Tíminn - 01.12.1982, Blaðsíða 11
10
Leikfansa
húsið Sími 14806
SkólavöröustíglO
barbie hundasleðar
Póstsendum
Draumur barna
barbie dúkkur föt bílar húsgögn
barbie hestar
barbie sundlaugar
barbie píanó
Fisher-Price leikföng
Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónusta
Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við
eða breyta raflögnum, minnir Samvirki
á þjónustu sína með harðsnúnu liði rafvirkja,
sem ávallt eru tilbúnir tii hjálpar.
samvirki
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI r SÍMI 44(566
=v
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1982.
MIDVIKUDAGUR 1.1
AlbertGudmundssonsigurvegarií prófkjöri sjáifstædismanna íReykjavKk:
„AUÐVITAÐ HEF ÉG ORÐ-
IÐ FYRIR VONBRIGBUM”
- segir Geir Hallgrfmssonrformaður flokksinsrsem hafnaði óvænt Í7.sæti
■ Albert Guðmundsson var ótvíræður
sigurvegari í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík eins og Tíminn greindi
frá í gær. Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins hlaut slæma útreið
og lenti í 7. sæti en í efstu sætunum, eða
2. til 6. sæti voru þau Friðrik Sophusson,
Birgir ísleifur Gunnarsson, Ellert B.
Schram, Ragnhildur Helgadóttir og
Pétur Sigurðsson. Það vekur athygli að
í sjö af 10 efstu sætunum eru lögfræðing-
ar og aðeins ein kona er í hverju af
10 sætunum.
Þátttaka í prófkjörinu var mjög góð,
en prófkjörið stóð bæði sunnudag og
mánudag. Alls kusu 8155. Atkvæði
dreifðust þannig að Albert fékk 6027
atkvæði, Friðrik 5670, Birgir ísleifur
5608, Ellert 5386, Ragnhildur 5137,
Pétur 4698, Geir Hallgrímsson 4414,
Guðmundur H. Garðarsson 4199, Jón
Magnússon, 4173, Geir Haarde, 4107,
Bessí Jóhannsdóttir 2932 og Elín Pálma-
dóttir 2706. Kosningin er bindandi í 10
efstu sætin, þar sem frambjóðendurnir
hlutu yfir 50% greiddra atkvæða.
Tíminn hafði í gær samband við Geir
Hallgrímsson, formann Sjálfstæðis-
flokksins, og spurði hann nokkurra
spurninga varðandi úrslit prófkjörsins:
„Ég er ánægður með þátttökuna í
prófkjörinu, og tel að hún bendi til þess
að styrkur Sjálfstæðisflokksins sé mikill.
Ég óska mínum meðframbjóðendum
sem náðu mjög góðum árangri allra
heilla en varðandi mína eigin útkomu
hef ég auðvitað orðið fyrir vonbrigðum. “
Geir var að því spurður hvort hann
kynni einhverjar skýringar á eigin út-
komu í prófkjörinu: „Nei, ég held ég láti
allar skýringar lönd og leið. Það verður
bara að taka niðurstöðunni eins og hún
kemur fyrir.“
Geir var jafnframt spurður að þvi
hvort vænta mætti einhverja tíðinda frá
honum á flokksráðs, og formannafundi
Sjálfstæðisflokksins um næstu helgi: „Ég
mun auðvitað gera grein fyrir stöðu mála
og horfum í ræðu minni.“
Geir var spurður hvað væri framundan
hjá honum, þ.e. hvort hann hygðist sitja
í 7. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í næstu alþingiskosningum, eða hvort
hann hygðist draga sig í hlé fyrir þann
tíma: „Ég held að formaður kjörnefndar
hljóti að ræða þessi mál við mig, áður
en ég svara blaðamönnum um þessi efni.
