútvarpið.
2) Með því að koma upp aðstöðu til
hljóðritunar og útsendinga í öllum
landsfjórðungum og hefja staðbundið
útvarp.
3) Með því að veita landssamtökum og
sambærilegum aðilum aðgang að út-
sendingarkerfi útvarpsins fyrir eigin
dagskrá.
Flokksþingið leggur áherslu á forystu-
hlutverk Ríkisútvarpsins sem fjölmiðils
allrar þjóðarinnar. Jafnframt telur þing-
ið að til álita komi að öðrum aðilum
verði leyft að útvarpa og sjónvarpa, að
fullnægðum ákveðnum skilyrðum.
Grunnskóli
Framsóknarflokkurinn leggur áherslu
á að auka tengsl skóla og foreldra. Þetta
má gera með því að hvetja til aukinnar
handleiðslu þeirra við nám heima fyrir
og gefa þeim kost á að taka þátt í
félags-og tómstundaiðkana innan veggja
skólans.
Vegna vaxandi þátttöku kvenna í
atvinnulífinu færist uppeldishlutverk í
síauknum mæli til skólans, þarf því að
leggja áherslu á að búa nemendur hlýlegt
og þroskavænlegt námsumhverfi, fjöl-
breytt verkefnaval og efla með þeim
sjálfstæð vinnubrögð og hugsun, svo og
hæfni til samstarfs við aðra.
Að betri tengsl og ráðgjöf þarf að vera
milli grunnskólans, og framhaldsskól-
ans, þannig að nemendum sé ljóst
hverjir möguleikar eru til náms að
loknum grunnskóla.
Að verkleg menntun og tækninám
þarf að skipa veglegan sess í menntakerfi
landsins, og þeirri stefnu fylgt eftir í
framkvæmd. Einnig þarf að huga að
nýskipan menntakerfisins með hliðsjón
af framtíðarstefnu í atvinnumálum.
Að nemendum grunnskóla sé gefinn
kostur á að kaupa máltíðir í skólum.
Styðja skal og efla umferðarfræðslu á
sem flestum sviðum svo fullnægt verði
settum lögum á þessu sviði. Stefna skal
að umferðarmenningu sem fari saman
við öryggiskröfur er eðlilegar teljast
meðal nágrannaþjóða okkar.
Að frágangur og skipulag skólalóða
sé fært í betra horf en nú er víða, til
prýðis og þæginda fyrir nemendur, og til
að glæða fegurðarskyn þeirra og um-
gengismenningu.
Að þrátt fyrir viðleitni núverandi
ríkisstjómar að málefnum fatlaðra. að
beina til þeirra sem mestu fjármagni,
þarf að tryggja meira fjármagn til þeirra
hluta svo að þjálfunar og hæfingarskólar
ríkisins geti sem allra fyrst sinnt því
hlutverki sem þeim er ætlað og blöndun
í almenningsskóla verði framfylgt.
Flokksþingið fagnar þeim breytingum
sem orðið hafa á íslenskum framhalds-
skólum á undanförnum árum. Þessar
breytingar stefna að aukinni menntun í
heimabyggð, betri verkmenntun, fjöl-
þættari námstækifæmm og betri nýtingu
á fyrra námi. Til þess að ná þessum
markmiðum telur flokksþingið stofnun
fjölbrautarskóla um land allt og tilkomu
áfangakerfis við menntaskóla og sér-
skóla mikilsverð spor í skipulagi fram-
haldsskólanna. Sérstaklega ber að fagna
auknum tækifærum til verk- og tækni-
menntunar við tilkomu áfangakerfis í
Vélskóla fslands og Iðnskólanum í
Reykjavík.
Þingið telur að í þessum skólum eigi
nemendur að geta lokið stúdentsprófi til
undirbúnings háskólanámi í tæknigrein-
um. Almennt iðnnám, meistaranám og
nám til stúdentsprófs verði skipulagt
sem ein heild og séu í skipulegum
tengslum við atvinnulífið og hagi starfi
sínu eftir umhverfi og aðstæðum á
hverjum stað. Jafnhliða fagmenntun ber
að leggja sérstaka áherslu á almenna
menntun, íslensku, stærðfræði, tölvu-
fræði og erlend mál. Til þess að tryggja
sem besta nýtingu fjármagns ákveði
hver skóli sjálfur skiptingu þess rekstrar-
fjár sem honum er veitt á fjárlögum og
fjárhagsáætlun.
Efla skal tengsl við grunnskóla annars
vegar og háskóla hinsvegar. Nýta skal
húsnæði og búnað sem best, t.d. með
skólarekstri, fullorðinsfræðslu og eftir-
menntun árið um kring.
Stjórnun framhaldsskólans verði gerð
einfaldari og virkari. Lög um framhalds-
skóla og skólakostnað verði sett hið
bráðasta.
Fullorðinsfræðsla
Fullorðinsfræðslu ber að efla í þeim
tilgangi að auka almenna menntun veita
starfsþjálfun á sérsviðum og skipuleggja
endurmenntun og ýmis konar viðbótar-
þekkingu í hagnýtum tilgangi. Fullorð-
insfræðsla skal fyrst og fremst efld með
auknum stuðningi við það starf, sem
þegar er fyrir hendi á þessu sviði, s.s.
námsflokka bréfaskóla, öldungadeildir
og námskeiðahald á vegum fölmargra
aðila í landinu, svo sem Verkalýðs og
samvinnuhreyfingar.
Eðlilegt er að fullorðinsfræðsla sé
yfirleitt sameiginlegt verkefni ríkis og
sveitafélaga, enda verði slíkri skipan við
komið með góðu móti. Rétt er að ríkið
styrki sérstaklega námsefnagerð í þágu
fullorðinsfræðslu, Æskilegt er að sett
verði sérlög um fullorðinsfræðslumál,
enda verði gætt þeirra sjónarmiða, sem
að ofan getur.