Tíminn hafði samband við Guðmund
H. Garðarsson, sem er formaður full-
trúaráðs Sjálfstæðisflokksins, og spurði
hann hvort það hefði eitthvað komið til
tals hjá ráðsmönnum að reyna að hnika
einhverju til á listanum og breyta ef til
vill uppröðun, þannig að Geir Hall-
grímsson yrði boðið sæti ofar á listanum:
„Þetta er bindandi kosning á 10 efstu
sætunum samkvæmt þeim reglum sem
eru um prófkjör. Það hefur ekki tíðkast
innan Sjálfstæðisflokksins að breyta því
sem þannig hefur verið ákveðið, nema
■ Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðísflokksins vill ekki á þessu stigi, tjá sig
um það hvað er framundan hjá honum í stjórnmálunum.
einhver frambjóðendanna óski sérstak- fjalla um það, ef einhver ósk kemur fram
lega eftir þvt'. Þá er það kjörnefndar að þar að iútandi." -AB
Hafa úrslit prófkjörsins áhrif á formennsku Geirs Hallgrímssonar?
„Verdur auðvitað að
vera hans ákvörðun”
— segir Albert Guðmundsson, sigurvegari prófkjörsins
■ „Ég hef varla haft nokkurn tíma til
þess að hugsa um þessi úrslit eða reyna
að túlka hvað þau þýði,“ sagði ótvíræður
sigurvegari prófkjörs sjálfstæðismanna,
Albert Guðmundsson, í viðtali við
Tímann, en Albert varð, eins og kunnugt
er, í 1. sæti og hlaut hann 6027 atkvæði.
Albert var spurður hvort þessi úrslit
hefðu komið honum á óvart: „Já, þau
komu mér svo sannarlega á óvart. Ég
bjóst við að Geir, Birgir, Friðrik og ég
yrðum í fjórum til fimm efstu sætunum,
þannig að þetta kom mér mjög á óvart.
Ég átti ekki von á því að Ellert kæmi
svona sterkur út, en reiknaði hins vegar
með Ragnhildi eins sterkri og hún var.
Þá voru einnig nöfn á hinum enda
listans, sem komu mér á óvart, eins og
Guðmundur H. Garðarsson og Jón
Magnússon, sem gaf nú kost á sér í fyrsta
sinn.“
Albert var spurður um það hvort hann
teldi eðlilegt að Geir Hallgrímsson,
formaður Sjálfstðisflokksins, segði af
sér formennsku, í framhaldi af niður-
stöðum prófkjörsins: „Ég vil nú ekki tjá
mig sérstaklega um það. Slíkt verður
auðvitað að vera hans ákvörðun. Þetta
er ekki kosning eða skoðanakönnun á
formanni flokksins."
Albert var að því spurður hvort hann
teldi að sjöunda sætið hjá Sjálfstæðis-
mönnum yrði baráttusæti, í næstu Al-
þingiskosningum: „Ég skal nú ekki
segja, en þó finnst mér það ekki ólíklegt.
Þegar ég fór fyrst í framboð 1974, þá
vann ég það sæti og var kjörinn 12.
þingmaður Reykvíkinga. Ég tel það alls
ekki ólíklegt að við vinnum það sæti
aftur núna.“ -AB
Konur áttu ekki upp á pallborðið í prófkjöri sjálfstæðismanna:
„TfMASKEKKJA AB SVARA
EKKI KRðfllM KVENNA Nl)”
■ „Mér er gersamlega óskiljanlegt að
fólk kjósi Geir sem formann á landsfundi
með yflrgnæfandi meirihluta og vilji svo
ekki styðja við bakið á honum til að
verða alþingismaður,“ sagði Elín Pálma-
dóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu,
en hún varð í tólfta sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins sem fram fór um
helgina.
Um hlut kvenna í prófkjörinu sagði
Elín: „Ég held að það sé tímaskekkja
að svara ekki þeim kröfum sem konur
gera nú. En úrslitin í prófkjörinu eru
afgerandi. Þau sýna að fólk vill helst
hafa óbreytt ástand og að það vill ekki
láta ýta sér til að bæta hlut kvenna
umfram það sem var í flokknum þegar
hann hafði eina til tvær konur á þingi.“
Ragnhildur Helgadóttir, fyrrum al-
þingismaður, varð hlutskörpust kvenna
í prófkjörinu. Hún lenti í fimmta sæti á
eftir Ellert B. Schram og undan Pétri
Sigurðssyni. Gerist ekkert óvænt verður
að telja fimmta sætið öruggt þingsæti í
kosningum.
„Persónulega er ég mjög þakklát fyrir
þann stuðning sem ég fékk,“ sagði
Ragnhildur við Tímann. „í prófkjöri
veit maður aldrei fyrir fram hvað kemur
út en nú farpi ég mikinn hlýhug margra
flokksmanna í minn garð,“ sagði hún.
„Ég hefði kosið að sjá fleiri konur
ofarlega á listanum þótt óneitanlega sé
hlutur okkar meiri en síðast" sagði
Ragnhildur þegar hún var spurð álits á
hlut kvenna í prófkjörinu.
Um hlut Geirs Hallgrímssonar, sem
lenti í sjöunda sæti, sagði Ragnhildur
„Mér þykir leitt hver staða hans varð því
að ég ber til hans mikið traust sem
formanns flokksins. Hitt er annað mál
að ýmislegt getur komið fyrir í próf-
kjörum og þessi niðurstaða breytir engu
um það að við siglum áfram í kosningar
undir traustri forystu Geirs, sem kosinn
var með glæsibrag á síðasta landsfundi“
sagði Ragnhildur.
Bessí Jóhannsdóttir lenti í 11. sæti í
prófkjörinu. Hún sagði í samtali við
Tímann að sér fyndust niðurstöður
prófkjörsins mjög sérkennilegar.
„Ég er mjög óánægð með að aðeins
ein kona skyldi ná öruggu þingsæti og
tel það í mótsögn við þau orð sjálfstæðis-
manna að þeir vilji fleiri konur í
ábyrgðarstöður í flokknum. En hvað
sjálfa mig varðar er ég nokkuð ánægð.
Ég var önnur kvennanna í prófkjörinu,"
sagði Bessí.
-Sjó
Frambjódendur í prófkjöri sjálfstædismanna verja ótrúlega miklum
fjármunum í auglýsingar í málgögnum sínum:
HENSON AUGLÝSINGA-
KÖNGUR PRÚFKIÖRSINS
— þrettán frambjóðendanna kostudu meira til en 15 þús. kr.
■ Halldór Einarsson
■ Guðmundur H. Garðarsson
■ Ragnhildur Helgadóttir
■ Bessí Jóhannsdóttir
■ Nú þegar niðurstöður prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík liggja
fyrir, er fróðlegt að velta upp nokkrum
atriðum sem tengjast prófkjörsmálum
sjálfstæðismanna í Reykjavík. Tíminn
hefur kynnt sér hversu mikið hinir ýmsu
frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins,
hafa auglýst að undanfömu fyrir prófkjör-
ið, sem lauk í fyrrakvöld. Til þess að
geta geflð lesendum Tímans einhverja
hugmynd um hve miklu frambjóðend-
urnir og stuðningsmenn þeirra hafa
þurft að kosta til, þá yfirfór blaðamaður
Tímans, síður Morgunblaðsins og DV
allt frá laugardeginum 20. nóvember, til
mánudagsins 29. nóvember, en fram-
bjóðendurnir hafa einkum reynt að
skírskota til lesenda þessara blaða. Vora
dálksentimetrar auglýsinga hvers fram-
bjóðenda taldir, og heildarkostnaður
síðan reiknaður út. Til þess að forðast
allan misskilning, þá skal hér tekið fram,
að Baldvin Jónsson, auglýsingastjóri
Morgunblaðsins upplýsti blaðamann
Tímans um það í gær að Morgunblaðið
myndi að öllum hkindum veita öllum
frambjóðendunum sem auglýstu hjá
blaðinu 30% afslátt og Páll Stefánsson,
auglýsingastjóri DV sagði að DV veitti
öllum frambjóðendum, sama hvar í
flokki þeir standa, hámarksafslátt, sem
hann sagði vera 40%. Þetta verða
lesendur að hafa í huga, þcgar þeir renna
í gegnum listann hér að neðan, en hann
er reiknaður þannig út, að dáiksenti-
metraQöldi er margfaldaöur með verði
sentimetrans án afsláttar, þ.e. 78
krónur, og svo má reikna með ca. 35%
afslætti af því verði.
■ Pétur Sigurðsson
Þátttakendur í prófkjörinu voru 28
eins og kunnugt er, og þar af voru 22
frambjóðendur sem lögðu í einhvern
auglýsingakostnað. Hvorki formaður
flokksins, Geir Hallgrímsson, né vara-
formaður flokksins, Friðrik Sóphusson,
auglýstu í áðurnefndum blöðum, þá
daga sem könnunin nær til.