Háskóli íslands.
Með tilliti til þess, að Háskóli íslands
er æðsta menntastofnun landsins verður
að efla hann svo að hann geti sinnt þeim
skyldum, sem honum samkvæmt lögum
er gert að gegna. Sívaxandi nemenda-
fjöldi í háskólanum krefst aukins hús-
rýmis og fleira kennara og starfsliðs.
Nauðsynlegt er að gera áætlun um
þróun háskólans nokkur ár fram í
tímann, þar sem í senn er hugað að
kennslu, námsgreinum, rannsóknum og
nemendafjölda.
í þessu sambandi er rétt að benda á
að samræma þarf stefnu í menntamálum
á framhaldsskólastigi og háskólastigi.
Stuðla ber að eflingu rannsókna á sviði
íslenskrar menningar og náttúru og í
þágu þjóðlífs og atvinnuvega lands-
manna, bæði við háskólann og aðrar
rannsóknarstofnanir.
*
Alyktun um öryggis- og
utanríkismál
Framsóknarflokkurinn telur það meg-
inmarkmið utanríkisstefnu íslands að
treysta sjórnarfarslegt og efnahagslegt
sjálfstæði landsins, stuðla að vinsam-
legum samskiptum þjóða og auðvelda
þannig samninga um afvopnun og varð-
veislu friðar. Þegar þjóðir heims verji æ
hærri fjárupphæðum tii vígbúnaðar og
stórveldi heimsins framleiða sífellt ægi-
legri gereyðingarvopn, hlýtur það að
vera eitt helsta verkefni mannkyns að
hindra að þessi. vopn verði notuð.
íslendingar hljóta að leggja öllum þeim
öflum lið, sem af einlægni vinna að því
að friður haldist.
Framsóknarflokkurinn vill ná þessum
markmiðum með eftirgreindum hætti
meðal annars:
1) Að íslendingar leitist við að eiga góð
samskipti við allar þjóðir. Þátttaka
íslands í starfi Sameinuðu þjóðanna,
í Norðurlandaráði og í Evrópuráðinu
eru hornsteinar þessarar stefnu. Sam-
starf við nágrannaþjóðirnar á sviði
öryggismála er nauðsynlegt eins og
málum er nú háttað.
2) Að starfsemi Sameinuðu þjóðanna
verði efld og þeim gert auðveldara en
nú er að tryggja frið í heiminum.
3) Að unnið verði að því að endurvekja
slökunarstefnuna í Evrópu. í því
sambandi er mikilvægt að samkomu-
lag náist á Madridfundinum um að
kalla saman ráðstefnu um öryggismál
Evrópu, þar sem Bandaríkin og
Kanada verði þátttakendur ásamt;
Evrópuríkjunum.
4) Að lögð sé mikil áhersla á að
samningar náist um bann við tilraun-
um með kjarnorkuvopn og fram-
leiðsla þeirra stöðvuð.
5) Að jafnhliða banni við framleiðslu og
notkun kjarnorkuvopna og annarra
gereyðingarvopna verði unnið að
samningum um alhliða gagnkvæma
afvopnun.
6) Að íslendingar noti hvert tækifæri
sem gefst til að vara við auknum
kjarnorkuvopnabúnaði og vaxandi
hernaðarumsvifum á Norður-Atlants-
hafi. Stefnt verði að því að kalla
saman ráðstefnu um þessi mál eins og
þingmenn Framsóknarflokksins á Al-
þingi hafa lagt til.
7) Að styðja sérhverja viðleitni sem
miðar að því að hjálpa þróunar-
löndum til sjálfsbjargar og stuðla að
því að þau nái jafnrrétti við aðrar
þjóðir.
Framsóknarflokkurinn vill taka þátt í
varnarsamstarfi vestrænna þjóða, en vill
jafnframt að erlendur her hverfi héðan
jafnskjótt og aðstæður leyfa. Það er
stefna Framsóknarflokksins að staðið
skuli við skuldbindingar íslands gagnvart
Atlantshafsbandalaginu, þannig að það
þjóni fyrst og fremst öryggishagsmunum
íslensku þjóðarinnar. Unnið verði að
því að skilja enn frekar á milli herliðs
og þjóðar en nú er og umsvif vamarliðs-
ins verði sem minnst.
Nauðsynlegt er, að gerð sé grein fyrir
því með hvaða hætti ætlunin er að verja
ísland ef til átaka kemur. Slík vitneskja
er nauðsynleg fyrir starfsemi Almanna-
varna ríkisins.
'Brýna nauðsyn ber til að efla rann-
sóknir í utanríkis- og öryggismálum, og
skal Framsóknarflokkurinn stuðla að
því að fram fari opinskáar og málefna-
legar umræður um þau efni. í þeim
tilgangi skal flokkurinn efna til ráðstefnu
um þau mál.
Framsóknarflokkurinn fagnar því að
hafréttarsáttmáli verður undirritaður í
næsta mánuði og væntir þess að sem
flestar þjóðir fullgildi hann.
Framsóknarflokkurinn leggur áherslu
á mikilvægi þess að utanríkisþjónustan
vinni sem best að utanríkisviðskiptum
og markaðsöflun. Þetta sjónarmið þarf
að hafa í huga við skipulag utanríkis-
þjónustunnar og staðsetningu fulltrúa
hennar erlendis.
Framsóknarflokkurinn telur brýnt að
unnið sé að því að koma á samstöðu
þjóðarinnar um meginatriði utanríkis-
mála.