Halldór Einarsson reyndist í þessari
könnun vera auglýsingakóngur. Hann
hafði auglýst á 715 dálksentimetrum
dagblaðanna þessa daga, og á fullu verði
hefðu þær auglýsingar kostað 55.770
krónur. í öðru sæti var Guðmundur H.
Garðarsson og í þriðja, Ragnhildur
Helgadóttir. Fer hér á eftir tafla yfir þá
þátttakendur prófkjörsins sem kostuðu
meira en 15 þúsund krónum til auglýs-
inga þessa daga, og er fróðlegt að bera
saman svörunina á milli kostnaðar og
sætis í prófkjörinu, sem virðist vera
veruleg, ef auglýsingakóngurinn sjálfur,
Halldór Einarsson er undanskilinn
Samtals kosta þessar auglýsingar
464.334, og eru í dálksentimetrum 5953,
sem jafngildir 29.7 síðum. Það skal skýrt
tekið fram hér að þessi könnun er engan
veginn tæmandi, því hún nær ekki til alls
tímans sem auglýsingar hafa birst í
blöðum fyrir prófkjörið, og eins eru
útvarpsauglýsingar og eigin bæklingaút-
gáfa fyrir utan þessa könnun, en talsvert
hefur verið um hvort tveggja. Þessar
upplýsingar ættu þó að gefa góða
vísbendingu um það hversu mikið kosn-
ingabaráttan getur kostað.
Bessí Jóhannsdóttir, sem er ofarlega
á listanum hér að framan hafði ekki gert
ráð fyrir að barátta hennar í prófkjörs-
slagnum myndi kosta meira en um 30
þúsund krónur, Jón Magnússon hafði
áætlað að slagurinn myndi kosta um 60
þúsund krónur, en aðrir höfðu lítið gefið
upp um áætlaðan kostnað.
„Maður verður
einhvers staðarað
vera á toppnum“
Tíminn hafði í gær samband við
Halldór Einarsson, sem reyndist vera
auglýsingakóngurinn samkvæmt könnun
Tímans og spurði hann hvort hann teldi
að útlagður aulýsingakostnaður fyrir
prófkjörið hefði skilað honum þeim
árangri sem hann hefði vonast eftir:
„Maður verður einhvers staðar að
vera á toppnum," sagði Halldór léttur í
bragði. „Við sem erum vanir að auglýsa
upp ýmiskonar hluti, svo sem eins og
kappleiki, lítum á það sem eðlilegan hlut
að auglýsa mikið og stórt. Það var því
bara rútínumál að auglýsa upp einn
frambjóðanda. Hins vegar er vonlaust
að segja til um það hvort allur sá
atkvæðafjöldi sem ég fékk, er tilkominn
vegna aulýsinga eða ekki. Ég vil hins
vegar taka það fram að ég er geysilega
ánægður með mína útkomu í prófkjör-
inu. .
Eg er svo mikill nýgræðingur í
pólitík, að ég hef aðeins einu sinni
komið inn í húsakynni Sjálfstæðisflokks-
ins, Valhöll, og það var á sunnudaginn
Ég er því svo sannarlega hæst
ánægður með minn hlut í þessu próf-
kjöri.“ - Halldór sagði jafnframt að allur
kostnaður við þetta prófkjörsbrölt hefði
verið greiddur með frjálsum framlögum
stuðningsmanna sinna, þannig að þetta
hefði ekki kostað sig krónu.
-AB
Dálk- Fjöldi
Nafn sentimetrar auelysinga Krónur Sæti
Halldór Einarsson 715 7 55.770 ?
Guðmundur H. Garðarsson 662 18 51.636 8
Ragnhildur Helgadóttir 612 18 47.736 5
BessíJóhannsdóttir 591 10 46.098 11
PéturSigurðsson 560 16 43.680 6
EllertB. Schram 509 10 39.702 4
Jón H. Magnússon 461 8 35.958 9
Jónas Elíasson 368 11 28.704 ?
Geir Haarde 362 10 28.236 10
Albert Guðmundsson 334 5 26.052 í
Ester Guðmundsdóttir 327 9 25.506 ?
Elín Pálmadóttir 236 7 18.408 12
BjörgEinarsdóttir 216 8 16.848 ?
EUert B. Schram
■ Jón Magnússon
■ Jónas F.b'asson